Morgunblaðið - 24.01.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 24.01.2014, Blaðsíða 15
MORGUNBLAÐIÐ | 15 E ins og gefur að skilja svífur þjóðlegur andi yfir lögunum sem oftast eru sungin á mannfögnuðum sem efnt er til í tilefni af þorra, enda siðurinn jú séríslenskur. Hér eru textar að nokkrum af vinsælli þorralögunum sem oftar en ekki rata á raddbönd þeirra sem blóta þorra. jonagnar@mbl.is Minni kvenna Fósturlandsins Freyja fagra vanadís móðir, kona, meyja meðtak lof og prís. Blessað sé þitt blíða bros og gullið tár. Þú ert lands og lýða ljós í þúsund ár (Matthías Jochumsson) Táp og fjör og frískir menn Táp og fjör og frískir menn finnast hér á landi enn, þéttir á velli og þéttir í lund, þrautgóðir á raunastund. Djúp og blá blíðum hjá brosa drósum hvarmaljós. Norðurstranda stuðlaberg stendur enn á gömlum merg. Aldnar róma raddir þar, reika svipir fornaldar hljótt um láð og svalan sæ, sefur hetja’ á hverjum bæ. Því er úr doðadúr, drengir, mál að hrífa sál, feðra vorra’ og feta’ í spor fyrr en lífs er gengið vor. (Grímur Thomsen) Þorramatur (Lag: A-ram-sasa) Ó hangikjöt, ó hangikjöt og rófustappa, grænar baunir og súrhvalur, ó hangikjöt, ó hangikjöt og sviðasulta, hrútspungar og harðfiskur :/: Og hákarl og flatbrauð mér finnst svo gott að borða allan þennan mat. Og hákarl og flatbrauð, mér finnst svo gott að borða allan þennan mat:/: Þorrablót Ég fór eitt sinn um Frakkland þvert og fagnaðar naut þar með ýmsu móti. Viðlag: Mér finnst þó vera meir um vert fjörið á þessu þorrablóti. Jiddíjaddíjei, jiddíjaddíjei, fjöriðá þessu þorrablóti, jiddíjaddíjaei, jiddíjaddíjei, mér finnst þó meir um vert. Það er víst rétt að sæl þú sért er siglirðu uppeftir Rínarfljóti Mér finnst þó ... Á Mallorka fólk sig baðar bert og brátt verður hörund þess líkast sóti. Mér finnst þó ... Þó danska ölið sé æði sterkt og ýmsir í Kaupinhöfn vel þess njóti Mér finnst þó ... Já - margt er sér víða til gamans gert á glitrandi mannlífsins ölduróti. Mér finnst þó ... Þorraþrællinn 1866 Nú er frost á Fróni, frýs í æðum blóð, kveður kuldaljóð Kári í jötunmóð. Yfir laxalóni liggur klakaþil, hlær við hríðarbyl hamragil. Mararbára blá brotnar þung og há unnarsteinum á, yggld og grett á brá. Yfir aflatjóni æðrast skipstjórinn, harmar hlutinn sinn hásetinn. Horfir á heyjaforðann hryggur búandinn: ,,Minnkar stabbinn minn, magnast harðindin. - Nú er hann enn á norðan, næðir kuldaél, yfir móa og mel myrkt sem hel. Bóndans býli á björtum þeytir snjá, hjúin döpur hjá honum sitja þá. Hvítleit hringaskorðan huggar manninn trautt; Brátt er búrið autt, búið snautt. Þögull Þorri heyrir þetta harmakvein gefur grið ei nein, glíkur hörðum stein, engri skepnu eirir, alla fjær og nær kuldaklónum slær og kalt við hlær: ,,Bóndi minn, þitt bú betur stunda þú. Hugarhrelling sú, er hart þér þjakar nú, þá mun hverfa, en fleiri höpp þér falla í skaut. Senn er sigruð þraut, ég svíf á braut. (Kristján Jónsson) Sungið af þrótt á þorra Mörgum þykir hópsöngur jafn ómissandi á þorra og maturinn sjálfur, og rétt eins og maturinn byggir á sterkri hefð hafa sum lög áunnið sér sterkan hefðarrétt til hópsöngs á þorrablótum. Þegar talið er í hópsöng þarf ekki að segja landanum það tvisvar. Á myndinni sjást Íslendingar erlendis á þorrablóti og ekki fer á milli mála að hér lætur enginn sitt eftir liggja heldur er sungið af innlifun. ÞORRAMATUR Skútan Hólshraun 3 · 220Hafnarjörður · Símar: 555-1810, 565-1810Fax: 565-2367 · Netfang: veislulist@veislulist.is · www.veislulist.is Í LOKJANÚARBLÓTUMVIÐÞORRANNEINSO GSÖNNUMÍSLENDINGUMSÆMIR. Súrmatinn útbúum við sjálfir frá grunni og byrjar undirbúningur þessa skemmtilega tíma strax að hausti. Þorrama tinn er hægt að fá senda í sali, heimahús og panta í veislusal okkar. ÞJÓÐLEG ÞORRAHLAÐBORÐ FRÁVEISLULIST Súrmatur Hrútspungar, súr sviðasulta, lundabaggar, bringukollar, lifra- pylsa og blóðmör. Þorrakonfekt Hákarl, harðfiskur, hvalrengi, marineruð síld og kryddsíld. Kjötmeti og nýmeti Hangikjöt, pressuð svið, lifrapylsa og blóðmör. Heitir réttir Sviðakjammi, saltkjöt, rófu- stappa, kartöflur og jafningur. Meðlæti Rúgbrauð, flatbrauð, smjör, grænmetissalat, grænar baunir og grænmeti Fari fjöldi yfir 40 manns bjóðum við Stroganoff pottrétt með hrís- grjónum og steiktum kartöflum, sé þess óskað. Matreislumenn fylgja veislu eftir fari fjöldi yfir 60 manns. www.veislulist.is 3.000.- Verð f rá fyrir s tærri hópa 3.500.- Verð f rá fyrir s tærri h ópa í (heim ahús/ sali.) Allt um þorramatinn, verð, veislur og veislusal á heimasíðu okkar BE TR IS TO FA N

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.