Morgunblaðið - 15.02.2014, Qupperneq 42
42 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 15. FEBRÚAR 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Gættu þess að blanda þér ekki um of
í málefni annarra því það gæti orðið til þess
að þér verði kennt um annarra mistök. Láttu
andstöðu samstarfsfélaga ekki verða þér
fjötur um fót.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert óvenjulega hreinskilin/n í sam-
skiptum við aðra í dag. Mundu að öllum orð-
um fylgir ábyrgð. Taktu af dagskránni þá liði
sem þér leiðast.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Rómantíkin blómstrar með réttu
jafnvægi milli vanrækslu og umhyggju. Nú er
tilvalið að fást við stjórnsýslumál og stórar
stofnanir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Oft eru það einföldustu hlutirnir sem
gefa manni mest. Gefðu því smáa í lífi þínu
gaum. Þú veist að það er betra þegar fólk
hlær með þér en að þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Þótt einkalífið taki sinn tíma, máttu ekki
gleyma starfsskyldum þínum. Fall er far-
arheill svo best er að halda ótrauð/ur áfram!
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Þú ættir að kaupa eitthvað til heimilis-
ins og ekki gera miklar kröfur til fólks í dag.
Ástin liggur í loftinu.
23. sept. - 22. okt.
Vog Vandaðu mál þitt svo enginn misskiln-
ingur komi upp varðandi það sem fyrir þér
vakir. Láttu mótlæti ekki á þig fá. Vertu
raunsæ/r.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Það er hætt við því að þú farir í
taugarnar á ættingjum þínum og nánustu
vinum í dag. Einhver birtist á réttum stað á
réttum tíma án þess að hafa séð það fyrir eða
gert áætlanir.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Þú ert eitthvað viðkvæm/ur og
þarft umfram allt að halda sjálfsstjórn innan
um aðra. Hafðu það í huga.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú vilt hafa hlutina í röð og reglu
en skalt varast það að ganga of langt í þeim
efnum. Athygli þín er skörp og ekkert fer
fram hjá þér.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Það er engan veginn svo að þú
þurfir að hlaupa til eftir hugmyndum annarra.
Ef þú pælir í því, þá er skuld við samfélagið
eitthvað til halda upp á. Gakktu því ótrauð/ur
til verks.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Viðkvæmni og ástúð í garð þinna nán-
ustu heltekur þig í dag. Drífðu þig, kláraðu
verkefnalistann; allt verður svo miklu auð-
veldara á eftir.
Fyrir viku birtist þessi vísnagátaeftir Sturlu Friðriksson:
Tveimur þessum tala má.
Tyllt í hófi þétt við jörð.
Skónum fylgir fram á tá.
Flata prýðir Skagafjörð.
Þessi er ráðning Árna Blöndals, –
og er þó farið um víðan völl:
Sumir hafa tungur tvær
og tala með og móti.
Óðins jór með átta fætur
undir hófum tungur ber.
Ég eina tungu át í gær
á einka þorrablóti.
Í Flatatungu fjalir
voru fallegar í skála.
Í skónum hef ég tungur
það fer ei milli mála,
að íslensk er sú tunga
sem af öllum tungum ber.
Helgi R. Einarsson leysir gátuna
þannig:
Tungum svona tala má.
Tunga hófsins snertir jörð.
Skór ber hæl og tungu og tá.
Tungu-Kári nam Skagafjörð.
Frá honum er svo sagt í Land-
námu: „Kári hét maðr, er nam land á
milli Norðrár ok Merkigils ok bjó í
Flatatungu; hann var kallaður
Tungu-Kári; frá honum eru Silfr-
stæðingar komnir.“
Vísnagátur séra Sveins Víkings
komu út í þrem litlum kverum á ár-
unum 1968-70 og 50 gátur í hverju
kveri. Hjörtur Hjálmarsson skóla-
stjóri á Flateyri réð allar gáturnar.
Hér kemur 2. gátan í Vísnakveri II:
Fúlir jafnan hýsa hann.
Á hendi talinn lítils nýtur.
Veiki slæmri valda kann.
Vinur tryggur, en stundum bítur.
Ráðning Hjartar birtist hér næsta
laugardag, – og vonandi berast fleiri
svör.
Lausavísunni er kastað fram af
ýmsum tilefnum. Davíð Hjálmar Har-
aldsson lætur þá athugasemd fylgja,
að nú standi yfir heræfingar Nato hér
á landi, – frést hafi af vasklegri fram-
göngu hermannanna við Breiðafjörð:
Nato-herinn veitir okkur vörn,
vaskir dátar skapa fjendum ótta.
Margan toppskarf, æði, hrafn og örn
eltir hann og rekur loks á flótta.
Hólmfríður Bjartmarsdóttir segir,
að þeir eigi alla sína samúð, þessir
dýragarðsstarfsmenn, sem allir séu
að skamma á Fésinu:
Greyin gátu ekki selt hann
og gaman tæplega að elt’ann
í gírkúahjörð
á glerhálli jörð
en þeir gátu nú auðvitað gelt hann.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Vísnagátur, Nato-
herinn og gírkúahjörð
Í klípu
„HEILINN Á MÉR BRANN YFIR VIÐ AÐ
HLUSTA Á FYRIRLESTURINN ÞINN. HVAR
GET ÉG FENGIÐ NÝJAN?“
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„ÉG GAF HENNI MATREIÐSLUBÓK
ÞEGAR VIÐ GIFTUM OKKUR.
HÚN ER ENN Í UMBÚÐUNUM.“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að sakna hennar.
GERVIGREIND
-OG ANNAÐ SNIÐUGT-
FYRIRLESTUR
OG UMRÆÐUR
ÞÚ ER SEINN Í MATINN, EINA
FERÐINA ENN, HRÓLFUR!
OG HÆTTU ÞESSI URRI,
ÞETTA VERÐUR TILBÚIÐ
EFTIR EINA MÍNÚTU!
VELKOMIN Í
„POLKAÞÁTT
UNGA FÓLKSINS“!
ÞAÐ ERU ENGIR
GESTIR Í
ÞÆTTINUM.
ENN EIN
KYNSLÓÐ TIL
GLÖTUNAR.
Hlaupadrottning Íslands, AnítaHinriksdóttir, er með langbesta
tímann í 800 metra hlaupi innanhúss
í heimi í flokki stúlkna 19 ára og
yngri. Hún er einungis 18 ára gömul.
Þetta er stórt afrek hjá stúlkunni
einkum í ljósi þess að keppinautar
hennar eru ári eldri en hún. Það sem
meira er, besti tími hennar frá ára-
mótum er sá sjöundi besti í flokki
fullorðinna í heimi.
x x x
Víkverja þykir eins og fáir geri sérgrein fyrir hversu stórt afrek
hennar er í raun og veru. Í dag er
hún einmitt að keppa í Bandaríkj-
unum, nánar tiltekið í New York.
Hún á eflaust eftir að standa sig eins
og hetja. Að öllum öðrum stúlkum
ólöstuðum, sem keppa í 800 metra
hlaupi, þá er Aníta langbest. Það
kom bersýnilega í ljós á innanhúss-
móti sem haldið var nýverið þegar
hún hringaði keppinauta sína og
talning á hringunum fór forgörðum.
Það sýnir bersýnilega hversu öfl-
ugur hlaupari hún er.
x x x
Þá að öðru. Valentínusardagurinnvar í gær. Dagur elskenda, sem
sagt dagur Víkverja. Hann hélt svo
sannarlega upp á daginn enda róm-
antískur fram í fingurgóma. Krútt-
legir bangsar, blóm og konfekt; það
fyrsta sem fólki dettur í hug þegar
slíkt ber á góma – er Víkverji. En að
öllu gamni slepptu þá þarf að sjálf-
sögðu að hlúa að ástinni en það er
enginn einn dagur sem lætur Vík-
verja segja sér hvenær hann eigi að
gera vel við ástina sína og hvenær
ekki. Ást alla daga!
x x x
Í þessu samhengi þá vakti grein íSunnudagsblaði Morgunblaðsins
Víkverja til umhugsunar. Greinin
ber yfirskriftina: Ekki láta fjármálin
eyðileggja sambandið. Þar er vísað í
grein sem birtist í tímaritinu Forbes
og greint frá því að pör karpa mest
um peninga. Það er nokkuð til í því
en það er vissulega samræða sem
þarf að fara í gegnum í sambandinu.
Lagt er til að fátt sé annað að gera í
stöðunni en að ræða málin og vera
heiðarlegur. En ekki hvað.
víkverji@mbl.is
Víkverji
Orð dagsins: Biðjið og yður mun gef-
ast, leitið og þér munuð finna, knýið
á, og fyrir yður mun upplokið verða.
(Matt. 7, 7.)