Morgunblaðið - 05.02.2014, Page 32

Morgunblaðið - 05.02.2014, Page 32
32 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Smáauglýsingar Sumarhús Sumarhús í Bláskógabyggð til langtímaleigu, hentar vel fyrir hestamenn. Uppl. í síma: 866 3114, sigmar48@gmail.com Sumarhús - Gestahús - Breytingar Framleiðum stórglæsileg sumarhús í ýmsum stærðum. Tökum að okkur stækkun og breytingar á eldri húsum. Smíðum gestahús – margar útfærslur. Sjáum um almennt viðhald á sumarhúsum og sólpöllum. Setjum niður heita potta og smíðum palla og skjólveggi. Áratugareynsla - Endilega kynnið ykkur málið. Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn, sími 892 3742 og 483 3693, www.tresmidjan.is Bókhald                                                 ! " "#$ %  ! &$"'"(## ) ***+  + Bílar Góður bíll Til sölu - Suzuki Grand Vitara árg. 2006 Keyrður 126.000 km, bensín, sjálf- skiptur. Tilboð 1500 þús. mikið yfir- farinn, negld vetrardekk fylgja. Uppl. í síma 669 1170. Nýr Chrysler Town & Country Diesel. Eftirársbíll 2012 modelár á 2,1 milljón lægra verði en 2013. Leðurinnrétting. Álfelgur. Sæti fellan- leg niður í gólf. ofl. Eyðsla 7,9L í blönduðum akstri. Verð: 8.790.000,- www.sparibill.is Fiskislóð 16 - sími 577 3344. Opið kl. 12-18 virka daga. Bílaþjónusta GÆÐABÓN Ármúla 17a Opið mán.-fös. 8-18. S. 568 4310 Það besta fyrir bílinn þinn Alþrif, djúphreinsun, mössun, teflon, blettun, bryngljái, leðurhreinsun. Bílaleiga HÓPFERÐABÍLAR TIL LEIGU með eða án bílstjóra. --------16 manna-------- --------9 manna--------- Fast verð eða tilboð. CC.BÍLALEIGA S. 861 2319. Húsviðhald Húsaviðgerðir www.husco.is Sími 555-1947 | Gsm 894-0217 Ég sendi þér kæra kveðju nú komin er lífsins nótt, þig umvefji blessun og bænir ég bið að þú sofir rótt. Þó svíði sorg mitt hjarta þá sælt er að vita af því, þú laus ert úr veikinda viðjum þín veröld er björt á ný. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Hvíldu í friði, elsku pabbi. Sigríður Lilja Sigmunds- dóttir og Sigurður Sigmundsson. Nú ertu kominn á betri stað elsku afi okkar. Það er sárt að hugsa til þess að við munum ekki hittast í langan tíma. Minningarn- ar um þig eru óteljandi og er ein besta minningin hversu góður vinur þú varst okkur. Það var hægt að tala við þig um allt milli himins og jarðar. Aldrei höfum við hitt manneskju eins og þig, ávallt í góðu skapi og mikill brandarakarl. Þú kenndir okkur margt og alltaf gátum við hlegið með þér eins og þegar þú kenndir okkur að dansa kúrekadans. Það var alltaf svo mikil gleði í þér og munum við sakna þess mikið, yndislegi afi okkar. Við sjáumst þegar okkar tími kemur. Nú hefur það því miður gerst að vond frétt til manns berst Kær vinur er horfinn okkur frá því lífsklukkan hans hætti að slá Rita vil ég niður hvað hann var mér kær afi minn góði sem guð nú fær Hann gerði svo mikið, hann gerði svo margt og því miður get ég ekki nefnt það allt Að tala við hann var svo gaman á þeim stundum sem við eyddum saman Hann var svo góður, hann var svo klár æ, hvað þessi söknuður er sár En eitt er þó víst og það á við mig ekki síst að ég sakna hans svo mikið, ég sakna hans svo sárt hann var mér góður afi, það er klárt En alltaf í huga mínum verður hann afi minn góði sem ég ann í himnaríki fer hann nú þar verður hann glaður, það er mín trú Sigmundur Eiríksson ✝ Sigmundur Ei-ríksson fæddist 7. desember 1938. Hann lést hinn 16. janúar 2014. Útför Sigmundar fór fram 27. janúar 2014. Því þar getur hann vak- að yfir okkur dag og nótt svo við getum sofið vært og rótt hann mun ávallt okkur vernda vináttu og hlýju mun hann okkur senda Elsku afi, guð mun þig geyma yfir okkur muntu sveima en eitt vil ég þó að þú vitir nú minn allra besti afi, það varst þú. (Katrín Ruth) Rakel Ýr Sigurðardóttir, Claude Cutjar, Grétar Már Sigurðarson, Thelma Ósk Kristjánsdóttir, Sigurður Andreas og Stefán Mikael. Enginn veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur, segir máltækið. Smátt og smátt rennur það upp fyrir mér að þú ert ekki lengur á meðal okkar. Minningarnar hrannast upp svo ljúfsárar. Þegar ég var lítil stelpuskotta þótti mér afar skemmtilegt að koma á Sléttahraunið, ekki bara vegna þess að dekstrað var svoleiðis við mig heldur einnig vegna þess að þú gafst þér tíma fyrir mig og til að vera með mér. Gaman þótti mér að fá að fara með þér í sund- laugina og síðan heim að borða kornflex þar sem ég mátti fá ómældan sykur út á bara ef amma vissi ekki; þegar þú fórst með mér út á róló og ýttir mér í rólunni og lékst við mig í timburhringhúsinu eða þegar ég mátti taka heila ferðatösku af barbídótinu mínu til ykkar og raða því út um öll gólf. Þegar langafabörnin þín komu til þín upplifðu þau það sama og ég gerði, leikur og umhyggja alltaf í fyrirrúmi. Minningarnar okkar eru endalausar og verða geymdar á góðum stað í hjartanu. Elsku afi, þú varst frábær og munum við sakna þín sárt. Minning þín er mér ei gleymd; mína sál þú gladdir; innst í hjarta hún er geymd, þú heilsaðir mér og kvaddir. (Káinn) Margrét Ruth Sigurð- ardóttir, Ísold Emma Vikt- orsdóttir og Rafael Bjarni Viktorsson. ✝ Guðjón BenSigurðsson fæddist 4. ágúst 1947 í Árnessýslu. Hann lést 17. des- ember 2013. For- eldrar hans voru Martha Oddsdóttir, fædd 16. september 1908 að Tumastöð- um í Fljósthlíð, lát- in 21. nóvember 1980 og Sigurður Guðjónsson, fæddur 9. júní 1903, dáinn 18. janúar 1949. Bróðir Guðjóns var Sigurður Ben Sigurðsson, fæddur 6. jan- úar 1944, látinn 5. ágúst 1981. Eiginkona Guðjóns var Ólína Kjartansdóttir, fædd 4. júlí 1951, dáinn 29. janúar 2005. Foreldrar hennar voru Kjart- an Helgason, fædd- ur 10. júní 1922, dá- inn 19. maí 2009 og Ingibjörg Ein- arsdóttir, fædd 26. maí 1926, dáin 24. febrúar 2012. Barn Guðjóns og Ólínu var Guðmundur Guð- jónsson, fæddur 13. febrúar 1978 dáinn 14. febrúar 1978. Útför Guðjóns fór fram í kyrrþey þann 17. janúar síðast- liðinn. Okkur langar að minnast frænda okkar, Guðjóns Ben Sig- urðssonar, en hann lést 17. des- ember 2013 eftir langvarandi veikindi. Guðjón fæddist 4. ágúst 1947. Foreldrar hans voru Martha Oddsdóttir, fædd 1908, dáin 1980 og Sigurður Guðjóns- son, fæddur 1903, dáinn 1949. Guðjón átti einn albróður, Sigurð Ben Sigurðsson, fæddan 1944, dá- inn 1981. Faðir Guðjóns dó þegar hann var aðeins 2 ára gamall. Martha móðir hans var einstak- lega glaðlynd og skemmtileg kona sem barðist af hörku við að sjá sonum sínum farborða. Það var erfitt á þessum tíma að vera ein- stæð móðir en hún átti góða að, bæði foreldra sína og bræður. Martha bjó seinna með Jóni Jóns- syni. Jón var matsveinn á Herðu- breið, en hún var þerna á sama skipi og kynntust þau þar. Jón lést 1964. Guðjón var lengst af sendibílstjóri. Kona Guðjóns var Ólína Kjartansdóttir fædd 1951, dáin 2005. Þau eignuðust einn son, Guðmund Guðjónsson, fæddan 13.02. 1978, dáinn 14.02. 1978. Það var mikil sorg að missa drenginn og reyndist þeim erfitt. Foreldrar Ólínu voru Kjartan Helgason og Ingibjörg Einarsdóttir, þau eru bæði látin. Guðjón og Ólína bjuggu lengst af á Langholtsvegi. Þau byggðu sér sumarbústað við Gíslholtsvatn og var það þeirra paradís í mörg ár. Eftir lát Ólínu fór að halla undan fæti hjá Gauja frænda. Hann missti lífsviljann og jafnframt barðist hann við krabbamein. Ég man fyrst eftir þessum frænda mínum þegar hann kom í sveit hjá Lofti bónda á Vestri-Hellum en þar var hann nokkur sumur. Siggi Ben bróðir hans var í sveit hjá Páli á Baugs- stöðum þannig að þeir komu oft til okkar í heimsókn. Faðir minn, Benedikt Oddsson, var móður- bróðir þeirra og bjuggum við í Tungu á þeim tíma. Það var alltaf tilhlökkunarefni að fá þá í heim- sókn. Guðjón var glæsilegur ung- ur maður og vel liðinn af öllum. Hann var jarðaður í kyrrþey þann 17. janúar síðastliðinn. Guð blessi minningu Guðjóns og Ólínu. Háa skilur hnetti himingeimur, blað skilur bakka og egg, en anda sem unnast , fær aldregi eilífð að skilið. (JH ) Far þú í friði, friður Guðs þig blessi. Sigríður V. Benediktsdóttir og systkini. Guðjón Ben Sigurðsson Morgunblaðið birtir minning- argreinar endurgjaldslaust alla útgáfudaga. Skil | Þeir sem vilja senda Morg- unblaðinu greinar eru vinsamlega beðnir að nota innsendikerfi blaðs- ins. Neðst á forsíðu mbl.is má finna upplýsingar um innsendingarmáta og skilafrest. Einnig má smella á Morgunblaðslógóið efst í hægra horninu og velja viðeigandi lið. Skilafrestur | Sé óskað eftir birt- ingu á útfarardegi þarf greinin að hafa borist á hádegi tveimur virk- um dögum fyrr (á föstudegi ef út- för er á mánudegi eða þriðjudegi). Þar sem pláss er takmarkað getur birting dregist, jafnvel þótt grein hafi borist innan skilafrests. Lengd | Hámarkslengd minning- argreina er 3.000 slög. Lengri greinar eru eingöngu birtar á vefnum. Hægt er að senda stutta kveðju, Hinstu kveðju, 5-15 línur. Formáli | Minningargreinum fylgir formáli sem aðstandendur senda inn. Þar kemur fram hvar og hvenær sá sem fjallað er um fæddist, hvar og hvenær hann lést og loks hvaðan og hvenær útförin fer fram. Þar mega einnig koma fram upplýsingar um foreldra, systkini, maka og börn, svo og æviferil. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í formálanum, sem er feitletraður, en ekki í minningargreinunum. Undirskrift | Minningargreina- höfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín undir greinunum. Myndir | Hafi mynd birst í til- kynningu er hún sjálfkrafa notuð með minningargrein nema beðið sé um annað. Ef nota á nýja mynd skal senda hana með æviágripi í innsendikerfinu. Hafi æviágrip þegar verið sent má senda mynd- ina á netfangið minning@mbl.is og gera umsjónarfólki minning- argreina viðvart. Minningargreinar ✝ Karl KristinnÞórðarson fæddist á Stóru- Vatnsleysu 18. júlí 1933. Hann lést á bráðadeild Land- spítalans í Fossvogi 11. janúar 2014. Foreldrar hans voru Þórður Krist- inn Jónasson frá Skrautási í Hruna- mannahreppi, f. 4.8. 1895, d. 8.12. 1959, og Þór- unn Einarsdóttir frá Brands- húsum í Gaulverjabæjarhreppi, f. 1.7. 1892, d. 9.2. 1985. Hann var yngstur systkinanna, en systkini hans eru Eyþóra Þórð- ardóttir, f. 5.4. 1922, d. 25.2. 1987, Guðríður Þórðardóttir, f. 15.5. 1923, d. 18.12. 2007, Sig- rún Þórðardóttir, f. 1.6. 1924, Jónas Þórðarson, f. 30.5. 1926, d. 17.3. 2005, Sæmundur Þórð- arson, f. 27.9. 1927, Sigríður Auðbjörg Þórðardóttir, f. 12.12. 1929, d. 30.12. 1953, Einar Guðni Þórðarson, f. 4.10. 1931, d. 19.9. 1999. Samfeðra er Unn- ur Ingibjörg Þórðardóttir, f. 5.7. 1933. Þann 17. júní 1961 kvæntist Karl eftirlifandi konu sinni, Valgerði Guðmundsdóttur, f. býliskona Antons er Þórdís Anna Björnsdóttir. Heiða Björk Karlsdóttir, f. 15.1. 1964. Eig- inmaður hennar er Sigurjón Heiðar Hreinsson, f. 9.9. 1965. Börn þeirra eru Guðný Rut og Benedikt Parmes. Guðmundur Karl Karlsson, f. 15.1. 1966. Eiginkona hans er Anna Kára- dóttir, f. 10.7. 1974. Börn þeirra eru Kári Jón, Stefán Logi og Ásrún Eva. Þór Karlsson, f. 15.8. 1967. Sambýliskona hans er Tinna Lárusdóttir, f. 11.11. 1968. Börn hans eru Karl Krist- inn, Ásgeir Örn og Gígja Rut. Börn Karls Kristins eru Katrín og Óðinn. Sambýliskona Ás- geirs er Aníta Runólfsdóttir og dóttir þeirra er Þóra Gabríella. Freyr Karlsson, f. 6.10. 1972. Sambýliskona hans er Rósa Kristín Jensdóttir, f. 7.4. 1974. Börn þeirra eru Sindri Jens, Thelma Dögg, Hrafnhildur Ýr, Freydís Rós og Laufey Ösp. Karl Kristinn var fæddur á Stóru-Vatnsleysu og ólst þar upp. Hann sótti sjó og vann við bústörf. Árið 1962 fluttu hann og Valgerður upp að Gunn- arshólma og voru þar með bú- skap í þrjú ár. Svo flytja þau á Hliðsnes 1965 og stundaði hann búskap og útgerð. Hann tók einnig próf í járniðn og vann við það hjá Vélaverkstæði Jó- hanns Ólafs, Norma og Nor- mex. Útför Karls Kristins fór fram frá Garðakirkju 22. janúar 2014. 19.12. 1938. For- eldrar hennar voru Guðmundur Guð- mundsson frá Skál- eyjum, f. 15.5. 1906, d. 31.1. 1979 og Júlíana Guð- mundsdóttir frá Gillastöðum, f. 6.7. 1902, d. 22.8. 1997. Börn þeirra Karls og Valgerðar eru: Júlíana Karls- dóttir, f. 19.12. 1961, eig- inmaður hennar er Víðir Jó- hannsson, f. 1.10. 1948. Börn þeirra eru Sandra Ósk, Guð- mundur Víðir og Steinunn Júl- ía. Sandra er gift Lois M. Perez og saman eiga þau Alexöndru Líf og Kekoa Víði. Þórunn Haf- dís Karlsdóttir, f. 27.11. 1962. Eiginmaður hennar er Bjarni Guðmann Ólafsson, f. 30.9. 1959. Börn þeirra eru Val- gerður Katrín, Alma Rós, Hera Lind og Anton Már. Valgerður er gift Sigurði T. Tryggvasyni og saman eiga þau dæturnar Ísabellu Ósk og Sóleyju Ösp. Sambýlismaður Ölmu er Peter Jones og saman eiga þau Mo- niku Vivien og Noa Henry. Sambýlismaður Heru er Freyr Marinó Valgarðsson og sam- Elsku afi minn, þú veist ekki hversu sárt þín verður saknað. Ég vildi óska þess að þú og dóttir mín hefðuð getað kynnst betur, hún var algjör langafas- telpa. Ég mun segja henni marg- ar sögur af þér eins þegar við fór- um hringinn í kringum landið með ömmu, Guðnýju og Stein- unni. Þú gerðir mikið grín að mér því ég hafði róið bátnum öfugt. Þú varst duglegur við að smíða og skera út. Ég á marga fallega hluti eftir þig og lærði ég mikið af þér. Svo má ekki gleyma öllum ættarmótunum, ferðalögunum og grillveislunum úti í garði. Þú skil- ur eftir þig mjög góða og sam- henta fjölskyldu. Þú varst alltaf tilbúinn í að rétta fram hjálpar- hönd ef einhvern vantaði hjálp. Þú og amma jöfnuðuð ykkur vel út. Ég er afar þakklátur fyrir að hafa fengið að eyða síðustu tveimur vikum hjá ykkur ömmu áður en ég fór aftur til Noregs, það er mér ómetanlegt. Ég veit þér líður vel þarna uppi, himna- ríkið er ríkara að hafa þig hjá sér. Þó vildi ég geta knúsað þig og kysst aftur. Þú ert alltaf og hefur alltaf átt stað í mínu hjarta. Þitt barnabarn, Ásgeir Örn Þórsson. Karl Kristinn Þórðarson

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.