Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 37

Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 37
MINNINGAR 37 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Stardal því þar var ávallt höfðing- lega tekið á móti gestum. Þegar smalamennskur í Þverárkots- og Hrafnhólalöndum í Esjunni voru urðu kynni okkar Magnúsar og Stardalsheimilisins meiri. Ár eftir ár minnist ég þess sem efsti smalamaður í Þverárdal að þegar maður var að missa féð austur í Skálafell þá á hárréttum tíma stóð þar maður með staf og hund í fyr- irstöðu, snéri öllu safninu í fyrir- fram ákveðinn farveg, maðurinn var Magnús í Stardal. Allar áhyggjur hurfu á braut og fagn- aðarbylgja fór um mann örþreytt- an. Safnið var rekið að í Hrafnhól- um og smalarnir fengu gjarnan kjötsúpu á Hrafnhólum eða í Star- dal. Þessar góðu minningar eru mér dýrmætar, svona gekk þetta í áraraðir meðan þessar fjallajarðir voru með sauðfjárbúskap. Þessa smaladaga voru þessar jarðir höf- uðból í eystri hluta sveitarinnar. Magnús og eiginkona hans, Þór- dís Jóhannesdóttir frá Heiðarbæ voru mætir bændur í sinni sveit. Magnús tók einnig nokkurn þátt í sveitarstjórnarmálum og sat í hreppsnefnd um skeið. En á seinni árum er eins og Stardalur hafi fjarlægst mið Kjalarnesið þó allar samgöngur hafi batnað, breyttar áherslur í sveitarstjórn- armálum voru orðnar og Magnús hvarf frá þeim þjóðfélagsskyldum og helgaði búskapnum alla sína krafta. Magnús sýndi félagsmál- um ávallt mikinn áhuga og sat í stjórnum félaga á vegum land- búnaðarins, allstaðar vel metinn og úrræðagóður. Með þessum skrifum finnst mér við hæfi að ég sem samferðarmaður, sveitungi og nágranni sýni minningu hans virðingu og beri fram þakklæti frá Kjalnesningum fyrir störf hans fyrir gömlu sveitina okkar. Traustir skulu hornsteinar hárra sala; í kili skal kjörviður; bóndi er bústólpi, bú er landstólpi, því skal hann virður vel. (Jónas Hallgrímsson) Kæra Þórdís, ég þakka þér ára- tuga kynni þar sem heimili ykkar var ávallt veitandi. Dýpstu samúð við fráfall Magnúsar. Jón Sverrir Jónsson, Varmadal. Ég varð þeirrar gæfu aðnjót- andi að þekkja Magnús Jónasson í rúm 20 ár, þó er tilfinningin sú að hann hafi alltaf verið til staðar. E.t.v. hefur mér orðið starsýnt á Stardal oftar en mig rekur minni til á leið á Þingvelli með fjölskyld- unni í æsku; vel má vera að ég hafi veitt bæjarstæðinu athygli og velt fyrir mér hvernig fólk byggi þennan bæ, – það eru getgátur einar. En staðreyndin er sú að ég stóð dag einn fyrir framan hið reisulega hús í Stardal og tók þéttingsfast í höndina á Magnúsi. Ég fékk vinnu hjá Þórdísi og Magnúsi, þá fyrstu á minni ævi, á kúabúinu Stardal á sextánda ári. Í augum þessara yndislegu hjóna var ég hinsvegar ekki sumar- starfsmaður heldur kaupamaður sem hafði fullorðinslega og fram- andi merkingu í huga ungs manns. Satt best að segja skildi ég ekki merkingu orðsins þá en geri það nú. Ég var fullgildur meðlim- ur þeirrar starfsemi sem þar fór fram og átti síðar eftir að upplifa mig sem meðlim í fjölskyldunni sem Stardalur óneitanlega inn- rætti öllum þeim sem þangað komu. Dagarnir voru fastmótaðir, eins og gengur og gerist á sveita- bæjum, hver og einn hafði sínum skyldum að gegna, en hver dagur var engu að síður eins og tími í kennslustofu þar sem þú leggst á koddann að kveldi einhvers vísari um lífið og tilveruna. Ef erfitt var að festa svefn var ríkulegt bóka- safn í næsta herbergi þar sem kynni mín af Guðbergi og Lax- ness hófust. Auðsýnda virðingu Magnúsar fyrir bæði mönnum og dýrum var erfitt annað en að tileinka sér. Það var, eins og vænta má af fleiri bæjum, þungt yfir þegar kom að sláturtíð og það er brennt í minnið þegar ég í fyrsta skiptið sá Magn- ús leiða dýr í átt að örlögum þess. Það var auðsýnt að þessi skref voru ekki stigin af neinni léttúð og sá dagur var merktur því að eitt- hvað nauðsynlegt en erfitt hafði átt sér stað. En viskuna var alls staðar að finna, hvort sem var í heymennsku, girðingarvinnu eða á göngu um landið hafði Magnús ætíð frá einhverju að segja. Það voru sagðar sögur af stöðum, steinum og fólki, og virðing Magn- úsar fyrir foreldrum sínum heitn- um skein í gegnum margar af þessum sögum. Það eftirminnilegasta við kynni mín af Magnúsi var þrátt fyrir allt þetta ekki kynni af einum manni heldur af ástföngnum og ham- ingjusamlega giftum manni sem deildi samveruleika með Þórdísi konu sinni. Líkt og með svo mörg okkar var það sú eining sem þú upplifðir í návist beggja eða hvors í sínu lagi. Og það er af þeirri ástæðu sem ég kem til með að upplifa þann mann sem Magnús var áfram, í gegnum samskipti við þá fróðu, sterku og hlýju konu sem Þórdís er. Við Ólína vottum Þórdísi, Jó- hannesi og Þórði okkar innileg- ustu samúð og hlökkum til að upp- lifa minninguna um hávaxinn, blíðan og vel meinandi mann í fólkinu hans og í hverjum steini og torfu í Stardal á göngu um land sem syrgir velunnara sinn og upp- alanda. Alexander Stefánsson. Kynni okkar af Magnúsi og Þórdísi í Stardal hófust vorið 2000, þar sem okkur vantaði beit fyrir hrossin okkar en okkur var bent á að í Stardal væri kannski beit að fá. Fór ég á þeirra fund og af gömlum og góðum sveitasið tók Magnús á móti mér á hlaðinu – frekar hár maður, eilítið lotinn í herðum með há kollvik og svip- urinn skarpur og grá augu sem horfðu rannsakandi á komumann, sem gerði grein fyrir sér. Bauð Magnús þá til eldhúss þar sem Þórdís bauð upp á kaffi. Í þessu eldhúsi í Stardal var yndislegt að vera, húsráðendur ákaflega gest- risin og skemmtileg. Um allt var rætt – ættir manna og störf, ferðalög um landið og stjórnmál enda þau bæði mjög vel lesin og fjölfróð. Ekki þurfti maður að vera lengi með Magnúsi til að átta sig á því af hverju bændur kusu hann til að sitja stjórnir samtaka þeirra, svo sem í Mjólkurfélagi Reykjavíkur og Sláturfélagi Suð- urlands en þar reyndi mikið á stjórnarmenn þegar félagið var næstum komið í þrot og skjótra ákvarðana var þörf. Þá var hart brugðist við og nauðsynlegt að hafa hugrakka menn í stjórn eins og Magnús. Miklar eignaskipting- ar fóru fram og skipt var um for- stjóra, sem situr enn og stýrir SS vel. Ég hef oft hugsað um þá bændur sem fæddir eru á fyrstu áratugum síðustu aldar, sem urðu að vinna nánast öll verk með handverkfærum og hestum. Það voru ekki allar ferðirnar með mjólk frá Stardal auðveldar á snjóþungum vetrum og mjólkin flutt á hestasleðum annaðhvort í Seljabrekku eða á Hraðastaði, til áframflutnings til Rvk og allt í 50 l brúsum. Það kom sér vel að Magnús var hraustur og hræddist hvorki válynd veður né ófærur. Traktorar og tæki þeim tengd komu ekki fyrr en eftir miðja öld- ina með örri þróun á öllum sviðum síðar. Faðir Magnúsar var Jónas bóndi í Stardal sem síðar tók við sem vegavinnustjóri af Guðjóni á Laxnesi, föður nóbelsskáldsins. Lagði Jónas meðal annars Þing- vallaveginn ásamt sínum flokki meira og minna með handverk- færum, hestvögnum og litlum vörubifreiðum og gistu menn hans í tjöldum í öllum veðrum. Magnús og bræður hans unnu með föður sínum í vegagerðinni þegar færi gafst frá búskapnum. Minntist Magnús oft á föður sinn og hans menn með mikilli virð- ingu. Foreldrar Magnúsar nutu mikillar virðingar samferða- manna sinna og var Stardalur fjölsótt heimili af ættingjum og vinum eins og var einnig í tíð Magnúsar og Þórdísar og nutum við Helga og börnin bæði mikillar gestrisni og vináttu við þau sem við munum aldrei gleyma og erum þakklát fyrir. Hefðum við viljað eiga þau saman mikið lengur. Þau voru svo samrýmd og horfðu svo fallega hvort á annað þegar þau voru að rifja upp liðna tíð og pöss- uðu upp á að allt stemmdi í frá- sögninni. Við kveðjum nú góðan vin og höfðingja í alla staði, með miklum söknuði og óskum honum og fjöl- skyldu hans guðs blessunar um alla tíð. Fylgir hér brot úr minn- ingarljóði um föður Magnúsar sem passar einnig vel við soninn. Horfinn er einn af sjónarsviði sterkur maður og stór í sniðum. Höfðingi sann- ur, hetja í lund minnisstæður og af mörgum dáður. Ásgeir og Helga. Magnús í Stardal kveður okkur nú eftir langa og starfsama ævi. Kynni Stardals- og Heiðarbæjar- fólks ná yfir kynslóðir, enda bæ- irnir hvor í sínum útjaðri Mos- fellsheiðar. Þau kynni treystust enn þegar Magnús og Þórdís Jó- hannesdóttir frá Heiðarbæ hófu saman búskap í Stardal, fyrir um hálfri öld. Heimsóknir milli bæj- anna voru tíðar, fjölskyldubönd og vinátta mikil og traust. Það voru ánægjulegar og uppbyggi- legar stundir þegar Magnús, Þór- dís, Jónas meðan hans naut við, Jóhannes og Þórður komu í heim- sókn að Heiðarbæ, og við að Star- dal. Umræðuefnin voru margvís- leg og mál rökstudd af þekkingu og yfirvegun. Allir nutu áheyrnar og athygli, ungir sem aldnir. Þegar kúabúskap lauk í Star- dal bauð Magnús okkur unga fólk- inu á Heiðarbæ tún til slægna, sem kom sér vel. Af þessu hlutust margar og góðar samverustundir með þeim hjónum. Heyskapur getur stundum tekið á taugarnar, einkum ef veður eru válynd eða vélar bila, nema hvort tveggja sé. Magnús hafði einstakt lag á að róa mannskapinn ef á móti blés, gjarnan með því að víkja um- ræðunni að öðrum áhugaverðum málefnum, eða með því að leiða okkur inn í þær aðstæður sem voru þegar lítil eða engin var vél- tæknin, og afköstin eftir því. Smám saman síaðist inn að það er í raun til lítils að stressa sig yfir óvæntum uppákomum í heyskap eða yfirleitt, vandamálin eru til að leysa þau. Magnús var laginn við að leysa úr ýmsum smábilunum – hann hafði jú séð þetta allt gerast áður. Magnús var mjög áhuga- samur um nýjar heyvinnuvélar sem og aðrar tækninýjungar í landbúnaði, skildi vel gildi þeirra en vó þær og mat af sinni inn- grónu skynsemi. Hann náði alltaf í okkur út á tún á matmálstímum, á hverju sem gekk. Næring og stutt hvíld skyldi vera regla en ekki afgangsstærð. Þetta voru engin venjuleg matarhlé, góður matur og nægileg næring. Ótelj- andi frásagnir af fólki og málefn- um er spönnuðu langt tímabil, skemmtun og ómetanlegur fróð- leikur sem setti hlutina í betra samhengi. Það mátti treysta því að ekki væri farið með fleipur og ætíð talað af virðingu um allt. Þessar stundir okkar í Stardal voru einnig mikilvægar börnum okkar, sem eiga margar góðar minningar um þau hjónin í Star- dal. Magnús var afar hlýr í viðmóti og glaðvær, skynsamur og yfir- vegaður, strangheiðarlegur og hreinskiptinn, traustsins verður. Hann var afar vinnusamur og ósérhlífinn. Búskapurinn var hans ævistarf, hann var snjall, úrræða- góður og framsýnn bóndi. Fram- lag hans til félagslegrar hags- munabaráttu bænda var líka ómetanlegt, og viðhorfið til mik- illar fyrirmyndar. Afrakstur verk- efnanna skipti máli, persónulegur frami ekki. Mestu höfðingjana er oft að finna meðal alþýðunnar. Magnús og Þórdís eiga einkar fallegan og frambærilegan hóp af- komenda sem ber þeim gott vitni, enda hafa þeirra miklu mannkost- ir flust tryggilega áfram og sam- heldni fjölskyldunnar mikil. Fyrir hönd fjölskyldu Bangsa og Steinunnar á Heiðarbæ 1 þökkum við Magnúsi samfylgdina og vottum fjölskyldu hans samúð okkar við fráfall hans. Steinunn, Jóhannes og Björg, Heiðarbæ. Kveðja frá skíðadeild KR Við fráfall Magnúsar koma fyrst í hug minningar frá áratuga farsælu samstarfi ábúenda Star- dals og skíðadeildar KR. Í frum- bernsku skíðaíþróttarinnar horfðu KR-ingar á þetta reisulega fjall í austri, Skálafellið, sem blasti við þeim frá höfuðborginni. Þetta fjall virtist ávallt bjartara og snjómeira en önnur. Þegar KR-ingar hófu að leggja leið sína þangað varð reyndin sú að ábú- endur jarðarinnar Stardals urðu strax vinir og velgjörðarmenn hópsins er sótti í fjallið. Árið 1935 þegar ákveðið var að reisa skíða- skála í fjallinu þurfti bæði áræðni og kjark til að reisa skála í 576 metra hæð, fjóra kílómetra frá þjóðvegi. Á þeim árum var lítil sem engin tækni sem hægt var að beita við slíkar aðstæður. Allt efni borið á höndum en klyfjahestar frá Stardal báru þyngstu hlutina. Í 20 ár áttu KR-ingar sinn draumastað í Skálafelli, litla nota- lega skálann, sem því miður varð eldi að bráð árið 1955. Við þau vatnaskil var ákveðið að reisa nýj- an skála á öðrum stað í fjallinu, þá reyndi virkilega á þá þætti sem tengdu KR-inga og ábúendur Stardals saman. Ákveðið var að byggja mun stærri skála og það sem meira var að nú var ætlunin að leggja veg að skálanum, sem ekki var lítið mannvirki. Þetta var rætt við feðgana Jónas og Magn- ús. Á þessum tíma var Jónas yf- irverkstjóri vegagerðar á svæðinu en Magnús að taka við Stardals- búinu. Eftir nokkurn tíma gerðist hið ótrúlega, Jónas er búinn að stika fyrir vegaslóða alla leið að hinu nýja skálastæði. Þannig voru öll þau samskipti er KR-ingar áttu sameiginleg með Stardals fólkinu. Eftir að Magnús og Þór- dís tóku við búsforráðum í Star- dal, deildu þau með okkur þeim áhugamálum að gera aðstæður til íþróttaiðkunnar í fjallinu sem bestar. Þegar skálabyggingu lauk og vegasamband var komið á við nýja skálann árið 1959 hófst upp- bygging með fyrstu alvöru skíða- lyftunni sem vígð var í febrúar 1961. Í framhaldi af því voru byggðar þrjár nýjar skíðalyftur á árunum 1973-1983. Allar þessar framkvæmdir voru unnar í fullu samráði og sátt við ábúendur Stardals, þau Magnús og Þórdísi. Það þurfti mikið traust og áræðni á milli aðila að breyta heilu fjalli úr beitilandi í íþróttasvæði. Þar mæddi mikið á velvild og vinsemd eigenda jarðarinnar, en þegar sest var niður með kaffibolla í stofunni í Stardal virtist ágrein- ingsmálum fækka með hverri kleinunni sem Þórdís bar á borð. Saga skíðaíþróttarinnar og saga fjölskyldunnar í Stardal er órjúf- anleg, þúsundir ungmenna hafa átt sín fyrstu skíðaspor í Skála- fellinu. Flestir ef ekki allir bestu skíðamenn landsins hafa dásamað tilveru þess. Við fráfall Magnúsar Jónasson- ar drjúpum við höfði og þökkum þessum mannvini af alhug alla þá gleði og gæfu er hann færði okkur skíðafólkinu í KR. Hafðu þökk fyrir allt. Við færum Þórdísi og öðrum ástvinum Magnúsar okkar inni- legustu samúðarkveðjur. Þórir Jónsson. Mig langar að segja nokkur orð um ömmu mína. Hana ömmu Skipó. Hún tók á móti mér í þennan heim með hlýjum og mjúkum höndum og þannig ætla ég að minnast hennar, mjúkrar og hlýrrar. Ég man hvað það var allt- af gaman að vera í Skipó, kósí stund eftir leikskólann að horfa á Strumpana með þykkt afateppi. Í Skipó var nefnilega til vídeótæki og það þótti mér merkilegt. Alltaf var mest spennandi að vera uppi á háalofti en ekki máttum við systur gramsa undir súð. Samt gerðum við það alltaf og fundum gamla varasalva úr hernum eða annað góss sem okkur fannst æðislegt. Aldrei vorum við skammaðar fyr- ir gramsið samt. Amma átti alltaf kex eða nammi og oft bakaði hún pönnsur með smákaffi í. Hún bjó líka til ótrúlegan grjónagraut með kringlóttum grjónum í og kallaði hann sagógrjónagraut. Amma var einstök og alltaf með húmorinn á réttum stað. Elsku amma mín, ég er þakklát fyrir tímann sem ég fékk með þér síðustu dagana og ég veit að þið afi haldið áfram að passa upp á okkur þó að við séum ekki lengur uppi á lofti í Skipó. Þín ömmustelpa, Hildur Máney. Elsku Erla frænka, mikið verð- ur nú tómlegt við eldhúsborðið hjá mömmu og pabba í Goðheim- unum, en ef ég skaust þangað inn í hádeginu sast þú oftar en ekki í sætinu við vegginn og hafðir kom- ið með nýbakað normalbrauð, sem er í algeru uppáhaldi hjá mér, eða nýbakað vínarbrauð sem var það besta sem þú fékkst þér með kaffinu. Aldrei var síminn þinn langt undan enda varðst þú að vita hvar fólkið þitt væri og varst ávallt tilbúin að hlaupa af stað ef einhver þurfti á hjálp þinni að halda. Þú varst svona eins og bjarnamamman okkar allra, vildir að allir væru sáttir og að allir hefðu það ávallt sem allra, allra best. Gunni bróðir orðaði það ein- mitt svo vel um daginn er hann sagði: „Hún Erla frænka okkar var svona eins og límið í fjölskyld- unni.“ Ég man alltaf þegar hann Hinni minn ákvað að flýta sér að- eins í heiminn og þú komst hrein- lega hlaupandi neðan úr bæ (úr jólainnkaupunum) til að taka á móti honum enda hafðir þú lofað mér að vera hjá mér á þeirri stóru stundu og við það skyldir þú standa. Þú varst svo stolt af öllum börnunum sem þú tókst á móti og þá ekki síst þeim sem þú áttir svo stóran part í. Það á eftir að taka okkur öll langan tíma að sætta okkur við að þú sért ekki lengur hérna hjá okkur en við vitum að þér líður vel með Sigfúsi frænda á nýjum stað. Við elskum þig öll og Erla Sigurðardóttir ✝ Erla Sigurð-ardóttir ljós- móðir fæddist í Reykjavík 12. mars 1934. Hún lést á Landspítala – há- skólasjúkrahúsi 19. september 2013. Útför Erlu fór fram frá Háteigs- kirkju 1. október 2013. munum geyma minningu um yndis- lega konu og ljósuna okkar allra. Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý og hógvær göfgi svipnum í. Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt og hugardjúpið bjart og stillt. (Jóhannes úr Kötlum) Ingibjörg, Hinrik og Aldís. Elsku besta vinkona okkar, Erla Sigfúsar, eins og hún var allt- af kölluð í okkar fjölskyldu, er fall- in frá úr krabbameini stuttu eftir greiningu. Okkur setur hljóð. Hvernig má það vera; hún sem var svo sterk alltaf, á fullri ferð að hjálpa öllum og vera til staðar fyr- ir alla fjölskylduna og vini. Hjá öll- um er missirinn mikill. Nokkrum dögum fyrir andlát sitt var hún að ákveða föt sem hún ætlaði að taka með sér til Spánar. Ferð sem hún var að fara með Ingu Dóru, Sím- oni og Alöntu. Hún tók fram kjól frá elsku Erlu frænku í Ameríku og sagði: „Þessi er góður í heitu veðri,“ og brosti blítt, falleg hugs- un rann um huga hennar. En það var víst önnur ferð sem beið þín, elsku Erla mín. Við, sem áttum þig að, bárum mikla virðingu og elsku til þín. Þú varst sönn, við gátum talað um alla hluti við þig, leitað ráða og fengið ráð, sem komu okkur vel eins og um börn þín væri að ræða. Blíða brosið þitt, góða skapið, glensið, alltaf tilbúin að gera skemmtilega hluti. Þú áttir góða og yndislega fjöl- skyldu sem umvafði þig og var þér allt. Systurnar þínar samrýndu og fjölskyldur þeirra, góðar vinkonur og fjöldann allan af fólki. Það er sama hvar á er litið; af þessum hópi varstu elskuð. Það er okkur hjónunum ómetanlegt að hafa fengið að kynnast öllu þessu góða fólki og eiga hlutdeild í þeim áfram. Mörg ferðalögin fórum við saman. Þú, Erla mín, Sigfús þinn, Erlingur minn og ég, Anna. Það voru oft mikil ævintýri, farið með stuttum fyrirvara. Stundum höfð- um við fjórar klukkustundir til að ákveða og fara til Lúxemborgar og keyra til Mónakó eða ferðir til Amsterdam og þaðan í óvissuferð- ir til ótal landa. Sumarbústaður- inn ykkar í Skorradal – þar var oft dvalið og grillað og haft gaman. Ótalmargar minningar eigum við, ekki síst frá því er við sátum við eldhúsborðið með gott kaffi og flatbrauð, einlægt spjall um lífið og tilveruna. Þú varst fölskvalaus, Erla mín, og góð, fannst alltaf það besta í öllu og öllum í kringum þig, enda löðuðust allir að þér. Þar áttu allir vísan stað og skjól. Þú varst einhvern veginn svo eilíf, eins og ég lít á móður mína. Það getur ekkert hent ykkur, en það kom eins og hendi væri veifað. Við þökkum hvern dag, hverja stund, hvert augnablik sem við áttum saman, Erla mín, og áttum þig að, það eru yfir fjörutíu ár. Þú ferð eins og drottning að hitta Sigfús, þinn heittelskaða. Biðjum að heilsa. Við vottum öllum þeim sem eiga um sárt að binda samúð. Góða ferð, elsku vinkona, Anna og Erlingur. Morgunblaðið birtir minningargreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Minningargreinar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.