Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 39

Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 39
MINNINGAR 39 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 ✝ Vigfús SkíðdalGunnlaugsson fæddist í Ólafsfirði 24. október 1937. Hann lést á dval- arheimilinu Horn- brekku 22. sept- ember 2013. Foreldrar hans voru Gunnlaugur Frímann Rögn- valdsson, f. 12. apríl 1902, d. 20. maí 1996 og Guðrún Sumarrós Vigfúsdóttir, f. 23. apríl 1908, d. 28. desember 1992. Systur Vigfúsar eru þær Guðlaug Rósa, f. 9. mars 1929, Soffía Petrea, f. 14. desember 1930 og Ragnhildur, f. 9. janúar 1933. Þann 16. nóvember 1963 kvæntist Vigfús eiginkonu f. 18. júlí 1990. 3) Selma, f. 6. apríl 1967, maki er Júlíus Geir Guðmundsson, f. 22. apríl 1965. Börn þeirra eru Heiðar Geir, f. 16. ágúst 1987, Vigfús Geir, f. 25. apríl 1989 og Jenný Júl- íusdóttir, f. 8. febrúar 1999. 4) Svala, f. 21. mars 1980, maki er Sigurgeir Ólafsson, f. 3. ágúst 1981, dóttir þeirra er Heiðbrá Hekla, f. 25. febrúar 2011. Eftir grunnmenntun lærði Vigfús, eða Skíði eins og hann var alltaf kallaður, trésmíði. Að námi loknu byrjaði hann sem lærlingur hjá mági sínum Gunnlaugi Magnússyni og fé- laga hans Klemens Jónssyni. Síðar varð hann meðeigandi fyrirtækis þeirra, Trévers, og þegar fram liðu stundir fram- kvæmdastjóri. Þeirri stöðu gegndi hann megnið af starfs- ævinni. Um aldamótin lenti Skíði í slysi og varð aldrei sam- ur eftir það. Útför Vigfúsar fór fram frá Ólafsfjarðarkirkju 28. sept- ember 2013. sinni, Hólmfríði Rósu Jóhanns- dóttur, f. 28. jan- úar 1944. Dætur þeirra eru: 1) Anna Rósa, f. 1. febrúar 1962, maki er Geir Hörður Ágústsson, f. 5. október 1962, dótt- ir þeirra er Sonja, f. 30. ágúst 1991, maki er Ottó Hólm Reynisson, f. 11. febrúar 1991. 2) Elva Björg, f. 15. október 1964, maki er Jóhann Örlygs- son, f. 1. júlí 1963. Börn þeirra eru Hólmfríður Rósa, f. 5. sept- ember 1984, maki er Egill Már Arnarson, f. 6. desember 1984 og sonur þeirra er Tindur, f. 20. júní 2010. Daníel, f. 9. júlí 1990, maki er Anna Árnadóttir, Elsku pabbi. Nú hefur þú kvatt þennan heim. Og eins sárt og það var að kveðja þig, þá veit ég að nú líður þér vel. Sú hugsun að nú hvílir þú á friðsælum stað hefur veitt mér huggun á þessum erfiðu tímum. Barnið í mér sér fyrir sér fal- lega mynd af þér í himnaríki þar sem foreldrar þínir og fleiri ást- vinir taka á móti þér með faðm- lögum og bros á vör. Og ekki má gleyma henni Birtu, litla hundin- um sem þér þótti svo vænt um, sem kemur fagnandi til eigandans sem var henni svo góður. Ég er svo þakklát fyrir að hafa átt þig að, betri föður hefði ég ekki getað óskað mér. Þú áttir alltaf skemmtilegar sögur að segja mér og aldrei mótmæltir þú þegar ég dró þig eldsnemma á fætur til að horfa með mér á teiknimyndir. Man eftir að hafa horft með þér á Þrumukettina, sem voru í miklu uppáhaldi hjá mér, og þú áttir meira að segja þína uppáhaldspersónu sem var köttur. Svo hermdir þú eftir hon- um við mikinn fögnuð hjá mér. Í návist þinni var aldrei langt í hlát- urinn og á ég ófáar minningar þar sem ég veltist um af hlátri yfir fyndna pabba mínum. Að fara með þér í búðir var einnig algjör draumur fyrir litlu pabbastelp- una, því að þú hafðir svo gaman af því að dekra við mig. Þú varst alltaf til í að fíflast og segja brandara til að fá mig og vinkonur mínar til að hlæja og mun ég seint gleyma gælunöfn- unum sem þú gafst okkur, en þau voru: Silla Lús, Gósí Rolla, Tobba Trunta og Jósefína Nautól. Einn- ig áttir þú erfitt með að muna strákanöfn og voru því vinir mínir jafnt sem starfsmenn þínir á Tré- veri yfirleitt nefndir Purri, Durri og Lurri. Þetta vakti hvarvetna mikla kátínu viðstaddra. Og ófá voru skiptin sem sagt var: „Já, hann Skíði á fáa sína líka.“ Og eru þau orð vissulega sönn, þú varst einstakur, elsku pabbi minn. Frumsamin lög fengum við einnig oft að heyra hjá þér og ætla ég að leyfa mínu uppáhaldslagi að fylgja hér með: Jéjéjé, rúrúrú, sasasa, lemolemolem, það búa menn í Jeee-rúú-sa-lem. Á unglingsárunum er það mér minnisstæðast þegar þú kenndir mér að spóla af stað í öðrum gír á svelli og að þruma niður í fjórða gír til að tæta fram úr hægfara bílstjórum, þú varst jú yfirleitt að flýta þér örlítið. Og þá fannst mér ég auðvitað eiga langflottasta pabbann, sem þú að sjálfsögðu varst. Hjá flestum börnum og dýrum varst þú í algjöru uppáhaldi og segir það ýmislegt um þann ynd- islega mann sem þú hafðir að geyma. Umfram allt þá elskaðir þú mig skilyrðislaust og hugsaðir ávallt vel um mig. Ég sakna þín, elsku pabbi, og sendi þér mína hinstu kveðju með ást og hlýju í hjarta. Svala. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst. Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá. Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær. Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt. Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman. Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er svo sár. En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt. En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú. Því þar getur hann vakað yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda. Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth) Elsku afi, þetta ljóð er til þín frá okkur afabörnunum. Þín Heiðbrá Hekla. Elsku afi Skíði. Ég á bágt með að trúa því að þú sért farinn, en um leið gleðst ég yfir þeim tíma sem ég fékk með þér. Það var alveg sama hvað það var mikið að gera hjá þér, alltaf gafstu þér nægan tíma til þess að gera allskonar kjánastrik með mér. Með þér hafði ég aldrei áhyggj- ur og naut þess að vera barn. Minningarnar um þig eru svo ótal margar og skemmtilegar og ég mun varðveita þær í hjarta mér. Margar bílferðirnar fórum við saman og þá var sungið hátt og snjallt, meðal annars: Je-je-je rú-rú-rú sa-sa-sa lem-og-lem-og-lem það búa menn í Jerúsalem. Birta hundurinn „okkar“, þú sagðir við mig að ég ætti skottið og smá í vinstri afturlöppinni á henni, fór einnig oft með okkur á rúntinn. Oftar en ekki var þá komið við í sjoppunni og annað- hvort keypt pylsa eða ís í vél handa henni. Síðan fórum við með hana að gömlu steypustöðinni þar sem hún fékk að hlaupa góðgætið af sér. Það sem þú dekraðir við hana, betri eiganda hefði hún ekki getað eignast. Margar minningarnar tengjast sumarbústaðnum okkar í Lunds- skógi. Eitt sinn kom ég hlaupandi til þín inn í bústaðinn því ég hafði lent í geitungaárás. Að sjálfsögðu tókst þú upp hanskann fyrir mig, raukst út vopnaður tennisspaða og lést þá finna fyrir því. Þetta endaði þó ekki vel þar sem þú fékkst stungu milli augnanna eftir hetjulega baráttu. Á hverju ári fórum við í hreið- urleit og mesta fjörið var ef við fundum rjúpuhreiður því þau voru best falin. Eins fórum við saman um allt og gróðursettum tré og þú sagðir mér margar sög- urnar á meðan. Næstu ár fylgd- umst við svo með trjánum vaxa og dafna og þú sagðir alltaf við mig að þegar þú færir yfir móðuna miklu þá skyldi ég halda áfram að hugsa um þau. Ég man að þegar þú sagðir þetta þá svaraði ég þér því að þú værir ekki að fara neitt og við myndum halda áfram að hugsa um trén saman. Aldrei átti ég von á að þurfa að kveðja þig svona fljótt. Elsku afi, þú varst mér svo góður vinur, vildir alltaf allt fyrir mig gera og hafðir áhuga á öllu sem ég tók mér fyrir hendur. Ég hugsa alla daga til þín með bros á vör. Elsku afi, ég kveiki á kerti fyrir þig og trúi því að þú haldir áfram að vernda mig. Nú kveð ég þig og þakka fyrir allar góðu stundirnar sem við átt- um saman. Minning þín lifir í hjörtum okkar. Ég elska þig, afi Skíði. Þín Sonja. Elsku afi minn. Flestar minningar mínar um þig á ég úr skóginum. Það var kraftur í þér. Þú varst alltaf svo iðinn, ef þú varst ekki að slá gras- ið þá varst þú að saga niður ónýt tré sem þú nýttir svo í eldivið fyrir kamínuna. Þú áttir það til að vera heldur duglegur að kynda og voru þau ófá skiptin sem hitinn í bú- staðnum náði góðum spánarhita og fólk þurfti að flýja út til að kæla sig. Áður en að kamínan kom til sögunnar skelltir þú ónýtu trjánum á pallbílinn, brunaðir með þau niður á eyrina þar sem þú fleygðir þeim í hrúgu sem síðar myndaði hina árlegu brennu skógarins. Ég man sérstaklega vel eftir því hvað okkur krökkun- um þótti gaman þegar þú leyfðir okkur að sitja aftan á pallbílnum í þessum ferðum þínum. Þú sagðir okkur að halda okkur fast og þeyttist með okkur niður á eyrina. Þú sagaðir ekki einungis niður ónýt tré í skóginum heldur varst þú líka iðinn við að gróðursetja. Ég man vel eftir því að hafa hjálp- að þér við að gróðursetja pínulítil barrtré á víð og dreif um Skíða- staði. Þessi tré hafa stækkað mik- ið með árunum og það var virki- lega gaman að sjá hvað tréin höfðu stækkað rosalega mikið núna þegar ég sá þau núna síðast. Ég kíkti einnig á „Bjórtréð“ sem þú gafst mér og rifjaði upp þegar við hengdum bjórinn handa pabba upp í tréð. Þér datt svo margt skemmtilegt í hug. Þú áttir alltaf góðar sögur og er mér minnisstætt þegar þú varst að segja yngri krökkunum á ættar- mótinu í Lundsskógi frá öpunum sem bjuggu í skóginum. Það var mikil skemmtun að fylgjast með börnunum hlusta á þig og gapa. Hófst svo mikil leit að öpunum og brutust út mikil fagnaðarlæti þeg- ar tveir apar komust í leitirnar, einn var blár og annar bleikur. Í skóginum var ekki bara leitað að öpum heldur einnig hreiðrum. Þú smíðaðir lítil hús og festir þau upp í tré í þeirri von um að þrestir myndu gera sér þar hreiður. Þrestirnir voru nú heldur latir við að nýta sér góðmennsku þína en ég man vel eftir því þegar geit- ungar bjuggu sér til bú í einu húsanna. Þú áttir ráð við öllu. Þú bjóst til risastóran kyndil og fór- um við saman, þú og ég. Þú kveiktir í búinu og svo tókum við spretthlaup aftur inn í sumarbú- stað. Við þurftum sko engan meindýraeyði. Okkur varð þó að ósk okkar að finna hreiður og stendur þá upp úr rjúpnahreiðrið sem hann Dymbill fann. Rjúpan var svo gæf að hún leyfði okkur að halda á ungunum. Það var mikið ævintýri. Á Ólafsfirði fórum við í vél- sleðaferðir, í fjöruferðir eða skruppum niður á Tréver þar sem ég hjálpaði stundum til við að sópa. Það voru ófá skiptin sem þú hvíslaðir að mér: „Komdu hérna aðeins og finndu mig“. Þú dróst mig afsíðis og laumaðir einum, tveimur þúsundköllum í vasann minn og sagðir mér að kaupa mér eitthvað fallegt. Það var mjög erfitt að kveðja þig afi. Ég sakna þín mikið, sér- staklega þegar ég hugsa til þess að næst þegar tekinn verður Kani í sumarbústaðnum verður þú ekki þar, sofandi í sófanum yfir tíufréttunum, með einn eða jafn- vel tvo hunda sofandi til fóta. Hvíld þú í friði, afi minn, ég elska þig. Hólmfríður Rósa Jóhannsdóttir. Ég varð hugsi við að heyra að vinur minn, hann Skíði, væri dá- inn, þessi atorku- og dugmikli maður. Hugurinn leitaði til baka og ég sá hann fyrir mér að stjórna strákunum á Tréver. Það var byrjun sumars og verið að slá upp fyrir grunni á nýju einbýlishúsi eða steypa plötuna í parhúsi. Skíði var allt í öllu á þeim vett- vangi og fékk hópinn til að vinna hratt og örugglega. Ofurseldur kappi sínu gleymdi hann stund- um hvað hver og einn hét og í flýti sínum hafði hann ekki önnur ráð en að kalla – þú þarna „durri“ eða „purri“ – og hlutaðeigandi hlýddi. Þegar leið að hausti, og einhver húsanna voru orðin fokheld, var að sjálfsögðu haldið upp á það með tilheyrandi reisugilli. Mann- skapurinn endaði stundum uppi á lofti á bílaverkstæðinu hjá mér en þar drukkum við strákarnir gos og horfðum á góðar grínmyndir. Flesta virka morgna kom Skíði við í Skúlakaffi en þar voru mál- efni bæjarins brotin til mergjar og að sjálfsögðu sýndist sitt hverjum. Skíði var oftar en ekki höfuðpaurinn í samræðunum. Það gat verið erfitt að hætta þeg- ar leikurinn stóð sem hæst. Þá sætti Skíði gjarnan lagi, stóð upp, gekk að dyrunum, þrumaði nokk- ur vel valin orð, snaraðist síðan út og slengdi hurðinni á eftir sér. Þannig átti hann alltaf síðasta orðið. Mér þykir afar vænt um að hafa fyrir nokkru átt góða stund með Skíða og getað þakkað hon- um, þessum frumkvöðli sem hann sannarlega var, alla þá hjálp og mikla traust sem hann sýndi mér alla tíð. Sjáumst síðar, kæri vin- ur. Ég færi Lillu, börnum þeirra og fjölskyldum mínar dýpstu samúðarkveðjur. Skúli Pálsson. Vigfús Skíðdal Gunnlaugsson Hjartans vinur minn, Siggi Sigmunds, er horfinn á braut. Heyrt hafði ég um manninn á mínum yngri árum, séð hann til- sýndar en svo fyrir mikla lukku lánaðist mér að hafa Sigga til trausts og halds í fjallaferð á hestum árið 1983. 10-12 daga ferð með góðum hópi félaga. Féll hann inn í hópinn eins og flís við rass strax á fyrsta degi. Frábært var að hafa Sigga með á fjöllum. Bæði var að af- réttur Hruna- og Tungnamanna var nýr til yfirreiðar fyrir mig. Ég hafði verið þar á rjúpu en ekki riðið um. Siggi þekkti þar hverja þúfu og mér heyrðist sem hann þekkti líka alla þá sem þar Sigurður Sigmundsson ✝ Sigurður Sig-mundsson fæddist í Syðra- Langholti í Hruna- mannahreppi 16. mars 1938. Hann lést á heimili sínu á Flúðum 24. sept- ember 2013. Útför Sigurðar fór fram frá Skál- holtsdómkirkju 4. október 2013. höfðu farið um. Hann var hafsjór af sögum og var með endalausar tilvitn- anir. Hann hafði góðan húmor og allt varð þetta að skemmtisögum. Jökulfallið og Sandá voru farartálmar og kofar á afrétti mér óþekktir. Í þessari ferð hófust okkar kynni. Tími á baki er nægur til spjalls og vangaveltna. Bara það væru fleiri eins og Siggi. Í hvert sinn sem við hittumst síðar á lífs- leiðinni innti hann eftir líðan, heilsu, framgangi barnanna og högum mínum. Þetta gerði Siggi öllum sínum vinum. Alltaf um- hugað, með áhuga, mundi nöfn á sonum og dætrum svo ekki sé minnst á hrossin. „Er hann óhalt- ur hann Hrókur?“, „Hvernig fór með spattið í Högna?“ og „Er Sörlasonurinn búinn að kristna þig, Óli?“ Hrossafræðin upp á 10. Ekki skemmdi fyrir að við átt- um hesta sem voru bræður, báða undan Gulltopp frá S-Reykjum. Fákur hét hann hjá Sigga, Loft- ur hjá mér. Á svoleiðis hrossum eru allir vegir færir. Að eða frá hestamannamótum, móti safni að hausti eða einfaldlega á fögrum sumarkvöldum. Hann var snill- ingur hann Siggi gamli. Vin- margur var hann og er mér til efs að annað eins safn eigi nokkur maður. Við allt þetta fólk hélt hann sambandi, leit inn eða hringdi. Siggi hlaut gælunafnið „gamli“ snemma á ævinni, reynd- ar sem ungur maður. Mér fannst það passa honum vel. Hann var yfirvegaður, ráðagóður, reynslu- mikill og miðlaði þekkingu sinni eins og hinn „vitri öldungur“. Fór því vel á með okkur frá fyrstu tíð. Siggi var minn lærifaðir þegar ég stundaði ferðahestamennsku af kappi og alltaf var hann áhugasamur um gengi mitt og hrossanna. „Hvar fórstu um, hvern hittir þú, hvernig stóðu hestarnir sig?“ Siggi bar hag vina sinna fyrir brjósti, ekki framhleypinn en traustur maður og ráðagóður. Í gegnum samband mitt við Sigga kynntist ég þeim hluta stórfjölskyldunnar sem býr í Hrunamannahreppi og fann hvað sterk og samheldin fjölskylda getur áorkað og hversu dýrmætt það er öllum að eiga trausta og gegnheila vini í þessu lífi. Mínar innilegustu samúðar- óskir til þeirra allra. Ólafur Schram. Í morgunljómann er lagt af stað. Allt logar af dýrð, svo vítt sem er séð. Sléttan, hún opnast sem óskrifað blað, þar akur ei blettar, þar skyggir ei tréð. – Menn og hestar á hásumardegi í hóp á þráðbeinum, skínandi vegi með nesti við bogann og bikar með. Betra á dauðlegi heimurinn eigi. Sá drekkur hvern gleðinnar dropa í grunn, sem dansar á fákspori yfir grund. Í mannsbarminn streymir sem aðfallsunn af afli hestsins og göfugu lund. Maðurinn einn er ei nema hálfur, með öðrum er hann meiri en hann sjálfur. – Og knapinn á hestbaki er kóngur um stund, kórónulaus á hann ríki og álfur. Ef inni er þröngt, tak hnakk þinn og hest og hleyptu á burt undir loftsins þök. Hýstu aldrei þinn harm. Það er best. Að heiman, út, ef þú berst í vök. Það finnst ekki mein, sem ei breytist og bætist, ei böl sem ei þaggast, ei lund sem ei kætist við fjörgammsins stoltu og sterku tök. Lát hann stökkva, svo draumar þíns hjarta rætist. (Einar Benediktsson.) Siggi í Syðra var hestamaður af lífi og sál. Hann átti stóran þátt í uppgangi hestamennsk- unnar hér á landi og var ötull blaðamaður og ljósmyndari, sem ferðaðist innanlands og ut- an vegna vinnu sinnar og ástríðu fyrir íslenska hestinum. Félagsmenn í Landssambandi hestamannafélaga (LH) hring- inn í kringum landið nutu skrifa hans og ljósmynda af hestum og hestamönnum um áratugaskeið og sá menningararfur sem hann skapaði á sínu æviskeiði er dýr- mæt heimild um sögu hestsins í menningu, íþróttum og lífsstíl þjóðarinnar. Siggi lagði ávallt sitt af mörkum og hnyttinn var hann og góður vinur. Hann hvatti unga fólkið áfram í hesta- mennsku sinni og ungum ljós- myndurum var hann stoð og stytta. Siggi var fyrirmyndar- félagi og hans starf í félagsmál- um hestamanna var dýrmætt og óeigingjarnt. Fyrir það hlaut hann gullmerki LH og sérstök heiðursverðlaun sambandsins árið 2009. Hestamenn kveðja Sigga með mynd í huga, þar sem hann stendur við hringvöll og tekur myndir af hestum í keppni. Bestu þakkir, Siggi, fyrir þitt mikla starf til handa hesta- mönnum og hestamennskunni í landinu, menningararfsins verður hægt að njóta um ókom- in ár. Fyrir hönd Landssambands hestamannafélaga, Hilda Karen Garðarsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.