Morgunblaðið - 05.02.2014, Qupperneq 19
FRÉTTIR 19Viðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Brammer Ísland ehf | Steinhella 17a | 221 Hafnarfjörður | Sími: 522 6262 | www.brammer.is
Heimsþekkt vörumerki frá öllum helstu framleiðendum í iðnaðarvörum og þetta er aðeins brot af þeim merkjum sem við bjóðum upp á
Glussa-, vökva- og loftkerfi
Æfingin hjá okkur
tekur aðeins 30 mínútur
Hringdu og fáðu frían prufutíma
síma 566 6161
… Heilsurækt fyrir konur
Þarabakki 3 ~ 109 Reykjavík ~ sími 566 6161 ~ curves.is
Settu heilsuna
í fyrsta sæti!
Við tökum vel á móti ykkur og
bjóðum upp á notalegt
andrúmsloft og skemmtilegan
félagsskap.
Þýska viðskiptaráðið (DIHK) hefur
endurskoðað hagvaxtarspá sína fyrir
Þýskaland á þessu ári og byggist nýja
spáin á könnun sem gerð var meðal 27
þúsund forstjóra og framkvæmda-
stjóra þýskra fyrirtækja. Nýja spáin
hljóðar upp á 2% hagvöxt í Þýska-
landi á þessu ári, en sambærileg spá
frá því síðastliðið haust gerði ráð fyrir
1,7% hagvexti á árinu 2014.
Bjartsýnni nú en fyrir
örfáum mánuðum
Samkvæmt frétt á heimasíðu
Deutsche Welle í gær, þá greindi
Þýska viðskiptaráðið frá niðurstöðum
sínum í gær. Þar kom fram að stjórn-
endur þýskra fyrirtækja eru mun
bjartsýnni á vöxt og viðgang fyrir-
tækja sinna en þeir voru fyrir aðeins
örfáum mánuðum og samkvæmt
könnuninni hafa þeir ekki verið jafn
bjartsýnir og nú um tveggja og hálfs
árs skeið. Bjartsýni þeirra virðist
einkum byggð á væntingum um auk-
inn útflutning frá Þýskalandi á þessu
ári.
Mikill meirihluti aðspurðra stjórn-
enda þýskra fyrirtækja, eða 89%,
kvaðst samkvæmt könnuninni trúa
því að rekstur fyrirtækja þeirra á
þessu ári yrði stöðugur, eða myndi
vaxa. Í síðustu könnun svöruðu 87%
aðspurðra á sama veg. 91% aðspurðra
sögðu rekstur fyrirtækja sinna vera á
góðu róli og innan við 10% sögðust
ekki vera að ná nógu góðum árangri.
Aðeins 0,4% hagvöxtur í
Þýskalandi í fyrra
Þýskaland, stærsta hagkerfi Evr-
ópu, náði aðeins að auka þjóðarfram-
leiðslu sína um 0,4%. Þýsk stjórnvöld
gáfu nýverið út hagvaxtarspá sína
fyrir þetta ár og spáðu 1,7% hagvexti.
Spá þýskra stjórnvalda grundvallað-
ist á tvennu: aukinni neyslu og eft-
irspurn innanlands og aukinni alþjóð-
legri eftirspurn eftir þýskum vörum
og þjónustu.
Hin nýja spá Þýska viðskiptaráðs-
ins virðist, að hluta til að minnsta
kosti, styðja við hagvaxtarspá þýskra
stjórnvalda, því 37% aðspurðra
stjórnenda í könnun ráðsins, kváðust
búast við að fyrirtæki þeirra myndu
auka útflutning sinn á árinu. Aðeins
7% aðspurðra sögðust svartsýn á auk-
inn útflutning.
Fram kemur í könnuninni að um
fjórðungur þýskra fyrirtækja hyggur
á frekari fjárfestingar á árinu og um
17% fyrirtækjanna eru staðráðin í því
að bæta við sig mannskap.
Eru afar gagnrýnir á orku-
stefnu þýskra stjórnvalda
Neikvæðu hliðarnar í svörum
þýskra stjórnenda í þessari könnun
voru þær, að margir stjórnendur
kvörtuðu undan auknum raforku-
kostnaði og hækkun á verði aðfanga.
Þýskir stjórnendur virðast vera sér-
staklega óánægðir með stefnu stjórn-
valda, hvað varðar lagasetningu um
græna, endurnýjanlega orku, sem
þeir segja að hafi orðið til þess að
hækka rafmagnskostnað fyrirtækj-
anna.
Erik Schweitzer, formaður Þýska
viðskiptaráðsins, skrifaði Angelu
Merkel, kanslara Þýskalands, bréf í
fyrradag, þar sem hann varaði við því
að stefna þýskra stjórnvalda í orku-
málum og lagasetningu um lága-
markslaun væri til þess fallin að grafa
undan styrkleika þýska hagkerfisins
á komandi árum.
Í síðustu viku voru fréttir í þýskum
fjölmiðlum um að átökin í Þýskalandi
um grænu orkustefnuna væru rétt að
hefjast og að Sigmar Gambriel, efna-
hagsráðherra Þýskalands, ætti erfitt
og vandasamt verk fyrir höndum.
agnes@mbl.is
Þjóðverjar hækka
hagvaxtarspá sína
Þýska viðskiptaráðið spáir 2% hagvexti á þessu ári
AFP
Höfuðstöðvar Deutsche Bank, stærsti lánveitandi í Þýskalandi, er með höf-
uðstöðvar sínar í Frankfurt. Bankinn á mikið undir því að hagvöxtur aukist.
Þýskaland
» Aukinnar bjartsýni gætir nú
hjá þýskum stjórnendum fyr-
irtækja og mælist hún hin
mesta í tvö og hálft ár.
» Þýska viðskiptaráðið hefur
ritað Angelu Merkel bréf og
varað við áhrifum af orku-
stefnu þýskra stjórnvalda.
» Fjórðungur stjórnenda
hyggst fjárfesta meira á þessu
ári og 17% hyggjast ráða fleira
starfsfólk.
Samkvæmt bráðabirgðatölum
Hagstofu Íslands voru vöruskiptin
við útlönd hagstæð um 69,4 millj-
arða árið 2013.
Í desembermánuði voru fluttar
út vörur fyrir tæpa 45,7 milljarða
króna og inn fyrir rúma 41,2
milljarða króna fob (44,5 millj-
arða króna cif). Vöruskiptin í des-
ember, reiknuð á fob-verðmæti,
voru því hagstæð um 4,4 milljarða
króna. Í desember 2012 voru
vöruskiptin hagstæð um 3,8 millj-
arða króna á gengi hvors árs.
Allt árið 2013 voru fluttar út
vörur fyrir 610,7 milljarða króna
en inn fyrir 541,3 milljarða króna
fob (583,9 milljarða króna cif).
Afgangur var því á vöruskiptum
við útlönd sem nam 69,4 millj-
örðum króna, reiknað á fob-
verðmæti, en árið 2012 voru þau
hagstæð um 77,3 milljarða á
gengi hvors árs. Vöruskiptajöfn-
uðurinn var því 7,9 milljörðum
króna lakari árið 2013 en árið
2012 samkvæmt bráðabirgðatöl-
um.
Árið 2013 var verðmæti vöruút-
flutnings 22,3 milljörðum eða
3,5% lægra á gengi hvors árs en
á árinu 2012. Nánar á mbl.is
Morgunblaðið/Ómar
Útflutningur Sjávarafurðir voru 44,6% útflutnings 2013 og var verðmæti
þeirra 1,4% hærra en árið áður. Iðnaðarvörur voru 50,6% alls útflutnings.
Afgangur 69,4
milljarðar 2013