Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 1
M I Ð V I K U D A G U R 5. F E B R Ú A R 2 0 1 4
Stofnað 1913 30. tölublað 102. árgangur
VEIÐISTJÓRNUN,
REYNSLA OG
ÞEKKING
MEÐ MEIRI-
HLUTA Á FIMM
STÖÐUM
EINSTÖK SAGA
HJÁ FAULKNER OG
FRÁBÆRLEGA ÞÝDD
SKOÐANAKANNANIR 16-17 FIMM STJÖRNUR 38REFA- OG MINKAVEIÐI 22
Morgunblaðið/Ómar
Kindur Féð var frjósamt síðastliðið vor.
Sauðfjárbú Eiríks Jónssonar í
Gýgjarhólskoti í Biskupstungum
skilaði mestum afurðum á síðasta
ári. Ærnar skiluðu 39,5 kg kjöts að
meðaltali. Er þetta annað skiptið í
röð sem búið er í efsta sæti í
skýrsluhaldi í sauðfjárrækt.
Náði Eiríkur þessum árangri
þrátt fyrir óhagstætt tíðarfar sem
dró úr fallþunga. Þrátt fyrir að fall-
þungi dilka hafi verið rúmum 300
grömmum minni sl. haust en árið
áður er útlit fyrir að heildarafurðir
verði síst minni. Góð frjósemi ræð-
ur miklu um þá niðurstöðu. »14
Óhagstætt tíðarfar
dró úr fallþunga
Bílaleigur vaxa hratt
» Velta erlendra greiðslukorta
á bílaleigum var 4,3 milljarðar
2012 en 5,8 milljarðar 2013 á
virði hvers árs.
» Aukningin er 34% án tillits
til verðbólgu á tímabilinu.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sala á vöru og þjónustu í ýmsum
greinum til erlendra ferðamanna
hleypur orðið á milljörðum króna og
nemur aukningin jafnvel tugum pró-
senta milli áranna 2012 og 2013. Fyr-
ir vikið hafa ýmsar þjónustugreinar
vaxið langt umfram hagvöxt.
Þetta má lesa út úr greiningu
Rannsóknaseturs verslunarinnar á
gögnum frá kortafyrirtækjum.
Ríflega 90 milljarðar
Um er að ræða sundurliðun á
greiðslum með erlendum greiðslu-
kortum á sölustað en þær námu alls
79,5 milljörðum í fyrra. Við það bæt-
ast úttektir úr hraðbönkum og bönk-
um fyrir 11,8 milljarða í fyrra, en alls
eru þetta 91,3 milljarðar króna.
Leiðir sundurliðunin m.a. í ljós að
erlendir ferðamenn greiddu með
kortum sínum 9,6 milljarða fyrir
veitingar í fyrra en höfðu greitt 7,6
milljarða árið 2012. Er það 26%
aukning, án tillits til verðbólgu. Við
þetta bætist sala fyrir reiðufé. Tölur
Hagstofunnar benda til að velta veit-
ingageirans hafi aldrei verið meiri.
MTugprósenta vöxtur »4
Veitingasala jókst um 26%
Hraður vöxtur er í mörgum atvinnugreinum sem þjónusta erlenda ferðamenn
Velta erlendra greiðslukorta á veitingahúsum var 9,6 milljarðar króna í fyrra
Morgunblaðið/Eva Björk
Tveir góðir Guðjón Valur og Aron
eru á meðal þeirra allra bestu.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@mbl.is
Guðjón Valur Sigurðsson og Aron
Pálmarsson, landsliðsmenn Íslands í
handbolta, eru í átta manna byrj-
unarliði Norðurlandaúrvalsins í
handbolta sem Morgunblaðið stóð
fyrir kosningu á. Báðir fengu góða
kosningu hjá þeim átta sérfræð-
ingum sem leitað var til. Alexander
Petersson er svo á meðal varamanna
en hann var nær einróma kjörinn
næstbestur á Norðurlöndum á eftir
Svíanum Kim Andersson. Sverre
Jakobsson missir naumlega af sæti á
varamannabekk Norðurlandaúr-
valsins sem varnarmaður og þá
fengu þeir Snorri Steinn Guðjónsson
og Þórir Ólafsson einnig atkvæði.
Danski landsliðsmarkvörðurinn
Niklas Landin og stórskyttan Mikk-
el Hansen voru þeir einu sem fengu
fullt hús í kosningunni en þeir þykja
langbestir í sinni stöðu á Norður-
löndum og þótt víðar væri leitað.
Þeir átta sem kusu voru nokkuð
sammála um flestar stöður nema
þegar kom að vali á línumanni og
varnarmanni. » Íþróttir
Guðjón og Aron í úrvalsliðinu
Þrír Íslendingar alls í Norðurlandaúrvalinu í handbolta
Þjóðarleikvangurinn í Laugardal er ekki nema
svipur hjá sjón núna. Klaki liggur yfir öllum vell-
inum og líkist hann meira skautasvelli en
íþróttaleikvangi.
Að sögn Jóhanns Kristinssonar, vallarvarðar á
Laugardalsvelli, hefur verið gripið til aðgerða í
von um að grasið á vellinum kali ekki. Meðal
annars var völlurinn skafinn til þess að reyna að
koma súrefni að grassverðinum. „Ef völlur lend-
ir í því að það verður aldauði í grasinu, þá þarf
að sá að vori og bíða eftir að völlurinn komi
upp,“ segir Jóhannes. »6
Laugardalsvöllurinn eins og skautasvell
Morgunblaðið/Þórður
Klakahella liggur yfir íþróttaleikvanginum í Laugardal og menn hafa áhyggjur af kali
Kolbeinn Árnason, framkvæmda-
stjóri LÍÚ, segir að margir í útgerð
séu að hugsa sinn gang og minni út-
gerðir með eitt skip eigi t.d. ekki
sömu möguleika á hagræðingu og
stærri útgerðirnar hafi.
„Stöðugt auknar álögur og minni
veiðiheimildir auka á erfiðleika í
rekstri, útgerðarform kann einnig
að hafa þarna áhrif sem og samsetn-
ing veiðiheimilda,“ segir Kolbeinn.
Ennfremur segir hann að það stand-
ist enga skoðun að leggja á ofur-
skatta án tillits til afkomu. »12
Minni útgerðir hafa
ekki sömu mögu-
leika til hagræðingar
Gamli Landsbankinn (LBI) sendi
inn beiðni til Seðlabanka Íslands sl.
haust um undanþágu frá höftum til
að greiða umtalsverða fjárhæð í er-
lendum gjaldeyri til forgangskröfu-
hafa. Sú beiðni hefur enn ekki verið
afgreidd og samkvæmt heimildum er
afar ólíklegt að slík heimild fáist á
meðan ekki hefur tekist að semja um
að lengja í 240 milljarða erlendum
skuldum Landsbankans við LBI.
Þær upplýsingar fengust frá LBI
að búið væri að greiða út allan þann
gjaldeyri sem bankinn átti og var
undanþeginn höftum. Frekari
greiðslur til kröfuhafa verða því ekki
inntar af hendi nema með sérstöku
samþykki Seðlabankans. LBI á nú
um 280 milljarða í gjaldeyri í reiðufé.
Erlendir fjárfestingabankar hafa
sýnt áhuga á að koma að kaupum á
skuldabréfum Landsbankans og um
leið að lengt verði í bréfunum – hugs-
anlega til 15 ára. hordur@mbl.is »18
LBI óskar eftir und-
anþágu frá höftum
Óvíst um næstu greiðslu til kröfuhafa
Erlendur ferðamaður á sextugs-
aldri lést af slysförum í íshelli í
Breiðamerkurjökli í gær.
Samkvæmt heimildum Morg-
unblaðsins var maðurinn þar við
ljósmyndun í fylgd íslensks leið-
sögumanns. Hann mun hafa fallið í
á sem rennur eftir hellisbotninum.
Lífgunartilraunir báru ekki árang-
ur. »2
Banaslys varð í
Breiðamerkurjökli