Morgunblaðið - 17.03.2014, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 17.03.2014, Blaðsíða 24
24 DÆGRADVÖL MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 Stjörnuspá 21. mars - 19. apríl  Hrútur Það verða einhverjir erfiðleikar á vegi þínum í dag. Varastu að láta telja þig á eitt- hvað sem þú veist innst inni að er ekki rétt fyrir þig. 20. apríl - 20. maí  Naut Bróðir eða systir er uppspretta óvæntra tíðinda í dag. Láttu neikvæðni ann- arra ekki draga úr þér því þú veist hvað þú þarft að gera. 21. maí - 20. júní  Tvíburar Þú gætir fengið góðar hugmyndir að breytingum í vinnunni. Hringdu, pantaðu. Ef ekki fyrir matseldina, þá fyrir handverkið eða hugulsemina. 21. júní - 22. júlí  Krabbi Oft er það svo að samferðamenn okk- ar setja upp grímu til þess að halda okkur frá tilfinningum sínum. Misstu ekki sjónar á tak- markinu þótt leiðin geti verið löng. 23. júlí - 22. ágúst  Ljón Þú vekur athygli annarra og finnst nota- legt að láta hana leika um þig. Ef aðrir virða ekki það sem er þitt, neyðist þú til þess að láta í þér heyra. 23. ágúst - 22. sept.  Meyja Það er ekki létt að elska náunga sinn þegar hann gerir eitthvað sem manni mis- líkar. Mundu að tíminn vinnur með þér og störf þín bera þér best vitni. 23. sept. - 22. okt.  Vog Nú er sá tími að þú þarft að láta vinnuna ganga fyrir öðru svo þú náir að ljúka við þau verkefni sem fyrir liggja. Með því áttar þú þig á því hvað er mikilvægt og hvað ekki. 23. okt. - 21. nóv. Sporðdreki Þú ert að móta ungan huga – þinn eigin. En varastu samt að fara yfir strik- ið. Vertu gagnorð/ur og varastu að tafsa á hlutunum. 22. nóv. - 21. des. Bogmaður Eitthvað á eftir að koma þér svo á óvart að þú munt undrast þín eigin viðbrögð. Hvaðeina sem þér tekst að ljúka við í dag mun veita þér ánægju sem varir lengi. 22. des. - 19. janúar Steingeit Visst verkefni mun hanga yfir þér mánuðum saman ef þú brettir ekki upp erm- arnar. Taktu á þig rögg og ráðstu að kjarna málsins svo þú getir leyst það á réttan hátt. 20. jan. - 18. febr. Vatnsberi Samband virðist vera farið að endurtaka sig. Notaðu tækifærið og skil- greindu mörk og viðmiðunarreglur. Notaðu kvöldið í að gefa af þér og þú færð það end- urgoldið. 19. feb. - 20. mars Fiskar Einbeittu þér að heimili og fjölskyldu í dag. Sestu niður, farðu í gegnum eignir og skuldir og settu þér áætlun til að fara eftir. Heyrðu snöggvast, Snati minn“hefur borið á góma hér í Vísnahorni, svo að mér þótti ein- sýnt að rifja upp lítilræði eftir Snata gamla, sem birtist í Munin 30. árgangi veturinn 1957 til ’58. „Bún- aðarbálkur hinn nýi“ kallast það og er um árstíðirnar Sumar. Á kirkjubekkjum sálma syngur sveitafólkið velsignað en úti í hlöðu ástarglingur á sér vísan griðastað. Haust. Svanir þagna, sumri hallar, sól að ægi hnígur rauð. Af blóði fyllast bóndans dallar, blessuð lömbin falla dauð. Vetur. Í baðstofunni er bænalestur, bylur úti stormahregg. Dauðasoltinn dráttarhestur drepst á meðan heima’ við vegg. Vor. Hjarnið grætur, grænka hagar, gægist vor úr hamraþröng. Kuldabólginn kjarrvið nagar kalin vankarollan svöng. Tækifærisvísan er gjarna um þau tíðindi sem efst eru á baugi. Orðið „Nýyrði“ velur Hjálmar Frey- steinsson að yfirskrift þessarar stöku og skilst af vísunni: Ranglætinu illu eyðir, allir hljóta að skilja það. Seðlabankinn sjálfur greiðir svokallaðan Máskostnað. Undir stendur:„Málskostnaður (orðið) fellur niður.“ Ármann Þorgrímsson telur „mál að vakna“: Auðmýkt sannar ekki tryggð aðeins merki um gamlan vana undirgefni er engin dyggð þó okkur drottinn kenndi hana. Í þessari umræðu er Þorsteinn Erlingsson nálægur. Ari Jósefsson hélt mikið upp á þetta erindi: Og guðinn hinn ungi sté brosandi á bekk, er búið var dóminn að heyja, en þegar að sætinu Guðsmóðir gekk þá glottu þær Iðunn og Freyja. Ekki efaðist hann um „örlög guð- anna“: Því kóngar að síðustu komast í mát og keisarar náblæjum falda, og guðirnir reka sinn brothætta bát á blindsker í hafdjúpi alda. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Búnaðarbálkur hinn nýi, Seðlabankinn og Drottinn Í klípu „MÉR LIGGUR EKKERT Á, VILT ÞÚ VERA NÆST?“ eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger „ÉG ER AÐ FARA Á STEFNUMÓT. MAMMA SAGÐI AÐ ÉG MÆTTI FÁ JAKKANN ÞINN LÁNAÐAN.“ Hermann Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að ná varla til jarðar þegar hann hringir. HRAÐBANKI KOMIÐ INN! VIÐ VERÐUM AÐ SÝNA YKKUR MYNDIR FRÁ ÍTALÍUFERÐINNI OKKAR! SÚ FYRSTA VAR MÁLUÐ AF OKKUR FYRIR FRAMAN KASTALA Í PALERMO! SVANGUR KÖTTUR! HJÚKK, SEM BETUR FER FÓR HANN AFT... ÞYRSTUR HUNDUR! Á uppvaxtarárum sínum safnaðiVíkverji frímerkjum, sótti skáta- fundi, lærði á klarínett og æfði bad- minton. Þrátt fyrir að hafa gaman af þessu öllu upplifði Víkverji sig aldrei sérstaklega svalan sem barn og stóð ennfremur alveg á sama. Merking orðanna hefur reyndar breyst í áranna rás og nú er svo kom- ið að allt frá opnunarleikjum í skák til þungarokkstónleika eða vísindalegra uppgötvana getur talist svalt. Og því væntanlega líka frímerki, skátar, klarínett og badminton. x x x Víkverji telur að til séu nokkrartýpur af svala (sem er það sem svalt fólk býr yfir). Þeir verstu, og líklega algengustu, hafa lagt sig fram um að koma svalir fyrir sjónir, án þess að meira búi að baki. Slíkt fólk klæðir sig í svöl föt, sækir svala við- burði og notar svöl orð, en hefur fátt annað til brunns að bera. Svo eru það þeir sem eru svalir út af einhverju sem þeir fást við, en bera það ekki endilega með sér við fyrstu sýn. Það er ekki víst að Vík- verji myndi átta sig á því ef hann hitti þyrluflugmenn hjá Landhelgisgæsl- unni á förnum vegi, en þar sem hann hefur oft fylgst með þeim við störf veit hann fyrir víst að þeir eru svo svalir að það nálgast alkul. x x x Og svo eru það þeir sem ná ævar-andi svala í gegnum lífsstíl, at- hafnir eða skoðanir, án þess að vera á höttunum eftir honum. Eftir að hafa horft á nýjustu útgáfuna af Polla- pönkslaginu sem Ísland sendir í Evróvisjón í ár er Víkverji sannfærð- ur um að þar fara sveinar sem eru svalir allan sólarhringinn, án þess að reyna það sérstaklega. Það er nefnilega eitthvað svalt við að nota hæfileika sína til góðs, eins og Pollapönkarar hafa gert lengi. Tónlistarmenn sem í raun eru á heimsmælikvarða sameinast um að klæðast Henson-göllum og spila skemmtilega tónlist fyrir börn. Hvað gæti verið svalara? Jú, að taka þátt í Evróvisjón í sömu múnderingu og segja Evrópu að hætta öllum for- dómum. Það er svalt. víkverji@mbl.is Víkverji skrifar Hallelúja. Þakkið Drottni því að hann er góður, því að miskunn hans varir að eilífu. (Sálmarnir 106:1)

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.