Morgunblaðið - 05.02.2014, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
UPPGJÖR & BÓKHALD
Fast verð í
launavinnslu
Meðhöndlun launaupplýsinga er
viðkvæmt mál og flækjurnar við
útreikninga geta verið miklar.
Settu launavinnsluna í traustar
hendur fagfólks.
Hafðu samband við
Olgeir í síma 545 6106
og fáðu fast verð í þína
launaútreikninga.
kpmg.is
Þingmaður spurði nýlega um ut-anfarir forseta Íslands og
kostnað við þær.
Einhvers staðarvar því fleygt
að það væri þó ann-
að uppgjör en pen-
ingalegt sem vekti
fyrir Svandísi Svav-
arsdóttur þegar hún
forvitnaðist um
þann kostnað sem
þjóðfélagið hefði nú
af gamla formanni
gamla flokksins
hennar.
En ekki varðneitt sérstakt
hneyksli úr. Því þótt
forsetinn héldi úr landi að meðaltali
í þriðju hverri viku allan ársins
hring, þá dró það úr kostnaði að
hann virtist iðulega gista á kostnað
annarra en íslenskra skattgreið-
enda. Það er viðtekin venja að í op-
inberri heimsókn til ríkis stendur
gestgjafinn undir gistingu og flest-
um öðrum viðurgerningi. En ýmsir
aðrir höfðu sýnt sömu gestrisni.
Fyrrverandi forseti Þýskalandshrökklaðist úr embætti af því
að hann hafði sem forsætisráðherra
fylkis þegið fría gistingu í EINA
nótt af góðkunningja sínum. En
auðvitað eru ekki sömu viðmið í öll-
um löndum.
En Svandísi Svavarsdóttur yf-irsást að svörin við spurn-
ingum hennar gætu leitt til þess að
kjósendur vildu að Ólafur Ragnar
sæti enn eitt kjörtímabil eftir að
þessu lýkur. Því miðað við fram-
reiknaðar tölur frá 2012 þá hefur
Ólafur dvalið samtals rúmlega heilt
kjörtímabil erlendis í forsetatíð
sinni. Hann hafði því ekki verið for-
seti á Íslandi nema tæp 3 kjör-
tímabil þegar hann var kosinn síð-
ast en ekki 4.
Ólafur Ragnar
Grímsson
Ferðasaga til
næsta bæjar
STAKSTEINAR
Svandís
Svavarsdóttir
Veður víða um heim 4.2., kl. 18.00
Reykjavík 3 rigning
Bolungarvík 3 alskýjað
Akureyri 4 skýjað
Nuuk -7 snjókoma
Þórshöfn 5 skúrir
Ósló 0 frostrigning
Kaupmannahöfn 1 skýjað
Stokkhólmur 1 skýjað
Helsinki -1 þoka
Lúxemborg 6 léttskýjað
Brussel 7 skýjað
Dublin 6 skýjað
Glasgow 5 skýjað
London 7 léttskýjað
París 7 alskýjað
Amsterdam 8 léttskýjað
Hamborg 5 heiðskírt
Berlín 5 heiðskírt
Vín 0 alskýjað
Moskva -2 skýjað
Algarve 15 skýjað
Madríd 7 skýjað
Barcelona 12 léttskýjað
Mallorca 12 léttskýjað
Róm 11 léttskýjað
Aþena 8 skýjað
Winnipeg -22 alskýjað
Montreal -10 skýjað
New York -3 þoka
Chicago -6 alskýjað
Orlando 26 alskýjað
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
VEÐUR KL. 12 Í DAG
5. febrúar Sólarupprás Sólsetur
REYKJAVÍK 9:56 17:29
ÍSAFJÖRÐUR 10:15 17:19
SIGLUFJÖRÐUR 9:59 17:02
DJÚPIVOGUR 9:29 16:55
Kostnaður við byggðasögu Hellu er
kominn í 32 milljónir króna. Unnið
hefur verið við ritun hennar frá árinu
2008. „Mér virðist af fréttum að
dæma, að verkefni um ritun byggða-
sögu standi oft lengi yfir og kosti tals-
vert. Ég átta mig ekki á hvað er eðli-
legt og hvað óeðlilegt í því samhengi,“
segir Guðmundur Ingi Gunnlaugsson,
oddviti hreppsnefndar Rangárþings-
Ytra, spurður út í kostnaðinn við sögu-
ritunina. Hann bendir á að áður en
farið er af stað í slíka ritun er oft ekki
endilega vitað hversu mikið er til af
gögnum eða hve djúpt sé á þeim. Það
geti verið tímafrekt að tína þessa
þekkingu saman.
Núverandi sveitarstjórn tók við
verkefninu árið 2010 þegar hún tók við
taumunum. Guðmundur Ingi segir að
ekkert annað hafi verið í stöðunni þá
en að halda áfram með verkið. „Það er
mikill fengur í að eiga þessa sögu. Það
er alltaf spurning hvers virði það er.
Stærsti þátturinn er að þetta er liður í
menningu og sögu staðarins og mik-
ilvægt að gera því fólki skil sem
byggði upp staðinn á sínum tíma.“
Ingibjörg Ólafsdóttir er söguritari.
Gengið hefur verið frá skriflegum
samningi við hana um lok verkefn-
isins. Stefnt er á útgáfu 2014.
thorunn@mbl.is
Byggðasaga Hellu í ritun
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Hella Byggðasagan kemur út í ár.
Kostnaðurinn kominn í 32 milljónir króna Unnið að
ritun frá 2008 Mikill fengur að sögunni, segir oddviti
Stytta þarf tíma málsmeðferðar hjá
yfirskattanefnd. Eins þarf að koma í
veg fyrir endurtekna rannsókn
meiriháttar
skattamála, sem
nú eru fyrst
rannsökuð hjá
skattrann-
sóknastjóra og
síðan hjá lög-
reglu, að mati
nefndar sem at-
hugaði stjórn-
sýslu skattamála.
Skýrsla nefnd-
arinnar er aðgengileg á vef fjár-
málaráðuneytisins. Nefndina skip-
uðu Ragnhildur Helgadóttir,
prófessor, sem var formaður, Garð-
ar G. Gíslason hdl. og Guðrún Þor-
leifsdóttir lögfræðingur. Starfs-
maður var Rakel Jensdóttir.
Skýrslan er fyrsti áfangi í athug-
un á stofnanakerfi skattamála. Fjár-
málaráðherra hefur rætt efni skýrsl-
unnar við forstöðumenn stofnana
skattkerfisins sem í hlut eiga. Við
endurskoðun á stofnanakerfi skatta-
mála á að athuga hvernig ráðuneytið
geti betur sinnt eftirlits og stefnu-
mótunarhlutverki sínu. M.a. á að
kanna aðstæður sjálfstæðra úr-
skurðarnefnda, innheimtu opinberra
gjalda og fyrirkomulag skatteftirlits
og skattrannsókna. gudni@mbl.is
Stjórnsýsla
skattamála
skoðuð
Ragnhildur
Helgadóttir