Morgunblaðið - 15.02.2014, Side 25
FRÉTTIR 25Erlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2014
Stjórnvöld í Kína hafa kynnt áform
um lengstu neðansjávargöng í
heimi til að stytta leiðina milli
hafnarborganna Dalian í Liaoning-
héraði og Yantai í Shantdong-
héraði.
Gert er ráð fyrir því að járn-
brautarlestir flytji bíla um göngin,
sem verða 123 kílómetra löng, á
220 kílómetra hraða á klukkustund.
Til að komast á milli borganna
hefur fólk þurft að aka um 1.400
kílómetra langa leið eða fara með
ferjum, en siglingin milli borganna
tekur um átta klukkustundir. Með
göngunum verður hægt að komast
á milli borganna á 40 mínútum.
Að sögn kínverskra fjölmiðla
verður lögð mikil áhersla á að
tryggja öryggi ganganna vegna
þess að þau verða á jarðskjálfta-
svæði. Göngin verða að minnsta
kosti 30 metra undir sjávarbotn-
inum. Boruð verða þrenn göng,
tvenn fyrir lestir og ein fyrir við-
halds- og neyðarbíla.
Göngin verða lengri en saman-
lögð lengd tveggja lengstu ganga í
heiminum, Seikan-ganganna milli
borganna Honshu og Hokkaido í
Japan og Ermarsundsganganna
milli Bretlands og Frakklands.
123 km löng
göng á jarð-
skjálftasvæði
milli tveggja borga
Kynningarauglýsing
Fyrirhuguð rammasamningsútboð
Ríkiskaupa 2014
Önnur útboð 2014
RS - Útboð Tímasetning
Flugsæti til og frá Íslandi ?. ársfjórðungur
Öryggisgæsla og búnaður 2. ársfjórðungur
Bleyjur og undirlegg 2. ársfjórðungur
Prentun og bókband 3. ársfjórðungur
UT ráðgjöf í upplýsingatækni 3. ársfjórðungur
Vöruflutningar innanlands 3. ársfjórðungur
RS - Framlenging eða endurútboð Tímasetning
Matvæli 3. ársfjórðungur
Skoðunarhanskar 3. ársfjórðungur
Hreinlætisefni- og pappír 4. ársfjórðungur
RS - Framlenging eða endurútboð Tímasetning
Borðbúnaður og eldhúsáhöld 1. ársfjórðungur
Eldsneyti fyrir skip og flugvélar 2. ársfjórðungur
Kjöt og fiskur 2. ársfjórðungur
Eldsneyti á ökutæki og vélar 2. ársfjórðungur
Bílaleigubílar 2. ársfjórðungur
Leigubílar 2. ársfjórðungur
UT Prentlausnir 2. ársfjórðungur
Úrgangsþjónusta 4. ársfjórðungur
Plastvörur 4. ársfjórðungur
Byggingavörur og ljósaperur 4. ársfjórðungur
Landspítali - Háskólasjúkrahús Tímasetning
- Rekstrarvörur fyrir hjarta- og
æðaþræðingu 1. ársfjórðungur
- Massagreinar 2. ársfjórðungur
- Hjartaómtæki 2. ársfjórðungur
- Autoklavar f. Veirufræði 2. ársfjórðungur
- Skurðarborð, almenn og fyrir ofurþunga 2. ársfjórðungur
- Skurðstofulampar 2. ársfjórðungur
- Hjartagangráðar og bjargráðar 2. ársfjórðungur
- Ósæðardælur 3. ársfjórðungur
- Aðgerðarsmásjá 3. ársfjórðungur
- Dauðhreinsiofnar 3. ársfjórðungur
- C-bogar 3. ársfjórðungur
- Rekstrarvörur fyrir Blóðbankann 4. ársfjórðungur
ÁTVR Tímasetning
- Flutningur á áfengi og tóbaki
innanlands til þriggja ára Ótímasett
- Kaup á plastpokum (innkaupapokum) Ótímasett
Hafrannsóknarstofnunin
- Togararall, leiga á 2-3 togurum 4. ársfjórðungur
Ríkiskaup
- Brunatryggingar fasteigna 4. ársfjórðungur
- Bifreiðaútboð ríkisins 2014 1. ársfjórðungur
Þessari auglýsingu er ætlað að kynna fyrirhuguð útboð og/eða framlengingar rammasamninga á vegum Ríkiskaupa
á árinu 2014. Þannig geta áhugasamir birgjar og kaupendur kynnt sér þessi áform með góðum fyrirvara. Hægt er að
skoða á heimasíðu Ríkiskaupa, www.rikiskaup.is hvaða samningar eru í gildi á hverju tíma og við hvaða birgja og þar
er einnig hægt að skrá sig fyrir rafrænni tilkynningu um þessi útboð.
Borgartún 7c • 105 Reykjavík • Sími 530 1400 • Fax 530 1414 • www.rikiskaup.is
Kona mokar snjó í Maryland í Bandaríkjunum eftir
stórhríð sem kostaði að minnsta kosti 21 lífið á Nýja
Englandi og í austanverðu Kanada. Um 6.500 flug-
ferðum var aflýst vegna hríðarinnar í Bandaríkjunum í
fyrradag og 1.200 í gær. Nær 800.000 heimili og fyrir-
tæki voru án rafmagns í ellefu ríkjanna.
Snjómokstur eftir mannskaðaveður
AFP
Enrico Letta, forsætisráðherra Ítal-
íu, sagði af sér í gær eftir að hafa
gegnt embættinu í tíu mánuði. Búist
er við að Georgio
Napolitano, for-
seti Ítalíu, feli
Matteo Renzi,
borgarstjóra
Flórens, að
mynda nýja ríkis-
stjórn eftir við-
ræður við leið-
toga ítölsku
flokkanna sem
lýkur í dag.
Renzi er 39 ára
og takist honum að mynda ríkis-
stjórn verður hann yngsti forsætis-
ráðherra í sögu Ítalíu.
Næsta ríkisstjórn verður sú þriðja
á Ítalíu frá því að Silvio Berlusconi
sagði af sér í nóvember 2011, en
hann hafði þá gegnt embættinu leng-
ur en nokkur annar forsætisráð-
herra Ítalíu. Hún verður jafnframt
62. stjórnin frá síðari heimsstyrjöld-
inni, eða í tæp 70 ár.
Letta sagði af sér eftir að flokkur
þeirra Renzi, Lýðræðisflokkurinn,
samþykkti tillögu um að ný stjórn
yrði mynduð. Renzi hafði gagnrýnt
Letta fyrir að hafa ekki komið á
efnahagsumbótum í samræmi við
stefnu flokksins. Atvinnuleysið á
Ítalíu er nú meira en nokkru sinni
fyrr í 40 ár og efnahagurinn hefur
dregist saman um 9% á sjö árum.
Lýðræðisflokkurinn er mið- og
vinstriflokkur. Angelino Alfano, leið-
togi mið- og hægrimanna í stjórn
Letta, hefur sagt að ekki sé víst að
hægt verði að mynda nýja ríkis-
stjórn undir forystu Renzi. Hann
kveðst ekki ætla að styðja nýja
stjórn með of mikla vinstristefnu. bo-
gi@mbl.is
Enn ein stjórnin
fallin á Ítalíu
Viðræður um 62. stjórnina á 70 árum
Matteo Renzi, borg-
arstjóri Flórens.
Norski fjöldamorðinginn Anders
Behring Breivik hefur hótað því að
hefja mótmælasvelti fái hann ekki
aðgang að betri
tölvuleikjum.
Haft er eftir
Breivik að hann
telji aðstæður
sínar í fangelsinu
vera kvalræði.
Hann myrti 77
manns í Ósló og
eyjunni Útey í
júlí 2011.
Krafan um
betri tölvuleiki er ein af 12 kröfum
sem koma fram í bréfi sem Breivik
sendi fangelsisyfirvöldum í Noregi.
Þær ganga meðal annars út á betri
aðstæður til daglegra gönguferða
og meira frelsi til þess að eiga í
samskiptum við umheiminn. Í þeim
efnum hefur fjöldamorðinginn vitn-
að í evrópsk mannréttindalög, að
sögn fréttaveitunnar AFP.
Heimtar betri leiki
og hótar svelti
Anders Breivik
NOREGUR