Morgunblaðið - 05.02.2014, Qupperneq 22

Morgunblaðið - 05.02.2014, Qupperneq 22
BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Starfshópur umhverfis-ráðherra telur að brotalömsé í skipulagi og fram-kvæmd refa- og minka- veiða, ekki síst í samhæfingu ríkis og sveitarfélaga. Leggur hann til að komið verði á fót samstarfsvettvangi til að bæta úr. Starfshópurinn telur að ekki þurfi að gera breytingar á villi- dýralögunum vegna refa- og minka- veiða. Brýnna sé að bæta fram- kvæmd mála. Það geti kallað á breytingar á reglugerð. Fulltrúi úr starfshópnum, Guðrún María Val- geirsdóttir, sveitarstjóri Skútu- staðahrepps, nefnir í samtali við Morgunblaðið að Umhverfisstofnun og Náttúrufræðistofnun Íslands hafi ákveðnu hlutverki að gegna sam- kvæmt lögunum. Setja þarf markmið Umhverfisstofnun á að hafa með höndum stjórnun refa- og minkaveiða og sjá um aðgerðir til að koma í veg fyrir tjón af völdum villtra dýra. Stofnunin hefur verið gagnrýnd fyrir að sinna ekki þessu hlutverki. Stefnubreytingar hefur orðið vart hjá ríkinu. Dregið var verulega úr endurgreiðslu kostnaðar sveitar- félaganna vegna grenjavinnslu og í tíð síðustu ríkisstjórnar féllu endur- greiðslurnar alveg niður í tvö ár. Guðrún bendir á að í því felist sú stefna að ríkisvaldið hafi þá ekki litið á refinn sem vandamál í lífríkinu. Öðruvísi sé litið á málið hjá mörgum sveitarfélögum sem hafi haldið sínu striki. Það sé þó misjafnt því sum hafi skorið þennan kostnaðarlið nið- ur enda séu refa- og minkaveiðar ekki lögbundið hlutverk sveitar- félaga. Niðurstaðan er sú, eins og Snorri Jóhannesson, formaður Bjarmalands sem er félag atvinnu- manna í veiðum á ref og mink, bend- ir á, að oft beri fámenn en víðlend sveitarfélög mesta kostnaðinn af veiðunum en hin sleppi. Refurinn virðir ekki sveitarfélagamörk og getur flætt úr sveitarfélögum sem ekki sinna grenjavinnslu og ekki síð- ur úr friðlöndum. Starfshópurinn dregur fram þann mun sem þurfi að vera á veið- um á ref og mink og tilgangi þeirra. Vakin er athygli á því að minkur sé skilgreindur sem meindýr í íslenskri náttúru og hann njóti ekki friðunar af neinu tagi. Hægt sé að ná góðum árangri við að halda stofnstærð hans í lágmarki með skipulögðum og sam- ræmdum veiðum. Setja þurfi tíma- bundin markmið og leita leiða til að fjármagna verkefnið. Refaveiðar eru annars eðlis og miðast við að draga úr tjóni af völd- um refa og er þá fyrst og fremst litið til fjárhagstjóns í sauðfjárrækt og æðarrækt. Starfshópurinn telur að það tjón eigi að vera hægt að meta og það sé nauðsynlegt til að unnt verði að setja svæðisbundin mark- mið um að draga úr eða koma í veg fyrir tjón. Á síðustu árum hefur at- hyglin einnig beinst að þeim áhrifum sem refurinn hefur á lífríki landsins, einkum fuglalíf, og þá horft til veru- legrar stækkunar refastofnsins síð- ustu áratugi. Starfshópurinn telur að setja þurfi markmið um skipulag refa- veiða til að lágmarka tjónið og halda því innan ákveðinna skil- greindra marka. Bent er á að heildarstofnstærð sé ekki full- nægjandi mælikvarði, þar sem fá dýr geti valdið miklu tjóni, heldur verði að líta til svæðis- bundinna áhrifa og skipu- leggja veiðarnar út frá svæðisbundnum hags- munum. Vantar vettvang til að fylgja málum eftir Refa- og minkaveiði Heimild: Skýrsla umhverfisráðuneytis 8.000 7.000 6.000 5.000 4.000 3.000 2.000 1.000 0 19 40 19 60 20 12 Drepnir minkar 1940-2012 Veiddir refir 2000-2012 22 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Athyglisverðstaða erkomin upp í dönskum stjórn- málum eftir að Sósíalíski þjóð- arflokkurinn, SF, sagði sig úr ríkisstjórninni vegna fyrirætlana um að selja um fimmtungshlut í orkufyr- irtækinu DONG til Goldman Sachs fjárfestingarbankans. Bæði formaður og varafor- maður flokksins tóku hatt sinn og staf í kjölfarið og Helle Thorning-Schmidt forsætis- ráðherra stendur veikari eftir að flestra mati. Skiptir þá litlu að SF mun ekki draga til baka stuðning sinn við stjórnina þó að flokkurinn eigi ekki sæti lengur í henni. Þeir sem vilja horfa á björtu hliðarnar fyrir ríkisstjórnina segja að flokkarnir tveir sem eftir eru, jafnaðarmenn og Radikale Venstre, standi nú eftir samhentari en áður, enda hafi Thorning-Schmidt þurft að eyða drjúgum tíma í katta- smölun, eins og íslensk flokks- systir hennar orðaði það. Fáir innan stjórnarliðsins munu því sakna þeirra, og gekk Politi- ken svo langt að segja SF vera orðinn að brandara sem erfitt yrði að taka mark á lengur. Frá hinni hliðinni séð er þessi skipan mála hugsanlega einnig betri til lengri tíma litið fyrir Sósíalíska þjóðarflokk- inn. Hann hafði fjarlægst kjós- endur sína með því að styðja ýmis mál ríkisstjórnarinnar, sem þóttu of langt til hægri. Fylgið hafði færst niður á við og þráseta á ráðherrastólunum fram að kosningum hefði vel getað endað með því að flokkurinn hefði fengið sögulegan skell, en fyrir því eru ýmis fordæmi eins og kunnugt er. Hugs- anlega færist skellurinn nú á jafnaðarmenn, en þeir hafa nú þegar tekið dýfu í könnunum, og SF lyft sér upp að sama skapi. Því hefur verið haldið fram í hálfkæringi, meðal annars af Lars Løkke Rasmussen, for- manni Venstre, að handrits- höfundar Borgen þurfi vart að mæta í vinnuna eftir þessa síð- ustu atburði. Ekkert sem þeim geti dottið í hug muni taka raunveruleikanum fram. Og ekki er því að neita að það verður áhugavert að fylgjast með framvindu mála. Mun minnihlutastjórnin sækja stuðning sinn frekar til Venstre heldur en að treysta á Sósíalíska þjóðarflokkinn, og hætta þannig á að fæla burtu enn fleiri af kjósendum sínum? Eða mun stjórnin fara frá áður en kjörtímabilið er á enda? Hvernig sem fer, þá er ljóst að Helle Thorning-Schmidt er ekki öfundsverð af stöðu sinni í dag. Helle Thorning- Schmidt þarf ekki lengur að smala köttum} Meira drama en í Borgen Ísland er eitt aförfáum sjálf- stæðum ríkjum sem eru herlaus, og síðustu árin án beinna varna gegn utanaðkomandi ógn. Samningar við önnur ríki um að æfa loftrýmisvarnir hér öðru hverju, aðildin að Nató og varnarsamningur við Bandarík- in, sem er veiklaðri nú en áður var, eru haldreipið. Herleysið leggur auknar kröfur á annan viðbúnað í land- inu, Landhelgisgæslu, lögreglu og slökkvilið og fjölmennar björgunarsveitir sjálfboðaliða um allt land. Allir þessir aðilar eru að verðleikum í miklu áliti hjá landsmönnum, því dæmi um snör viðbrögð, hæfni og fórn- arlund eru fjölmörg. Því bera Íslendingar mikið traust til þessara sveita allra og þeim hefur tekist að rísa undir þeim, og það þótt niðurskurður síð- ustu ára hafi gert það erfitt. Þessu frækna liði barst á dög- unum ákall um að bátur væri að sökkva á Faxaflóa og bátsverjar væru komnir í flotgalla. Brugðist var við af sömu ábyrgð og jafnan. Leitin bar ekki árangur og hefur verið hætt. Fljótlega eftir að leit hófst læddist sá grunur að stjórn- endum hennar að björgunar- beiðnin kynni að vera gabb. Engu að síður var umfangsmik- illi leit haldið áfram, enda ekki völ á öðru. Fjöldi þyrlna, báta og skipa fínkembdi svæðið og mannskapur var í viðbragðs- stöðu að ganga fjörur. Slíku fylgir ekki aðeins mikill kostn- aður heldur einnig ákveðin áhætta. Augljóst er að komi annað áfall (raunverulegt) til annars staðar á sama tíma eru afl og tæki til að bregðast við verulega skert. Hafi neyðarkallið verið gabb, eins og margt bendir til, er um svívirðilegan atburð að ræða, sem rannsaka verður með öll- um tiltækum ráðum. Það er svívirðilegt athæfi að gabba öryggissveitir landsins í útkall} Glæfralegt gabb? Þ að er alkunna að ensk-indverski rit- höfundurinn V.S. Naipaul er hrotti; drykkfelldur ofbeldismaður og kyn- þáttaníðingur í þokkabót. Það kom þó ekki í veg fyrir það að hann fékk Nóbelsverðlaunin og margir kunna að meta bækur hans. Skítseiði geta nefnilega verið snill- ingar og snillingar skítseiði. Að því sögðu er þó erfitt að gera sér grein fyrir því af hverju menn sjá í gegnum fingur sér með hegðun sem þeir eru fljótir að fordæma þegar ófrægir eiga í hlut. Sjáum til að mynda hve margir hafa borið blak af leikstjóranum Roman Polanski sem byrl- aði barni eiturlyf, nauðgaði svo og var dæmdur fyrir. Af máli margra dánumanna og -kvenna á að fyrirgefa Polanski, sem flúði til Frakklands, af því hann hefur gert svo merkilegar bíómynd- ir. Á þarsíðasta ári fór áþekk umræða af stað með Ástralann Julian Assange, sem sakaður var um kynferðislega misbeit- ingu og nauðgun en kom sér undan með því að flýja í sendi- ráð Ekvador í Lundúnum. Í hans tilfelli tóku verjendur hans til við að gera lítið úr konunum sem báru hann sökum, þær væru lauslátar druslur og leiguþý bandarískra stjórn- valda eða þaðan af verra. Konur sem segja frá kynferðislegu ofbeldi þurfa nefni- lega oftar en ekki að þola aðkast fyrir hugrekki sitt. Þær eru þannig áminntar fyrir að vera einar á ferli í skugga- hverfi, fyrir að hafa verið drukknar, fyrir að vera of djarf- lega klæddar, fyrir að vera of vinsamlegar við ofbeldis- manninn, fyrir að hafa dansað við hann á balli eða farið með honum í leigubíl. Þegar konur segja frá kynferðislegu ofbeldi sem þær urðu fyrir sem börn þá er sama upp á teningnum; það er eiginlega óþarfi að vera að rifja slíkt og þvílíkt upp, þetta var bara saklaust káf, eða misskilningur, ekki má spilla virðingu gamals manns (eða föðurlegs fræðimanns) og svo má telja. Algengt er að skella skuldinni á barnið og enn algengara að skella henni á móð- ur þess, sem var ekki að fylgjast nógu vel með, eða var lauslát sjálf eða kannski drykkfelld og lauslát í senn, og gott ef þetta var ekki lygi frá móðurinni. Ég veit ekki með þig, virðulegi lesandi, en nú þegar upp hefur blossað umræða um hugs- anlegt kynferðislegt ofbeldi leikstjórans Woo- dys Allens gagnvart barni vekur það athygli mína hve margir hafa tekið upp hanskann fyrir Allen og þá beitt sömu gömlu rökunum sem dregin eru fram hvað eftir annað – þetta er misskilningur eða lygi eða rangtúlkun, móðir barnsins var geðveik, lauslát og hefnigjörn og barnið, sem nú er orðið fullorðið, er bara að ljúga. Í þessari umræðu verður mönnum líka tíðrætt um svokallaðan „dómstól göt- unnar“ sem sé að dæma snillinginn Woody Allen að ósekju. Eru þeir sem taka til varna fyrir frægðarmennin þó ekki að fella dóm sjálfir, dæma fórnarlömbin sem lygara, gera þeim upp annarlegar og jafnvel illar hvatir? Hvað eigum við að kalla slíkan dómstól? Dómstól reykfylltu bakherbergjanna? arnim@mbl.is Árni Matthíasson Pistill Dómur úr reykfylltu bakherbergi STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjórar: Davíð Oddsson Haraldur Johannessen Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Útgefandi: Óskar Magnússon „Mér finnst það skína í gegn að það þurfi einhverja veiði- stjórnun. Hún þarf að byggjast á reynslu og þekkingu á verk- efninu sem verið er að skipu- leggja,“ segir Snorri Jóhann- esson, refaskytta á Auga- stöðum. Hann tekur fram að mikil krafa sé frá veiðimönnum um allt land að fá veiðiráðgjöf, og þá frá einhverjum sem skil- ur út á hvað veiðarnar ganga. Snorri er ekki sannfærður um skipan eins starfshópsins enn um þessi mál. Það góða við þá skýrslu sem um- hverfisráðherra hefur fengið er að nú séu menn þó farnir að ræða saman. Mikið hafi vantað á góð samskipti ríkis og sveitarfélaga enda ríkið oft breytt forsendum sam- starfsins ein- hliða. Nýta reynslu og þekkingu FORMAÐUR VEIÐIMANNA Snorri H. Jóhannesson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.