Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
STUTT
Hreiðar Örn
Zoëga Stefánsson,
framkvæmdastjóri
Lágafellskirkju og
varabæjar-
fulltrúi, gefur kost
á sér í 5. sæti í
prófkjöri Sjálf-
stæðisflokksins í Mosfellsbæ 8.
febrúar.
„Árum saman hef ég starfað í
mikilli samvinnu við fólk sem vinn-
ur náið með og fyrir börn og ung-
linga. Sú reynsla hefur gefið og
kennt mér mikið og í ljósi þeirrar
reynslu veit ég að ég get unnið
bænum mínum gagn, og til þess er
ég reiðubúinn ef ég fæ stuðning til
þess,“ segir m.a. í tilkynningu frá
Hreiðari Erni.
Hann er kvæntur Sólveigu Ragn-
arsdóttur og þau eiga þrjú börn.
Framboð í 5. sæti
Stjórnmálaflokkarnir munu á næst-
unni velja frambjóðendur á lista
fyrir komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar. Morgunblaðið mun birta
fréttir af þeim sem gefa kost á sér.
Prófkjör árið 2014
Kjartan Sigur-
geirsson, varabæj-
arfulltrúi, sækist
eftir 4. sæti í próf-
kjöri Sjálfstæðis-
flokksins í Kópa-
vogi þann 8.
febrúar.
Fram kemur í tilkynningu að
Kjartan hefur verið 3. varabæj-
arfulltrúi á því kjörtímabili sem er
að líða og setið í félagsmálaráði
mest af kjörtímabilinu. Helstu
áhersluatriði Kjartans eru umferð-
armál, félagsmál, skólamál og
ábyrg fjármálastjórn bæjarins.
Kjartan er fæddur í Reykjavík
árið 1948 en hefur búið í Kópavogi
með hléum frá 1956. Hann er
kvæntur Þórdísi Guðrúnu Bjarna-
dóttur, viðurkenndum bókara, og
eiga þau 3 börn.
Framboð í 4. sæti
Kjartan Björns-
son, bæjarfulltrúi,
gefur kost á sér í
3. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokks-
ins í Árborg, sem
fer fram 22. mars.
„Það er stór
ákvörðun að starfa í pólitík en eft-
ir síðustu ár í bæjarstjórninni hef
ég sannfærst um að ég get látið
gott af mér leiða í þágu sam-
félagsins og einnig hef ég öðlast
dýrmæta reynslu. Ég hef starfað á
vettvangi íþrótta og menningar og
hef á þeim sviðum brennandi
áhuga sem og bæjarmálum al-
mennt og vil starfa áfram í ykkar
þágu ef þið treystið mér til þess,“
segir m.a. í tilkynningu frá Kjart-
ani.
Framboð í 3. sæti
Sigurður Borgar
Guðmundsson,
sölustjóri, býður
sig fram í 3. sætið
í prófkjöri sjálf-
stæðismanna í
Mosfellsbæ.
„Ég vona að
reynsla mín úr flokksstörfum og
atvinnulífinu verði metin að verð-
leikum og muni nýtast sjálfstæðis-
mönnum og öllum bæjarbúum vel.
Að okkur takist að gera góðan bæ
enn betri,“ segir m.a. í tilkynn-
ingu frá Sigurði Borgari.
Helstu áherslumál hans eru
fjölskyldu- og húsnæðismál,
íþrótta- og æskulýðsstörf,
menntamál, atvinnumál og ferða-
þjónusta.
Sigurður Borgar er kvæntur
Gerði Gísladóttur tónlistarkenn-
ara og eiga þau tvö börn.
Framboð í 3. sæti
Nýliðinn janúar var óvenjuhlýr, sér-
staklega um landið austanvert þar
sem hann var sums staðar sá næst-
hlýjasti frá upphafi mælinga, að því
er fram kemur í yfirliti Trausta Jóns-
sonar á vef Veðurstofunnar.
Það bar til tíðinda að frostlaust var
allan mánuðinn á Vattarnesi við
Reyðarfjörð, lægsta lágmark var 0,4
stig. Þetta hefur aldrei gerst áður hér
á landi í janúar svo vitað sé, segir
Trausti. Í Seley fór hiti aldrei niður
fyrir frostmark (lægsta lágmark 0,0
stig).
Á Höfn í Hornafirði var meðalhit-
inn 4,1 stig og hefur aldrei orðið svo
hár á Höfn – en mælingar þar hafa
ekki verið samfelldar. Þetta er samt
trúlega hlýjasti janúar í Hornafirði
frá 1947 að telja, segir Trausti. Hiti
hefur verið mældur samfellt frá 1873
við Berufjörð, eða í 141 ár, lengst af á
Teigarhorni. Hefur janúar aðeins
einu sinni orðið þar hlýrri en nú. Það
var 1947. Meðalhitinn á Teigarhorni
var 3,7 stig í janúar og er það heilum
3,9 stigum ofan meðallags.
Janúar á Egilsstöðum var sá næst-
hlýjasti í 60 ár og
á Stórhöfða í
Vestmannaeyjum
var mánuðurinn
sá sjöundi í röð-
inni af þeim 117
árum sem mælt
hefur verið þar.
Hæsti hiti mán-
aðarins mældist í
Skaftafelli hinn
24., 10,1 stig. Á mannaðri stöð mæld-
ist hann hæstur 8,4 stig á Sauðanes-
vita hinn 31. Lægsti hiti á landinu
mældist þann 12., -19,0 stig á Brúar-
jökli. Í byggð mældist lægsti hitinn
-16,4 stig á Kálfhóli á Skeiðum hinn
11. Á mannaðri stöð mældist hitinn
lægstur í Stafholtsey, -11,2 stig, hinn
12.
Samfara hitum á Austurlandi var
sérlega snjólétt. Á Dalatanga var eng-
inn dagur alhvítur og er það einstakt í
janúar. Snjóhuluathuganir hófust á
Dalatanga 1939. Hins vegar var jörð
alhvít allan mánuðinn á Akureyri.
Janúar hefur ekki verið alhvítur á Ak-
ureyri síðan 1999. sisi@mbl.is
Frostlaust í fyrsta skipti
Hitinn fór aldrei undir frostmark á Vattarnesi við Reyðarfjörð í janúar
Veðurathuganir.