Morgunblaðið - 05.02.2014, Page 10

Morgunblaðið - 05.02.2014, Page 10
10 DAGLEGT LÍF MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Kristín Heiða Kristinsdóttir khk@mbl.is Þ etta er fyrir foreldra og alla þá sem vinna með börnum, til dæmis kenn- ara og heilbrigðisstarfs- fólk,“ segir Sigríður Dögg Arnardóttir, kynfræðingur, BA í sálfræði og MA í kynfræði, en hún verður með námskeið hjá End- urmenntun Háskóla Íslands núna í febrúar sem heitir Kjöftum um kyn- líf við börn og unglinga. „Þörfin fyrir svona námskeið er mikil. Undan- farin tvö ár hef ég verið með fyrir- lestra fyrir foreldra og unglinga um þessi mál og þar kemur vel fram að fólk veit ekkert hvernig það á að ræða kynlíf við börnin sín, hvað sé í lagi og hvað ekki. Ég fer á þessu námskeiði í gegnum það hvað sé eðlilegt og hvað ekki, frá aldrinum 0- 18 ára, skoða hvað er ástæða til að staldra við og svo framvegis. Heil- brigðisstarfsfólk og íþróttakennarar lenda til dæmis oft í vanda þegar krakkar leita til þeirra með þessi mál, því þeir vita ekki hvað er eðli- legt.“ Hvað er viðeigandi? Sigríður Dögg segir að mikil gjá sé oft á milli unglinga og foreldra í þessum málum, en viljinn sé þó mik- ill til að ræða málin. „Foreldrar átta sig ekki á hvað má og hvað ekki, um hvað á að tala, hvað er viðeigandi og hvað ekki. Kynfræðslan hefur held- ur ekki haldist í takt við tækni- samfélagið og þá staðreynd að fólk sækir sér upplýsingar á netinu en er kannski ekki í stakk búið til að greina hvort þær upplýsingar eru réttar eða góðar. Alls konar mýtum Að tala ekki um kyn- líf eru aðalmistökin Virk kynfræðsla seinkar kynferðislegri hegðun barna og gerir hana ábyrgari og öruggari þegar hún hefst. Þess vegna er mikilvægt að foreldrar tali um kynlíf við börn sín. En foreldrar vita oft ekki hvernig þeir eiga að bera sig að. Sigríður Dögg segir algengustu mistökin að forðast það að opna á þessar samræður. Hún verður nú í febrúar með námskeiðið Kjöftum um kynlíf við börn og unglinga. Sigríður Dögg Segir foreldra mikla fyrir sér að ræða kynlíf við unglingana. Á vefsíðunni lesvefurinn.hi.is má m.a. finna eftirfarandi: „Hvers vegna skiptir máli að börn öðlist áhuga á að lesa bækur þegar nóg er af öðru les- efni út um allt? Einfalda svarið er að áhugi á bóklestri tengist betri les- skilningi sem er undirstaða alls náms. Langa svarið er að bóklestur eykur víðsýni og umburðarlyndi, kennir börnum að setja sig í spor annarra og átta sig á skráðum og óskráðum reglum samfélagsins, lest- ur eflir málþroska, sköpunargáfu, ímyndunarafl og orðaforða. Svo er bóklestur líka svo skemmtilegur, kærkomið athvarf frá amstri dags- ins.“ Lesvefurinn er áhugaverð síða um læsi og lestrarerfiðleika, þar eru t.d. ráð fyrir foreldra, kennara og nemendur um hvernig hægt er að efla læsi. Á vefsíðunni er auk þess heilmikið um læsi, um lestrarörðug- leika og margt fleira. Vefsíðan www.lesvefurinn.hi.is Morgunblaðið/Ómar Bók er best vina Að sökkva sér í aðra heima með því að lesa bók er gott. Bóklestur eykur víðsýni Í tilefni af Degi leikskólans á morgun verður opnað Álfakaffi, lítið kaffihús í leikskólanum Álfaborg í Reykholti í Biskupstungum. Þar verður hlaðborð, kökur og brauð, kaffi og djús. Börnin á Krummaklettum fá að taka þátt í starfsemi kaffihússins og þar verða líka til sýnis fallegar fuglamyndir eft- ir nemendur leikskólans. Nú er um að gera að skella sér í kósístund, gæða sér á góðgæti og styrkja í leiðinni námsferð starfsfólksins, en allur ágóði rennur í námsferðasjóð. Í tilefni dagsins ætla öll leikskóla- börnin líka að heimsækja eldri borg- ara í Reykholti og syngja fyrir þá. Endilega … … kíkið í Álfa- kaffi á morgun Börn Gott er að vera í návist barna. Á Handverkskaffi í Gerðubergi í kvöld kl. 20 kynnir Jón Adólf Stein- ólfsson feril sinn í hörðum efnum fyrir gestum, en hann hefur gert listaverk í íslenskt grjót jafnt sem ítalskan marmara. Hann ætlar að kynna listsköpun sína, sýna nokkur verk og verkfæri, útskýra vinnu í grjót og sýna ljósmyndir. Aðgangur er ókeypis og allir eru velkomnir. Jón Adólf hefur lengi unnið lista- verk sín í tré en fyrir fáum árum ákvað hann að taka nýrri áskorun og gera verk sín í grjót. Hann hefur lært að allt sem hægt er að gera í tré er hægt að gera í stein en hann hef- ur meðal annars sótt sér þekkingu á þessu listformi til Ítalíu. Smærri höggmyndir sínar gerir Jón Adólf ýmist úr íslensku grjóti, innlendu holta- eða fjörugrjóti eða innfluttum marmara. Handverkskaffi í kvöld í Gerðubergi Hvað býr í grjótinu? Grjót Sum verk Jóns Adólfs eru mjög stór, hér er hann við eitt verka sinna. Skannaðu kóðann til að fara inn á vefsíðuna. Vatnagörðum 12 - 104 Reykjavík - Sími: 588 5151 - Fax: 588 5152 - glerslipun.is Glerslípun & Speglagerð ehf. Speglar Flotgler Öryggisgler Hert gler Bílspeglar Sandblástur Álprófílar Máltöku- og uppsetningaþjónusta Sjáðu sjálfan þig í nýju ljósi Við leggjum metnað okkar í að bjóða sérhæfðar og vandaðar lausnir á baðherbergi. Við bjóðum upp á sérsmíðaða spegla, sturtuklefa og sturtuskilrúm. Þá erum við komnir með nýja útgáfu af ljósaspeglunum okkar vinsælu. Á nýrri heimasíðu okkar glerslipun.is er gott yfirlit yfir það sem er í boði. Auk þess bjóðum við alla velkomna í Vatnagarða 12 þar sem fagfólk veitir góða þjónustu og allar þær upplýsingar sem þarf.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.