Morgunblaðið - 17.03.2014, Blaðsíða 8

Morgunblaðið - 17.03.2014, Blaðsíða 8
8 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 Orð, sem úr munni sumra koma,verða við eitt marklaus, þótt merkingin hafi fram að því verið skýr.    Nú óttast menn aðöfgamenn hafi náð týndri risaþotu á sitt vald. Heimurinn hefur ekki náð sér síðan öfgamenn náðu fjórum flugvélum á sitt vald 11. septemb- er 2001 og flugu þeim sem eldsprengjum í átt að skotmörkum sínum. Öfgamenn heilaþvo unglings- stúlkur og senda þær sem tifandi sprengju- vöndul inn í hóp sak- leysingja, fólks að versla eða barna í strætisvagni.    Fréttamaður Ríkisútvarpsinsendurbirtir með augljósri vel- þóknun hvað eftir annað orð sam- herja síns og andlegs jafningja, sem er hvorugum til vegsauka, um að öfgamenn hafi náð tökum á Sjálf- stæðisflokknum og birta til öryggis myndir af öfgamönnunum. Öfga- mennirnir eru grunaðir um að fylgja samþykktum landsfundar flokksins og eiga samleið með skoð- unum 97% stuðningsmanna hans varðandi ESB. Öfgarnar, sem öfga- mennirnir eru sakaðir um, munu einkum felast í að vera ósammála því að þau 3% flokksmanna sem lúti leiðsögn annars flokks ráði ekki fremur för en allur fjöldinn.    Samfylkingin, með eina málið sitt,fékk ömurlegustu útreið sem flokkur hefur fengið í kosningum á Íslandi. Forysta þess flokks tekur í raun ekkert mark á einkunnagjöf kjósenda. Hún telur að falleraði flokkurinn eigi enn að ráða för. Ein- hver kynni að freistast til þess að kalla þá sem blása á niðurstöður lýðræðislegra kosninga, öfgamenn. Þótt alvarlegt sé væri slík orðnotk- un óboðleg. Nema þá hjá „RÚV“. Voru á lágu plani en komust neðar STAKSTEINAR Jóhann Harðarson Árni Páll Árnason Veður víða um heim 16.3., kl. 18.00 Reykjavík 2 skýjað Bolungarvík -3 skýjað Akureyri -1 skýjað Nuuk -10 snjókoma Þórshöfn 7 skýjað Ósló 2 skúrir Kaupmannahöfn 7 skúrir Stokkhólmur 2 heiðskírt Helsinki -2 léttskýjað Lúxemborg 12 heiðskírt Brussel 15 léttskýjað Dublin 10 alskýjað Glasgow 11 skýjað London 18 heiðskírt París 17 heiðskírt Amsterdam 11 heiðskírt Hamborg 8 skýjað Berlín 11 skýjað Vín 12 léttskýjað Moskva 1 skýjað Algarve 18 heiðskírt Madríd 22 heiðskírt Barcelona 17 heiðskírt Mallorca 20 heiðskírt Róm 17 heiðskírt Aþena 17 léttskýjað Winnipeg -22 heiðskírt Montreal -13 léttskýjað New York 0 heiðskírt Chicago -5 skýjað Orlando 15 heiðskírt Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar- greinum Morgunblaðsins á slóðinni http://mbl.is/mogginn/leidarar/ VEÐUR KL. 12 Í DAG 17. mars Sólarupprás Sólsetur REYKJAVÍK 7:39 19:34 ÍSAFJÖRÐUR 7:44 19:39 SIGLUFJÖRÐUR 7:27 19:22 DJÚPIVOGUR 7:09 19:03 Varðskipið Týr í nýjum litum liggur nú við Faxagarð í Reykjavík. Á dög- unum var gengið frá samningum milli Landhelgisgæslunnar og Fáfn- is Offshore sem leigir skipið áfram til gæslu-, björgunar- og þjónustu- starfa til sýslumannsins á Svalbarða með heimahöfn í Longyearbyen. Vegna þessa hefur skipið verið mál- að rautt og hvítt sem eru einkennis- litir embættis sýslumanns á eyjunni í norðurhöfum, sem er norskt yfir- ráðasvæði. Að sögn Auðuns Kristinssonar hjá Landhelgisgæslunni er þessa dag- ana er unnið að viðgerðum og minni háttar breytingum á Tý sem gera þarf vegna Svalbarðaverkefnisins, sem spannar alls fimm mánuði. Gert er ráð fyrir því að skipið fari úr höfn og stefni í norður þann 2. maí næst- komandi. sbs@mbl.is Týr í nýjum litum Morgunblaðið/Sigurður Bogi Varðskip Týr við Faxagarð í nýjum litum. Stálgrár Þór liggur innar.  Rauður og hvítur fyrir sýslumanninn á Svalbarða  Norður á bóginn 2. maí Alls voru skráð 516 hegningar- lagabrot hjá lög- reglunni á höf- uðborgarsvæðinu í febrúar. Ekki hafa færri brot verið skráð í ein- um mánuði á svæðinu frá því samræmdar mælingar hófust árið 1999. Þá hafa tilkynningar um inn- brot í einum mánuði ekki verið færri frá því mælingar hófust en til- kynnt var um 52 innbrot í febrúar. Upplýsingarnar koma fram í nýrri skýrslu lögreglunnar á höfuð- borgarsvæðinu um afbrotatölfræði. Þar kemur fram, að tilkynningum um þjófnaði hafi fækkað á milli mánaða og voru þær alls 254 í febr- úar. Þetta er minnsti fjöldi þjófnaða sem skráður hefur verið í einum mánuði frá árinu 2005. Þá hefur tilkynningum um kyn- ferðisbrot fækkað á milli mánaða, en þær voru alls fjórar í febrúar. Ekki hafa verið skráð jafn fá kyn- ferðisbrot í einum mánuði síðan skráningar hófust hjá lögreglu. Á móti kemur, að tilkynntum of- beldisbrotum fjölgaði á milli mán- aða og voru alls 75 í febrúar. Þá fjölgaði fíkniefnabrotum á milli mánaða og voru þau alls 169 í febrúar. Skráð afbrot hafa ekki verið færri í 15 ár » Venjuleg ársfundarstörf » Önnur mál Sjóðfélagar og lífeyrisþegar sjóðsins eiga rétt til setu á ársfundinum. Fundargögn verða afhent á fundarstað. Reykjavík, 23. janúar 2014 Stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna Ársfundur Lífeyrissjóðs verzlunarmanna verður haldinn í dag, 17. mars kl. 18 á Grand Hótel Reykjavík. Ársfundur 2014 DAGSKRÁ FUNDARINS live.is

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.