Morgunblaðið - 11.10.2013, Síða 48
48 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. OKTÓBER 2013
Helgi syngur Hauk var yfirskrift
tónleikaraðar sem Helgi Björnsson
hélt í Salnum í Kópavogi í tilefni af
afmæli Hauks Morthens árið 2010. Í
kvöld endurtekur hann leikinn á
mun umfangsmeiri tónleikum í Eld-
borg í Hörpu þar sem þýska stór-
sveitin The Capital Dance Orchestra
leikur með honum. Flest laganna á
efnisskránni eru lög sem Haukur
söng en auk þeirra verða flutt þekkt
erlend lög á borð við „Mack the
Knife“ og „Buona sera“. Hljóm-
sveitin mun einnig leika lög að eigin
vali. The Capital Dance Orchestra
hefur sérhæft sig í að leika „swing“-
tónlist frá fjórða, fimmta og sjötta
áratug síðustu aldar og er vel þekkt
í heimalandi sínu og nágrannalönd-
um þar sem slík tónlist er mjög vin-
sæl. Meðal þeirra söngvara sem
sungið hafa lög frá þessum tíma í
tónleikaröð sveitarinnar, Stars go
Swing, eru Nina Hagen og Barbara
Schönenberger.
Hljómsveitinni kynntist Helgi árið
2006 þegar hann stýrði Admiral Pa-
lace leikhúsinu í Berlín og fékk hana
til að leika við opnun hússins. Félagi
hans stakk upp á því að hann tæki
eitt eða tvö lög með hljómsveitinni
sem hann og gerði. Og nú er komin
út plata með lögum Hauks sem
Helgi og hljómsveitin flytja. Tón-
leikunum í kvöld stýrir söngvari og
fiðluleikari hljómsveitarinnar, Meta
Hüper og Helgi fær góða gesti til
liðs við sig, söngvarana Sigríði
Thorlacius, Bogomil Font og Björg-
vin Halldórsson. Blaðamaður ræddi
við framkvæmdastjóra og einn liðs-
mann hljómsveitarinnar, Robert
Mudrinic og spurði hann fyrst hvort
hljómsveitin hefði þekkt til laga
Hauks áður en samstarfið við Helga
hófst.
Hlýja, depurð og hamingja
„Árið 2011 kynnti Helgi mér lög
Hauks og spurði hvort við vildum
taka upp plötu með þessari dásam-
legu tónlist. Fram að því þekkti ég
ekkert til Hauks en varð mjög hrif-
inn. Þessi tónlist er hlýleg, stundum
dapurleg en líka full hamingju.
Stundum virkar hún ítölsk, dálítið í
anda Sinatra og bandarísku sveifl-
unnar. Hún hefur sinn eigin stíl,“
segir Mudrinic. „Þessa tónlist verð-
ur að flytja í Þýskalandi, við verðum
að kynna hana þýskum áheyr-
endum.“
– Þið hafið leikið með þekktum
söngvurum á borð við Ninu Hagen
en hvernig er að spila með hinum
goðsagnakennda Helga Björnssyni?
„Helgi er afslappaður og öruggur,
lætur kylfu ráða kasti en er um leið
afar mikill fagmaður,“ segir Mudri-
nic. Eins og jafnan einkenni Íslend-
inga sé Helgi bundinn náttúrunni
sterkum böndum, yfirvegaður og
sæki orku sína þangað.
Glys og töfrar
– Hvernig myndirðu lýsa hljóm-
sveitinni tónlistarlega?
„Í upphaflegri mynd, undir stjórn
David Canisius fiðluleikara, býður
hún upp á glys og töfra hinna
þekktu danshalla Berlínarborgar.
Þessi frábæra hljómsveit á heima á
hvers konar dansstað, hún er fjölhæf
og með mikla nærveru á sviði. Með-
limir hennar eru atvinnumenn sem
hafa fullkomna stjórn á hvers konar
blæbrigðum og breytilegum styrk
tónlistar, leysa úr læðingi taumlaus-
an kraft og heilla fólk með sviðs-
framkomu sinni með geðþekkum
söngvurum sínum, Metu Hüper og
Simon Marlow,“ segir Mudrinic.
Hljómsveitin leiki tónlist úr ýmsum
áttum, m.a. þýska, enska og rúss-
neska og í henni endurspeglist hin
mikla, listræna fjölbreytni suðu-
pottsins Berlínar.
– Við hverju mega gestir Hörpu
búast á tónleikum ykkar Helga?
„Ég held að gestum Hörpu verði
boðið upp á stórkostlega tónleika og
mikla skemmtun.“ helgisnaer@mbl.is
Sveifla Söngkonan Nina Hagen með The Capital Dance Orchestra.
Tónlist sem á erindi
við Þjóðverja
The Capital Dance Orchestra leikur
með Helga Björns í Hörpu í kvöld
Helgi Snær Sigurðsson
helgisnaer@mbl.is
„Það er nú alltaf dálítið erfitt fyrir
mann að negla niður nákvæmlega
hvaðan hlutir spretta en það sem ég
tengi við þetta úr mínu eigin lífi er
að hafa alist upp í litlu plássi og
hlustað á þungarokk,“ segir leik-
stjórinn Ragnar Bragason, spurður
að því hver hafi verið kveikjan að
sögunni sem sögð er í nýjustu kvik-
mynd hans, Málmhaus. Í myndinni
segir af hjónum sem reka kúabú í
ónefndri sveit
ásamt tveimur
börnum sínum, í
byrjun áttunda
áratugarins.
Eldra barnið,
piltur á tánings-
aldri, deyr í
hörmulegu slysi
og sorgin heltek-
ur foreldra hans
og systur, Heru.
Buguð af harmi
sökkvir Hera sér í tónlistina sem
bróðir hennar hafði dálæti á, þunga-
rokk og dreymir um að komast úr
sveitinni. Hún reynist foreldrum sín-
um afar erfið, uppreisnargjörn og
óútreiknanleg og áhugalaus um allt
sem ekki snertir þungarokk, nánar
tiltekið sk. málmtónlist, „metal“ upp
á enskuna.
„Mig langaði alltaf að finna sögu
til að ná að koma þessari tónlist á
framfæri án þess að það væri gert
með einhverju gríni eða sprelli.
Þetta er tiltölulega einföld saga um
fjölskyldu sem er að komast yfir
harmleik og hvernig við notum mis-
munandi aðferðir við það,“ segir
Ragnar en með aðalhlutverk í mynd-
inni fara Þorbjörg Helga Þorgils-
dóttir sem leikur Heru og Ingvar E.
Sigurðsson og Halldóra Geirharðs-
dóttir sem leika foreldrana.
Baulandi málmur
–Það mætast þarna tveir and-
stæðir heimar, hinn harði og hraði
heimur málmsins og hægagangur og
tilbreytingarleysi sveitarinnar.
Þetta hefði allt eins getað verið efni í
gamanmynd, hvað það varðar?
„Já, alveg eins. Það á svo sem við
um allar sögur, maður getur farið
með þær í hvaða átt sem er. Þetta er
nú frekar í alvarlegri kantinum,
myndi ég segja, þó það séu kómískir
hlutir í myndinni er hún realísk að
því leyti að hún er á dramatísku nót-
unum.“
– Í myndinni sjást kýr baula við
málmtónlist, það er nýstárlegt!
Ragnar hlær. „Mér fannst það dá-
lítið skemmtilegt því hljóðheimur
þessarar tónlistartegundar er frekar
víðfeðmur. Þungarokk er vítt hug-
tak, nær yfir mjög breiðan skala af
tónlist, alveg frá dauðametal yfir í
poppmetal, þetta er frekar vítt og
breitt. Hljóðheimurinn er frekar
ágengur, hljómsveitirnar oft að
reyna að ná fram e.k. myrkum áhrif-
um. Mér fannst baul sem búið var að
hægja á vera einhvern veginn eins
satanískt og það gat orðið,“ segir
Ragnar kíminn.
– Talandi um satanískt þá hefur
málmtónlistin stundum verið tengd
við djöfladýrkun eða annan djöf-
ulgang.
„Já, þessi menningarkimi verður
oft fyrir dálitlum fordómum. Fólk
áttar sig ekki alveg á því hvað þetta
er og það er þekkt í gegnum söguna
að allt sem er öðruvísi eða einhvers
staðar á jaðrinum er fordæmt.“
Lærði á gítar í heilt ár
– Þurfti Þorbjörg Helga að fara í
einhvers konar málm-þjálfun fyrir
myndina?
„Þegar ég hringdi í hana og bauð
henni hlutverkið spurði ég hana
hvort hún spilaði á gítar. Það var nú
ekki mjög yfirgripsmikil þekking,
hún kunni einhver grip á kassagítar.
Hún var í heilt ár í kennslu, var með
tvo kennara,“ svarar Ragnar. Þá
hafi Þorbjörg fengið að fylgjast með
þungarokkssveitinni Angist á æfing-
um en í henni eru tvær konur í
broddi fylkingar, söngkonur og gít-
arleikarar og gat Þorbjörg lært sitt-
hvað af þeim. Ragnar segist hafa
viljað hafa atriðin þar sem Hera
syngur og leikur á gítar eins raun-
veruleg og hægt væri. „Við vildum
líka að þetta kæmi beint frá henni,
að það væri ekki verið að finna ein-
hvern góðan söngvara, innan gæsa-
lappa. Þetta snýst um tjáninguna og
hún náði henni alveg 100%,“ segir
Ragnar um frammistöðu Þor-
bjargar.
Ragnar er nýkominn frá Suður-
Kóreu þar sem Málmhaus var sýnd
á alþjóðlegu kvikmyndahátíðinni í
Busan. „Það er alltaf ótrúlega
skemmtileg að koma á kvik-
myndahátíð í Kóreu, allt annar kúlt-
úr og virkilega áhugasamt fólk um
kvikmyndir og innihald þeirra. Það
voru miklar og skemmtilegar um-
ræður eftir sýningar og vel á annað
þúsund manns sem sáu myndina,“
segir Ragnar. Næst sé förinni heitið
til Brasilíu en þar verður myndin
sýnd í strandborginni Recife. „Það
er heilmikill þvælingur framundan. “
segir Ragnar.
Upphæðir sem bera
ekki bransann
– Þið Þorbjörg eruð komin á
samning hjá bandarísku umboðs-
skrifstofunni APA. Er stefnan sett á
Hollywood?
„Það er kannski vænlegra fyrir
leikara. Ég er nú meira í mínum eig-
in verkefnum og þeir eru meðvitaðir
um það, þessir umboðsmenn,“ svar-
ar Ragnar. „Þetta er mjög fín um-
boðsskrifstofa, Ólafur Darri Ólafs-
son leikari er hjá þeim og hefur
fengið mikið að gera þannig að ég
vona að það glæðist hjá Þorbjörgu í
útlöndunum.“
– Og í ljósi fyrirhugaðs nið-
urskurðar á framlögum til Kvik-
myndasjóðs er kannski betra að
vera með allar klær úti?
„Já, fyrir utan það nú, það er
ágætt að vera með eitthvað í bak-
höndinni og þá er ég ekki að grínast.
Ef þetta fer eins og útlit er fyrir þá
er bara ekki lífvænlegt fyrir kvik-
myndagerðarmenn á landinu. Þetta
eru alltof litlir peningar og þetta er
orðinn alltof stór bransi sem veltir
alltof háum upphæðum og alltof
margir sem hafa lifibrauð af þessu.
Þessar upphæðir bera ekki brans-
ann. Síðast þegar niðurskurður var
flutti fjölmargt lykilfólk til útlanda,“
segir Ragnar. Sýnt hafi verið fram á
hagræn áhrif kvikmyndagerðar og
því verði ríkisstjórnin af tekjum, í
stað þess að afla þeirra.
Beljandi harmur
Kvikmyndin Málmhaus verður frumsýnd í dag Harm-
saga þar sem kýr og þungarokk koma m.a. við sögu
Þungarokkari Þorbjörg Helga í hlutverki Heru í Málmhaus. Stilla úr atriði
þar sem Hera þenur rafmagnsgítarinn og röddina í hlöðunni heima.
Ragnar
Bragason