Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 44

Morgunblaðið - 11.10.2013, Side 44
44 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það er einhver spenna á milli þín og maka þíns í dag. Hugsun þín er skýr og því geturðu komið miklu í verk á næstu vikum. 20. apríl - 20. maí  Naut Einhver gæti boðist til að hjálpa þér á heimilinu. Einhver þér eldri getur miðlað þér af reynslu sinni. Þiggðu það. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Hvaða þrjá hluti getur þú gert til að bæta frammistöðuna í vinnunni? Fólk er ósamvinnuþýtt. Ræktaðu fjölskyldu og vini betur, þú hefur vanrækt þína nánustu und- anfarið. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Þú ert með óþarflega miklar áhyggj- ur af fjárhagnum en hann er ekki eins slæmur og þú heldur. Treystu eðlisávís- uninni því hún er traustari en nokkurt bankayfirlit. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þér lætur vel að stjórna frá náttúrunn- ar hendi, en ástvinur þarf að læra hvernig hann á að bjarga sér í lífinu. Þú ert sér- fræðingur í því að senda snaggaraleg sms. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Yfirmenn eru ekki alltaf þeir hæfi- leikaríkustu eða réttlátustu. Þú vinnur vel í hóp og ættir að einbeita þér að því. Pen- ingar og ábyrgð tengjast alltaf. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú verður önnum kafin/n á næstu vik- um. Láttu athugasemdir annarra um þig eins og vind um eyru þjóta. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Stundum fær maður bestu ráð- in hjá fólki sem maður hittir í strætó. Fylgdu eðlisávísuninni varðandi ákveðið mál í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Hristu af þér allar efasemdir um eigið ágæti. Tillögur þínar eru að öllum lík- indum ekki góðar og gætu valdið vandræð- um. Vinir heimta mikið af tíma þínum og í starfsemi sem þú myndir aldrei sinna ef ekki væri fyrir vinskap. 22. des. - 19. janúar Steingeit Það sem þú hefur fram að bjóða er vel þess virði að bíða eftir. Láttu ekki deigan síga þótt menn sýni hugmyndum þínum takmarkaðan áhuga. Leitaðu allra leiða til að nýta hlutina betur. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Ekki er ólíklegt að samtal í dag komi þér í uppnám eða í opna skjöldu. Haltu ró þinni því öll mál leysast vel um síð- ir. 19. feb. - 20. mars Fiskar Þú veist hvað í þér býr þó aðrir geri það ef til vill ekki. Fyrstu pönnukökurnar eru yfirleitt hálfmisheppnaðar. Höskuldur Búi Jónsson lét tilsín heyra á mánudag: Rennur látlaus, laus við baks, lækur niður hlíðar. En strax er ýmist alveg strax eða miklu síðar. Um nóttina snjóaði og Friðrik Steingrímsson sendi Pétri Stef- ánssyni stöku á Leirnum, en Pét- ur hafði keypt sér Toyota- jeppling í sumar til að vera við öllu búinn, þar sem hann hafði flutt upp í Breiðholt: Slá mun Pétur ekkert af ótíðar í bölinu, hann mun láta reyna á Rav í Reykjavíkur fölinu. Pétur svaraði: Hér í vondri vetrartíð verð ég önnum kafinn. – Yfir skafla í erg og gríð ekur lipur Ravinn. Þó spillist ferð í feiknasnjó og frostatíð sé hafin síst mér verður um og ó, því ekkert stöðvar Ravinn. Og síðan hnykkir Pétur á með þessum orðum: „Ég er í góðum málum, er kominn á nagladekk og hef konuna með ef þarf að ýta!“ Karl Ágúst Úlfsson brá sér í brúðuleikhúsið og þakkaði fyrir sig með „lítilli vísu handa Bernd Ogrodnik í tilefni af glæsilegri frumsýningu á Aladdín“: samruni er, skilst mér, er sameinast eindir í tvennd, og svo geta eindir í tvenndinni æxl- ast í þrennd, en loks ef að þrenndinni að endingu fjölgar í fernd, þá fyrst er nú orðið til þokkalegt ljóð handa bernd. Og svo er „Landafræði fyrir byrjendur“ eftir Bjarka Karlsson: Pabbinn er alltaf í Paraguay plottandi að fornu og nýju en mamman er einatt í Uruguay unir sér þar í hlýju. Afinn er sestur í sælureit suður í Brasilíu en Amman er höfuðborg, að ég veit, austur í Jórdaníu. Hér kemur svo oddhenda eftir Lárus Jónasson frá Húnsstöðum: Eftir þjapp og stundar stapp, strit og kapp í húmi það var happ ég hrakinn slapp holds úr krapparúmi Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Fyrsti vetrarsnjórinn og flókin talnafræði Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „HANN HEFUR GEFIÐ MÉR NÝTT LÍF. LÍF VIÐ FÁTÆKRAMÖRKIN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... góðlátleg stríðni. AA FUNDUR ENN Í AFNEITUN VINSAM- LEGAST GEFIÐ. ÉG NENNI EKKI AÐ ELDA, GRETTIR. VIÐ HLJÓTUM AÐ EIGA DÓSAMAT? „ENGI- SPRETTUR.“ HEY Í HARÐINDUM. KONAN MÍN SKILUR MIG EKKI. HÚN ÞYKIST BARA EKKI GERA ÞAÐ. ÞAÐ ER EIN- FALDARA, MEÐ MENN EINS OG ÞIG. Víkverji hefur hrifist af skutlum fráunga aldri. Hann hefur hugsað um þær löngum stundum, snert og strokið, farið með þeim í ímynduð ferðalög og látið sig dreyma um fjör á fjarlægum stöðum. x x x Víkverji hefur oft leikið sér meðskutlum, átt margar góðar stundir með þeim. Hann hefur hrifist af þeim vegna ýmissa eiginleika, dáðst að gerð þeirra, sköpulagi, krafti og flugi. Hann hefur reynt þær á margvíslegan hátt, verið með þeim í blíðu og stríðu og notið samvistanna. x x x Ekki er öllum gefið að vera skutla.Hún verður ekki til af sjálfu sér og fellur fljótt í gleymskunnar dá sé henni ekki viðhaldið. Hún þarf umönnun. Nostur. Ekki er sama úr hverju hún er gerð og hún má hvorki vera of lítil né of stór. Ekki of þung og ekki of létt. Skutlur eru eðlilega lit- lausar ef þær eru ekki málaðar en farðinn er samt ekki aðalatriðið held- ur byggingin sjálf. x x x Víkverji hefur annast sínar skutlurí öllum heimshornum, verið þeim trúr og virt þær vegna þess sem þær standa fyrir. Hann hefur farið vel með þær og kennt öðrum að meta þær. Dýrkað þær og dáð. x x x Þrátt fyrir mikla umönnun og sér-staka væntumþykju hefur Vík- verji aldrei ætlast til þess að skutl- urnar gæfu annað af sér en vera bara til. Vera til taks þegar á hefur þurft að halda. Hann hefur að vísu viljað að þær stæðu í stykkinu og hafi ein brugðist vonum hefur henni hrein- lega verið skipt út fyrir aðra. Það hef- ur samt aldrei skapað vandamál og ekki haft nein eftirmál heldur þvert á móti verið til góðs. x x x Þessi mikla þörf fyrir skutlur skil-aði Víkverja óvænt stórum glaðningi ekki alls fyrir löngu. Hann tók þátt í skutlukeppni, útbjó sína skutlu sjálfur, sigraði og fékk flugferð að launum. Lengi býr að fyrstu gerð og það er vert að hafa í huga á þess- um góða degi. víkverji@mbl.is Víkverji Lofaður sé Guð er hvorki vísaði bæn minni á bug né tók frá mér miskunn sína. (Sálmarnir 66:20)

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.