Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 35
aftur 1989-9l, hagfræðingur í Bún-
aðarbanka 1991-99, hjá Burnham
International á Íslandi til 2001 og
IMG-Deloitte (Capacent) til 2004.
Bolli sinnir fjármálaráðgjöf og sit-
ur í stjórnum nokkurra innlendra og
erlendra fyrirtækja auk þess að
kenna hagfræði, fjármál og reikn-
ingshaldsgreinar við Tækni- og
verkfræðideild HR og Við-
skiptafræðideild HÍ.
En hvað gerir Bolli við frítímann?
„Sá tími fer mest í bóklestur auk
þess sem ég reyni að rækta garðinn
minn í eiginlegri og óeiginlegri
merkingu. Foreldrar mínir dóu á
þeim aldri sem ég er að ná núna. Það
er áminning um að lifa lífinu lifandi
og njóta þess sem er satt og fagurt.
Á þessum aldri áttar maður sig
enn betur á mikilvægi þess að lifa í
sátt við alla menn, ekki síst fjöl-
skylduna og þá góðu vini sem ég hef
kynnst á lífsleiðinni, allt fólk sem er
mér afar hjartfólgið.
Við hjónin njótum samveru hvort
annars, ferðumst eftir því sem við
höfum tök á og erum eins og kostur
er með börnunum okkar, tengda-
dætrunum og sonarsonunum sex.“
Fjölskylda
Eiginkona Bolla er Ásta St. Thor-
oddsen, f. 24.4. 1953, prófessor við
Hjúkrunarfræðideild HÍ. Foreldrar
hennar voru Einar Thoroddsen, f.
23.5. 1913, d. 13.5. 1991, yfirhafn-
sögumaður í Reykjavík, og Ingveld-
ur Bjarnadóttir, f. 31.10. 1924, d. 4.2.
2013, fótaaðgerðafræðingur.
Börn Bolla og Ástu eru Einar G.
Guðmundsson (stjúpsonur Bolla) f.
29.3. 1972, viðskiptafræðingur í
Reykjavík en kona hans er Arna
Hauksdóttir, dósent í lýðheilsu við
HÍ, og eru barnabörnin Hlynur, f.
1999, Haukur, f. 2001, og Kolbeinn, f.
2006; Sverrir Bollason, f. 30.1. 1980,
verkfræðingur í Reykjavík en kona
hans er Inga Rún Sigurðardóttir
blaðamaður og eru börnin Oddur, f.
2007, Örvar, f. 2009 og Hjalti Sig-
urður, f. 2013; Atli Bollason, f. 2.5.
1985, MA í bókmenntum, í Reykja-
vík en kona hans er Ásrún Magn-
úsdóttir dansari; Brynhildur Bolla-
dóttir, f. 12.1. 1989, laganemi við HÍ.
Systkini Bolla eru Lilja Héðins-
dóttir, f. 26.5. 1952, framhaldsskóla-
kennari, búsett í Hafnarfirði; Sverr-
ir Héðinsson, f. 29.6. 1957, d. 1.4.
1964; Böðvar Héðinsson, f. 6.11.
1963, viðskiptafræðingur, búsettur í
Kópavogi; Sigríður Héðinsdóttir, f.
6.11. 1963, starfsmannastjóri, búsett
í Reykjavík
Foreldrar Bolla voru Héðinn
Finnbogason, f. 10.5. 1923, d. 23.2.
1985, lögfræðingur í Reykjavík, og
Auður Böðvarsdóttir, f. 19.8. 1922, d.
9.5. 1982, bókavörður í Bústaðasafni.
Úr frændgarði Bolla Héðinssonar
Bolli
Héðinsson
Jónína Halldórsdóttir
húsfreyja í Tjaldanesi
Árni Árnason
bóndi í Tjaldanesi í Auðkúluhr. V-Ísafj.sýslu
Lilja Árnadóttir
húsfreyja á Bakka, síðar á Bíldudal
Auður Böðvarsdóttir
bókavörður og húsmóðir
í Reykjavík
Böðvar Pálsson
kaupfélagsstjóri og bóndi á
Bakka og Bíldudal
Arndís Pétursdóttir
Eggerz
húsfreyja í Vatnsfirði
Páll Ólafsson
prófastur í Vatnsfirði,
Ísafjarðardjúpi
Kristín Bergþórsdóttir
húsfreyja á Meiðastöðum og í Rvík
Teitur Pétursson
skipasmiður á Meiðastöðum
í Garði og Reykjavík
Sigríður Teitsdóttir
ljósmóðir í Hítardal
Finnbogi Helgason
bóndi í Hítardal í Mýrasýslu
Héðinn Finnbogason
lögfræðingur í Reykjavík
Guðný Hannesdóttir
húsfreyja á Kvennabrekku
Helgi Helgason
bóndi á Kvennabrekku í Miðdölum og víðar
Guðrún
Pálsdóttir
húsfr. á
Bíldudal
Guðrún Þorbjarnardóttir
húsfr. í Rvík
Broddi Broddason
aðstoðarfréttastj. RÚV
Þorbjörn Broddason
prófessor við HÍ
Kristín Þorbjarnardóttir
húsfr. í Rvík
Þórður Ingvi Guðmundss.
sendiráðunautur
SIgurður Guðmundsson
fyrrv. landlæknir
Þórður Þorbjarnarson
forstjóri
Þórður Þ. Þorbjarnarson
borgarverkfræðingur
Guðríður Helgadóttir
húsfr. á Kvenna-
brekku
Haukur Jóhannesson
Lynge
loftskeytam. í Kópav.
Leifur Hauksson
dagskrárgerðar-
maður
Afmælisbarnið og eiginkonan
Bolli og Ásta.
ÍSLENDINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014
Jón Auðuns dómprófastur fædd-ist á Ísafirði 5.2. 1905. For-eldrar hans vom Jón Auðunn
Jónsson, framkvæmdastjóri og
alþm. á Ísafirði, og k.h., Margrét
Guðrún Jónsdóttir húsfreyja.
Jón Auðunn var sonur Jóns Ein-
arssonar, bónda á Garðsstöðum, og
k.h., Sigríðar Jónsdóttur húsfreyju,
systur Baldvins, föður Jóns, alþm.
og formanns Alþýðuflokksins.
Margrét var dóttir Jóns Jóns-
sonar, prests á Stað á Reykjanesi,
og k.h., Sigríðar Snorradóttur.
Systir Jóns dómprófasts var Auð-
ur Auðuns alþm. en hún var fyrsta
konan í embætti borgarstjóra í
Reykjavík og jafnframt fyrsta ís-
lenska konan sem varð ráðherra.
Jón lauk stúdentsprófi í Reykja-
vík 1924, guðfræðiprófi við HÍ 1929
og stundaði framhaldsnám í saman-
burðarguðfræði og helgisiðafræði í
Marburg og í París.
Jón var forstöðumaður Frikirkju-
safnaðarins í Hafnarfirði 1930, var
forstöðumaður Frjálslynda safn-
aðarins í Reykjavík frá 1941, var
skipaður prestur við Dómkirkjuna í
Reykjavík 1945 og gegndi því emb-
ætti til 1973. Hann var skipaður
dómprófastur í Reykjavíkur-
prófastsdæmi 1951, var kirkjuþings-
maður 1958-62 og var formaður
Safnaðarráðs Reykjavíkur 1953-73.
Hann gegndi auk þess ýmsum öðr-
um trúnaðarstörfum, var t.a.m. for-
maður Ekknasjóðs Reykjavíkur
1953-73, formaður stjórnar Kirkju-
byggingarsjóðs Reykjavíkur, sat í
stjórn Barnaverndarfélags Reykja-
víkur í mörg ár og í Barnavernd-
arráði og var formaður Reykjavík-
urdeildar Rauða kross Íslands
1951-67.
Jón og kollegi hans, Bjarni Jóns-
son vígslubiskup sem þjónaði dóm-
kirkjusókninni til 1951 aðhylltust
gjörólíka guðfræði. Séra Bjarni var
íhaldssamur guðfræðingur en séra
Jón var hins vegar í framvarðarsveit
mjög frjálslyndra guðfræðinga. Eins
og margir aðrir sóknarprestar þessa
tíma var hann lengst af sannfærður
spíritisti og var forseti Sálarrann-
sóknarfélags Íslands á árunum
1939-63. Jón lést 10.7. 1981.
Merkir Íslendingar
Jón Auðuns
90 ára
Sigurbjörg Jóh. Þórðardóttir
85 ára
Ingunn Ingvarsdóttir
Svava Gunnarsdóttir
Sveinn Helgason
80 ára
Garðar Hólm Gunnarsson
Guðrún Björgvinsdóttir
Helgi H. Sigurðsson
Hjördís Björnsdóttir
Sigfús Jóhannsson
Sigríður Grímsdóttir
Sigurlaug Gunnlaugsdóttir
Valur S. Thoroddsen
75 ára
María Hrólfsdóttir
Ragnheiður Erlendsdóttir
70 ára
Bernt H. Sigurðsson
Birgir Þórbjörnsson
Hermann Isebarn
Hrafn Þórhallsson
Ísólfur Sigurðsson
Jóna Sólveig Ólafsdóttir
Jón Helgi Jóhannsson
Kolbrún Jósepsdóttir
Sigurður Jens Jakobsson
60 ára
Borgar Jens Jónsson
Jón Róbert Newman
María Friðriksdóttir
Sigríður Jónsdóttir
Sigurvaldi Sigurjónsson
Steingrímur E.
Kristmundsson
Ægir Jóhannsson
50 ára
Elín Ragnarsdóttir
Eydís Þuríður Jónsdóttir
Géné Kurmiené
Jenný Hugrún Wiium
Karl Sigurðsson
Kristján S. Bjarnason
Maria Nemia Tolo Bibit
Ragnar Arnarson
Sigurður Fáfnir Ívarsson
Sólveig Hafsteinsdóttir
Steinar Þórarinsson
Þorsteinn Sveinsson
Þóra Sveinsdóttir
Þuríður E. Þorsteinsdóttir
40 ára
Anna Elísabeth Gísladóttir
Ásdís Lilja Hilmarsdóttir
Birute Skibickiene
Björgvin Richter
Elvar Bragason
Ewa Kotowska
Grettir Rúnarsson
Jacek Borkowski
Magnús Friðjón Ragnarsson
Marija Boskovic
Snorri Valdimar Krist-
jánsson
Sólrún Sverrisdóttir
Vignir Brynjólfsson
Þorvarður Lárusson
30 ára
Carmen Jósefa Jóhanns-
dóttir
Dagný Jónsdóttir
Guðný Skúladóttir
Heimir Hjartarson
Inga Þórunn Waage
Jóhanna S. Sigurbjörns-
dóttir
Martyna Lozinska
Olgeir Pétursson
Ólafur Freyr Ólafsson
Til hamingju með daginn
30 ára Hugrún ólst upp í
Reykjavík, er þar búsett
og er bankastarfsmaður.
Systur: Heiðdís Ragn-
arsdóttir, f. 1982, leik-
skólakennari á Egils-
stöðum, og Heiða Kristín
Ragnarsdóttir, f. 1991,
nemi í Svíþjóð.
Foreldrar: Ragnar Heiðar
Harðarson, f. 1958, rakari
í Reykjavík, og Kristjana
Guðbjörg Grímsdóttir, f.
1959, bankastarfsmaður í
Reykjavík.
Hugrún Inga
Ragnarsdóttir
40 ára Hanna ólst upp í
Ólafsvík, er búsett í
Reykjavík og er versl-
unarmaður í Cosmo í
Kringlunni.
Maki: Ólafur Már Gunn-
laugsson, f. 1979, mat-
reiðslumaður.
Börn: Eyþór Andri, f.
2006, og María Ólína, f.
2012.
Foreldrar: Víkingur Hall-
dórsson, f. 1947, og Sól-
brún Guðbjörnsdóttir, f.
1949.
Hansína Metta
Víkingsdóttir
40 ára Katrín ólst upp í
Oddakoti í A-Landeyjum,
er búsett á Selfossi, lauk
MA-prófi í lestrarfræðum
og kennir við Flóaskóla.
Maki: Þórir Erlingsson, f.
1973, prófessor við KSU í
Atlanta í Georgíu í Banda-
ríkjunum.
Börn: Eydís Líf, f. 1998, og
Eyþór Ás, f. 2001.
Foreldrar: Kristín Sigurð-
ardóttir, f. 1947, og Þráinn
Þorvaldsson, f. 1945, d.
2002.
Katrín Ósk
Þráinsdóttir
mbl.is/islendingar
islendingar@mbl.is
Börn og brúðhjón
www.nortek.is Sími 455 2000
Nortek sérhæfir sig í öryggislausnum sem þú
getur treyst hvort heldur er að degi eða nóttu,
miklir möguleikar bæði fyrir lítil og stór fyrirtæki.
Meira en 16 ára reynsla í sölu og þjónustu á
öryggiskerfum.
Nortek ehf | Eirhöfði 13 og 18 | 110 Reykjavík
Hjalteyrargötu 6 | 600 Akureyri | nortek@nortek.is
FYRIRTÆKJAÖRYGGI
• Aðgangsstýring
• Brunakerfi
• Myndavélakerfi
• Innbrotakerfi
• Slökkvikerfi / Slökkvitæki
• Öryggisgirðingar / Hlið / Bómur
• Áfengismælar / fíkniefnapróf