Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 11
Morgunblaðið/Golli
Uglingaástir Hún getur verið heit ástin sem kviknar á unglingsárunum og þá er gott að vita eitthvað um kynlífið.
og ósannindum er viðhaldið, eins og
t.d. að hægt sé að sjá á kynfærum
hverslags kynlíf viðkomandi hafi
stundað, að kynfærin mótist af kyn-
lífshegðuninni. Önnur mýta er að
sæði hafi ofureiginleika fyrir kven-
líkamann og því beri að innbyrða
það. Þar sem ég vinn við þessa
fræðslu hef ég komist að því að ótrú-
lega margar mýtur lifa góðu lífi.“
Mikilvægt að vera
fordómalaus og opin
Sigríður Dögg er fljót til svars
þegar spurt er hver séu helstu mis-
tök foreldra þegar kemur að kynlífi
unglinganna þeirra. „Að ræða þetta
ekki, það eru mestu mistökin. Að
forðast það að opna á þessar sam-
ræður eru langalgengustu mistök-
in.“ En hvað er til ráða, ef ungling-
arnir eru tregir til að ræða þessi
mál? „Foreldrar þurfa að vera til-
búnir, undirbúa sig áður en farið er
af stað, vera tilbúnir til að vera for-
dómalausir og opnir, ræða þessi mál
af opnum hug. Þetta er í raun spurn-
ing um að foreldrar láti barn sitt vita
að þeir séu til staðar, að þeir geti
rætt þessi mál og að þeir geti hjálp-
að barninu við að leita svara við
spurningum sem vakna, það er ekki
nauðsynlegt að vita öll svörin.“
Hafa litla trú á sér
Sigríður Dögg segir að niður-
stöður alþjóðlegra rannsókna sýni
að virk kynfræðsla seinki kynferðis-
legri hegðun barna og geri hana
ábyrgari og öruggari þegar hún
hefst. „Þess vegna er svo mikilvægt
að tala um þessi mál. Margir for-
eldrar mikla fyrir sér að ræða kynlíf
við unglingana sína, hafa litla trú á
sér í því, finnst það flókið og halda að
þeir þurfi að vera einhverjir sér-
fræðingar, en það er fjarri því að svo
þurfi að vera. Foreldrar þurfa fyrst
og fremst að vera opnir fyrir þessu
og vera til staðar til að aðstoða börn-
in við að finna svör við spurningum.
Margir foreldrar halda líka að það
að ræða þessi mál við börnin virki
hvetjandi á þau til að fara að stunda
kynlíf, óttast að setja börnum sínum
óheppileg fordæmi með einhverju
sem þeir segja. Við förum í það á
námskeiðinu hvað felst í því að að-
greina sína eigin kynlífsreynslu og
gildi frá kynhegðun barnanna.“
DAGLEGT LÍF 11
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
GJÖRIÐ SVO VEL!Hafðu það hollt í hádeginu
HAFÐU SAMBAND
OG FÁÐU TILBOÐ!
HEITT & KALT | S: 533 3060 | heittogkalt@heittogkalt.is
HEITT OG KALT býður starfsfólki fyrirtækja hollan og næringaríkan mat
í hádegi.
Matseðill fyrir hverja viku er birtur á: www.heittogkalt.is
Sturla Birgisson er margverðlaunaður matreiðslumeistari og er í
dómnefnd fyrir Bocuse d’Or sem er ein virtasta matreiðslukeppni heims.
Það verður heilmikið um að vera á
Safnanótt á Bókasafni Kópavogs, en
næstkomandi föstudag kl. 19 hefst
fjölbreytt dagskrá safnsins.
Töframaðurinn Einar einstaki ætlar
að koma þrisvar það kvöld og galdra
fyrir börnin í barnadeildinni og hægt
verður að panta tíma hjá spákonunni
Sirrý frá kl. 19.30 en hún ætlar að
spá fyrir gestum á milli klukkan átta
og tíu um kvöldið.
Hljómsveitin Bad Days kemur og
spilar í hálftíma frá klukkan ellefu til
hálftólf, en hljómsveitarmeðlimir
skilgreina tónlist sína sem „indie-
folk“. Ótalmargt fleira verður í boði,
meðal annars sýning á draugamynd-
um Karls Jóhanns, sýning á mynd-
unum Ör-ævi eftir Önnu Maríu og
sýning á dýrum úr myrkrinu.
Öll fjölskyldan ætti að geta farið
saman á bókasafnið og skemmt sér
vel því ratleikur verður um allt hús.
Í Kórnum verða fyrirlestrar og
uppákomur: Ljóðahatturinn, þar sem
Tryggvi V. Líndal verður heiðraður,
Gunnlaugur Guðmundsson stjörnu-
spekingur ætlar að fjalla um stjörn-
urnar og dagskrárliðurinn Hrekkir og
róbótar, sem er dagskrá frá Skemu.
Þá mun Haraldur Rafn Ingvason
segja frá ratvísi dýra í myrkri og und-
ir stiganum á 1. hæð verður leikin
upptaka af upplestri um reimleika í
Reykjavík.
Í dag eins og alla miðvikudaga er
prjóna- og handavinnuklúbburinn op-
in í bókasafninu kl. 17-19 í Listvangi á
3. hæð. Byrjendur jafnt sem lengra
komnir velkomnir. Heitt á könnunni.
Reimleikar og fleira á Bókasafni Kópavogs
Töframaður Einar einstaki er ungur og upprennandi töframaður.
Einar einstaki galdrar fyrir börn