Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 42

Morgunblaðið - 11.10.2013, Page 42
42 ÍSLENDINGAR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Hún segist stundum vera utan við sig og eigi það til að sökkvasér í vinnu og gleyma þá stað og stund, jafnvel sjálfum af-mælisdeginum sínum. „Ætli það hafi ekki verið á 19 ára af- mælisdaginn minn sem ég gleymdi því algjörlega að ég ætti afmæli. Ég var í Menntaskólanum á Akureyri á þeim tíma og hef örugglega verið upptekin í einhverju verkefni sem átti hug minn allan,“ segir Svanhildur Hólm sem reyndar uppgötvaði það síðar þann dag að hún væri orðin árinu eldri. Svanhildur segist ekki vera mikið fyrir það að halda upp á eigið afmæli og það sé aðallega eiginmaðurinn sem fái afmælisfiðringinn. „Logi er mjög mikið fyrir það að halda upp á af- mæli og hann er fyrir löngu farinn að undirbúa fertugsafmælið mitt á næsta ári. Ég hef reynt að stýra honum af þeirri braut að halda stóra veislu og hef gefið til kynna að við ættum að gera eitthvað huggulegt í staðinn, eins og að fara frekar saman til útlanda.“ Þrátt fyrir að gera ekki mikið úr eigin afmælum er ekki þar með sagt að Svanhildur kunni ekki að halda góða afmælisveislu. „Móðir mín tók barnaafmælin með trompi og átti til að setja upp kökuborð eins og í fermingarveislu. Þetta blundar í mér líka og ég á það til að slá upp glæsilegum afmælisveislum enda finnst mér fátt betra en góðar kökur,“ segir Svanhildur. vilhjalmur@mbl.is Svanhildur Hólm Valsdóttir 39 ára Brosmild Lögfræðingurinn Svanhildur Hólm birtist fyrir meira en áratug á skjáum landsmanna með bros á vör og alltaf í góðu skapi. Gleymdi einu sinni eigin afmæli Íslendingar Kjartan Gunnar Kjartansson, islendingar@mbl.is Ábendingar um brúðkaup, afmæli, barnsfæðingar og önnur tímamót í lífi fólks má senda á netfangið islendingar@mbl.is. Einnig geta þeir, sem óska eftir því að nafn þeirra birtist ekki í þessum dálkum, sent beiðni þar að lútandi á sama netfang.  Unnið í samvinnu við viðmælendur. Hafnarfjörður Róbert Orri fæddist 29. janúar kl. 8.45. Hann vó 4.206 g og var 53 cm langur. Foreldrar hans eru Rannveig Lovísa Eiríksdóttir og Einar Sigmundur Einarsson. Nýir borgarar Akureyri Ásgeir Örn fæddist 29. mars. Hann var 3.735 g og 51 cm lang- ur. Foreldrar hans eru Hugrún Ólafs- dóttir og Ævar Geir Jónasson. S vavar Berg Magnússon, fyrrverandi bygg- ingameistari og fram- kvæmdastjóri, fæddist 11. október 1938 á Ólafsfirði. Hann hefur alla tíð búið þar utan þess tíma sem hann var við iðnnám á Akureyri. Hann lauk sveinsprófi í húsasmíði árið 1960 og fékk meist- araréttindi í greininni árið 1963. Svavar stundaði sjálfstæða verktaka- starfsemi á Ólafsfirði til ársins 1980 en hvarf þá til starfa við fjölskyldu- fyrirtækið, útgerð og fiskvinnslu Magnúsar Gamalíelssonar hf. Þar var hann framkvæmdastjóri ásamt bróð- ur sínum, Sigurgeiri. Fyrirtæki þeirra bræðra sameinaðist Þormóði ramma – Sæbergi, sem nú heitir Rammi hf., og situr Svavar í stjórn Ramma. Svavar hefur alla tíð tekið mikinn þátt í félagsstörfum. Hann hefur setið í fjölda nefnda og ráða fyrir Ólafs- fjarðarbæ og verið í framboði til Al- þingis fyrir Sjálfstæðisflokkinn í Norðurlandskjördæmi eystra. Hann hefur tekið virkan þátt í atvinnu- uppbyggingu á Ólafsfirði og setið í Svavar Berg Magnússon, fyrrv. framkvæmdastjóri – 75 ára Í Kjarnaskógi Svavar og Anna María með barnabörnunum á Akureyri á gullbrúðkaupsdegi þeirra 7. október 2011. Er mikill ljósmyndari Í Ketildölum í Arnarfirði Svavar fyrir framan myndavélina í þetta sinn. „Íslendingar“ er nýr efnisliður sem hefur hafið göngu sína í Morgunblaðinu. Þar er meðal annars sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks, svo sem hjónavígslum, barnsfæðingum eða öðrum tímamótum. Börn og brúðhjón Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð. Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.