Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 12

Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 12
BAKSVIÐ Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is „Útgerðin hefur lýst því yfir að hún sé reiðu- búin að greiða veiðigjöld sem eru hófleg og skiptast af sanngirni á milli útgerða. Hættan er sú að við aukna skattlagningu, í hvaða grein sem það er, þrengist um í rekstrinum og þeir sem eru viðkvæmastir fyr- ir munu þá hugsa sinn gang,“ segir Kolbeinn Árnason, framkvæmda- stjóri LÍÚ, um fréttir sem berast af því þessa dagana að minni útgerðarfyrir- tæki séu að hætta eða draga saman seglin. Út- gerð Aðalbjargar II RE hefur ákveðið að selja skip og kvóta og það hefur útgerð Dala-Rafns VE þegar gert. Margir að hugsa sinn gang „Ég tók við starfi framkvæmdastjóra LÍÚ í september og fór þá á flesta útgerðarstaði hringinn í kringum landið og heyrði í fólki,“ segir Kolbeinn. „Mér brá við að heyra að við- kvæðið var þannig hjá mörgum í útgerð að þeir væru að hugsa sinn gang. Kannski ekki endilega að hætta á þessu ári, en vegna veiðigjalda og fleiri þátta væri bara tíma- spursmál hvenær þeir hættu. Veiðigjöldin snerta flestar útgerðir, þó ýmis atriði kunni að hafa áhrif á hversu harkalega þau komi niður á einstaka útgerð- um. Minni útgerðir með eitt skip eiga t.d. ekki sömu möguleika á hagræðingu sem stærri útgerðirnar hafa með mörg skip í rekstri. Stöðugt auknar álögur og minni veiðiheimildir auka á erfiðleika í rekstri, út- gerðarform kann einnig að hafa þarna áhrif sem og samsetning veiðiheimilda.“ Kolbeinn segir að það standist enga skoð- un að leggja á ofurskatta án tillits til af- komu. „Þessi háu veiðigjöld ýta klárlega undir erfiðleika útgerða og hjá einhverjum af þeim sem eru að hætta eða að hugleiða það eru há veiðigjöld ástæða þeirrar ákvörð- unar,“ segir Kolbeinn. Hann segir að viðmiðun við sérstaka þorskígildisstuðla þurfi að endurskoða og finna þurfi aðra stuðla til að leggja á al- mennt veiðigjald. Útdeiling á grunni sér- stakra þorskígildisstuðla hafi skekkt mynd- ina og m.a. gert útgerð frystitogara erfiða. Þar hafi orðið mikil breyting síðustu mánuði og margar útgerðir leggi nú meiri áherslu á ísfisktogara. Þennan þátt þurfi að endur- skoða og taka m.a. tillit til kostnaðar við veiðarnar. Virðisauki í vinnslu verður að veiðigjöldum í útgerð Þá sé fráleitt að virðisauki sem verði til í vinnslu skuli verða að veiðigjöldum í útgerð- inni, þó svo að viðkomandi útgerð komi ekki nálægt vinnslu afurðanna. Slíkt geti dregið úr þeirri þróttmiklu nýsköpun sem hafi myndast í sjávarútvegi undanfarin ár, sem svo hafi myndað fjölda áhugaverðra starfa, ekki síst á landsbyggðinni. Útvegsmenn hafi komið sjónarmiðum þessa efnis á framfæri við stjórnvöld og von- andi verði tekið tillit til þeirra í vinnu við nýtt frumvarp um veiðigjald. Það sé engum til góðs að afgreiða slíka gagnrýni sem grát eins og oft sé viðkvæðið þegar sjávarútveg- urinn eigi í hlut. Það sé samfélaginu til góða að eiga þróttmikla atvinnugrein og engum til góðs að draga úr mætti hennar og sam- keppnishæfni með óhóflegri skattlagningu. Allt að 60% í tekjuskatt „Tenging veiða og vinnslu í veiðigjöldum skekkir myndina svakalega,“ segir Kolbeinn. „Við reiknuðum þetta út á nokkur fyrirtæki, meðal annars fyrirtæki sem eru ekki með vinnslu heldur eingöngu útgerð. Við um- reiknuðum veiðigjöldin sem útgerðin greiðir yfir í tekjuskatt og bættum ofan á tekjuskatt fyrirtækjanna. Þá kom í ljós að þau voru að borga allt upp í 60% tekjuskatt, en ekki 20% eins og í öðrum greinum. Fyrirtæki sem eru eingöngu í útgerð sitja klárlega verst í súp- unni. Helgi Áss Grétarsson, dósent í auðlinda- rétti við Háskóla Íslands, bar þetta saman við aukna skattlagningu í ferðaþjónustu í fyrirlestri nýlega. Hann líkti þessu við það ef fyrirtæki í flutningum á fólki ættu öll að borga sérstakan skatt, miðað við meðaltals- tekjur í greininni allri, af hverjum farþega. Gegndi einu hvort um væri að ræða lítinn leigubíl, rútu eða stóra Flugleiðaþotu. Svo hélt hann áfram og lét þessa aðila líka borga skatt af gistingu farþeganna, þó það komi þeim ekkert við,“ segir Kolbeinn. Í stjórnarsáttmála Hann segir að útvegsmenn hafi rætt um að skipta gjöldunum. Annars vegar greiddu allir jafnt, hóflegt veiðigjald fyrir aðgang að auðlindinni. Hins vegar yrði tekjutengt gjald eða viðbótar-tekjuskattur í samræmi við af- komu. Kolbeinn segir að þessi atriði séu til- tekin í stjórnarsáttmála núverandi ríkis- stjórnarflokka. Há veiðigjöld auka erfiðleika  Minni útgerðir eiga ekki sömu möguleika á hagræðingu og stærri útgerðarfyrirtæki  Stenst enga skoðun að leggja á ofurskatta án tillits til afkomu, segir framkvæmdastjóri LÍÚ  Allt að 60% skattur Morgunblaðið/Sigurgeir Dala-Rafn VE Útgerðin í Vestmannaeyjum hefur selt skip og kvóta. Kolbeinn Árnason Morgunblaðið/Kristinn Aðalbjörg II RE Unnið er að sölu skips og kvóta frá Reykjavík til Tálknafjarðar. 12 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 PAPPÍR • POKAR • RÚLLUR Sérprentanir í minni eða stærri upplögum! PAPPÍR HF • Kaplahrauni 13 • 220 Hafnarfirði • Sími 565 2217 • pappir@pappir.is • www.pappir.is Íslensk framleiðsla Vinna starfshóps um breytingar á fiskveiðistjórn- unarkerfinu er langt komin og er stefnt að því að ljúka henni á næstu vikum svo leggja megi fram frumvörp á grunni hennar á þessu þingi. Meðal annars mun í þeirri vinnu vera talað um nýtingarsamninga til 20 ára. Þá er gert ráð fyrir at- vinnu- og byggðaúrræðum eða pottum eins og eru í núverandi kerfi. Gildandi lög um veiðigjöld eru til eins árs og þarf nýtt frum- varp um veiðigjöld því að hafa tekið gildi nokkru áður en nýtt fiskveiðiár hefst 1. september nk. Sigurður Ingi Jóhannsson, sjáv- arútvegsráðherra fjallaði um vinnu við frumvarp að nýjum veiðigjöldum í ræðu á ársfundi Farmanna- og fiskimanna- sambands Íslands í lok nóvember. Hann sagðist sjá margt gildandi lögum til foráttu, „en þó helst það að þau byggja ekki á bestu mögu- legu upplýsingum, gjaldið er lagt á á grundvelli gamalla gagna. Það er, eins og lögin lögðu upp með, allt of hátt auk þess sem mér finnst ósanngjarnt og nánast flónslegt að taka gjald af þeim virðisauka sem verður í vinnsl- unni,“ sagði ráðherrann. Girða tilfærslu af Hann vék síðan talinu að teng- ingu veiða, vinnslu og veiðigjalda: „Mér finnst æskilegt að það reglu- verk sem við mótum feli í sér hvata til nýsköpunar og vöruþró- unar. Þetta gjald af rentu í vinnslu er ekki til þess fallið. Fyr- ir utan, hversu gríðarlega ósann- gjarnt það er, að það leggist jafnt á aðila hvort sem þeir eru í vinnslu eða ekki. Við vitum að það verður verð- tilfærsla frá veiðum og í vinnslu hjá samþættum fyrirtækjum. Eigi sérstaka veiðigjaldið, í hvaða formi sem það er, að leggjast á veiðiþáttinn eingöngu þá þarf að finna leið til að girða þessa til- færslu af,“ sagði Sigurður Ingi Jó- hannsson meðal annars á þingi FFSÍ í haust. Nýtt regluverk feli í sér hvata til nýsköp- unar og þróunar Sigurður Ingi Jóhannsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.