Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 43

Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 43
stjórn fjölda fyrirtækja, þ. á m. Sölu- miðstöðvar hraðfrystihúsanna og Tryggingamiðstöðvarinnar. Þá var hann formaður Vitanefndar um árabil og sat í Siglingaráði. Áhugamál Svavar lætur sér annt um íþrótta- starf á Ólafsfirði og var um árabil for- maður íþróttafélagsins Leifturs. Hann hefur stundað skíði ásamt konu sinni, Önnu Maríu, bæði gönguskíði og svigskíði, og fór Svavar Vasagöng- una í Svíþjóð árið 2000 sem er 92 km ganga. Börn þeirra eru öll keppnis- fólk á skíðum og hafa Sigurgeir og Hólmfríður Vala orðið Íslandsmeist- arar á gönguskíðum. Svavar er einnig áhugasamur um golf og stundar þá íþrótt grimmt og fór holu í höggi fyrir nokkrum árum. Svavar er góður áhugaljósmyndari og á mikið safn ljósmynda og kvik- mynda sem hann hefur tekið sjálfur. Hann hefur tekið ljósmyndir fyrir Morgunblaðið um áratugaskeið. Hann hefur sungið í kirkjukórnum á Ólafsfirði í 30 ár og verið félagi í Rótarýklúbbi Ólafsfjarðar í 50 ár. Afmælisdeginum verja hjónin hjá dóttur sinni, Hólmfríði Völu, og henn- ar fjölskyldu á Ísafirði. Fjölskylda Svavar er kvæntur Önnu Maríu Sigurgeirsdóttur, f. 12.9. 1942, fyrr- verandi gjaldkera hjá Magnúsi Gam- alíelssyni hf. Hún er dóttir Margrétar Tryggvadóttur, f. 10.1.1916, d. 12.1. 1996, frá Jórunnarstöðum í Eyjafirði og Sigurgeirs Sigurðssonar, f. 10.10. 1908, d. 26.5. 1991, leigubílstjóra á Akureyri, frá Syðra-Hóli í Eyjafirði. Börn Svavars og Önnu Maríu eru Margrét Hrönn, f. 20.3. 1965, hjúkr- unarfræðingur og doktorsnemi í hjúkrunarfræðum, gift Birni Gunn- arssyni, svæfingalækni og dokt- orsnema, búsett í Noregi. Þau eiga þrjár stelpur; Sigurgeir, f. 20.5. 1967, byggingameistari á Akureyri, kvænt- ur Maríönnu Kristínu Ragnars- dóttur, aðstoðarskólastjóra Lund- arskóla á Akureyri. Þau eiga tvo stráka og eina stelpu; Svanhildur, f. 19.9. 1968, námsráðgjafi í Framhalds- skólanum í Mosfellsbæ, gift Gunnari Haugen, atferlisfræðingi og fram- kvæmdastjóra hjá Capacent. Þau eiga þrjá stráka; Hólmfríður Vala, f. 24.1. 1974, hótelstjóri á Ísafirði og fyrrverandi kennari, gift Daníel Jak- obssyni, viðskiptafræðingi og bæj- arstjóra á Ísafirði. Þau eiga tvær stelpur og einn strák. Systkini Svavars eru fjögur: Helga Kristín, f. 13.11. 1929, var gift Erni Steinþórssyni sem er látinn, þau eignuðust fjögur börn; Ásdís Jónína, f. 23.12. 1931, fyrrverandi kennari, gift Gottfreð Árnasyni viðskiptafræð- ingi, þau eiga þrjú börn; Gunnar, f. 4.8. 1933, húsgagnaarkitekt, kvæntur Guðrúnu Hrönn Hilmarsdóttur, fyrr- verandi kennara, þau eiga fimm börn; Sigurgeir, f. 19.9. 1942, fyrrverandi framkvæmdastjóri, kvæntur Katrínu Sigurgeirsdóttur, fyrrverandi skrif- stofumanni, þau eiga þrjú börn. Foreldrar Svavars: Magnús Gam- alíelsson útgerðarmaður, fæddur að að Hraunum í Austur-Fljótum 7.10. 1899, d. 3.1. 1985, og Guðfinna Páls- dóttir, fædd á Illugastöðum í Austur- Fljótum f. 21.6. 1904, d. 18.10. 1987. Þau fluttu ung til Ólafsfjarðar og hófu búskap sinn 1928. Þar voru þau til æviloka athafnasöm í útgerð og fisk- vinnslu. Úr frændgarði Svavars Berg Magnússonar Svavar Berg Magnússon Sigurlaug Sæmundsdóttir húsfreyja, frá Lambanesreykjum í Fljótum Kristján Jóhann Jónsson bóndi á Fjalli í Sléttuhlíð og víðar Kristín Kristjánsdóttir húsfreyja á Illugastöðum Páll Jónsson bóndi og sundkennari á Illugastöð- um í Fljótum, síðar á Ólafsfirði Guðfinna Pálsdóttir húsfreyja á Ólafsfirði Guðfinna Gunnlaugsdóttir húsfreyja í Fljótum, frá Ólafsfirði Jón Sigurðsson bóndi á Knappastöðum og víðar í Fljótum Ólöf Ólafsdóttir húsfreyja í Fljótum Grímur Magnússon bóndi, silfur- og trésmiður, Norðurlandspóstur og smáskammtalæknir í Fljótum Helga Sigurlaug Grímsdóttir húsfreyja í Teigi Gamalíel Friðfinnsson bóndi í Teigi í Flókadal, síðar í Ameríku Magnús Gamalíelsson útgerðarmaður á Ólafsfirði Hólmfríður Magnúsdóttir húsfreyja, frá Bjarnastöðum í Blönduhlíð Friðfinnur Bjarnason bóndi á Hrappsstöðum, síðar í Hvammi í Hjaltadal Afmælisbarnið Svavar Berg Magnússon. ÍSLENDINGAR 43 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Ólafur Tryggvason læknirfæddist á Víðivöllum fremri íFljótsdalshreppi fyrir rétt- um hundrað árum. Foreldrar hans voru Tryggvi Ólafsson, bóndi á Víði- völlum fremri og síðar versl- unarmaður í Reykjavík, og k.h., Sig- ríður Þorsteinsdóttir húsfreyja. Eftirlifandi eiginkona Ólafs er Anna Sigríður, fyrrv. skrifstofu- maður, dóttir Lúðvíks Norðdal Dav- íðssonar, lengst af héraðslæknis á Selfossi, og k.h., Ástu Jónsdóttur, húsfreyju og skrifstofumanns. Börn Ólafs og Önnu Sigríðar eru Lúðvík Ólafsson, lækningaforstjóri heilsugæslunnar í Reykjavík; Sigríð- ur Ólafsdóttir, héraðsdómari í Reykjavík, og Tryggvi Ólafsson, bókasafnsfræðingur og bókavörður. Ólafur lauk stúdentsprófi frá MR 1935, embættisprófi í læknisfræði frá HÍ 1942, öðlaðist almennt lækn- ingaleyfi 1943, stundaði framhalds- nám í húðsjúkdóma- og ofnæm- islækningum við Sabbatsberg sjukhus í Stokkhólmi og víðar og öðlaðist sérfræðileyfi í húð- sjúkdómum 1947. Ólafur var aðstoðarlæknir í Eyrarbakkahéraði 1942, kandídat við Landspítalann 1942-43 og starf- andi sérfræðingur með eigin stofu í Reykjavík 1947-90. Hann var próf- dómari í húð- og kynsjúkdómafræði við læknadeild HÍ og heiðursfélagi í Félagi íslenskra húðlækna. Ólafur var einn virtasti sérfræð- ingur á sínu sviði, fylgdist vel með öllum nýjungum og fór frá 1965 nærri árlega á þing húðsjúkdóma- lækna og/eða í stutta námsdvöl við erlendar húðsjúkdómastofnanir. Ólafur var minnisstæður persónu- leiki, skyldurækinn og nákvæmur í störfum sínum, en jafnframt hrókur alls fagnaðar í hópi fjölskyldu og vina. Hann var hnyttinn og bráð- fyndinn sögumaður, stálminnugur, víðlesinn og prýðilega skáldmæltur. Hann orti töluvert, fyrst tækifæris- vísur, einkum fyrir skólafélaga, en snéri sér síðar að alvarlegri ljóða- gerð auk þess sem eftir hann liggja afar vandaðar ljóðaþýðingar. Ritið Ljóð, eftir Ólaf, kom út 1993. Ólafur lést 20.6. 1993. Merkir Íslendingar Ólafur Tryggvason 90 ára Bjarnheiður S. Þórarinsdóttir Jóna Margrét Halldórsdóttir 85 ára Erla S. Jónsdóttir Jón Gunnar Ásgeirsson Svava Gunnlaugsdóttir 80 ára Ester Úranía F riðþjófsdóttir Fjóla Jóhannsdóttir Guðbjörg Stella Ögmundsdóttir Guðborg Aðalsteinsdóttir Hjördís Guðbjartsdóttir Sonja Albertsdóttir Stefán Þór Haraldsson 75 ára Ólafur Friðsteinsson Sigrún Ingólfsdóttir Svavar Berg Magnússon Þorgrímur Eiríksson 70 ára Birgir Rafn Jónsson Bjarni Björnsson Friðgerður Pétursdóttir Jóhanna Sigtryggsdóttir Jóna Heiðbjört Valdimarsdóttir Sigrún Gunnhildur Stefánsdóttir 60 ára Anna Margrét Ingólfsdóttir Grétar Baldursson Gunnar Einarsson Halldóra E. Sveinbjörnsdóttir Hildur Jóhannesdóttir Jón Kristinn Kristinsson Kolbeinn Pálsson Margrét Þór Ryszard Blaszkiewicz Sigurlaug K. Bjarnadóttir Svandís G. Sverrisdóttir Tryggvi Ólafsson Þorkatla Sigurgeirsdóttir 50 ára Guðvarður B Hauksson Kristbjörg Steinunn Gísladóttir Kristján Ólafsson Magnús Á. Sigurgeirsson Nadia Liza Ashkenazy-Jones Olga Björk Pétursdóttir Roman Marcin Tetnowski Sigrún Lára Jónsdóttir Snædís Grace Canada 40 ára Bjarki Örn Sævarsson Guðmundur Steinar Zebitz Guðni Þór Guðjónsson Kristinn Hallur Einarsson Oddný Kristín Guðmundsdóttir Sigrún Kristín Jónsdóttir Sigurjón Rúnarsson Sylwia Wilinska Þóra Katrín Gunnarsdóttir 30 ára Annemie J. M. Milissen Ármann Jónsson Berglind Óskarsdóttir Íris Dögg Guðjónsdóttir Karen Kuylen Kolbrún Sara Guðjónsdóttir Krzysztof Gutowski Marta María Hirst Olivier Matthieu S. Moschetta Sigurður Kristján L. Guðlaugsson Þórarinn Sigurðsson Til hamingju með daginn 40 ára Brynja Rós ólst upp í Seljahverfi í Reykja- vík, býr í Kópavogi og er sérfræðingur hjá Fangels- ismálastofnun ríkisins. Maki: Guðmundur Birg- isson, f. 1969, vinnur hjá Tollstjóra. Börn: Lydía Líf, f. 2000, og Birgir, f. 2010. Foreldrar: Bjarni Sigfús- son, f. 1933, og Aðal- heiður Margrét Haralds- dóttir, f. 1938, d. 2002. Brynja Rós Bjarnadóttir 30 ára Elvar Þór er Mos- fellingur og er íþrótta- kennari í Norðlingaskóla í Reykjavík. Maki: Alda Andrésdóttir, f. 1984, dagmóðir. Börn: Elísa Ósk, f. 2010, og Aron Örn, f. 2013. Foreldrar: Friðrik Gunn- arsson, f. 1950, vinnur hjá Ölgerðinni, og Hulda R. Magnúsdóttir, f. 1952, læknaritari, búsett í Mosfellsbæ. Elvar Þór Friðriksson 40 ára Gunnar býr í Þor- lákshöfn og er verktaki. Maki: Henný Björg Haf- steinsdóttir, f. 1977, hús- móðir. Börn: Sveinn Hafsteinn, f. 1994, Adam Freyr, f. 2000, Matthías Geir, f. 2005, og Björgvin Ingi, f. 2007. Foreldrar: Sveinn Lárus Gunnarsson, f. 1951, og Guðríður Sveinbjörns- dóttir, f. 1954. Gunnar Ingi Sveinsson Bíla- og vélavörur ...sem þola álagið! Það borgar sig að nota það besta! Viftur HjólalegusettKúlu- og rúllulegur Hemlahlutir Hjöru- og öxulliðir Stýrisendar og spindilkúlurViftu- og tímareimar Kúplingar- og höggdeyfar th or ri@ 12 og 3. is /3 1. 31 3 www.falkinn.is

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.