Morgunblaðið - 11.10.2013, Qupperneq 40
40 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Smáauglýsingar
Dýrahald
Gotti er 10 vikna gamall Shih Tzu
strákur sem leitar að frábæru fram-
tíðarheimili. Yndislegur og ljúfur,
heilsufarsskoðaður og ættbókar-
færður hjá HRFÍ. Foreldrar eru
sýningameistarar, skapgóðir og heil-
brigðir. Upplýsingar á Artelino.net og
í síma 868 7448 (Anja).
Húsgögn
Barnahúsgögn
Þið finnið okkur á Facebook
undir Litla Trévinnustofan eða í
síma 845-4096.
Sumarhús
Sumarhús - Gestahús
- Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla -
Endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892 3742 og 483 3693,
www.tresmidjan.is
Óska eftir
KAUPUM GULL - JÓN & ÓSKAR
Kaupum allt gull. Kaupum silfur-
borðbúnað. Staðgreiðum. Heiðar-
leg viðskipti. Aðeins í verslun okk-
ar Laugavegi 61. Jón og Óskar,
jonogoskar.is - s. 552-4910.
KAUPI GULL!
Ég, Magnús Steinþórsson gullsmíða-
meistari, kaupi gull, gullpeninga og
gullskartgripi. Kaupi allt gull, nýlegt,
gamalt og illa farið.
Leitið til fagmanns og fáið góð ráð.
Uppl. á demantar.is, í síma 699 8000
eða komið í Pósthússtræti 13 (við
Austurvöll).
Verið velkomin.
Ýmislegt
Munið kirkjukaffi
Súgfirðingafélagsins eftir messu í
Bústaðakirkju sunnudaginn
13. október. Tekið verður á móti
meðlæti eftir kl. 13.00 sunnudag.
Stjórn Vlsj.
Hlýir og mjúkir dömuinniskór
með góðum sóla. Stærðir: 36 - 42.
Verð: 6.950.
Komdu og líttu á úrvalið
hjá okkur!
Sími 551 2070.
Opið mán. - fös. 10 - 18,
laugardaga 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.mistyskor.is
Erum einnig á Facebook.
Bílaþjónusta
Hjólbarðar
Kebek - Nama heilsársdekk
205/50 R 17 kr. 18.900.
235/45 R 17 kr. 21.390.
225/55 R 17 kr. 23.900.
225/65 R 17 kr. 24.290.
Kaldasel ehf.,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
sími 544 4333.
Kebek neglanleg vetrardekk
tilboð
185/65 R15 13.900 kr.
185/55 R 15 15.900 kr.
195/65 R 15 14.800 kr.
205/55 R 16 15.900 kr.
205/60 R 16 18.900 kr.
215/65 R 16 18.900 kr.
225/65 R 17 24.900 kr.
Kaldasel ehf., dekkjaverkstæði,
Dalvegi 16 b, Kópavogi,
sími 5444 333.
Húsviðhald
Aukablað um bíla fylgir
Morgunblaðinu alla þriðjudaga
Hinn 11. október
2013 hefði faðir
minn orðið 100 ára
hefði hann fengið
að lifa. Mig langar
að minnast hans
með nokkrum lín-
um. Hann hét fullu
nafni Hjálmar Ósk-
ar Magnússon og
var fæddur í Ak-
urhúsum í Garði
11. október árið
1913. Foreldrar hans voru
Magnea Ísaksdóttir og Magnús
Sigurðsson sem lengst af
bjuggu á Nýjalandi. Pabbi átti
tvo bræður, Sigurð og Magnús,
þeir áttu líka hálfbróður sem
hét Ásgeir Magnússon en hann
fórst með togaranum Jóni
Ólafssyni RE í stríðinu. Ég er
fæddur á Nýjalandi og ólst þar
upp og kynntist því pabba vel
þegar ég komst til vits og ára.
Pabbi var fyrst og fremst sjó-
maður, hann var lærður véla-
maður og var mikið í burtu frá
heimilinu á fyrstu búskaparár-
um sínum með mömmu, þá að-
allega þegar bátarnir voru á
síldveiðum fyrir Norðurlandi.
Mamma hét Sólveig Sigrún
Oddsdóttir, heiðursborgari
Garðs, og átti afmæli sama dag
og pabbi og hefði því orðið 97
ára 11. okt.
Minningar um pabba eru
mjög góðar, það sem er mér er
minnisstæðast frá fari hans er
hvað hann bar mikla umhyggju
fyrir heimilinu og okkur krökk-
Hjálmar Óskar
Magnússon
unum alla tíð.
Pabbi rak bíla-
verkstæði í bragga
við Nýjaland í ein-
hver 14-15 ár það-
an á maður marg-
ar góðar
minningar, frá því
að ég fékk fyrsta
hjólið mitt, þá
þurfti oft að dytta
að ýmsu og var
ekki ónýtt að hafa
heilt bílaverkstæði til þess. Ég
man ekki eftir því að pabbi hafi
nokkuð verið að argast í manni
þótt maður væri að þvælast
inni á verkstæðinu. Þannig var
hann bara. Við pabbi unnum
mikið saman alveg frá því ég
byrjaði að vinna. Ég byrjaði til
dæmis með honum til sjós árið
1957 á bát sem hann átti með
Sigga bróður sínum. Síðan
eignaðist hann sinn eigin bát
sem við vorum saman á. Árið
1965 stofnuðum við pabbi og
mágur minn Ólafur Ágústsson
ásamt okkar mökum útgerðar-
og fiskverkunarstöðina Ásgeir
hf. sem var í rekstri í yfir 20
ár.
Pabbi var mikill og gætinn
sjómaður og lærði ég mikið af
honum, sem varð til þess að
mín sjómennska gekk áfalla-
laust fyrir sig. Ég á margar og
góðar minningar um pabba sem
ég geymi með sjálfum mér.
Blessuð sé minning foreldra
minna.
Ásgeir M. Hjálmarsson.
Aldarminning
Ég man enn
þann dag þegar Brynja systir
kom með Örnólf kærastann sinn
heim á Háholt 32 í fyrsta sinn.
þau leiddust svo falleg og ham-
ingjusöm og þannig hef ég alltaf
séð þau, samhent og falleg hjón.
Addi mágur minn var fljótt orð-
inn einn af okkar fjölskyldu svo
traustur, glaðlyndur og hjálp-
samur. Í gegnum lífið hefur
hann ávallt verið til staðar, með
opinn faðm í erfiðleikum, glað-
legur og skemmtilegur á gleði-
stundum. Hann sagði skemmti-
lega hnyttnar sögur, var
söngelskur, hann kunni og
mundi til dæmis öll lögin hennar
Brynju því ef hún hikaði við að
rifja upp var hann samstundis
kominn með lagið við textann
svo allir tóku undir og mikið var
gaman. Á svona stundum sá ég
þau fyrir mér sitja saman tvö,
Brynju að spila á gítarinn sinn
og þau að æfa nýja lagið og text-
ann sem hún var búin að semja.
Hann Addi var góður og nær-
gætinn maður og traustsins
verður hvar sem var enda
gegndi hann mikilli ábyrgðar-
stöðu sem útibússtjóri banka og
var vel liðinn af öllum. Sem mik-
ill félagsmálamaður gegndi hann
æðstu embættum sem hann innti
af hendi með mikilli reisn með
sína traustu konu sér við hlið.
Það varð stórt skarð í fjölskyldu-
röðinni okkar þegar Addi kvaddi
þetta líf og hvað þá í hans nær-
Örnólfur Grétar
Þorleifsson
✝ Örnólfur Grét-ar Þorleifsson
fæddist á Ísafirði
19. október 1942.
Hann lést á Sjúkra-
húsi Akraness 20.
september 2013.
Útför Örnólfs fór
fram frá Akra-
neskirkju 27. sept-
ember 2013.
fjölskyldu sem samt
er svo sterk og
samhent eins og
þeim er lagið. Kæri
Addi minn, ég trúi
því að þegar okkar
tími kemur hitt-
umst við öll hinum
megin.
Af öllum þeim gæðum
sem okkur veitir vit-
urleg forsjá til ánægju-
auka er vináttan dýrmætust.
Elsku Brynja systir mín, Þor-
leifur, Árný og Þórunn, ég votta
ykkur öllum, elsku börnunum
ykkar og mökum mína dýpstu
samúð og bið guð að umvefja
ykkur með kærleiksljósi sínu.
Fanney Lára.
Hann Addi okkar er látinn.
Fyrstu kynni okkar Örnólfs
mágs míns voru um vetrartíma í
vonskuveðri þegar Brynja systir
mín hugðist kynna mannsefnið
sitt fyrir fjölskyldunni. Sökum
veðurofsans var ófært sjóleiðina
til Akranes og illfært fyrir Hval-
fjörð. Faðir okkar Einar brá því
á það ráð að panta leigubifreið
frá Reykjavík til Akraness undir
þau hjónaefnin, því hann vildi
ekki una því að máttarvöldin
kæmu í veg fyrir, eða seinkuðu
þessari fyrstu heimsókn vænt-
anlegs tengdasonar. Mér er það
afar minnisstætt þegar ég stóð 9
ára gömul á tröppunum heima í
bláu peysusetti og skotapilsi og
fylgdist með þeim Adda og
Brynju stíga út úr bifreiðinni og
ganga heim að húsinu okkar við
Bjarkargrund 20. Mér varð star-
sýnt á þennan verðandi mág
minn, háan og myndarlegan. Það
má með sanni segja að á því
augnabliki hafi orðið til þau
sterku tengsl, sem tengdu okkur
ætíð síðan. Fáum árum eftir
þetta flytja þau Addi og Brynja
til Akraness frá Ísafirði með sitt
fyrsta barn Þorleif, þá kornung-
an. Íbúðin sem þau höfðu leigt
var ekki tilbúin, og því bjuggu
þau heima hjá okkur í nokkra
mánuði. Þessi tími er ekki síður
minnisstæður. Minn kæri mágur
var óbilandi við að hjálpa mér
með heimanámið og um leið að
segja mér allskyns tröllasögur,
sem ég meðtók opinmynnt og
saklaus í hjarta. Þegar fullorð-
insárunum var náð og ég sjálf
búin að stofna fjölskyldu, héld-
ust þessi góðu tengsl og áttum
við Kjartan og börnin okkar
margar samverustundir með
þeim og þeirra börnum. Upp í
hugann koma kosninganætur
með fárra ára millibili, þegar
þeir svilarnir enduðu með því að
sofna öxl í öxl síðla nætur, þegar
svefninn tók yfirhöndina af hin-
um pólitíska eldmóði kosninga-
vökunnar. Margt fleira mætti
nefna, fjölmargar skemmtilegar
helgar í sumarhúsinu á Arnar-
stapa. Eitt sinn hugðum við á
helgardvöl í Reykholti í Borg-
arfirði með allan barnahópinn.
Við Kjartan mættum til þeirra á
Skagann síðla föstudags og var
förinni heitið í Reykholt um há-
degisbil á laugardegi. Eftir
morgunverð á laugardag var
áformað að leggja af stað. Addi
og Kjartan pökkuðu farangri í
bíla og tilkynntu að brottför yrði
innan skamms. Þá vildi svo til að
Brynja var að syngja og spila
fyrir mig nýtt lag og texta,sem
hún hafði samið. Þeir Addi og
Kjartan sáu fljótt að við vorum
ekki á faralds fæti akkúrat þá
stundina, þannig að þeir fóru aft-
ur út og ákváðu að þvo bílana, ég
held að þeir hafi þvegið bílana
þrisvar þennan dag. Þessi frá-
sögn er til marks um þá einstöku
léttu lund, sem einkenndi mág
minn Örnólf og þá miklu þol-
inmæði sem honum var í blóð
borinn. Til hinstu stundar var
hann mér sami ljúfi, káti og ein-
lægi mágurinn og birtist mér
óveðursdaginn forðum.
Kæri mágur, nú á þessum
tímamótum þegar maður finnur
svo sárt fyrir söknuði og trega í
brjósti, þá brjótast endurminn-
ingarnar fram, endurminningar
um svo ótal ótal margar ánægju-
stundir. Þessar endurminningar
duga best til að víkja þeim sama
trega frá um stund og hugurinn
fyllist þakklæti fyrir að hafa átt
þína vináttu alla þessa áratugi.
Við Kjartan og börnin okkar,
sendum þér, kæra systir, börn-
unum þínum og fjölskyldum
þeirra, okkar innilegustu samúð-
arkveðjur.
Sólveig.
Á haustdögum árið 2002 hitti
ég í fyrsta sinn Örnólf Grétar
Þorleifsson er skömmu síðar
varð svili minn. Komdu sæll
sagði hann við mig og velkominn
í hópinn, og það voru svo sann-
arlega orð að sönnu, alltaf og
ævinlega var maður velkominn
til þeirra hjóna á heimili þeirra á
Akranesi og eru ánægjustund-
irnar orðnar margar sem við
hjónin erum búin að eiga með
þeim Adda og Brynju, bæði
heima og heiman. Við ferðuð-
umst mikið saman bæði hér á
landi og erlendis, hér heima með
okkar felli- og hjólhýsi og vorum
þá gjarnan viku eða tvær á ferð-
inni, það voru mjög skemmtileg-
ar ferðir, og alltaf varst þú Addi
minn hrókur alls fagnaðar. Ég
minnist ferðar til Kanaríeyja, ég
minnist ferðar til Lundúna, ég
minnist ferðar upp á hálendi Ís-
lands, ég minnist ferðanna um
landið okkar og sér í lagi ferðar
um Vestfirði þar sem þú þekktir
svo vel til og leyfðir okkur að
njóta þess með þér. Já, það var
gaman dagana okkar og næturn-
ar á Ísafirði þegar þú leiddir
okkur um bæ bernsku þinnar og
inn á sjálft bernskuheimilið.
Brynja mín, þér og börnunum
ykkar votta ég mína dýpstu sam-
úð.
Vertu sæll og verndi þig
vættir góðar öllum stundum
er heldur þú á hærri stig
og hvílist þar á grænum grundum.
Þórður.
Bridsfélag eldri borgara
í Hafnarfirði
Föstudaginn 4. október var
spilaður Mitchell tvímenning-
ur með þátttöku 33 para.
Meðalskor var 312 og best-
um árangri í N/S náðu:
Ragnar Björnsson -
Óskar Ólafsson 371,9
Magnús Oddsson -
Oliver Kristóferss. 351,4
Friðrik Jónss. -
Jóhannes Guðmannss. 345,6
Sigtryggur Jónss. -
Jón Hákon Jónss. 341,9
Jón Sigvaldas. -
Katarínus Jónsson 338
A/V
Svanh. Gunnarsd. -
Magnús Láruss. 396
Ágúst Vilhelmss. -
Kári Jónsson 377
Tómas Sigurjss.-
Björn Svavarss. 364
Anton Jónsson -
Ólafur Ólafsson 353,8
Ægir Hafsteinss. -
Oddur Jónsson 339,3
Þriðjudaginn 8. október
spiluðu 34 pör Mitchell tví-
menning.
Spilaðar voru 13 umferðir
með 2 spilum á milli para.
Meðalskor var 312 og efstu
pör í N/S:
Jón Sigvaldason -
Katarínus Jónss. 364,6
Auðunn Guðmss. -
Guðm. Sigursteinss. 353,3
Friðrik Hermannss. -
uðl. Ellertss. 351,7
Albert Þorsteinss. -
Kristófer Magnúss. 348
Gróa Þorgeirsd. -
Kristín Óskarsd. 346
AV
Óli Gíslason -
Magnús Jónsson 374,3
Birgir Sigurðss. -
Jóhann Benediktss. 366
Tómas Sigurjss. -
Jóhannes Guðmanns. 358,4
Ágúst Vilhelmsson -
Kári Jónsson. 343,8
Sveinn Snorras. -
Þorvaldur Þorgrímss. 335
BFEH spilar á þriðjudög-
um og föstudögum í Hraun-
seli, Flatahrauni 3. Spila-
mennska byrjar stundvíslega
kl. 13 og spilaður er eins dags
tvímenningur.
Sextíu spilarar
í Gullsmáranum
Spilað var á 15 borðum í
Gullsmára mánudaginn 7.
október.
Úrslit í N/S:
Guðrún Hinriksd. –
Haukur Hanness. 347
Sigurður Gunnlss. –
Gunnar Sigurbjss. 315
Þórður Jörundss. –
Jörundur Þórðars. 308
Jón Stefánsson –
Viðar Valdimarss. 294
Örn Einarsson –
Jens Karlsson 290
A/V
Ernst Backman –
Hermann Guðmss. 360
Birgir Ísleifss. –
Jóhann Ólafsson 342
Gunnar Alexanderss. –
Elís Helgas. 334
Ragnar Haraldsson –
Davíð Sigurðss. 328
Rósmundur Jónss. –
Bergur Þorleifss. 277
BRIDS
Umsjón Arnór G.
Ragnarsson| brids@mbl.is
mbl.is