Morgunblaðið - 11.10.2013, Síða 46

Morgunblaðið - 11.10.2013, Síða 46
46 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Það var mér mikill heiður þegar Lára [Stefánsdóttir, listrænn stjórn- andi Íd] bað mig að semja verk í til- efni af 40 ára afmæli flokksins. Sjálf hef ég verið innan og utan landa- mæra Íd í 33 ár,“ segir Helena Jóns- dóttir, höfundur Tíma sem ásamt verkinu Sentimental, again eftir Jo Strømgren verður frumsýnt á Stóra sviði Borgarleikhússins í kvöld kl. 20. „Það er búið að vera virkilega gam- an að skoða sögu flokksins og fékk ég strax hugmyndina að láta dansara, ís- lenska danshöfunda og minningar koma saman í einu verki. Ég valdi að að nota baksviðið sem sögusviðið. Þannig fá áhorfendur að fylgjast með dönsurum sem dvelja þar tímunum, vikum saman til þess eins að deila 45 mínútum með áhorfendum,“ segir Helena og tekur fram að gamli tíminn sé kynntur í verkinu með aðstoð myndbandstækninnar. „Dansararnir í verkinu mínu eru nýir meðlimir flokksins og sé ég þá sem fulltrúa nútímans í handriti mínu, gamli tíminn sveimar í kringum þau í sporum og myndböndum úr 40 ára sögu Íd,“ segir Helena. Getum gert mikið úr litlu Í samtali viðurkennir Helena fús- lega að sig hafi langað til að fá dans- ara sem störfuðu í flokknum á upp- hafsárum hans til að stíga aftur á svið í eigin persónu. „En í þetta skipti gekk það ekki upp og við leystum þetta með myndböndunum auk þess sem ég er með heiðurssæti á sviðinu sem tileinkað er öllum þeim sem hafa starfað með flokknum á einn eða ann- an hátt. Við erum með gamla sem nýja blómvendi á sviðinu sem tákn fyrir þá listmenn flokksins sem hafa unnið með honum í gegnum árin,“ segir Helena og bætir við: „Ef ein- hvern af liðsmönnum flokksins langar að fá sér betra sæti á sýningunni þá er viðkomandi velkomið að koma upp á svið og setjast í heiðurssætið.“ Aðspurð hver staða Íd sé í dag og hvernig flokkurinn hafi þróast segir Helena ekkert launungarmál að flokkurinn sé mjög ungur þrátt fyrir að fagna 40 ára afmæli sínu á þessu ári. „Ég er mjög stolt af flokknum okkar, en í mínum huga er hann enn á sínum unglingsárum. Svigrúmið hér- lendis hefur hins vegar verið mjög lít- ið til þroska. Flokkurinn var á sínum tíma stofnaður sem nútímadans- flokkur. Þegar við mættum með ab- strakt hreytingar með nútímatónlist voru ekki margir í salnum. Þannig að við breyttum okkur í klassískan dans- flokk um tíma meðan við vorum að koma undir okkur fótunum. Þrátt fyrir að flokkurinn hafi ekki sýnt klassískan ballett í fjölda ára tala áhorfendur enn um að þeir séu að fara á ballettinn. Það stafar líklega af því að ævintýrið er þarna ennþá. Ég sé mjög spennandi tíma framundan í íslenska dansheiminum, enda mikil gróska hjá sjálfstæðum danshöf- undum og -flokkum, sem auðvitað hefur áhrif á þá danssenu sem fyrir er,“ segir Helena, en áréttar að að- stöðumunurinn milli landa sé mikill. „Áhorfendur geta haft í huga að við Jo Strømgren, sem er fæddur og uppalinn í Noregi, erum jafnaldrar. Erlendis tíðkast að listamenn fái a.m.k. þrjá og allt upp í sjö mánuði til að vinna dansverk sín. Slíkt hefur ekki verið mögulegt á Íslandi. Að þessu leyti erum við að þróa okkar rými og reynslu mjög hægt, á meðan stærra samfélag á borð við Noreg getur boðið upp á betri umgjörð, vinnuaðstæður og fjárhagslegan styrk. Ég hef hins vegar alltaf dáðst að okkur Íslendingum fyrir hvað við erum metnaðarfull og höfum getað gert merkilega hluti úr nánast engu.“ Snýr sér aftur að kvikmyndum Helena hefur unnið mikið erlendis og býr sem kunnugt er í Antwerpen í Belgíu. Spurð hvaða þýðingu það hafi fyrir hana að koma heim og tala til ís- lenskra áhorfenda svarar Helena um hæl: „Maður fer í raun aldrei að heiman. Þó ég búi núna í Belgíu á ég heima hér ennþá. Þegar mér berast verkefni þá hoppa ég upp í næstu flugvél og tek þátt í uppbyggingar- starfinu. En til þess að maður sé ekki að berjast um lítið nesti þá er nauð- synlegt fyrir hvaða íslenska lista- mann sem er að vera með fleiri egg í körfunni og þar kemur meginlandið sterkt inn. Það er bara lífsnauðsyn- legt,“ segir Helena og bendir á að aðstæður hér feli bæði í sér styrk- leika og veikleika. „Styrkurinn sem felst í því að vera frá Íslandi byggir að mörgu leyti á því að maður er vanur að þurfa að gera marga hluti sjálfur. Fyrir Tíma hanna ég búningana, geri vídeóið með kollegum mínum, raða saman tónlist- inni, leikstýri og set saman handritið auk þess að taka ljósmyndirnar fyrir plakatið. Ég var þannig með puttann í öllu. Og hentaði það þessu verkefni þar sem allir þessir hlutir þurfa að vinna vel saman.“ Ekki er hægt að kveðja Helenu án þess að forvitnast um það hvaða verk- efni séu framundan. „Ég er að klára kvikmynd í samvinnu við Veru Sölva- dóttur þar sem Ingvar E. Sigurðsson fer með aðalhlutverkið. Myndin heitir Gone eða Farinn og var tekin upp á Gljúfrasteini,“ segir Helena sem heldur af landi brott nk. sunnudag til að taka þátt í sjónvarpshátíðinni Golden Prague en þar bíða hennar samningaviðræður við forsvarsmenn erlendra sjónvarpsstöðva sem sýnt hafa myndum Helenu áhuga. „Ég tók mér hlé frá kvikmyndagerð í nokkur ár, en er nú að snúa aftur og hef fund- ið fyrir miklum meðbyr. Það verður því gaman og spennandi að sjá hvert „börnin“ fara.“ „Mjög stolt af flokknum okkar“  Íd frumsýnir í kvöld Tíma eftir Helenu Jónsdóttur sem hún samdi í tilefni af 40 ára afmæli flokksins Morgunblaðið/Golli Danshöfundur Helena Jónsdóttir semur afmælisverkið Tímar fyrir Íd. Ástríða „Dansararnir í verkinu mínu eru nýir meðlimir flokksins og sé ég þá sem fulltrúa nútímans í handriti mínu,“ segir Helena Jónsdóttir. Menn – skemmti- kvöld fer fram í Þjóðleikhúskjall- aranum í kvöld og annað kvöld kl. 20. Menn – skemmtikvöld er höfundarverk sviðslistakon- unnar Völu Höskuldsdóttur, sýning sem felst í því að tíu karl- menn segja frá reynslu sinni af því að vera karlmaður. Svara verður leitað við spurningum á borð við hvort femínistar hati karlmenn og hvað það sé að vera alvöru karl- maður. Í lokin verða umræður sem gestir geta tekið þátt í. Meðal þeirra sem fram koma eru Gunnar Nelson bardagakappi. Hvað er að vera alvöru karlmaður? Gunnar Nelson Menningarhátíð Seltjarnarness hófst í gær og er boðið upp á fjöl- breytilega dagskrá allt til sunnu- dagskvölds. Í dag eru þrír viðburðir á dagskrá: Milli kl. 12 og 14 vinna myndlistarkonur með eldri borg- urum og grunnskólanemum að gerð graffitíverks í undirgöngunum við Björnsbakarí. Kl. 15.30-16.30 verður leikinn djass fyrir framan Íslands- banka á Nesinu og kl. 17.30 er dag- skrá ungmennaráðs í nýju ung- mennahúsi, Skelinu, við Selið. Graffað, djass og ungmennahús Sýningin Samsæti heilagra verður opnuð í Listasafni Íslands í kvöld kl. 20. Sýningin er samvinnuverk lista- kvennanna Bryndísar Hrannar Ragnarsdóttur og Gunnhildar Hauksdóttur. Vorið 2012 dvöldu þær í París og buðu til sín gestum sem þær vildu eiga samræðu við um tengsl hins kvenlega og dýrslega í víðu samhengi, eins og segir í til- kynningu. Var gestum boðið að kasta af sér sinni eigin persónu að hluta til eða algerlega og nálgast samsætið á eigin forsendum og for- sendum hlutverksins að svo miklu leyti sem þeir kærðu sig um og á þann hátt sem þeir kysu að túlka það. Þeir sem mættu tóku einnig að sér hlutverk einstaklinga sem sáu sér ekki fært að mæta. Samræðuhóf- in urðu fjögur og var í þeim tekist á við málefni í spuna á mörkum veru- leika og skáldskapar. Hófin má líta á sem gjörninga og hafa þeir nú verið skrásettir og verður miðlað í inn- setningu í Listasafni Íslands í formi myndbanda og handrita. Verkið er langtímasamvinnuverk- efni þeirra Bryndísar og Gunnhildar og hver uppsetning á því felur í sér viðbót sem markast af sögu og stað. Sýningin stendur til 8. desember og er safnið opið alla daga nema mánudaga kl. 10 – 17. Samsæti Kynningarmynd fyrir sýninguna Samsæti heilagra. Samsæti heilagra í Listasafni Íslands Morgunblaðið gefur út sérblaðið Jólahlaðborð föstudaginn 25. október Jólahlaðborð –– Meira fyrir lesendur NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR: Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is PÖNTUNARFRESTUR AUGLÝSINGA: fyrir kl. 16 föstudaginn 18. október. Morgunblaðið gefur út glæsilegt sérblað um jólahlaðborð, tónleika og uppákomur í nóvember og desember. Fjöldinn allur af veitingahúsum bjóða upp á jólahlaðborð og sérrétti á aðventunni og mikið úrval í boði fyrir þá sem vilja gera sér glaðan dag á þessum skemmtilega tíma ársins. f f f f f f SÉRBLAÐ

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.