Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 38

Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 38
38 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 Silja Björk Huldudóttir silja@mbl.is „Ég er að færa mig 30 ár aftur í tím- ann og jafnframt að færast nær sjálfum mér við það að vinna í þess- um hliðarfantasíuheimi,“ segir Bjarni Ólafur Magnússon um sýn- ingu sína Óradrög sem opnuð hefur verið í Gerðubergi. Á sýningunni gefur að líta teikningar sem Bjarni Ólafur hefur unnið með viðarkolum og litkrít, en myndefnið er mann- eskjur, draumkenndar verur úr ósögðu ævintýri og persónur tengd- ar æskuminningum listamannsins. „Ég vinn myndirnar í lögum og í raun er strokleðrið það sem ég teikna mest með. Þetta er sama lóg- ík og gildir með skúlptúra. Ég legg niður fleti og móta með því sem ég tek af, þannig að teikningin byggist jafnfætis upp af því sem ég set á hana og tek af myndfletinum,“ segir Bjarni Ólafur aðspurður um tæknina sem hann notast við. Meiri nærveru í stórum fleti Bjarni Ólafur stundaði nám við Myndlista- og handíðaskóla Íslands og lauk BFA-listnámi við Kansas City Art Institute 1990. Hann var gestanemandi við San Francisco Art Institute og stundaði framhaldsnám við Goldsmith’s College á Englandi þaðan sem hann lauk námi með Postgraduate Diploma árið 1992 „Þegar ég fór út í nám varð ég þess fljótt áskynja að það þætti ekki fínt að vinna með fígúratífar teikningar. Í framhaldinu fór ég að vinna með abstraksjónir þar sem myndir eru byggðar upp á litum og birtu. Í Bandaríkjunum var mikil áhersla á fígúratíf verk og abstrakt-express- jónisma sem og handverkið, en þeg- ar ég fór til Englands var áherslan öll á konseptlistina,“ segir Bjarni Ólafur og tekur fram að sú kenning hafi ekki fangað sig. „Fyrir rúmum tveimur árum fór ég að líta aftur á gömlu hetjurnar mínar, m.a. Moebius og Beksinski, sem eru teiknarar og vinna í fant- asíulist,“ segir Bjarni Ólafur og tek- ur fram að hann hafi orðið sér betur meðvitaður um að styrkur hans sem listamaður lægi í óljósri tengingu við súrrealisma, fantasíur og myndasög- urnar. „Það má líkja þessu við að ég hafi farið að æfa frjálsar fyrir 30 ár- um og þá þegar vitað að styrkur minn fælist í hlaupum, en einhver bent mér á að það væri ekki nógu merkilegt heldur þyrfti ég að fara að kasta kúlum í staðinn. Og síðan er maður búinn að vera að böðlast við að gera eitthvað annað en þar sem helsti styrkur manns liggur,“ segir Bjarni Ólafur og tekur fram að þeg- ar hann fór að vinna hinar fígúratífu fantasíumyndir sínar hafi hann end- uruppgötvað hina einlægu gleði sem hann fann fyrir í myndlistarsköpun sinni á sínum yngri árum. Myndirnar á sýningu Bjarna Ólafs eiga það allar sameiginlegt að vera fremur stórar. Aðspurður seg- ist listamaðurinn alltaf hafa verið með öfgar í stærðum verka sinna. „Annaðhvort vinn ég mjög smátt eða mjög stórt,“ segir Bjarni Ólafur og tekur fram að sér finnist gaman að vinna stórar myndir í skorpum þar sem það reyni mjög á hann líkam- lega. „Þegar maður er búinn að teikna í langri törn er maður svartur upp fyrir haus og alveg búinn á því. Mér finnst heillandi að vera með stóran myndflöt, því þá verður nær- veran meiri,“ segir Bjarni Ólafur sem löngum hefur heillast af stórum andlitsmyndum Chucks Close. Eins ólíkt og það gerist Bjarni Ólafur hefur starfað sem lögreglumaður með námshléum sl. 30 ár og segir störfin tvö passa vel saman. „Meðan myndlistarmaðurinn starfar einn og grúskar í höfðinu á sér er lögreglumaðurinn alltaf að vinna með fólki að verkefnum sem liggja utan við mann. Þetta er því eins ólíkt og það gerist, en skapar gott mótvægi,“ segir Bjarni Ólafur og bætir við: „Það felst ákveðinn munaður og frelsi í því að geta unnið að myndlistinni alfarið á eigin for- sendum án þess að það sé nokkur pressa um sölu eða fjárhagslegan ávinning af þessu,“ segir Bjarni Ólafur og viðurkennir að sumum finnist skrýtið að hann sé bæði myndlistarmaður og lögreglumaður. „Öðrum lögreglumönnum finnst þetta ekkert skrýtið heldur bara já- kvætt en sumu listafólki finnst þetta ekki alveg ganga upp. Þannig að um- burðarlyndið er í reynd meira meðal lögreglumanna.“ Fantasían heillaði mest  Bjarni Ólafur Magnússon sýnir Óradrög í Gerðubergi  Listamaðurinn segist teikna mest með strokleðrinu Morgunblaðið/Kristinn Draumkennt Verk Bjarna Ólafs Magnússonar sýna draumkenndar verur úr ósögðu ævintýri og persónur tengdar æskuminningum listamannsins. Bandaríski rithöfundurinnWilliam Faulkner (1897-1962) var fæddur í Miss-issippi-ríki og fjallaði í öll- um höfuðverkum sínum um einstaka veröld suðurríkjanna; hann skapaði úr henni sértstæðan sagnaheim, Yoknapatawpha-sýslu, og hélt áfram að fylla í heildarmyndina með hverri nýrri bók. Faulkner hlaut Nóbelsverðlaunin árið 1949 og er einn af merkustu höfundum lið- innar aldar. Ekki hafa þó margar bækur hans kom- ið út á íslensku; Griðastaður kom út árið 1969, í þýðingu Guðrúnar Helgadóttur, og síðan liðu þrír áratugir þar til þýðing Rúnars Helga Vignissonar, Ljós í ágúst, kom á prent. Nú hefur Rúnar Helgi þýdd annað höfuðverka Faulk- ners, Sem ég lá fyrir dauðanum (As I Lay Dying), og gerir það meist- aralega. Þessi margradda saga kom upphaflega út árið 1930 og hefur löngum verið talin illþýðanleg, svo sérstæður er stíll sögunnar og radd- irnar sem hljóma ólíkar, með alls- kyns slettum og uppbrotnu hug- arflæði, en afraksturinn er framúrskarandi. Sem ég lá fyrir dauðanum er margradda hópsaga, eins og þýðand- inn greinir í vönduðum eftirmál- anum. Bókin er í 59 köflum og skiptast 15 persónur á að segja sög- una sem snýst um Bundren- fjölskylduna, fátækt alþýðufólk sem býr í sveit. Í upphafi sögunnar liggur Addie Bundren fyrir dauðanum og fyrir utan gluggann vinnur elsti son- urinn að því að smíða fyrir hana lík- kistu. Addie hefur látið eiginmann- inn, hinn sérhlífna Anse, heita sér því að grafa sig í fjölskyldugrafreitnum Einstök saga og frábærlega þýdd sem er í 40 mílna fjarlægð, og þegar hún gefur upp öndina hefst epískt ferðalag eiginmanns og barna með líkið á vagni. Þegar Addie er að skilja við rignir gríðarlega, fljótið vex og hrífur með sér brýrnar sem fara á yf- ir, og fyrir vikið teygist á ferðalaginu með rotnandi líkið um sveitirnar. Fjölskyldumeðlimirnir hafa oftast orðið í frásögninni, synirnir fjórir, dóttirin og eiginmaðurinn – og Addie hefur sjálf orðið í einum kaflanum þótt hún sé látin. Þá leggja sam- ferðamenn einnig orð í belg. Það eru mislangir textar og ólíkir, sem hafðir eru eftir fólkinu, og sýna vel hvað þau eru að hugsa og hvernig þeim líður. Oftast hefur sonurinn Darl orðið, í alls 19 köflum, og er hans frásögn hvað skýrust og mest upplýsandi, þótt í ljós komi að hann gengur ekki heill til skógar. Kafl- arnir geta verið ljóðrænir, hryss- ingslegir, kaldhamraðir, flæðandi eða afar blátt áfram. Atburðarásin er einföld og snýst um ferðalagið, en smám saman fær lesandinn fyllri mynd af hverri persónu fyrir sig, löngunum þeirra, vandræðum og bakgrunni. Örlagaríkt framhjáhald í fortíð, sifjaspell, yfirgangur, mis- skilningur, áfall í kjölfar andláts móðurinnar, draumur um falskar tennur; allt kemur þetta við sögu, þótt það nái ekki endilega upp á yf- irborðið, og spennan magnast milli miseinfaldra persónanna og fjöl- skyldumyndin er breytt þegar áfangastaðnum er loksins náð. Sem ég lá fyrir dauðanum er frá- bær saga, eitt af hinum klassísku og tímalausu bókmenntaverkum tutt- ugustu aldar, en jafnframt verk sem var ekki sjálfgefið að við fengjum að njóta á íslensku. Rúnar Helgi kallar textann „tilraun til þýðingar“. Hann útlistar í eftirmálanum einkenni fjöl- breytilegs og flæðandi frumtextans, og þau vandamál sem þýðandinn þarf að takast á við, vandamál sem hafa fengið suma þýðendur til að ein- falda textann og jafnvel sleppa hlut- um hans. En blessunarlega hefur Rúnar Helgi tekið verkið alla leið og er frumtextanum trúr, án þess að ís- lenskan verði á nein hátt ankanna- leg. Því eins og hann segir réttilega, þá „jafnast ekkert á við að lesa á móðurmáli sínu … Vera kann að eitt- hvað tapist í þýðingu, eins og oft er sagt, en um leið fæðist eitthvað nýtt og ávinningurinn þess vegna ótví- ræður …“ Eins og svo sannarlega er raunin hér. William Faulkner Rúnar Helgi Vignisson Nanna Bryndís Hilmarsdóttir úr Of Monsters and Man valdi lögin á Nordic Playlist sem birtur var í fimmta sinn fyrr í vikunni. Hún seg- ist hafa átt erfitt með að velja á milli uppáhaldslaga sinna frá Ís- landi. Á lista Nönnu eru „I Feel You“ með Hjaltalín og „Ströndin“ með Mammút ásamt tveimur lögum frá hverju hinna Norðurlandanna. Frá Finnlandi valdi hún „No Death“ með Mirel Wagner og „Es- cape in the Afternoon“ með French Films. Frá Svíþjóð valdi hún „Mountain Crave“ með Önnu von Hausswolff og „Killing Switch“ með Last Lynx . Það eru Indians and Mø sem eiga lögin „Magic Kids“ og „Pil- grim“ frá Dan- mörku. Lagið „Sudden Sick- ness“ með norska tónlistar- manninum Nils Bech er á listan- um ásamt „Finally 1982“ með Philco Fiction. Í viðtali sem fylgir spilunarlistanum útskýrir Nanna nánar val sitt á lögunum. Nanna velur Nordic Playlist vikunnar Nanna Bryndís Hilmarsdóttir Skáldsaga Sem ég lá fyrir dauðanum bbbbb Eftir William Faulkner. Rúnar Helgi Vignisson íslenskaði og rit- aði eftirmála. Uppheimar, 2013. Kilja. 276 bls. EINAR FALUR INGÓLFSSON BÆKUR

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.