Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 21
FRÉTTIR 21Erlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin (WHO)
spáir mikilli fjölgun krabbameins-
tilfella í heiminum á næstu áratugum
og hvetur yfirvöld til að grípa til að-
gerða til að fyrirbyggja sjúkdóminn,
meðal annars ráðstafana til að draga
úr reykingum og áfengisdrykkju.
Vísindamenn Alþjóðlegu krabba-
meinsrannsóknastofnunarinnar
(IARC) segja að nýjum krabba-
meinstilfellum hafi fjölgað í 14 millj-
ónir árið 2012 og þeir spá því að inn-
an tveggja áratuga greinist 24
milljónir manna á ári með krabba-
mein. Hægt væri að fyrirbyggja
helming þessara krabbameins-
tilfella, að sögn vísindamanna IARC,
sem heyrir undir Alþjóðaheilbrigðis-
stofnunina.
Lungnakrabbamein skæðast
Gert er ráð fyrir því að dauðsföll-
um af völdum krabbameins fjölgi úr
8,2 milljónum á ári í 13 milljónir á ári
innan næstu tveggja áratuga.
Algengasta krabbameinið árið
2012 var lungnakrabbamein (1,8
milljónir nýrra tilfella, 13% allra
krabbeinstilfella). Næst kom
brjóstakrabbamein (1,7 milljónir til-
fella, 11,9%). Algengasta dánar-
orsökin meðal krabbameinssjúkl-
inga var lungnakrabbamein sem olli
1,6 milljónum dauðsfalla á árinu
2012, eða 19,4% allra dauðsfalla af
völdum krabbameins.
WHO segir að meðal þeirra þátta
sem geti valdið fyrirbyggjanlegu
krabbameini séu reykingar, veiru-
sýkingar, áfengisdrykkja, offita og
hreyfingarleysi, geislun (frá sólinni
eða tækjum) og loftmengun.
bogi@mbl.is
EPA
Skæður sjúkdómur Krabbameins-
sjúk börn í Mumbai á Indlandi.
Spá holskeflu
krabbameins
Hægt að fyrirbyggja helming tilfella
Karl Bretaprins skoðaði í gær
flóðasvæði í Somerset-sýslu á suð-
vestanverðu Englandi og ræddi við
íbúa þorpa sem hafa verið einangr-
uð vikum saman vegna flóða sem
hafa valdið miklu tjóni síðustu vik-
ur. Prinsinn fór meðal annars með
báti til þorpsins Muchelny sem
varð að eyju inni í miðju landi
vegna flóðanna.
Janúarmánuður var sá blautasti
á Suður-Englandi frá því að mæl-
ingar hófust árið 1910. Stjórn Dav-
ids Camerons, forsætisráðherra
Bretlands, hefur sætt harðri gagn-
rýni fyrir að hafa ekki brugðist
nógu skjótt við flóðunum og gert
ráðstafanir til að bæta flóðavarn-
irnar.
Mörg sveitarfélög á svæðunum
hafa óskað eftir fjárhagsaðstoð frá
ríkinu vegna flóðanna. Vatn hefur
flætt inn í 7.500 fasteignir frá því i
byrjun desember, að sögn frétta-
vefjar breska ríkisútvarpsins.
Breskir veðurfræðingar spáðu
áframhaldandi rigningu og roki
víða í Bretlandi næstu daga, m.a. á
flóðasvæðunum. Varað var við
hættu af völdum flóða á 40 svæð-
um, einkum á sunnanverðu Eng-
landi og á Mið-Englandi.
Flóð valda miklu tjóni
AFP
Allt á floti Karl Bretaprins stígur úr báti sem flutti hann til þorpsins Muchelney sem varð að eyju í flóðunum.
EPA
Heimsókn Karl Bretaprins ræðir við íbúa þorpsins Stoke St Gregory.
Karl Bretaprins
heimsækir þorp
á flóðasvæðunum
MultiMaster
fjölnotavél
slípar - sagar - skefur
raspar - brýnir - o.fl.
F A G M E N N S K A A L L A L E I Ð
Skeifan 3 E-F • 108 Reykjavík • Sími 581 2333 • rafver.is
- örugg bifreiðaskoðun um allt land
Þú gætir eignast
nýjan Citigo ef þú drífur
bílinn í skoðun!
Þeir sem koma með bílinn í skoðun hjá Frumherja eiga
möguleika að eignast stórglæsilegan Skoda Citigo sem
verður dreginn út þ. 1. júlí 2014.
Happdrætti
Aðalvinningur er
splunkunýr Skoda
Citigo árg. 2014