Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 24
24 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Tökum að okkur trjáklippingar, trjáfellingar og stubbatætingu. Vandvirk og snögg þjónusta. Sími 571 2000 www.hreinirgardar.is Matthew Elliot, stofnandi Tax payers Alliance í Bretlandi, kom og hélt framsögu um mikilvægi gagnsæ- is í ríkis- og sveit- arstjórnarmálum í september síðast- liðnum. Heimsókn hans var á vegum Samtaka skattgreið- enda en efnahags og viðskiptanefnd Sjálfstæðisflokksins ásamt fjárlaganefnd fékk Matthew til að halda framsögu um mikilvægi þess að skera niður ríkisútgjöld. Hann fór víða yfir sviðið og sagði frá ýmsum leiðum til þess að auka gagnsæi slíkra aðgerða sem og hvernig hinn almenni þegn get- ur átt þátt í að hafa áhrif á útgjaldaliði. Þessi samtök hafa unnið ýmis afrek, til að mynda í Bretlandi, og vegna „lobbýsima“ þeirra er það svo að engin útboð yfir 500 GBP mega fara fram án þess að slíkt sé upplýst á netinu. Þau hafa með- al annars sett fram skemmtilegan samanburð ýmissa út- gjaldaliða í stjórnsýslunni við útgjöld hjá venjulegri breskri fjölskyldu. En að okkur, hér í Kópavogi. Við höfum vissulega dregið úr út- gjaldaliðum eftir „hrun“. Slíkt hefur verið gert í góðri samvinnu við bæj- arbúa og starfsmenn Kópavogsbæjar hafa axlað sína ábyrgð í öllum mála- flokkum með mikilli reisn. Núna þeg- ar við sjáum loks fram á bjartari tíma er nauðsynlegt að fara ekki í of- fjárfestingar án þess að slík mál séu hugsuð af yfirvegun en vissulega er tilefni til þess að efla ýmsa þjón- ustuliði nú þegar. Gagnrýni und- anfarið hefur á köflum miðast við að við séum ekki nógu fljót til og allt sé sett í nefndir. Ég tel að ef efnahags- hrun landsins ætti að geta kennt okk- ur eitthvað þá sé það einmitt að hlaupa ekki til án þess að gefa okkur tíma til samstarfs og leiða hugann að langtímamarkmiðum frekar en skammtíma-popúlisma. Með því að efla gagnsæi stjórn- sýslunnar og upplýsingagjöf á netinu fæst þetta aðhald sem ég held að við viljum að bæjarsjóður fái. Það mætti til dæmis sjá fyrir sér að útgjaldaliðir skólanna okkar væru settir á skýran hátt fram til þess að foreldra- samfélagið gæti sett sig betur inn í þá fjárhagsliði sem þarf til þess að reka hér skóla. Skólarnir fengju einnig með þessu aukið fjárhagslegt sjálfstæði og skilning til þess að efla skólastarfið enn frekar. Slíkt hið sama mætti segja um menning- arstofnanirnar og annan rekstur sem bærinn okkar Kópavogur stendur fyrir. Nauðsynlegt er fyrir okkur sem bæjarfélag að huga að lang- tímamarkmiðum sem miðast við að efla innviði bæjarins og létta á skuldastöðu hans. Ég tel að sá meirihluti sem hefur ráðið ríkjum í Kópavogi undanfarið hafi unnið gott starf og nauðsynlegt sé að halda áfram á sömu leið. Vissu- lega hefur menn greint á um einstök atriði en iðulega er niðurstaða allra átaka sú að heildarhagsmunir bæj- arbúa eru hafðir að leiðarljósi. Það er leitt að utanaðkomandi fólki finnst við gera lítið annað en að deila um smáatriði og persónur, en ég get staðfest að í um 90% tilfella er svo ekki. Hins vegar er ekki að afneita þessum fjölmiðlasirkus sem stundum verður ofan á í hita leiksins en verkin undanfarin ár ættu einfaldlega að yf- irskyggja þann farsa. Best að búa í Kópavogi Eftir Karen Elísabetu Halldórsdóttur Karen Elísabet Halldórsdóttir »Ég tel að sá meirihluti sem hefur ráðið ríkjum í Kópavogi undanfarið hafi unnið gott starf og nauðsynlegt sé að halda áfram á sömu leið. Höfundur er varabæjarfulltrúi og sækist eftir öðru sæti á lista Sjálf- stæðisflokksins í Kópavogi. Það hefur þótt vin- sælt að tala um að gera Kópavog að betri stað fyrir ungt fólk og er undirritaður fylgj- andi því, þó má ekki gleyma að í Kópavogi búa fleiri þjóðfélags- hópar sem ber að taka tillit til. Það er gríð- arlega mikilvægt að Kópavogur sé bæj- arfélag fyrir alla bæj- arbúa og verðum við að huga að þeim öllum. Það er ekki sjálfgefið að þjóðfélag með öll okkar lífsgæði og tækifæri verði til, það hefur verið erfiðisvinna að ná lífskjörum á þann stað sem þau eru á í dag. Þrek og þor fyrri kynslóða hefur skilað gífurlegum lífskjarabótum frá því að landið öðl- aðist sjálfstæði og verðskulda þeir aðilar sem að þessari vinnu hafa staðið að geta notið efri ára. Við verðum að sýna eldri kyn- slóðum þá virðingu að tryggja þeim möguleika á að geta lifað með reisn og tryggja þeim þá þjónustu sem þær eiga skilið. En það hefur lengi staðið til að færa þjónustu aldraðra til sveitarfélaga, en það gæti í fyrsta lagi gerst í ársbyrjun 2015. Áður en flutningur málaflokksins á sér stað þarf að meta kostnaðaráhrif fjölg- unar aldraðra, greina veikleika í fjármögnun þjónustunnar í dag, tryggja að fjármögnun fylgi frá rík- inu og að löggjöf um þjónustu við aldraðra sé fullnægj- andi. Þó þarf að tryggja að ekki verði of mikil miðstýring þann- ig að sveitarfélög hafi sveigjanleika og að- gerðafrelsi sem getur mætt kröfum íbúa. Kópavogsbær verður að hafa þá framtíð- arsýn að auka valfrelsi, til að mynda þeirra sem nýta sér heimilisþjón- ustu, en í þeim efnum hefur tilraunaverkefni í Ósló skilað miklum árangri. Í stuttu máli snýst það um að þeir sem eru notendur heimilisþjónustunnar velji hvaða að- ili það er sem framkvæmir. Þá fá þeir einstaklingar sem nota þjón- ustuna lista yfir einkaaðila sem bjóða upp á heimilisþjónustu og geta valið hvaða aðili hentar þeim, en hið opinbera er einnig einn þess- ara framkvæmdaraðila. Þá fjár- magnar hið opinbera þjónustuna eins og áður, en kerfið hefur sýnt aukna ánægju aldraðra með þjón- ustuna og aukna ánægju starfsfólks. Einnig hefur þetta gefið starfsfólki betri launakjör. Hugsum vel um eldri kynslóðir Eftir Gunnlaug Snær Ólafsson Gunnlaugur Snær Ólafsson »Kópavogsbær verður að hafa þá framtíðarsýn að auka valfrelsi. Höfundur sækist eftir 3. sæti á lista Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi. Verkið lofar meist- arann er sagt um það sem er faglega unnið. Byggðin í Úlfarsárdal er metnaðarfull og dal- urinn er sannarlega fallegur staður. Þar var ákveðið í Aðalskipulagi Reykjavíkur 2001-2024 að byggja glæsilegt íbúðahverfi og öflugt atvinnusvæði með góðri tengingu við stofnbrautir höfuðborgarsvæðisins. Hverfið teng- ist við og styrkir íbúðabyggðina í Grafarholti og var hugsuð sem byggð handan við atvinnusvæðin við Vest- urlandsveg nálægt Bauhaus. Um- hverfi dalsins er fallegt frá náttúr- unnar hendi, byggðin snýr á móti suðri með glæsilegu útsýni yfir Graf- arholtið til Heiðmerkur, Bláfjalla og allt til Suðurnesja. Í miðjum dalnum rennur laxveiðiáin Korpa með brúm yfir í Grafarholt. Vestast í hlíðinni eru starfræktar gróðrarstöðvar þar sem gróðurinn hefur vaxið og eflst og veitir byggðinni bæði fegurð og skjól. Byggðin er vel tengd sam- göngukerfi borgarinnar og sem dæmi má nefna eru fyrstu umferð- arljós frá Úlfarsárdal við Grens- ásveg. Þetta fallega landsvæði getur tekið við miklu magni bygginga, bæði fyrir íbúðir og fyrirtæki og hef- ur borgin möguleika á að úthluta margskonar byggingarlóðum á þessu svæði. Þrátt fyrir landgæði og staðfest skipulag hefur borgarstjórn ákveðið að ekkert verði af fyrirhug- aðri uppbyggingu í dalnum. Þessi órökstudda og óábyrga ákvörðun hefur farið ótrúlega hljótt í fjöl- miðlum eins og margt annað miður gáfulegt sem komið hefur frá borgarstjórn Reykja- víkur á undanförnum fjórum árum. Fólk fjárfesti á grundvelli skipulags Í nýsamþykktu að- alskipulagi Reykjavík- ur 2010-2030 er stað- fest að hætt verði við fyrirhugaða byggð í Úlfarsárdal. Enginn rökstuðningur er fyrir þessari stefnubreytingu og ekkert nýtt byggingarsvæði tekur við, nema þá helst þéttingarreitir í miðborginni sem flestir eru í eigu banka og bygg- ingarfyrirtækja. Það er eins og borg- arfulltrúar í dag láti sér í léttu rúmi liggja sú fjárhagslega ábyrgð sem einstaklingar og fyrirtæki hafa lagt í á grundvelli skipulagsákvarðana sem almenningur hefur fram að þessu getað reitt sig á. Eins er ábyrgð borgarfulltrúa gagnvart sameig- inlegum sjóðum Reykvíkinga mikil þar sem búið er að leggja í gríð- arlegan kostnað við hönnun, veitu- kerfi og gatnagerð sem var hugsuð áratugi fram í tímann, en verður ekki nýtt nema að litlu leyti. Fyrirhug- aðar tekjur af þeim fjárfestingum sem fyrir liggja munu ekki skila sér eins og ráð var fyrir gert. Lítið hefur farið fyrir umræðu og engin fyr- irspurn hefur komið fram um sokk- inn kostnað borgarinnar vegna stefnubreytingar sem hreinsar hundruð byggingalóða útaf borðinu. Hér þarf pólitíska ákvörðun byggða á faglegum forsendum Í síbylju umræðunnar glymur það æ oftar að það sem er pólitískt sé ófaglegt og það sem er ópólitískt sé faglegt. Besti flokkurinn skilgreinir sig sem ópólitískt afl og reynir að láta líta út að hann tengist meira því faglega og skemmtilega. Þessi trumbusláttur hefur glumið nokkuð lengi og aðrir flokkar í borgarstjórn virðast vera komnir með hlustaverk af þessu. Jafnvel slegnir pólitískri skákblindu því þeir virðast ekki þora að taka slaginn þó að staðreyndirnar blasi við. Ef vinnubrögðin við ákvarðanatökurnar í Úlfarsár- dalnum eru eingöngu skoðuð faglega og án allrar pólitíkur þá blasa við ófagleg vinnubrögð: Fjárfesting borgarinnar í hönnun, gatnagerð og veitukerfi á grundvelli rammaskipu- lags er ekki lögð til grundvallar við stefnubreytinguna. Forsendubrest- ur þeirra sem fjárfestu í fyrstu áföngum nýs hverfis virðist ekki skipta máli. Fyrirhugað heildar- umfang byggðar Reykjavíkur sem keypt var dýru verði til uppbygg- ingar virðist ekki skipta máli. Knatt- spyrnufélagið Fram sem lagði fram- tíð sína undir þegar ákvörðun um skipulag þessa hverfis var tekin situr uppi með meira en helmingi minna hverfi en reiknað var með í upphafi. Engin efnisleg rök virðast liggja til grundvallar þessari ákvörðun sem hefur umtalsverð áhrif á fjárhag allra þeirra sem að málinu hafa kom- ið. Borgarstjórnin sem gefur sig út fyrir að vera ópólitísk er sannarlega ekki fagleg svo mikið er víst. Ef grannt er skoðað þá virðist upphaf þess að hætta við byggð í dalnum liggja í prívatskoðunum þeirra sem sitja í borgarstjórn um þessar mund- ir, búa flest í sama hverfinu og vilja að næsta íbúahverfi Reykjavíkur rísi þar sem miðstöð innanlandsflugsins er nú. Miklu á að fórna til að draum- sýn þeirra nái fram að ganga. Það sem blasir við í þessu máli eins og fleiri skipulagsmálum í borginni er að þessari ákvörðun þarf að breyta. Hér þarf pólitíska ákvörðun byggða á faglegum forsendum. Það verður að taka upp aðalskipulagið og leið- rétta þann forsendubrest sem íbúar og hagsmunaaðilar í Úlfarsárdal hafa orðið fyrir. Það eru ekki bara hagsmunaaðilar í Úlfarsárdal sem hafa orðið fyrir forsendubresti, því Reykvíkingar allir bera skaðann af því að sú fjárfesting verði ekki nýtt eins og til stóð. Nýtum fallegt land til uppbyggingar, gefum íbúunum stað- festingu á því að hverfið þeirra muni byggjast upp og klárum það verk sem hafið er í Úlfarsárdalnum. Byggjum Úlfarsárdalinn Eftir Óskar Bergsson » Það eru ekki bara hagsmunaaðilar í Úlfarsárdal sem hafa orðið fyrir forsendu- bresti, því Reykvíkingar allir bera skaðann. Óskar Bergsson Höfundur er oddviti Framsóknarflokksins fyrir borgarstjórnarkosningarnar.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.