Morgunblaðið - 05.02.2014, Page 20

Morgunblaðið - 05.02.2014, Page 20
20 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | Sími 551 6646 Opið virka daga frá 10-18 og laugardaga 11-15 Skoski þjóðarflokkurinn vill að Englandsbanki verði seðlabanki Skot- lands ef það verður sjálfstætt ríki eftir þjóðaratkvæðið í sept- ember. Seðlabankastjórinn Mark Carney sagði í ræðu í vikunni sem leið að ef sjálfstætt Skotlandi vildi halda pundinu þyrftu Skotar að sætta sig við „nokkurt valdaframsal“. Alex Salmond, forsætisráðherra heimastjórnar Skot- lands, hefur skorað á David Cameron, forsætisráðherra Bretlands, að fallast á sjónvarpskappræður á milli þeirra tveggja um sjálfstæði Skotlands fyrir at- kvæðagreiðsluna. Cameron hefur neitað að taka þátt í slíkum kappræðum og sagt að skoskir stjórnmálamenn eigi að gera út um málið. Fæli í sér valdaframsal VILL AÐ ENGLANDSBANKI VERÐI SEÐLABANKI SKOTA skilnaði frá Bretlandi. Andstæðing- ar sjálfstæðis hafa stofnað samtök, sem nefnast Better Together og eru undir forystu Alistairs Darlings, fyrrverandi fjármála- ráðherra Bretlands. Skoski þjóðar- flokkurinn vill halda pundinu og að Elísabet 2. Bretadrottning verði áfram þjóðhöfðingi Skotlands. Flokkurinn vill einnig að Skotlandi verði í Evrópusambandinu og Atlantshafsbandalaginu. Íbúar Skotlands eru um 5,2 milljónir og Skoski þjóðar- flokkurinn leggur áherslu á að sjálfstæði verði til þess að lífs- kjör þeirra batni. Þeir benda m.a. á að um 90% af tekjum Bretlands af olíu- og gasvinnslu í Norðursjó komi frá vinnslu á svæð- um í lögsögu Skotlands. Forystumenn Skoska þjóðar- flokksins hafa horft til Norður- landanna og lofað „auðugra og sann- gjarnara“ Skotlandi ef það verður að sjálfstæðu ríki. Þeir boða aukinn félagslegan jöfnuð og betra vel- ferðarkerfi og hafa meðal annars lofað ókeypis dagvistun í 30 klukku- stundir á viku fyrir börn á aldrinum þriggja til fjögurra ára. Skoski þjóðarflokkurinn hefur lagt fram 670 síðna áætlun um fram- tíð sjálfstæðs Skotlands en Alistair Darling lýsir henni sem innan- tómum loforðum og marklausum yf- irlýsingum. „Í stað þess að leggja fram trúverðuga áætlun höfum við fengið óskalista yfir pólitísk loforð án svara við því hvernig Alex Sal- mond myndi greiða fyrir þau.“ Líklegt þykir að úrslit þjóðar- atkvæðisins ráðist að miklu leyti af því hvort þjóðernissinnum tekst að sannfæra Skota um að lífskjör þeirra batni ef þeir samþykkja sjálf- stæði. Könnun sem gerð var fyrir tveimur árum bendir til þess að meirihluti Skota myndi greiða at- kvæði með sjálfstæði ef það yrði til þess að ráðstöfunartekjur þeirra ykjust um 500 pund eða meira á ári, eða sem svarar 95.000 krónum. Stuðningur við sjálfstæði eykst  Sjálfstæðissinnar í Skotlandi sækja í sig veðrið  Andstæðingar sjálfstæðis eru enn með forskot en um 29% hafa ekki gert upp hug sinn  Pyngjan gæti ráðið úrslitum í þjóðaratkvæðinu í september AFP Deilt um sjálfstæði Skoti í kröfugöngu sjálfstæðissinna í Edinborg. Þeir vilja að Skotland fái sjálfstæði árið 2016. Sameinað Bretlandi 1707 » Skotland var sjálfstætt kon- ungsríki þar til það gekk í kon- ungssamband við England árið 1603. Skoska þingið var lagt niður 1707 þegar Skotland var sameinað Bretlandi og Breska konungdæmið var stofnað með eitt þing í London. » Skoska þingið var endur- reist eftir þjóðaratkvæða- greiðslu árið 1999. Það hefur þó takmörkuð völd. Stjórnvöld á Spáni óttast að ef Skot- land verður sjálfstætt ríki verði það vatn á myllu þjóðernissinna í Kata- lóníu sem krefjast aðskilnaðar frá Spáni. Utanríkisráðherra Spánar, José-Manuel García-Margallo, sagði á dögunum að spænska stjórnin léði máls á því að sjálfstætt Skotland fengi aðild að Evrópusambandinu. Ekki væri þó sjálfgefið að aðildar- umsókn þeirra yrði samþykkt. „Þeir þyrftu að leysa fjölmörg vandamál,“ sagði hann. „Þeir þyrftu að fá stöðu umsóknarríkis. Þeir þyrftu að semja um 35 kafla. Stofnanir ESB þyrftu að staðfesta samninginn. Þjóðþing 28 landa þyrftu síðan að staðfesta hann,“ sagði hann. Alex Salmond hefur hins vegar boðað að Skotland fái aðild að ESB um leið og það verði sjálfstætt ríki. Hann segir að engar líkur séu á því að landið verði „skilið eftir úti í kuld- anum“ vegna þess að það þjóni ekki aðeins hagsmunum Skota, heldur einnig ESB, að landið fengi strax að- ild að sambandinu. Hann telur að það myndi til að mynda valda „glundroða“ í sjávarútvegi ESB- ríkja ef fiskimið í lögsögu Skotlands yrðu ekki lengur hluti af sameig- inlegri sjávarútvegsstefnu ESB. The Scotsman hefur eftir Graham Avery, fyrrverandi samningamanni ESB í aðildarviðræðum, að það myndi leiða til „lagalegrar mar- traðar“ fyrir íbúa Bretlands ef sjálf- stætt Skotland fengi ekki strax aðild að sambandinu. Geta ekki gengið að ESB-aðild vísri  Leysa þyrfti „fjölmörg vandamál“ AFP Þjóðrækni Börn með skoska fánann á fundi sjálfstæðissinna í Edinborg. Alex Salmond BAKSVIÐ Bogi Þór Arason bogi@mbl.is Ný skoðanakönnun bendir til þess að stuðningsmenn þess að Skotland verði sjálfstætt ríki séu að sækja í sig veðrið þótt þeir séu enn í minni- hluta. Skotar halda þjóðaratkvæða- greiðslu 18. september um hvort Skotland eigi að vera sjálfstætt ríki eftir að hafa verið hluti af Bretlandi í 307 ár. Kannanir hafa bent til þess að um 42% Skota vilji halda sam- bandinu við Bretland óbreyttu en samkvæmt nýjustu könnuninni hef- ur sjálfstæðissinnum fjölgað úr 26% í 29% síðustu daga. Skoskir þjóð- ernissinnar telja sig eiga raunhæfan möguleika á að vinna upp forskot andstæðinga sjálfstæðis og benda á að um 29% Skota hafa ekki enn gert upp hug sinn. Vikuritið The Economist telur lík- legt að stuðningurinn við sjálfstæði Skotlands aukist þegar nær dregur þjóðaratkvæðinu. Þegar þjóðarat- kvæðagreiðslur séu haldnar hneigist óákveðnir kjósendur oft til þess að snúast á sveif með íhaldssamari fylkingunni síðustu dagana áður en gengið er til atkvæða, en á því geti orðið breyting nú. „Óákveðnu kjós- endurnir eru vinstrisinnaðri en með- al-Skotinn, óvinveittari stjórn Íhaldsflokksins í London og hallast meira að því að Skotland geti spjar- að sig upp á eigin spýtur,“ segir The Economist. „Þeir eru næstum tví- mælalaust hlynntari sjálfstæði,“ hefur blaðið eftir John Curtice, skoskum prófessor í stjórnmála- fræði. Batna lífskjörin? Skoski þjóðarflokkurinn (SNP), undir forystu Alex Salmonds, for- sætisráðherra heimastjórnar Skot- lands, er sá eini af fjórum stærstu flokkum landsins sem styður sjálf- stæði. Verkamannaflokkurinn, Íhaldsflokkurinn og Frjálsir demó- kratar í Skotlandi eru andvígir að-

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.