Morgunblaðið - 05.02.2014, Blaðsíða 25
UMRÆÐAN 25
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
SMELLT
EÐA SKRÚFAÐ,
VIÐ EIGUM BÆÐI
Þú getur verið afslappaður og öruggur
við grillið með AGA gas. Öruggur um
að þú ert að nota gæðavöru og að
þú fáir góða þjónustu þegar þú þarft
áfyllingu á gashylkið, hvort sem þú
nýtir þér heimsendingarþjónustu á
höfuðborgarsvæðinu eða þegar þú
heimsækir söluaðila AGA.
Farðu á www.gas.is og finndu
nálægan sölustað eða sæktu
öryggisleiðbeiningar og fáðu
upplýsingar um AGA gas.
www.GAS.is
Vesturvör 32, 200 Kópavogur, Sími 564 1600 islyft@islyft.is - www.islyft.is
Vöruhúsatæki
Linde býður upp
á fjölmargar
gerðir af
vöruhúsatækjum.
Örugg og góð
þjónusta.
Allir foreldrar óska
þess að börnum
þeirra vegni vel í
skóla. Menntun eyk-
ur lífsgæði og fjölgar
kostum þegar kemur
að starfsvali og
stefnu í lífinu al-
mennt. Til að ljúka
því námi sem ein-
staklingur stefnir að
á fullorðinsárum er
mikilvægt að grundvöllur náms sé
traustur en hann er lagður fyrst í
leikskóla og síðan grunnskóla.
Sveitarfélög eru rekstaraðilar
leik- og grunnskóla og því á þeirra
könnu að búa þannig um hnútana
að fagfólki og stjórnendum skól-
anna sé gert kleift að skapa nem-
endum sem bestar aðstæður til
náms.
Stærsti áhrifavaldur í námi
nemenda er starfshættir kennara
og skólastjóra. Margt annað hefur
einnig áhrif líkt og aðkoma for-
eldra, félagsstaða og menntun for-
eldra en eftir sem áður vega
starfshættir fagfólks þyngst. Þeg-
ar rætt er um árangur nemenda
verður ekki hjá því komist að
ræða jafnframt um starfshætti
skólastjóra og kennara og stefnu-
mörkum sveitarfélaga. Um þessa
þætti verður umræðan því að snú-
ast. Við verðum að leita svara við
því hvernig skólastjórar ætla að
bregðast við núverandi stöðu,
hvað kennarar telja að skili betri
árangri hjá nemendum og hvort
sveitarfélög hyggist grípa til að-
gerða til að bæta árangur nem-
enda.
Árangur af skólastarfi er mæld-
ur í ljósi margra þátta en það sem
rætt er mest um á opinberum
vettvangi eru niðurstöður PISA-
prófanna sem lögð eru fyrir á
þriggja ára fresti og samræmdra
prófa sem haldin eru árlega í 4., 7.
og 10. bekk. Í ljósi
þeirra gagna þurfum
við hér á Akureyri að
gera betur, því við
getum það. Við höfum
á að skipa öflugu fag-
fólki sem bæði getur
og vill stíga framfara-
skref nemendum til
hagsbóta og hafa því
alla burði til að gera
vel.
Þrennt vil ég nefna
hér sem hefur afger-
andi áhrif á árangur nemenda:
Setja skrifleg viðmið um árangur
nemenda sem eru metin með
reglubundnum hætti, efla sam-
starf fagfólks til að nemendur nái
þeim viðmiðum og leggja fram
skýra stefnu hvers skóla og sveit-
arfélags sem styður við þá starfs-
hætti sem kennarar og skólastjór-
ar þurfa að viðhafa. Skóladeild
Akureyrar hefur nú þegar hafið
vinnu við að innleiða slíka starfs-
hætti og samhliða því mun skóla-
stefna sveitarfélagsins verða end-
urskoðuð, samanber nýlega
samþykkt skólanefndar. Áfram-
haldandi vinna að þessu marki
mun skila okkur þeim árangri sem
við sækjumst eftir fyrir börnin
okkar og mikilvægt að mynda
samstöðu skólasamfélagsins til að
tryggja framfarir og árangur
nemenda í leik- og grunnskólum.
Það er besta veganestið sem hægt
er að gefa börnum okkar til fram-
tíðar.
Árangur
í skólastarfi
Eftir Gunnar
Gíslason
Gunnar Gíslason
» Við höfum á að skipa
öflugu fagfólki sem
bæði getur og vill stíga
framfaraskref nem-
endum til hagsbóta.
Höfundur er fræðslustjóri á Akureyri
og býður sig fram í 1. sæti í prófkjöri
Sjálfstæðisflokksins á Akureyri.
Ég tók þá ákvörðun
fyrir fjórum árum að
gefa kost á mér á lista
Sjálfstæðisflokksins og
fékk kosningu í 3. sæt-
ið. Síðan þá hef ég lagt
mig allan fram sem
varabæjarfulltrúi og
gegnt ýmsum trún-
aðarstörfum á þeim
tíma. Ég tel að miðað
við hvernig núverandi
kjörtímabil hefur
þróast sé eðlilegt að gefa kost á mér
í oddvitasæti Sjálfstæðisflokksins
fyrir komandi sveitarstjórnarkosn-
ingar.
Það er algjörlega ótækt að bæjar-
félagið hafi verið rekið með halla síð-
astliðin þrjú ár. Skuldastaða Akur-
eyrar er þannig að ekkert má út af
bregða í rekstri.
Með beinni aðkomu að málefnum
Akureyrarbæjar hef ég átt greiðari
leið en áður að tala fyrir þeim mál-
efnum sem ég tel mikilvæg fyrir bæ-
inn. Þar hef ég meðal annars lagt
mikla áherslu á samgöngubætur:
Styttingu þjóðvegarins á milli Ak-
ureyrar og Reykjavík-
ur; uppbyggingu Ak-
ureyrarflugvallar til
millilandaflugs; Vaðla-
heiðargöng og nýjan
Kjalveg. Þá hef ég ver-
ið í forystu fyrir þeirri
baráttu landsbyggð-
arfólks að framtíð
Reykjavíkurflugvallar í
Vatnsmýrinni verði
tryggð.
Ég tel að þessi bar-
átta fyrir betri sam-
göngum styðji með
beinum eða óbeinum
hætti brýn hagsmunamál bæjarins
svo sem uppbyggingu atvinnulífsins,
ekki síst á sviði ferðaþjónustu.
Þótt þessi málefni skipti miklu, er
það ekki svo að þau séu mun brýnni
en önnur. Áhersla á atvinnu-
uppbyggingu og nýsköpun er Ak-
ureyri þar einnig mikilvæg. Við
þurfum að virkja betur þau tækifæri
sem fylgja því hæfileikaríka unga
fólki sem vill búa í bænum en fær
ekki störf við hæfi. Koma þarf vinnu-
fúsum til verka.
Þar er af mörgu að taka. Halda
áfram uppbyggingu ferðaþjónustu,
meðal annars með áherslu á að nýta
tækifæri sem liggja í vetrarferða-
þjónustu með áframhaldandi upp-
byggingu skíðasvæðisins í Hlíð-
arfjalli.
Það er sannfæring mín að upp-
bygging norðurslóða sé á næstu
misserum tækifæri Akureyringa.
Þar er mikilvægt að líta til mögu-
leika á Grænlandi á næstu árum og
áratugum. Því tengd er uppbygging
þjónustuhafnar á Dysnesi til að
þjónusta möguleg umsvif á Græn-
landi í tengslum við námavinnslu og
olíuleit við austurströnd Grænlands
og á Drekasvæðinu.
Þeir sem mig þekkja vita að ég er
mjög bjartsýnn á framtíðina hér í
Akureyri. En til að byggja upp at-
vinnutækifæri, innviði og góða þjón-
ustu við bæjarbúa er það grundvall-
aratriði að bæjarfélagið sé vel rekið
og skuldum þess stillt í hóf. Svo hef-
ur ekki verið undir forystu núver-
andi meirihluta. Það er algjörlega
ótækt að bæjarfélagið hafi verið rek-
ið með halla síðastliðin þrjú ár.
Skuldastaða Akureyrar er þannig að
ekkert má út af bregða í rekstri.
Fái ég umboð til að leiða Sjálf-
stæðisflokkinn til sigurs á Akureyri,
mun ég halda áfram að vinna að upp-
byggingu bæjarins fyrir alla Ak-
ureyringa.
Akureyri er mér hugleikin
Eftir Njál Trausta
Friðbertsson
» Það er algjörlega
ótækt að bæjar-
félagið hafi verið rekið
með halla síðastliðin
þrjú ár. Skuldastaða
Akureyrar er þannig að
ekkert má út af bregða í
rekstri.
Njáll Trausti
Friðbertsson
Höfundur er varabæjarfulltrúi á Ak-
ureyri og í framboði í fyrsta sæti í
prófkjöri Sjálfstæðisflokksins á Ak-
ureyri sem fer fram 8. febrúar nk.