Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 36

Morgunblaðið - 05.02.2014, Side 36
36 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 8V HAPPDRÆTTI! Poolborð í vinning. Allir sem kaupa Milwaukee vél fá að setja nafn sitt í pottinn. Dregið verður 28. febrúar 2014. Poolborðið afhendist eins og myndin sýnir með fylgihlutum. Síðumúla 11 - 108 Reykjavík Sími 568-6899. Heimasíða: www.vfs.is Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Þú ert friðsæl/l og í góðu jafnvægi og hefur því góð áhrif á alla í kringum þig. Dað- ur, skemmtanir og aukin vellíðan munu ein- kenna líf þitt á næstunni. 20. apríl - 20. maí  Naut Það getur skipt sköpum að beita rétt- um aðferðum til þess að ná árangri. Ef þú færð stöðugt fleiri til samstarfs við þig, verð- urðu að standa þig sífellt betur. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Ekki er allt sem er heilt aðdáun- arvert. Hlutlaust yfirbragð þitt er svo áhrifa- ríkt til að laða að þér það sem þú þráir að það gæti breytt aðferðafræðinni til fram- búðar. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Láttu það nú eftir þér að hrinda draumum þínum í framkvæmd þótt það kosti einhverjar fórnir. Ef þig langar á slíkar slóðir skaltu undirbúa þig mjög vel. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Best er að skipuleggja hlutina um morg- uninn, óvæntar uppákomur og hvatvísi gera kvöldið skemmtilegt. Það ætti að vera nóg og þú þarft að hafa þrek til þess að segja nei. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Ástvinir taka púlsinn á þér. Grasið er ekkert grænna handan girðingarinnar, þótt þú haldir það. Skipuleggðu vinnutímann bet- ur og leitaðu aðstoðar með það sem þarf. 23. sept. - 22. okt.  Vog Þú ert uppfull/ur af hugmyndum um endurbætur og fegrun heimilisins í dag. Gættu þess því að leita ekki langt yfir skammt, lykillinn liggur nær en þú heldur. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Það er upplagt að eyða smá tíma í það að sýna sig og sjá aðra. Samstarf þitt við aðra byggist á því að þú getir breytt til. Þú gætir freistast til þess að kaupa eitt- hvað í dag. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Þér mun farnast vel í viðræðum sem þú getur þurft að eiga við embættis- menn og forstjóra í dag. Hvers vegna ekki? Gættu þess bara að sökkva þér ekki í skuldir. 22. des. - 19. janúar Steingeit Þú kynnist einhverjum í dag sem kemur eins og stormsveipur með ýmsar nýjar hugmyndir. Gefðu þér tíma til að sinna þér líka og leyfðu ímyndunaraflinu að leika laus- um hala. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Oft skýtur hlutum upp í hugann án þess að maður sé beint að hugsa um þá. Mundu að sjaldan veldur einn þá tveir deila. 19. feb. - 20. mars Fiskar Góðir hlustendur lifa sig inn í sög- urnar sem þeir heyra. Geta þín til þess að komast að hinu sanna er jafnframt mikil. Umsjónarmanni áskotnaðistbráðskemmtileg ljóðabók, Húnvetnskt bros í augum, með kveðskap eftir Rögnvald Rögn- valdsson, en fjölskylda hans gaf bókina út á Akureyri árið 2002. Það var dótturdóttir skáldsins sem gaukaði henni að umsjónarmanni, en hún var aðeins þriggja ára þeg- ar hún lærði þessa vísu um sjálfa sig: Þú ert eina yndið mitt okkar treinist vaka; brosið hreina bræðir þitt bæði stein og klaka. Í inngangi Ragnars Inga Aðal- steinssonar segir meðal annars: „Í kveðskap Rögnvalds er hláturinn aldrei langt undan, hvað svo sem gengur á, og skal hér í lokin tilfært dæmi um það hve æðruleysið og grallaraskapurinn fóru ljómandi vel saman í vísum hans. Rögnvaldur fékk hjartaáfall, blóðtappa, og var fluttur nær dauða en lífi á Fjórð- ungssjúkrahúsið á Akureyri. Starfsliðinu þar tókst að lífga hann við og ekki var hann fyrr kominn til meðvitundar en hann orti: Letin slappar líkamann, leikni er kappans prýði. En æðatappatogarann ég teldi happasmíði.“ Nóg er af lífsspeki í vísum Rögn- valds eins og þessari: Róginn syngur rætin sál, reytir slyngur mannorðs akur, flytur kynngi flárátt mál, fer í kringum efnið vakur. Í þessari fer saman gaman og al- vara: Eitt við spilum óskalag yfir tæmdum brunnum. Líður á þennan dýrðardag. Drottinn hjálpi þunnum. Og gott ef þetta er ekki ákvæða- vísa: Stjórnin á úr vöndu að velja vinnu þó að haldist friður. Illa gengur enn að telja óðaverðbólguna niður. Hjartað gefur hreinust svörin hér þarf ekki að fletta blöðum: Vigdís okkar verður kjörin vorar enn að Bessastöðum. Pétur Blöndal pebl@mbl.is Vísnahorn Af Rögnvaldi, grallara- skap og Vigdísi forseta Í klípu „ÞAÐ SEM ÞETTA FYRIRTÆKI ÞARF ER HETJA. EKKI OFURHETJA. ÞÚ ERT OF HÆFUR Í STARFIÐ.“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG SAGÐI ÞÉR AÐ ÞÚ ÆTTIR EKKI AÐ NOTA RÓÐRARVÉLINA!“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... það sem kemur þér í gegnum daginn. NEYÐARMÓTTAKA EN EF ÞEIR HÓTA AÐ MEIÐA MIG? MUNDU NÚ ... ... EF ÓVINIRNIR HAND- SAMA ÞIG, EKKI GEFA ÞEIM NEINAR VIÐKVÆMAR UPPLÝSINGAR SEM GETA SKAÐAÐ OKKUR. ÉG VEIT. AUMINGI!Víkverji er mikið fyrir ís, en hanner búinn að fá sig fullsaddan á ísnum á götum Reykjavíkur. Finnst honum klakinn með ólíkindum þaul- sætinn. Þótt hitinn í Reykjavík hafi mestan part verið yfir frostmarki á höfuðborgarsvæðinu sér vart högg á vatni. Klakinn virðist einfaldlega ekki bráðna. Víkverji hefur engar spurnir haft af að frostmarkið hafi færst til og telur ástæðu til að rann- saka ísinn á götum borgarinnar og efnagreina. Hann grunar að í honum sé óþekkt hulduefni, sem orðið gæti Íslendingum slík féþúfa að skapað gæti skjól fyrir kreppum um ókomna framtíð. x x x Víkverja hugnast sú hugmyndstjórnenda listasafnsins Hafnar- borgar í Hafnarfirði að gefa almenn- ingi kost á að velja verk til sýningar. Þitt er valið nefnist sýningin og verður verkum skipt út reglulega. Hægt er að velja myndir með því að fara inn á sarpur.is. Þar eru myndir af verkum í eigu Hafnarborgar og ýmissa annarra safna. Víkverji skoð- aði sýninguna um helgina og var gaman að sjá verkin, sem höfðu ver- ið valin, og skýringar þeirra, sem völdu. Beint lýðræði í verki. x x x Jamie Dimon, framkvæmdastjóribandaríska bankans JPMorgan, mun hafa fengið 8,5 milljónir dollara (tæpur milljarður króna) í launa- hækkun árið 2013. Í fyrra var bank- inn sektaður um 20 milljarða dollara (2.322 milljarða króna) fyrir að beita blekkingum og hafa átt þátt í því að kreppa á húsnæðismarkaði varð að alþjóðlegri fjármálakreppu. Dimon hefur gegnt stöðunni frá 2005 og var einnig stjórnarformaður bankans um tíma. Hann hefur örugglega verið vel að launahækk- uninni kominn. x x x Víkverji hefur tekið eftir því aðþegar aðþrengdir læknar kvarta undan kjörum sínum á Íslandi í blaðaviðtölum og segja að nú eigi þeir ekki annars kost en að flýja land vegna þess að í útlöndum fái þeir svo vel borgað láta þeir aldrei fylgja sög- unni hvað þeir séu með í laun. víkverji@mbl.is Víkverji Jesús sagði þeim: „Ég er brauð lífsins. Þann mun ekki hungra sem til mín kemur og þann aldrei þyrsta sem á mig trúir.“ (Jóhannesarguðspjall 6:35) mbl.is alltaf - allstaðar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.