Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 18

Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 18
18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 -VOTTUÐ FRAMLEIÐSLA Smiðjuvegi 7 - 200 Kópavogi - Sími: 54 54 300 www.ispan.is - ispan@ispan.is Sérhæfum okkur í gleri og speglum Síðan 1969 Opið alla virka daga 08:00-17:00 Sendum um allt land ● Hlutabréf í kínverska tæknifyrirtæk- inu Lenovo lækkuðu um rúm 14% í kauphöllinni í Hong Kong í gær. Lækk- unin er rakin til kaupa fyrirtækisins á Motorola af Google. Á miðvikudag var greint frá kaupum Lenovo á Motorola-farsímaframleiðand- anum á 2,91 milljarð Bandaríkjadala og lækkaði verð hlutabréfa Lenovo um 8% í kjölfarið á fimmtudeginum. Lokað var fyrir viðskipti á föstudag og mánudag vegna kínverska nýársins en þegar þau hófust á ný í gær hélt lækkunin áfram. Hlutabréf í Lenovo hafa hríðfallið í verði AFP Hong Kong Kaup Lenovo á Motorola af Google eru talin hafa valdið verðhruninu. FRÉTTASKÝRING Hörður Ægisson hordur@mbl.is Gamli Landsbankinn (LBI) sendi inn beiðni til Seðlabanka Íslands síð- astliðið haust um undanþágu frá fjármagnshöftum svo hægt yrði að greiða umtalsverða fjárhæð í erlend- um gjaldeyri til forgangskröfuhafa. Seðlabankinn hefur hins vegar enn ekki afgreitt undanþágubeiðnina. Samkvæmt heimildum Morgun- blaðsins er talið afar ólíklegt að LBI fái heimild til að halda áfram út- greiðslum til kröfuhafa á meðan ekki liggur fyrir niðurstaða í viðræðum um að endursemja um skilmála á 240 milljarða erlendum skuldum Lands- bankans við LBI. Að óbreyttu þarf bankinn að greiða þá skuld upp að fullu á næstu fjórum árum. Í árslok 2013 má áætla að Lands- bankinn hafi átt um 318 milljarða króna í reiðufé og hefur það ekki ver- ið hærra síðan bankinn greiddi fyrstu hlutagreiðslu sína að fjárhæð 410 milljarðar í desember 2011. Langstærstur hluti fjárhæðarinnar sem LBI á nú í reiðufé – um 280 milljarðar – er í erlendri mynt. Ekki til „frjáls gjaldeyrir“ Samkvæmt upplýsingum frá slit- astjórn LBI er í undirbúningi að senda inn fljótlega viðbótarundan- þágubeiðni frá fjármagnshöftum til Seðlabankans. LBI hefur nú þegar greitt hlutagreiðslur til forgangs- kröfuhafa að jafnvirði um 716 millj- arða króna – síðast 67 milljarða í desember 2013 – og þar af nema greiðslur í erlendri mynt 706 millj- örðum. Þær greiðslur hafa hins vegar all- ar verið inntar af hendi með reiðufé sem var á erlendum innlánsreikning- um fyrir 12. mars 2012 og því und- anþegnar fjármagnshöftum. En sem kunnugt er var þann dag gerð sú veigamikla breyting á lögum um gjaldeyrismál að almennar undan- þágur fjármálafyrirtækja í slitameð- ferð frá höftum voru felldar úr gildi. Þannig væri ekki lengur hægt að greiða út gjaldeyri sem féll til eftir 12. mars 2012 nema með samþykki Seðlabankans. Þau svör fengust frá LBI að búið væri að greiða út allan „frjálsan gjaldeyri“ sem hlutagreiðslur til for- gangskröfuhafa. Slitastjórn LBI er því nú í þeirri stöðu, rétt eins og bú Glitnis og Kaupþings, að aðeins verður hægt að halda áfram út- greiðslum til kröfuhafa, sem eru einkum tryggingasjóðir innstæðu- eigenda í Hollandi og Bretlandi, að því gefnu að Seðlabankinn veiti LBI sérstaka undanþágu frá höftum. Fá- ist slík undanþága ekki er ljóst að reiðufé bankans mun halda áfram að aukast umtalsvert. Miðað við sjóðs- streymisáætlanir munu endurheimt- ur LBI í reiðufé nema 70 milljörðum króna á þessu ári – nánast að öllu leyti í erlendum gjaldeyri. „Óþarflega rúm“ Mikla aukningu í reiðufé LBI und- ir lok síðasta árs má fyrst og fremst rekja til þeirrar ákvörðunar Lands- bankans að greiða að eigin frum- kvæði hinn 23. desember síðastliðinn samtals 50 milljarða í gjaldeyri inn á skuld bankans við LBI. Þetta var í annað skipti sem bankinn fyrirfram- greiddi inn á skuldina en frá því í júní 2012 hefur Landsbankinn greitt um 124 milljarða í gjaldeyri til slit- astjórnar LBI. Sú ákvörðun Landsbankans að fyrirframgreiða inn á erlenda skuld bankans í desember á liðnu ári kom ekki á óvart. Allt frá því um sumarið 2012 höfðu lausafjáreignir bankans aukist gríðarlega – úr 70 milljörðum í um 160 milljarða í lok september 2013 – og viðurkenndi Hreiðar Bjarnason, framkvæmdastjóri fjár- mála hjá Landsbankanum, að lausa- fjárstaðan væri hugsanlega „óþarf- lega rúm“. Vaxtaálag hækkaði verulega Erlendar lausafjáreignir Lands- bankans eru ríkisskuldabréf með hæstu lánshæfiseinkunn og innlán í erlendum bönkum. Við núverandi aðstæður á fjármálamörkuðum hafa þær eignir borið litla sem enga ávöxtun. Landsbankinn hafði því óneitanlega fjárhagslega hagsmuni af því að fyrirframgreiða aftur inn á skuld sína við LBI, einkum og sér í lagi eftir að álagið ofan á libor-vexti bréfanna hækkaði úr 1,75% í 2,9% í október 2013. Miðað við að eftir- stöðvar skuldabréfanna standa nú í um 240 milljörðum króna er árleg vaxtabyrði Landsbankans tæplega þremur milljörðum hærri en ella. 300 milljarða reiðufé fast í höftum LBI ekki átt meira reiðufé síðan í árslok 2011 Heimild: Árshlutareikningur LBI fyrir 3. fjórðung 2013. *Tekið er tillit til 50 milljarða fyrirframgreiðslu Landsbankans í desember 2013 og áætluðu sjóðsflæði LBI að fjárhæð 37 milljörðum á fjórða ársfjórðungi 2013. Reiðufé (í milljörðum króna) 500 450 400 350 300 250 200 150 100 50 0 3F 2011 4F 2011 1F 2012 2F 2012 3F 2012 4F 2012 1F 2013 2F 2013 3F 2013 4F 2013* 484 109 294 193 227 194 256 272 231 318 409,9 milljarðar í desember 2011 172,3 milljarðar í maí 2012 80,0 milljarðar í október 2012 67,2 milljarðar í september 2013 Hlutagreiðslur til forgangskröfuhafa  LBI óskar eftir undanþágu frá höftum til að halda áfram greiðslum til kröfuhafa  Búið að greiða út allan „frjálsan gjaldeyri“  Fjárfestingabankar sýnt áhuga á erlendum skuldabréfum Landsbankans ● Jónmundur Guðmarsson, framkvæmdastjóri Sjálfstæðis- flokksins, hefur verið ráðinn framkvæmdastjóri sænska fjár- málafyrirtækisins ScandCap á Íslandi. Jónmundur greindi frá ákvörðun sinni á fundi miðstjórnar í Valhöll í gær, en hann mun þegar hefja störf á nýjum vettvangi. Nýr fram- kvæmdastjóri Sjálfstæðisflokksins hefur ekki verið ráðinn, en Jónmundur mun starfa með þeim sem verður ráðinn um nokkurra mánaða skeið og sem ráðgjafi Sjálfstæðisflokks- ins. Ráðinn framkvæmdastjóri hjá ScandCap Jónmundur Guðmarsson ● Hagnaður japanska bílaframleiðand- ans Toyota tvöfaldaðist á fyrstu níu mánuðum rekstrarársins samanborið við síðasta rekstrarár. Nam hagnaður- inn 15 milljörðum Bandaríkjadala, eða sem nemur 1.735 milljörðum íslenskra króna, og skýrist aukningin einkum af falli jensins á tímabilinu. Hagnaðist á falli jensins                                !  !   "# $ #    %  "&'()* (+(     ,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5                           Skannaðu kóð- ann til að sjá gengið eins og það er núna á Alþjóðlegir fjárfestingabankar hafa sýnt því áhuga að koma að kaupum á 240 milljarða erlendum skuldabréfum milli gamla og nýja Landsbankans. Samkvæmt heim- ildum Morgunblaðsins væri þann- ig hugsanlega hægt að lengja verulega í endurgreiðsluferli bréf- anna – kannski í allt að 15 ár – en á móti kemur að vaxtakjörin sem um hefur verið rætt eru talsvert há og ekki víst að sú niðurstaða geti talist ásættanleg af hálfu Landsbankans. Fjórir mánuðir eru liðnir frá því að slitastjórn LBI tilkynnti að hún hefði fallist á beiðni Landsbank- ans um að hefja formlegar við- ræður um endurskoðun á skil- málum erlendra skulda bankans við LBI. Þær viðræður standa enn yfir. Frá því var greint í Morg- unblaðinu í júní 2013 að Steinþór Pálsson, bankastjóri Landsbank- ans, hefði farið þess á leit í bréfi til LBI að greiðslutími skuldabréf- anna yrði lengdur um tólf ár – lokagjalddagi 2030 í stað 2018 – og að þáverandi vextir (1,75% álag ofan á libor) héldust óbreytt- ir næstu fimm árin. Í sama bréfi benti Steinþór á að tækist ekki að semja um að lengja í skuldum bankans mætti teljast sennilegt, vegna afstöðu Seðla- bankans, að kröfuhafar LBI myndu sitja fastir með reiðufé sitt innan hafta á Íslandi um „ófyrirsjáanlega framtíð“. Landsbankinn hefur því sagt að báðir aðilar hafi „sameiginlega hagsmuni“ af því að leita leiða svo hægt verði að ráðast í afnám fjármagnshafta á Íslandi. Erlendir fjárfestingabankar sýna áhuga á skuldabréfum ÁHUGI Á SKULDABRÉFUM LANDSBANKANS EN ÓVÍST UM VEXTI

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.