Morgunblaðið - 13.12.2013, Page 11

Morgunblaðið - 13.12.2013, Page 11
Morgunblaðið/Kristinn Hugmyndir Þórarinn Eldjárn segir að hugmyndir séu alls staðar á sveimi. Kúnstin sé bara að grípa þær á lofti. „Hugmyndir eru alls staðar. Málið er bara það að koma auga á þær og vera tilbúinn og móttækilegur þegar þær gera vart við sig. Það er bara þannig sem það getur gerst. Það er voðalega erfitt að ætla að setjast niður og rembast við að fá hugmynd því þær þurfa að koma svífandi,“ seg- ir skáldið. Þegar hann talar við grunn- skólabörn líkir hann þessu stundum við að maður sé með loftnet á höfðinu, rétt eins og útvarpstæki. „Og svo er bara að stilla sig inn á rétta bylgju- lengd. Þá bara koma þær,“ segir skáldið og rithöfundurinn Þórarinn Eldjárn að lokum. Gera má ráð fyrir að þau börn sem fá bókina góðu um grannmeti og átvexti í gjöf þessi jólin, eigi eftir að njóta þess lengi sem og foreldrar þeirra. Endurútgáfa Bókin Grannmeti og átvextir kom út árið 2001 og seldist upp. DAGLEGT LÍF 11 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. DESEMBER 2013 Líf mitt væri að minnsta kosti 7% betra ef vinnustaðurinn minn væri ekki svo langt frá heimili mínu að Peter Jackson þyrfti níu klukkutíma þríleik til að gera ferðalaginu þang- að almennilega skil. Þess vegna þarf ég bíl. Svo prófaði ég að taka strætó. Skref afturábak í lífsgæðum um hálfan áratug myndi einhver segja, því ég hef átt í góðu sambandi við Ford Focus frá því ég útskrifaðist úr menntaskóla, en bíllinn er sjálfur að nálgast menntaskólaaldurinn. Hagsýni ég, sem elda aldrei heima og læt selja mér síma og tölvur með eplamerki fyrir morðfjár, reiknaði mig að þeirri niðurstöðu að lúxusinn að keyra kostar með öllu í kringum 700.000 krónur á ári. Mér reiknast að með strætó sé ég svona hálftíma lengur í og úr vinnu á hverjum degi. Gefum okkur að ég taki strætó 44 vinnuvikur ársins, í og úr vinnu. Þessa daga sem bílleysi mitt hefur varað hefur það að vísu ekki reynst rétt, því jólasveinn- inn Farasníkir kom snemma til óbyggða við Rauðavatn í ár, og hefur verið duglegur að hengja sig á akandi vinnufélaga sína. Farasníkir er góður félagsskapur á lang- ferðum, tilbúinn að skafa rúður og ýta úr skafli eftir þörfum. En, ég afvegaleiði sjálfan mig. Miðað við þessa útreikninga er ég 110 klukkustundum, fjórum og hálfum sólarhring leng- ur til vinnu með strætó en á bíl á hverju einasta ári. Fokk, það er alveg fá- ránlega mikið…eða hvað? Á þessum 110 tímum spara ég mér, eða vinn mér inn, 700.000 krón- ur, tæplega 6.400 krónur á tímann, skattfrjálst. Það er næstum kippa af sæmilegum bjór á hverjum degi árs- ins - sem er kannski ekki svo hag- sýnn eða heilsusamlegur mæli- kvarði. Þar að auki liggur leiðin fljótlega utan í skipti- nám, sem gerir bíl á Íslandi að fullkominni peningasóun. Þetta fæ ég fyrir það eitt að láta á móti mér að komast ekki ferða minna hvert sem ég vil öllum stundum, og vera aðeins leng- ur í vinnuna. Rétta afstaðan í þeim efnum er auðvitað sú að staðir sem eru ekki í göngu- færi við heimili mitt, eða þeim mun auðveldara að strætóast þangað, eru ekki þess virði að heimsækja. »Hagsýni ég, sem eldaaldrei heima og læt selja mér síma og tölvur með eplamerki fyrir morð- fjár, reiknaði mig að þeirri niðurstöðu að lúxusinn að keyra kostar með öllu í kringum 700.000 krónur á ári. Heimur Gunnars Dofra Gunnar Dofri Ólafsson gunnardofri@mbl.is Fagleg þjónusta í 60 ár Kringlan 4-12 • Sími 533 4533 • Finndu HYGEA á facebook Vesti, kanína og refur 29.900 Leðurhanskar verð frá 4.900 Kragi, ekta skinn 15.800 Leðurhanskar verð frá 4.900 Hálsfestar verð frá 5.500 Leðurtaska 36.460 Hálsfesti 4.900 Seðlaveski 8.250 Leðurtaska 28.800 Hálsfesti 4.900 100% silkislæða, margir litir 3.900 100% silkislæða, margir litir 3.900 Leðurtaska 14.900 Hálsfesti 4.900

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.