Morgunblaðið - 05.02.2014, Qupperneq 23

Morgunblaðið - 05.02.2014, Qupperneq 23
23 MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 þessa samnings og nokkrum dögum fyrir fall bankans í október voru 100 milljón pund flutt frá Íslandi til Bretlands. Það er því rangt sem Guðrún sagði í viðtalinu að engir peningar hafi komið frá Íslandi þeg- ar KSF í samráði við FSA óskaði eftir því að draga á 1.100 milljón punda lausafjárskipta- samninginn í október 2008. Þá voru aðstæður þannig á Ís- landi og í heiminum að Kaupþing gat ekki staðið við samninginn í heild. Reyndar var þá staðan þannig í hinum vestræna heimi að flestir stærstu bankarnir voru þrotnir að lausu fé og ríkisstuðningur var eina ástæða þess að þeir fóru ekki sömu leið og íslensku bankarnir. Eins og margir vita gerði breska fjármálaeftirlitið ítarlega rannsókn á aðdragandanum að falli KSF. Eft- irlitið hélt því aldrei fram að starfs- menn KSF hefðu komið óheiðarlega fram og taldi sannarlega ekki að það hefði verið blekkt. Slík niðurstaða hefði verið kærkomin fyrir fyrrver- andi forsætis- og fjármálaráðherra Breta í ljósi þeirra hæpnu yfirlýs- inga sem þeir höfðu haft í frammi. Þessu til viðbótar skal upplýst að gert er ráð fyrir að hátt í 90% af öll- Í viðtali Egils Helgasonar við Guðrúnu Johnsen í RÚV þann 27. janúar fer Guðrún, í umfjöllun sinni um Kaupthing Singer & Friedl- ander (KSF), rangt með um fjöl- mörg atriði. Undirritaður sér sig knúinn til að koma á framfæri eft- irfarandi leiðréttingum: 1) Guðrún segir að upphaflega hafi netinnlánin, sem markaðssett voru undir nafninu Kaupthing Edge, verið undir íslensku lausa- fjáreftirliti, en að breska fjármála- eftirlitið (FSA) hafi krafist þess að lausafjáreftirlitið væri í þeirra höndum. Þetta er ekki rétt. Kaupthing Edge innlánin voru frá upphafi skuldbindingar KSF, en það var ekki gert að kröfu FSA heldur tóku stjórnendur Kaupþings og KSF þá ákvörðun. Bæði útibú Kaupþings (móðurfélagsins á Íslandi) og KSF höfðu heimild til að markaðssetja innlán í Bretlandi. Stjórnendur bankans ákváðu á endanum að safna ekki innlánum í útibúið (sem hefðu þá verið tryggð af tryggingasjóði innstæðueigenda á Íslandi) heldur í KSF, sem var að sjálfsögðu undir eftirliti FSA. Þetta var ákveðið einkum vegna stærðar íslenska inn- stæðutryggingasjóðsins, sem hafði þá þegar tekið á sig skuldbindingar sem voru langt umfram það sem hann gat staðið undir. 2) Guðrún fjallar um lausafjárskiptasamning milli KSF og Kaup- þings á Íslandi eins og um hafi verið að ræða bókhaldsbrellu, sem dulin hafi verið fyrir FSA, og að samning- urinn hafi verið notaður til að „koma peningum upp til Íslands“. Þetta er rangt. Skiptasamningur þessi var gerður að beiðni KSF til þess að bankinn hefði að- gang að meira lausu fé og gæti upp- fyllt þær kröfur um lausafjárhlutföll sem bankinn starfaði eftir. Aldrei var reynt að blekkja FSA. Í lausa- fjárskýrslum KSF til eftirlitsins var þessi samningur tilgreindur sér- staklega og FSA var sendur svo- kallaður „off-set“ samningur milli bankanna, sem fjallaði um skulda- jöfnun á grundvelli lausafjárskipt- anna. Enginn peningur fór frá KSF til Kaupþings á Íslandi á grundvelli þessa samnings og burtséð frá hon- um „kom“ KSF aldrei neinum pen- ingum upp til Íslands. Hinsvegar fóru peningar tvisvar frá Íslandi til Bretlands á grundvelli þessa lausa- fjárskiptasamnings. Um vorið 2008 „dró“ KSF um 300 milljón pund frá Kaupþingi á Íslandi á grundvelli um ótryggðum kröfum á hendur bankanum verði greidd (skulda- bréfaeigendur og tryggðir kröfuhaf- ar fá 100% af kröfum sínum) og þetta sama hlutfall er um 100% hjá systurbanka KSF á Mön. Niðurstaða rannsóknar FSA var hins vegar að bankinn hefði átt að tilkynna eftirlitinu þremur dögum fyrr en hann gerði, að ólíklegt væri að Kaupþing á Íslandi gæti efnt samninginn. Í ljósi þess að KSF til- kynnti FSA sérstaklega, daginn sem Glitnir var þjóðnýttur, um áhyggjur sínar af stöðu mála á Ís- landi og áhrif hennar á bankann, auk þess að setja lausafjáráhættu sína á „rautt ljós“, er þessi nið- urstaða umdeilanleg. 3) Guðrún jánkar síðan spurningu Egils, í kjölfar umræðu þeirra um Kaupþing í Bretlandi, hvort það hafi verið fyllilega réttmæt aðgerð hjá Bretum að setja hryðjuverkalög á Ísland. Burtséð frá réttmæti þeirrar aðgerðar, sem ég tel að margir séu ósammála Guðrúnu um, þá er óskilj- anlegt að tengja KSF við þá ákvörð- un. KSF var breskur banki undir eftirliti FSA. Setning hryðjuverka- laganna hafði engin áhrif á bankann eða heimildir Breta til að ráðskast með hann. Það er erfitt að lýsa því fyrir fólki, sem ekki var á staðnum, hversu vandasamt það var að reka banka eftir að lausafjárkreppa skall á í heiminum sumarið 2007. Hlut- skipti íslensku bankanna og dótt- urfélaga þeirra var sérstaklega erf- itt vegna þess að íslenski seðlabankinn var alltof lítill (og bankarnir of stórir) til þess að styðja við þá svo einhverju máli skipti. Á meðan flestar bankastofn- anir Evrópu og Bandaríkjanna lágu á spenum seðlabanka sinna höfðu ís- lensku bankarnir ekkert athvarf. Það er auðvelt að gagnrýna eftir á þær aðgerðir sem bankarnir réðust í við þessar aðstæður, en til að það megi draga einhvern lærdóm af slíkri gagnrýni þá verður hún að byggjast á staðreyndum. Sér- staklega þegar verið er að dylgja á ósmekklegan hátt um að fólk hafi verið óheiðarlegt. Eftir Ármann Þorvaldsson »Það er auðvelt að gagnrýna eftir á þær aðgerðir sem bankarnir réðust í við þessar að- stæður, en til að það megi draga einhvern lærdóm af slíkri gagnrýni þá verður hún að byggjast á staðreyndum. Ármann Þorvaldsson Höfundur er fyrrverandi forstjóri Kaupthing Singer & Friedlander. Athugasemdir við staðhæfingar Guðrúnar Johnsen Sjálfstæðisflokkur- inn stendur sterkt að vígi í Suðvesturkjör- dæmi – Kraganum. Skoðanakannanir benda til þess að flokk- urinn haldi góðum meirihluta í þremur sveitarfélögum og bæti jafnvel við sig fylgi. Í Kópavogi er flokkurinn í mikilli sókn og í Hafnarfirði gera sjálfstæð- ismenn sér vonir um góðan sigur eft- ir glæsilegt prófkjör. Í Reykjavík á Sjálfstæðisflokk- urinn hins vegar erfitt uppdráttar. Borgarfulltrúum og frambjóðendum í komandi kosningum hefur ekki tekist að ná eyrum kjósenda. Eftir tæplega fjögurra ára stjórn Besta flokksins og Samfylkingarinnar hefði mátt ætla að jarðvegurinn fyr- ir málflutning sjálfstæðismanna væri frjór. Ekki glæsilegt Arfleifð meirihluta borgarstjórnar er ekki sérlega glæsileg. Skuldir og skuldbindingar A-hluta borgarsjóðs hækkuðu um tæp 80% að nafnvirði frá ársbyrjun 2010 til ársloka 2012. Skuldasöfnunin jafngildir liðlega 900 þúsund krónum á hverja fjögurra manna fjölskyldu. Á sama tíma lækkuðu skuldir Garðabæjar um rúmlega 5% og skuldir Seltjarn- arness um 10%. Reykvíkingar hafa ekki fengið að njóta betri þjónustu þrátt fyrir skuldasöfnun og auknar tekjur (og hærri álögur). Árið 2012 voru tekjur borgarsjóðs um 2,9 milljörðum króna hærri en 2009. Í könnun Capacent Gallup á við- horfi íbúa sextán sveitarfélaga kom í ljós að Reykvíkingar eru almennt ekki ánægðir með þjónustu borg- arinnar. Höfuðborgin er í þriðja neðsta sæti þegar spurt er um þjón- ustuna í heild. Aðeins helmingur borgarbúa virðist ánægður með þjónustu grunnskóla en íbúar allra hinna sveitarfélaganna eru ánægð- ari og Garðbæingar og Seltirningar eru ánægðastir. Reykjavík er á botninum þegar kemur að leik- skólum. Reykjavíkurborg fær ekki háa einkunn þegar kemur að þjónustu við eldri borgara og fatlaða. Höf- uðborgin er í langneðsta sæti. Betra færi gefst ekki Minnihluti getur varla beðið um betri færi í kosningum. Skuldir hafa aukist stórlega, íbúar eru ekki sáttir við þjón- ustuna og álögur eru í hámarki. Meirihlutinn ræðst í gæluverkefni í ósátt við íbúa, hundsar athugasemdir, sinnir ekki eðlilegri umhirðu og leggur steina í götur þeirra sem vilja fara á milli heimilis og vinnu á eigin bíl. Áhersla Besta flokksins og Sam- fylkingarinnar er á 101 og Vesturbæ, þar sem 20% borgarbúa eiga heimili. Hagsmunir annarra hverfa – 80% íbúa – sitja á hakanum, allt frá sam- göngum til skóla og annarrar þjón- ustu. Þrátt fyrir allt þetta nær Sjálf- stæðisflokkurinn sér ekki á strik í höfuðborginni og fengi aðeins 25% atkvæða samkvæmt könnun Fé- lagsvísindastofnunar fyrir Morg- unblaðið. Þetta er 23% undir með- alfylgi flokksins í Reykjavík frá árinu 1930 og liðlega 35% frá mesta fylgi flokksins árið 1990. Slök staða sjálfstæðismanna í Reykjavík, sem áður var höfuðvígi þeirra, á sér margar skýringar. Íbúasamsetningin hefur breyst og borgarasinnað fólk velur sér fremur heimili í öðrum sveitarfélögum af ástæðum sem ættu að vera aug- ljósar. En þó óhagstæðari samsetn- ing geri það ólíklegt að Sjálfstæð- isflokkurinn komist aftur í hreinan meirihluta, getur hún aldrei skýrt út þá erfiðu stöðu sem flokkurinn glím- ir við. Annað vegur hér þyngra. Að rugla kjósendur Borgarbúar eiga erfitt með að átta sig á því fyrir hvað sjálfstæðismenn í Reykjavík standa. Eru þeir hlynntir eða andvígir flugvellinum? Eru sjálfstæðismenn fylgjandi þeirri áherslu að þétta byggðina á kostnað úthverfa og þjónustu við þau? Eru þeir talsmenn þess að þrengja að einkabílnum, gera samgöngur milli borgarhverfa erfiðari og tímafrekari? Hvernig ætla sjálfstæðismenn að styrkja grunnskólana? Vilja þeir óbreyttar álögur á íbúa og hámarksútsvar? Þannig má lengi telja. Á undanförnum árum hafa borg- arfulltrúar Sjálfstæðisflokksins gef- ið kjósendum misvísandi skilaboð. Engu er líkara en að frambjóðendur flokksins í komandi kosningum ætli að halda því áfram. Borgarstjórn- arflokkur og frambjóðendur sjálf- stæðismanna hafa ekki komið fram sem ein heild – samhentur hópur með sömu sýn á framtíðina. Afleið- ingin er sú að kjósendur eru ringl- aðir. Ætli Sjálfstæðisflokkurinn að ná árangri í borgarstjórnarkosning- unum í vor, verður stefnan að vera skýr. Og fyrirmyndirnar eru allt í kringum Reykjavík. Góður árangur nemenda í grunn- skólum Garðabæjar er ekki tilviljun. Þar hafa sjálfstæðismenn lagt áherslu á fjölbreytni og raunveru- legt val. Nemendur í Garðabæ komu afburðavel út úr stærðfræðihluta PISA-könnunarinnar líkt og Gunnar Einarsson bæjarstjóri benti á í blaðagrein: „Ef Garðabær væri sjálfstætt ríki væri það í 6.-12. sæti af 65 þátt- tökulöndum PISA … Það er ljóst að kennsla í grunnskólum Garðabæjar er á heimsmælikvarða þegar kemur að læsi á stærðfræði.“ Í Kópavogi hafa sjálfstæðismenn sýnt hvernig hægt er að ná tökum á erfiðum skuldabagga en um leið taka ákveðin skref í að minnka álög- ur á íbúana. Á Seltjarnarnesi og í Garðabæ hefur verið gætt hófsemdar í álögum og skuldir lækkaðar á sama tíma og íbúarnir fá góða þjónustu sem þeir kunna að meta. Sjálfstæðismenn í Reykjavík geta því lært margt af félögum sínum í hinum bláa öryggiskraga sem lagður hefur verið að höfuðborginni. Eftir Óla Björn Kárason »Minnihluti getur varla beðið um betri færi í kosningum. Skuldir hafa aukist stórlega, íbúar eru ekki sáttir við þjónustuna og álögur eru í hámarki. Óli Björn Kárason Höfundur er varaþingmaður Sjálfstæðisflokksins. Blár öryggiskragi um Reykjavík Fylgi Sjálfstæðisflokksins á höfuðborgarsvæðinu skv. könnunum Félagsvísindastofnunar fyrir Morgunblaðið Seltjarnar- nes Garðabær Mosfells- bær Kópavogur Hafnar- fjörður Reykjavík 70 60 50 40 30 20 10 0 64,4% 58,8% 54,4% 41,4% 33,6% 25,0% Fylgi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík borgarstjórnarkosningar 1930 - 2010 65 60 55 50 45 40 35 30 25 19 30 19 38 19 46 19 54 19 62 19 70 19 78 19 86 19 94 20 02 20 10 53,5% 33,6% 47,97% Meðaltal Fylgi í % Morgunblaðið/ÞÖK „Slök staða sjálfstæðismanna í Reykjavík á sér margar skýringar. Íbúasamsetningin hefur breyst og borgarasinnað fólk velur sér fremur heimili í öðrum sveitarfélögum af ástæðum sem ættu að vera augljósar, “ segir í greininni.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.