Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 2

Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 2
Morgunblaðið/RAX Íshellirinn Myndin var tekin fyrr í vetur í hellinum þar sem slysið varð. Áin sést í forgrunni myndarinnar. Guðni Einarsson gudni@mbl.is Erlendur ferðamaður á sextugsaldri lést af slysförum í íshelli í Breiða- merkurjökli í gær, samkvæmt upp- lýsingum frá lögreglu. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins var mað- urinn þar við ljósmyndun og var í fylgd íslensks leiðsögumanns. Hann mun hafa verið vanur jöklaferðum og hafa farið áður í íshella hér á landi. Annar íslenskur leiðsögumaður var í ísklifri í nágrenninu á jöklinum með tveimur ferðamönnum. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins hneig maðurinn skyndilega niður þar sem hann stóð á auðri klöpp og féll í á sem rennur eftir hellisgólfinu. Vatnið hreif manninn með sér því áin var talsvert vatns- mikil eftir rigningar. Maðurinn náð- ist úr ánni en lífgunartilraunir báru ekki árangur. Kallað var eftir hjálp og kom ís- klifurhópurinn þegar til aðstoðar. Björgunarsveitarmenn Slysavarna- félagsins Landsbjargar komu frá Höfn í Hornafirði og úr Öræfum og komu þeir fyrstu þeirra á staðinn, sem er við mynni Veðurárdals, laust fyrir klukkan fimm síðdegis. Læknir og sjúkrabíll komu einnig. Slysið varð um 150-200 metra inni í íshell- inum. Björgunaraðgerðirnar tóku töluverðan tíma og þurftu björgun- arsveitarmenn að vaða í mittisdjúpu vatni til að ná manninum. Þeir komu út úr hellinum um sjöleytið. Ferðin niður af jöklinum gekk áfallalaust. Alls tóku 30-40 björgunarsveitar- menn þátt í aðgerðinni, samkvæmt upplýsingum Slysavarnafélagsins Landsbjargar. Þyrla Landhelgisgæslunnar (LHG) lagði af stað úr Reykjavík á slysstaðinn um klukkan 15.30. Þyrl- an var afboðuð og var henni snúið við á leiðinni, samkvæmt upplýsingum frá stjórnstöð LHG. Lést af slysförum í íshelli  Erlendur ferðamaður á sextugsaldri sem var að taka ljósmyndir í íshelli í Breiðamerkurjökli féll af klöpp í á og lést  Lífgunartilraunir báru ekki árangur 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson, ritstjorn@mbl.is Viðskipti Agnes Bragadóttir, vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Guðrún Hálfdánardóttir, Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. Hólmfríður Gísladóttir holmfridur@mbl.is Mikið misræmi er milli kunnáttu ís- lenskra ungmenna þegar kemur að dönsku ritmáli annars vegar og dönsku talmáli hins vegar. Þetta má m.a. rekja til áherslna í dönsku- kennslu í íslenskum grunn- og fram- haldsskólum en afleiðingin er sú að Íslendingar upplifa vankunnáttu þegar þeir reyna að tjá sig á dönsku. Þetta var meðal þess sem kom fram í máli Auðar Hauksdóttur, for- stöðumanns Stofnunar Vigdísar Finnbogadóttur og dósents í dönsku, á ráðstefnu um nytsemi skóladönsk- unnar, sem Norræna félagið efndi til í gær. Auður hefur m.a. rannsakað reynslu íslenskra háskólanema í Danmörku, en þeir voru tæplega 2.000 talsins skólaveturinn 2010- 2011. „Það sem er óheppilegt við þetta er að þetta þýðir að þegar menn koma til Danmerkur þá skilja þeir ekki tal- málið í byrjun og finnst þeir ekki kunna neitt, sem er algjört vanmat, því þeir kunna helling en kannski ekki akkúrat þetta talmál sem þeir hitta fyrir þegar þeir koma fyrst til landsins,“ segir Auður. Hún segir að þeir námsmenn sem hún hafi rætt við hafi þó iðulega náð skilningi á talmál- inu á tveimur til þremur mánuðum en það hafi tekið þá aðeins lengri tíma að verða talandi á dönsku. Nær undan- tekningalaust nái þeir færni til að stunda háskólanám á dönsku. Norðurlöndin bakland Auður segir rannsóknir sýna að þessu sé öfugt farið með enskuna, þar sem Íslendingar telja kunnáttu sína mun meiri en hún raunverulega er, og bendir á að þeir hafi haft mik- inn ávinning af því að læra dönsku, sem enskan skilar þeim ekki. „Norðurlöndin hafa verið okkar bakland í sambandi við vinnu og ann- að þegar eitthvað hefur bjátað á,“ segir Auður og vísar til flutninga Ís- lendinga til Svíþjóðar á 7. og 8. ára- tugnum og til Noregs á síðastliðnum árum. Þeir hafi auk þess notið for- gangs í skólakerfum Norður- landanna. „Það er fullt af erlendum námsmönnum sem vilja komast inn í norrænu háskólana en Íslendingar hafa verið undanþegnir kröfum um dönskukunnáttu, sem erlendir stúd- entar hafa þurft að uppfylla, af því að þeir hafa stúdentspróf í dönsku,“ bendir hún á. Án þess væri óvíst að Íslendingar hefðu jafn greiðan að- gang að þeim þúsundum námsplássa sem þeir hafa fyllt síðustu ár. Auður segir afar mikilvægt að efla og standa vörð um gæði dönsku- kennslu í grunnskólunum og þar skipti fagmennska kennara og við- horf almennings höfuðmáli. Hún seg- ir miklu skipta að þjóðfélagið standi með því sem er gert í skólakerfinu en geri ekki lítið úr því. Dönskukunnáttan kom sér vel Marta Mirjam Kristinsdóttir, laga- nemi við Háskóla Íslands, starfaði þrjú sumur í Noregi og segir dönsku- kunnáttuna hafa komið sér vel. Með því að henda sér út í djúpu laugina og tala dönsku hafi hún lært norsku. „Fólk talar svolítið um að það hafi tekið það langan tíma að ná tökum á dönskunni í Danmörku,“ segir hún. „En um leið og ég fór að tala kom norskan mjög fljótt. Þannig að maður fór að velta þessu fyrir sér: ef það tekur svona gífurlega langan tíma að læra dönsku, hvort það sé þá skyn- samlegra að við lærum norsku?“ seg- ir hún. Hún segir að eftir sex ára dönskunám og alls níu mánuði í Nor- egi, skilji hún norskuna mun betur en dönskuna í dag.  Vegna þess hvernig dönskukennslu er háttað skilja íslensk ungmenni ritaða dönsku mun betur en tal- aða  Upplifa vankunnáttu þegar út er komið  Var fljót að læra norsku með því að bjarga sér á dönsku Mikill munur á ritmáli og talmáli Morgunblaðið/Ernir Danska Auður segir viðhorf skipta sköpum um gæði kennslunnar. Leit var hætt í gær að manni sem grunur lék á að hefði fallið í sjóinn af nyrðri hafnargarði Reykjavíkurhafnar í fyrrakvöld. „Við erum að skoða upptökur úr öryggismynda- vélum og fleira, hvort við sjáum einhvern á ferðinni á þessum tíma,“ sagði Ágúst Svansson, aðalvarðstjóri Lögreglu höfuðborgarsvæðisins. Hann sagði ekki vit- að hvort einhver hefði í raun og veru fallið í sjóinn af hafnargarðinum. „Við erum búnir að leita þar sem hægt er. Nú er biðstaða þar til eitthvað nýtt kemur í ljós.“ Hvasst var í fyrrakvöld við höfnina og pusaði sjór yfir hafnargarðinn. Erlendur ferðamaður sem var þar staddur um klukkan 21.00 kvaðst hafa séð mann fara út á hafnargarðinn og ganga út að vitanum. Sjónarvotturinn var svo eitthvað upptekinn við annað um stund en þegar hann leit aftur út á garðinn sá hann engan. Hann taldi að ef til vill hefði maðurinn fallið í sjóinn og gerði lögreglunni viðvart. Björgunarsveitir, Landhelgisgæslan og lögreglan hófu þegar leit án þess að finna neitt. Landhelg- isgæslan leitaði áfram í gær og fór um svæðið án ár- angurs. Ekki er vitað hver fór út á garðinn en talið er að hann sé útlendingur því hann talaði við sjónarvottinn. Ekki tekur nema þrjár til fjórar mínútur fyrir full- frískan mann að fara eftir garðinum. Engin tilkynn- ing hafði komið um að manns væri saknað. Eft- irgrennslan á gististöðum bar ekki heldur árangur. gudni@mbl.is Ljósmynd/Faxaflóahafnir Reykjavíkurhöfn Grunur lék á að maður hefði farið í sjóinn. Leit hætt í Reykjavíkurhöfn  Óttast var að maður hefði dottið í sjóinn í fyrrakvöld „Þetta er snúin staða. Það er ljóst að svigrúmið í samningunum var klárað. Það eru þessi 3,5-4% sem Seðlabankinn tel- ur hægt að semja um sem launa- breytingar án þess að ógna verð- lagsstöðugleika. Sú staða er óbreytt þrátt fyrir nið- urstöður atkvæðagreiðslna,“ sagði Þorsteinn Víglundsson, fram- kvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins (SA), eftir samningafundi gærdags- ins í Karphúsinu. Fram kom í gær að vantrúar gætti hjá félagsmönnum viðsemjenda SA um að ná mætti sambærilegri kaup- máttaraukningu með lægri nafn- launabreytingu og minni verðbólgu. „Við höfum bent á að þróunin í jan- úarmælingu verðbólgu hafi verið tals- vert betri en menn gerðu sér vonir um. Hún er ótvíræð vísbending um að við séum á réttri leið. Við teljum fulla ástæðu til að ætla að við verðum kom- in niður fyrir 2,5% verðbólgu eftir febrúarmælinguna,“ sagði Þorsteinn. gudni@mbl.is »4 Svigrúmið í samning- um klárað Þorsteinn Víglundsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.