Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 40

Morgunblaðið - 05.02.2014, Síða 40
40 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRÚAR 2014 MÚSÍK Í LJÓSVAKA Guðmundur Emilsson ge224@simnet.is Sýnishorn tónbókmennta frá 874 til 2014. Höfundur lýsir aðdáun á músík í net- heimum. Fleira bar við. Tíkur, sextán barna, grömsuðu í ruslahaug – úr sögunni. Arnheiður Böðvarsdóttir huggaði með dýru brauði. Það húm- aði að. Hvolparnir aflífaðir, mann- úðlega, handan fjóss. Bæn og blómstrið eina. Refaskytta kemur með yrðling að Efri-Brú. Kreistur um Lyngdalsheiði svo dýrbítum fækkaði austur að Laugarvatni. Þar óð Laxnesið mýrarfláka. Blána. Svo í gufubað og skeggræddi skurðgröft bænda, vaðfugla og blóm í hættu. Við kynntumst á sóldekki – um borð í Gullfossi – rugguhesti – í loftköstum. Barn að horfa í djúp. Kemur þá ekki skáldið og tyllir sér með sígar og ull- arteppi. Áttu þú ekki að vera til kojs? Ha? Eldri höfundur kenndi svona sjólag við Fárviðri. Gufubaðs- og skógarvarsla gengur í erfðir; emb- ætti ruslamálaráðherra. Starfanum fylgir hótelflygill. Og nú er spurt: Ertu góður í Bach? Ha? Nei – kannski Czerny. Skáldið lék þá JSB á flygilinn. Ólafur Ketilsson stein- hætti að hræra í kaffibolla. Ingunn og Böðvar gáfu þjóðinni ættaróðalið 1928 í þágu menningar. Einnig Vígðulaug hvar líkamsleifar Jóns Arasonar og sona váru þváðar. Mesti glæpur Íslandssögu segir frægur tónsmiður áratugum síðar. Krökkum stóð stuggur af hauslausum stað. Al- veg merkilegt að Lúther hafi látist 1546 en Jón biskup og synir hans líf- látnir 1550. Græðgi ríður ekki við einteyming. Þá þurfti að hleypa stökkhestum. Þeir reyndu með sér nafnarnir – Guðmundur Birkir, síðar skólameistari á Húsavík, sonur Þor- kels, sonur Bjarna – og Guðmundur fulltrúi reiðskóla Fáks með „öku- skírteini“ frá Rosemarie. Lokaæfing. Ótemjan Stjarna (frá Fjalli, Skeið- um) stakk sér – nennti þessu ekki – en reiðmaður tók flugið. Lúpulegur. Veðhlaupafrægð Þingvalla fyrir bí. Gulur (frá Torfum, Eyjafirði), Ís- landsmethafi, fékk hjartaáfall í sam- úðarskyni. Nafni Birkir hleypti hon- um 800 metra niðrá Flötum þá um kvöldið. Fráfall Guls kom í útvarps- fréttum – ekki heilahristingurinn. Það er þarna álfhóll – sögðu íbyggnir aldavinir – skólameistari og óháður prestur. Voru strákarnir að trufla aftansöng? Næst. Þarf sjúkrabíl? Bannað segir héraðslæknir. Þyrni- gerðið hóf sig – og sofið í öld. Loks upprisa – og svo beint í flygilinn. Við það opinberast hvað þeir á Þröm og Glúfrasteini eiga við með kraftbirt- ingarhljómi guðdómsins. Svo var Stjörnu klappað á stalli, blessuðum málleysingjanum. Kaffi hjá Böðvari og frú í kjölfarið. Vill prestur vera vænn og jarðsyngja gamalmenni? – sagt oní skegg og skrog. Hitti alltaf dallinn. Sjálfsagt Böðvar minn – ef þér farið á undan. Loforð efnt 1966. Héraðið er gjöfult – í sæld og þraut- um. Er það ekki ritað í Landnáma- bók Sturlu? Páll tók við knapanum – með hundaþúfu, haf, svart hljómborð og HCAB. Um tóndæmi: 1 HKL lék dans Önnu Magdalenu af nærgætni. 2 Lokaþáttur óperu Puccinis: Sveitastrákur syngur í fjarska (í 6/8). Morgunstjarna Jesú á himni – lýsir hjörð með náð. Pípur, kirkjuklukkur og bjöllur búpenings bjóða góðan dag í sjö mínútur – reyndar níu. Pastoral! Þá koma miklar aríur og melodrama (alls um 25 mín.). Maria Callas og önnur stórmenni. 3 Sálmalag Lúthers frá 1530. 4 Þjóðlag úr Hólabók 1619 (þekkti biskup þetta?). Dans, ópera, sálmur, þjóðlag YouTube slóðir:  Anna Magdalena Bach - BWV 114 - Minuet in G Major – piano Murat Yusuf Bisgen  Tosca: Act III Published on 5 Mar 2013 AlexTorres  Ein feste Burgh ist unser Gott - Martin Luther - Rodney Jantzi  Schola cantorum - Jesú mín morg- unstjarna hannavala Hundaþúfan og hafið II Minnisvarði um Jón Arason og syni í Skál- holti. „Vor Guð er borg á bjargi traust.“ Jólaljósmyndakeppni mbl.is og Can- on lauk fyrir stuttu og verðlaun voru veitt fyrir þrjár bestu myndirnar að mati dómnefndar keppninnar. Verðlaun fyrir bestu myndirnar hlutu Einar Rúnar Sigurðsson, sem fékk fyrstu verðlaun, Canon EOS 100D ljósmyndavél með EF-S 18-55 STM linsu, fyrir myndina Eldur og ís, Piotr Slawomir Latkowski hreppti önnur verðlaun, Canon IX- US 140 myndavél, fyrir myndina Strandarkirkja og Elín Edda Sig- urðardóttir hlaut þriðju verðlaun, Canon PIXMA MG5550 prentara, fyrir mynd af Jóhönnu Kötlu dóttur sinni sem hún nefndi Jólabarn. Þátttakendur í jólaljósmynda- keppninni að þessu sinni voru ríflega þrjúhundruð, en alls barst á fjórt- ánda hundrað mynda. Þema keppninnar var jóla- og vetrarlegar myndir, en keppendum var annars frjálst að senda inn hvernig myndir sem er. 1. verðlaun Myndin Eldur og ís sem Einar Rúnar Sigurðsson tók í íshelli í Vatnajökli í nóvember sl. Sigurmyndir í ljósmyndakeppni 3. verðlaun Mynd Elínar Eddu Sigurðardóttur af jóla- barninu Jóhönnu Kötlu Kristjánsdóttur. Morgunblaðið/Þórður Kristín Guðnadóttir, móðir Elínar Eddu Sigurðardóttur, tekur við verðlaunum fyrir hennar hönd hjá Halldóri J. Garðarssyni. 2. verðlaun Mynd Piotrs Slawomirs Lat- kowskis af Strandarkirkju og Vetrarbrautinni. Kvikmyndafyrirtækið Tenderlee MPC hefur tryggt sér kvikmynda- rétt skáldsögunnar Glæpurinn - Ástarsaga eftir Árna Þórarinsson. Sagan kom út í haust og fékk góða dóma gagnrýnenda – rýnir Morg- unblaðsins gaf henni fjórar stjörn- ur. Hún gerist einn örlagaríkan vordag í Reykjavík, á 18 ára afmæl- isdegi Fríðu. Þennan sama dag höfðu foreldrar hennar lofað að upplýsa hana um leyndarmálið sem sundraði fjölskyldunni. Tenderlee hefur framleitt kvik- myndirnar Rokland og XL en Árni er hvað þekktastur fyrir bækur um blaðamanninn Einar. Hann réri þó á ný mið með Glæpnum. Marteinn Þórsson skrifar handrit myndarinnar auk þess að leikstýra en ráðgert er að hún verði tekin upp á næsta ári. Stefnt á að kvikmynda Glæp Árna Þórarinssonar Morgunblaðið/Golli Höfundurinn Samið hefur verið um kvikmyndaréttinn að Glæpnum. –– Meira fyrir lesendur . PÖNTUNARTÍMI AUGLÝSINGA: Fyrir kl. 16, þriðjudaginn 18. febrúar. Morgunblaðið gefur út sérblað tileinkað Food and Fun matarhátíðinni laugardaginn 22. febrúar NÁNARI UPPLÝSINGAR Katrín Theódórsdóttir Sími: 569 1105 kata@mbl.is Food and Fun verður haldin í Reykjavík 27. febrúar - 3. mars.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.