Morgunblaðið - 15.02.2014, Qupperneq 34
34 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2014
Jæja pabbi, þá
ert þú farinn út í
bláinn án mín. Þeg-
ar ég var lítil
fannst mér alltaf svo spennandi
að setjast inn í aftursætið og
spyrja þig: „Hvert erum við að
fara?“ og þú svaraðir: „Út í blá-
inn“. Staðurinn skipti svo sem
ekki máli, bara að við fjölskyld-
an værum saman. Ég veit svo
sem ekki hvar út í bláinn er, en
kemst væntanlega að því einn
góðan veðurdag. Í raun skiptir
það ekki máli, heldur sú stað-
reynd að ég átti frábæran
pabba, endalaust tilbúinn til að
hvetja mann, styðja og hjálpa
ef hjálpar var þörf. Þegar þú
tókst utan um mann til að
kveðja mann og hvíslaðir að
manni hve þakklátur þú værir
fyrir að eiga mann og hve vænt
þér þætti um mann var ómet-
anlegt. Að fara með ykkur
mömmu í gegnum veikindi þín
var ómetanleg reynsla, ekki síst
að sjá hvað þið elskuðu hvort
annað mikið og báruð virðingu
hvort fyrir öðru. Þú gerðir þitt
besta til að geta tekið þátt í öllu
með okkur til að skapa minn-
ingar sem við getum tekið með
okkur áfram í gegnum lífið.
Takk fyrir, pabbi minn. Þinn
miðlungur,
Jóna Bryndís.
Elsku besti pabbi minn. Þótt
við höfum vitað í góðan tíma að
svona færi er maður aldrei
tilbúinn, maður vill bara fá
smátíma enn. Ég er samt alltaf
að segja mér hvað ég er heppin
að hafa fengið að eiga þig sem
pabba í 44 ár og að öll börnin
mín hafa fengið að þekkja þig
og elska þig eins og ég enda
ekki hægt annað. Það var í raun
ekkert sem þú vildir ekki gera
fyrir okkur. Alltaf varstu fyrst-
ur á svæðið ef þú gast gert eitt-
hvað fyrir okkur. Nú ef það var
Gísli Bergsveinn
Ólafur Lárusson
✝ Gísli Berg-sveinn Ólafur
Lárusson fæddist
11. júní 1940. Hann
lést sunnudaginn 2.
febrúar 2014. Útför
Gísla fór fram 10.
febrúar 2014.
ekkert sérstakt að
gera þá komstu
við, svona rétt til
að sjá hvernig við
hefðum það í dag
og fá kannski einn
kaffibolla.
Þér fannst
skemmtilegast að
hafa fjölskylduna í
kringum ykkur
mömmu og við átt-
um ótal stundir
saman, hvort sem það var
heima hjá ykkur eða okkur
systrunum nú eða uppi í bústað
eða í ferðalögum saman. Þú
sagðir okkur alltaf ótal sögur
um allt og ekkert sem við
skemmtum okkur vel yfir.
Þegar þú varðst veikur aftur
og það varð strax ljóst að þetta
væri spurning um tíma varstu
strax ákveðinn í að nýta hann
vel. Við fórum yfir það hvað þú
vildir helst gera og sjá og við
gerðum það. Þetta var frábært
sumar og ég er svo þakklát fyr-
ir þennan tíma, öll samtölin og
gleðistundirnar sem við fengum
í viðbót, það hjálpar okkur nú.
Þér fannst erfiðast að þurfa
að fara frá mömmu sem þú
þreyttist aldrei á að segja hvað
þú elskaðir mikið. Reyndar
varstu óspar að láta okkur öll
vita hvað þér þætti vænt um
okkur og værir stoltur af okkur
enda engin spurning að við vor-
um að þínu mati bara best í því
sem við tókum okkur fyrir
hendur. Dætur mínar voru svo
heppnar að fá að kynnast þér
vel og sakna þín nú mikið. Nú
ert þú ekki lengur hér til að
taka létt dansspor við þær eins
og þú varst vanur og segja
þeim eitthvað skemmtilegt.
En ég veit að þú munt vaka
yfir okkur og þótt það sé erfitt
að hafa þig ekki lengur hjá okk-
ur þá kenndir þú okkur það að
maður á að þakka fyrir það líf
sem manni er gefið og reyna að
njóta þess og láta fjölskylduna
sína alltaf vera í fyrsta sæti.
Ég lofa að við pössum upp á
elsku mömmu.
Takk fyrir allt, elsku pabbi,
þar til við sjáumst á ný.
Þín dóttir,
Sigrún.
Í dag kveð ég elskulegan föð-
ur minn. Elsku pabbi, takk fyr-
ir samveruna og góðu minning-
arnar sem eftir standa.
Á stundu sem þessari er
margt sem kemur upp í hugann
á mér en þó sendur sumt eftir
sterkara en annað, eins og elt-
ingarleikurinn í Vestmanneyj-
um þar sem þú og mamma leit-
uðuð að mér um alla eyjuna því
aldrei gat ég verið kjur og vildi
bara vera niðri á bryggju, allar
stundirnar á bryggjunni þar
sem þú sagðir mér frá bátunum
og hvernig ég ætti að þekkja
þá, enda þekktir þú þá alla á
möstrunum í órafjarðlægð.
Montinn var ég, 8 ára, er við
fórum aleinir saman í Austur-
bæjarbíó í fyrsta skiptið, eða
þegar þú varst að passa okkur
syskinin eins og þú orðaðir það,
þegar mamma var að vinna í
Drífu á kvöldin. Þá áttirðu að
gefa okkur að borða og leystir
þú það á einstakan hátt.
Til að hafa það sem auðveld-
ast gafstu okkur hráar pylsur,
því það stóð soðin vara á pakk-
anum og pakkinn var bara
skorinn upp skellt á borðið og
málið var leyst. Í dag finnst
mér alltaf gott að fá mér er
eina og eina beint úr pakkan-
um.
Ekki gleymi ég bílferðunum
þar sem ég stóð á milli sætanna
og bað þig að taka fram úr bíl-
unum því enginn mátti taka
fram úr okkur. Öll árin sem við
unnum saman hjá bygginggar-
samfélaginu, en þar kenndir þú
mér að vinna og ekki var mér
hlíft enda kröfurnar miklar þar
sem ég var sonur þinn.
Sumarið sem ég var 16 ára
gleymist seint en þá fór ég með
þér til sjós, á Sóma VE 28, og
var ég mjög sjóveikur og lausn-
in var einföld. Kjötsúpa, allra
meina bót og var hún á borðum
allan túrinn enda er hún bara
betri daginn eftir. Þessi sam-
vera okkar er eitt af því
skemmtilegasta sem við áttum
saman, enda gat ég alltaf leitað
til þín eftir góðum ráðum, t.d.
þegar ég var að byggja, enda
töluðum við saman í síma nán-
ast á hverjum degi í mörg ár.
Svona gæti eg haldið endlaust
áfram enda minningabankinn
fullur af broslegum augnablik-
um og stundum sem við áttum
saman. Elsku pabbi, minning
þin lifir áfram um ókomna tíð.
Þitt starf var farsælt, hönd þín hlý
og hógvær göfgi svipnum í.
Þitt orð var heilt, þitt hjarta milt
og hugardjúpið bjart og stillt.
(Jóhannes úr Kötlum.)
Hvíl í friði, elsku pabbi minn,
þinn sonur.
Þórarinn.
Ég kynntist Gísla fyrir nærri
aldarfjórðungi, um það leyti
sem við Sigrún felldum hugi
saman. Ég ímynda mér nú sem
faðir þriggja dætra, barna-
barna hans, að það sé ekki
sjálfgefið að samband milli
tengdaföður og tengdasonar sé
hnökralaust allt til enda. Það er
mér því afskaplega ljúf minning
að eiga um samskipti okkar
Gísla. Sú gagnkvæma virðing
sem í milli okkar lá hélt alltaf.
Karlinn var dugnaðarforkur
og alltaf að, ósérhlífinn, elju-
samur og kvartaði aldrei, um-
burðarlyndið mikið. Tilbúinn til
aðstoðar við allt sem til kom,
með tengdamömmu styrka sér
við hlið. Hjálpsemin var hans
stóra einkenni. Ekki bara við
sína nánustu, heldur líka út í
samfélagið. Enda búa þau
Gunna að stórum vinahópi m.a
eftir áratuga veru í Lionsklúbb-
unum Ýri og Munin, Kópavogi.
Ég minnist þeirra tíma er
Gísli var verkstjóri í bygging-
argeiranum. Tíðar ferðir seint á
kvöldin til eftirlits á bygging-
arsvæðum hvers tíma. Ábyrgð-
arkenndin firnasterk. Alltaf
með sitt á hreinu. Manna fyrst-
ur að dásama og hæla því sem
vel var gert. En aldrei hampaði
hann sjálfum sér þótt aðrir upp
til hans litu. Nærvera hans var
styrkjandi. Það er því segin
saga. Hitti maður í dagsins
amstri samferðamann Gísla
koma alltaf upp hlý orð í hans
garð. Hans er og verður minnst
fyrir gæsku og heiðarleika og
verður sárt saknað af sinni fjöl-
skyldu og stórum hópi vina.
Ég leyfi mér að gera orð afa
míns að mínum:
Kveðjan er hljóðlát og harmi þrung-
in,
en huggun er okkur það,
að góður drengur með göfugt hjarta
grær nú á æðri stað.
Þar munu kostirnir skærir skarta,
sem skaparinn honum gaf.
Við kveðjum þig öll með kærleik í
huga,
kveðjum með ástúð og þrá.
Að aftur megum við endurfinnast,
þar sem enga skugga má sjá.
Við þökkum þér allt, en margs er að
minnast,
sem minnir þig horfinn á.
(Ragnar S. Helgason)
Hvíl í friði elsku vinur.
Bjarni Þór Hjaltason.
Í dag kveð ég elskulegan
tengdapabba minn. Elsku Gísli,
takk fyrir samveruna og allt
spjallið sem við áttum og takk
fyrir fallegu orðinn sem þú
sagðir við mig er við sátum ein
saman við eldhúsborðið og þú
yfirheyrðir mig um allt milli
himins og jarðar til að fá að
kynnast mér betur. Verst þykir
mér hvað kynni okkar voru
stutt en þau voru góð og er ég
þakklát fyrir að hafa fengið að
kynnast þér.
Kvöldblíðan lognværa kyssir hvern
reit
komið er sumar og fögur er sveit.
Sól er að kveðja við bláfjalla brún
brosa við aftanskin fögurgræn tún.
Seg mér hvað indælla auga þitt leit
íslenska kvöldinu í fallegri sveit.
(Guðm. Guðm. skólaskáld)
Elsku Gísli, hvíl í friði.
Þín tengdadóttir,
Karen.
Elsku afi. Ég vildi óska að
við hefðum fengið lengri tíma
saman. En ég er svo þakklát
fyrir allar góðu minningarnar
sem ég á með þér. Þú varst allt-
af til staðar fyrir mig og hjálp-
aðir mér ef ég þurfti á að halda.
Kærasta minning mín með þér
er þegar ég var lítil og Ragn-
hildur frænka bauð mér að
kaupa Blíðu fyrir 100 krónur,
ég leit á þig og sagðist ekki
vera með pening og þú fallegi
afi minn tókst upp 100 krónur
og sagðir elsku Guðrún mín ég
skal lána þér fyrir Blíðu, eða
þegar ég vildi ekki fara ein í
reiðtúr og staulaðist á bak til að
koma með mér. Ekkert hindr-
aði þig í að gleðja mig.
Það var æðislegt að sjá stolt-
ið skína úr augunum þínum
þegar ég sýndi þér myndir af
verkunum mínum, þú varst svo
stoltur af mér. Þið amma hafið
HINSTA KVEÐJA
Elsku besti afi minn. Ég
er þakklát fyrir allar stund-
irnar með þér ég vildi samt
að þær hefðu verið fleiri.
Ég elska þig og sakna þín
og ég hugsa til þín. Þín,
Sandra Björk.
HJARTAVERND
Minningarkort
535 1825
www.hjarta.is 5351800
✝
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
eiginmanns míns, föður okkar, stjúpföður,
tengdaföður, afa og langafa,
EINARS JÓNSSONAR
húsgagnabólstrara,
Sólvangsvegi 3,
Hafnarfirði,
áður Móabarði 18.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki hjúkrunarheimilisins
Sólvangs fyrir góða umönnun í veikindum hans.
Þóra Valdimarsdóttir,
Hörður Einarsson, Ólöf Þórólfsdóttir,
Jón Hjörtur Einarsson, Margrét Þorvaldsdóttir,
Guðríður Einarsdóttir,
Gunnar Kristjánsson, Ingigerður Sigurgeirsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir
og afi,
JÓHANN GÍSLASON
tannlæknir,
Flókagötu 47,
Reykjavík,
lést á Landakoti laugardaginn 8. febrúar.
Útförin fer fram frá Háteigskirkju mánudaginn
17. febrúar kl. 13.00.
Magný Gyða Ellertsdóttir,
Ellert Þór Jóhannsson, Sabrina Hussain,
Guðrún Jóhannsdóttir, Matthieu Saillant
og barnabörn.
✝
Innilegar þakkir færum við öllum þeim sem
sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og
útför ástkærs föður okkar, tengdaföður, afa
og langafa,
BJÖRGVINS ÁRNASONAR,
Suðurgötu 8,
Keflavík.
Sérstakar þakkir sendum við starfsfólki Hjúkrunarheimilisins
Hlévangs og HSS fyrir góða umönnun.
Sigurður Björgvinsson, Þórdís Guðjónsdóttir,
Svala Björgvinsdóttir, Baldur Kristjánsson,
Árni Björgvinsson, Friðbjörg Helgadóttir,
Sveinn Vopnfjörð Björgvinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar,
SIGURÐUR BRIEM JÓNSSON
dvalarheimilinu Hvammi,
Húsavík,
lést þriðjudaginn 11. febrúar.
Útför hans fer fram frá Húsavíkurkirkju
fimmtudaginn 20. febrúar kl. 14.00
Þeim sem vilja minnast hins látna er bent á dvalarheimilið
Hvamm.
Fyrir hönd aðstandenda,
Guðrún Jónsdóttir,
Halla Jónsdóttir,
Sólrún Jónsdóttir.
✝
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
hlýhug vegna andláts elskulegrar eiginkonu
minnar, móður, tengdamóður, tengdadóttur,
ömmu og langömmu,
ELÍNAR SIGURÐARDÓTTUR,
Ártúni 15,
Selfossi.
Sérstakar þakkir til lækna, hjúkrunarfólks og allra sem önnuðust
hana í gegnum baráttu hennar við krabbamein um langt skeið.
Birgir Jónsson,
Ari Birgisson, Súsanna Valsdóttir,
Jón Þór Birgisson, Kathrina Andersen,
Aðalheiður Guðmundsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Bróðir okkar, fósturbróðir, mágur og frændi,
KLEMENZ EGGERTSSON,
Miðskógum 20,
Álftanesi,
lést á Grensásdeild Landspítalans fimmtu-
daginn 6. febrúar.
Útför hans fer fram frá Bessastaðakirkju
þriðjudaginn 18. febrúar kl. 13.00
Auðbjörg Eggertsdóttir,
Sigurður Eggertsson,
Erla Stringer
og fjölskyldur.
✝
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
bróðir,
HILMAR SÆVALD GUÐJÓNSSON
teiknari,
varð bráðkvaddur þriðjudaginn 11. febrúar.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pétur Sævald Hilmarsson,
Snorri Freyr Hilmarsson,
Axel Viðar Hilmarsson.
✝
Okkar elskulega
MARÍA ÁSGEIRSDÓTTIR
hjúkrunarkona,
Birkimel 6b,
lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ
sunnudaginn 9. febrúar.
Útför hennar fer fram frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 19. febrúar klukkan 15.00.
Hildur Gunnarsdóttir,
Guðrún Gunnarsdóttir
og fjölskyldur.