Morgunblaðið - 17.03.2014, Blaðsíða 13

Morgunblaðið - 17.03.2014, Blaðsíða 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 Viðar Guðjónsson vidar@mbl.is Boðað hefur verið til fundar í kjara- deilu undirmanna á Herjólfi og Samtaka atvinnulífsins fyrir hönd Eimskips í dag. Að sögn Jónasar Garðarssonar hjá Sjómannafélagi Íslands hittust samningsaðilar á fundi á föstudag en þá hafi enginn sáttatónn verið í mönnum. „Í raun- inni var það alveg þveröfugt. Það var bara stóra fýlan,“ segir Jónas. Hann segir að kröfur undirmanna á Herjólfi séu samhljóðandi þeim sem sjómenn fengu á vinnumarkaði 2011-2012. Í þeim felast 16% hækk- un á grunnkaupi, hækkun á nætur- vinnuálagi frá 33% upp í 80% og að fá sjómannaafslátt til baka sem var afnuminn um síðustu áramót. „Eim- skip hefur meðal annars samið um þetta á öðrum skipum,“ segir Jónas. Undanfarið hafa undirmenn á Herjólfi staðið fyrir verkfalls- aðgerðum. Í þeim felst að hvorki er unnið eftir klukkan fimm á daginn né um helgar. Aukinheldur hafa starfsmennirnir boðað til frekari verkfallsaðgerða á föstudögum en þá verður ekkert unnið. Elliði Vignisson, bæjarstjóri í Vestmannaeyjum, segir að tjón vegna verkfalls undirmanna á Herj- ólfi hlaupi á tugmilljónum króna á degi hverjum. Miklar hömlur séu á vöruflutningi. Höfnin, framleiðslu- fyrirtæki og fyrirtæki í sjávar- útvegi beri því mikinn skaða af. Þá búi Eyjamenn ekki við öryggi þegar kemur að því að sækja sér læknis- þjónustu svo dæmi séu nefnt. Morgunblaðið/Ómar Herjólfur í Landeyjahöfn Verkfall á Herjólfi hamlar samfélagi í Eyjum. Allt í hnút í kjara- deilu á Herjólfi  Fundað aftur í dag eftir fýlufund Guðni Th. Jó- hannesson, lektor í sagnfræði við Háskóla Íslands, segir að djúp gjá sé á milli sögu- skoðunar forseta Íslands og for- sætisráðherra annars vegar og fræðasam- félagsins hins vegar. Þetta kom fram í erindi sem hann flutti á hugvísindaþingi um helgina. „Mér virðist sem þessir tveir vald- hafar, Ólafur Ragnar Grímsson og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson, að- hyllist í grófum dráttum mjög ein- falda söguskoðun,“ sagði Guðni í samtali við Morgunblaðið. Vísaði hann til ummæla sem þeir hafa látið falla í opinberum ræðum á undan- förnum mánuðum. „Söguskoðunin er svona í grófum dráttum: Fyrst var gullöld á Íslandi, svo myrkur öldum saman undir erlendri kúgun uns vakning varð, undir forystu Jóns for- seta og annarra hetja sem leiddu sameinaða þjóð sem dreymdi alltaf saman um eitt og aðeins eitt: Fullt sjálfstæði. Og það tókst því að þjóðin var einhuga og bjartsýn. Sagnfræð- ingum samtímans finnst þetta úrelt söguskoðun, einföldun á flóknum veruleika,“ sagði Guðni. Sigmundur Davíð Gunnlaugsson forsætisráðherra lét þau orð falla í ræðu fyrir skömmu að Íslendingar hefðu ástæðu til að vera stoltir af landi sínu og sögu þjóðarinnar. Trú- in á eigin getu væri forsenda árang- urs. Það hafi Fjölnismenn og aðrir forsprakkar frelsisbaráttunnar vit- að. Ólafur Ragnar Grímsson hefur nýlega talað um að þjóð sem glatað hafi sínu sögulega minni um mátt samstöðunnar sé komin á hættuleg- ar villigötur. Verða fræðimenn ekki að horfast í augu við að þjóðarleiðtogum ber að blása eldmóð í fólk og skapa sam- stöðu? „Jú, ég tók undir það í er- indinu,“ sagði Guðni, „en mér finnst samt ekki ganga að þeir búi til kol- ranga mynd af liðinni tíð. Það græðir enginn á því til lengdar. Þar að auki væri gaman ef hægt væri að koma á einhvers konar samræðu á milli vald- hafanna og fræðimannanna í stað þess að þeir haldi trekk í trekk sínar upphöfnu hallelúja-hátíðarræður og við sagnfræðingarnir nöldrum yfir þeim í næsta fréttatíma. Það græðir ekki heldur neinn á því til lengdar.“ gudmundur@mbl.is Þörf á samræðum um söguna við valdhafana  Djúp gjá sögð milli söguskoðunar ráðamanna og fræðaheims Guðni Th. Jóhannesson Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Ólafur Ragnar Grímsson Örvar vöðva, styrkir þá og lyftir. Meðferðin tekur 30-45 mínútur. Verð 7.900 kr. HYDRADERMIE LIFT Andlitslyfting án skurðaðgerðar! Snyrtistofur sem bjóða Hydradermie Lift meðferð og Guinot vörur: www.guinot.is Höfuðborgarsvæðið: Snyrtistofan Gyðjan – s. 553 5044 Snyrtistofan Garðatorgi – s. 565 9120 Snyrtistofan Þema – s. 555 2215 Snyrtistofan Ágústa – s. 552 9070 Snyrtistofan Guinot-Mc – s. 568 9916 Snyrtistofan Ársól – s. 553 1262 GK snyrtistofa – s. 534 3424 Snyrtistofan Hrund – s. 554 4025 Dekurstofan – s. 568 0909 SG snyrtistofa – s. 891 6529 Snyrtistofa Marínu – s. 896 0791 Landið: Snyrtistofa Ólafar, Selfossi – s. 482 1616 Snyrtistofan Abaco, Akureyri – s. 462 3200 Snyrtistofan Lind, Akureyri – s. 462 1700 Snyrtistofa Guðrúnar, Akranesi – s. 845 2867 Snyrtistofan Sif, Sauðárkrókur – s. 453 6366 Mjög góð aðsókn var að hugvís- indaþingi sem haldið var í Há- skóla Íslands á föstudag og laugardag. Þar kynntu fræði- menn nýjustu rannsóknir í hug- vísindum, svöruðu spurningum og tóku þátt í umræðum. Boðið var upp á hátt í 150 fyrirlestra í 37 málstofum. Hugvísindaþing er árviss ráð- stefna hugvísindasviðs háskól- ans þar sem fram er borið það helsta í fræðunum í stuttum fyrirlestrum og málstofum ætl- uðum fræðasamfélaginu jafnt sem almenningi. Þingið var fyrst haldið árið 1996 og hefur verið árviss viðburður frá 1999. Meðal umfjöllunarefna á þinginu voru Íslendingasögur og nýrri bókmenntir, náttúra Ís- lands og skoðanir á henni, sí- breytileg tunga landsmanna, þjóðkirkjan, Biblían í bók- menntum og listum, búddismi, erfðatækni og hagnýt siðfræði, bókmenntir og sjálfstæði Skot- lands svo nokkuð sé nefnt. Fjölmenni sótti þingið HUGVÍSINDAÞING 2014

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.