Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 26

Morgunblaðið - 17.03.2014, Qupperneq 26
26 MENNING MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 17. MARS 2014 VIÐTAL Kollbrún Bergþórsdóttir kolbrun@mbl.is Guðný Hallgrímsdóttir sagnfræð- ingur stundar rannsóknir á sögu al- þýðukvenna á 18. og 19. öld en hún segir konur nánast vera ósýnilegar í menningarsögu fyrri alda. Guðný fékk nýlega Fjöruverðlaunin, bók- menntaverðlaun kvenna fyrir bók sína Sagan af Guðrúnu Ketilsdóttur – einsögurannsókn á ævi 18. aldar vinnukonu. Bókin kom út í ritröðinni Sýnisbók íslenskrar alþýðumenn- ingar sem Háskólaútgáfan gefur út. Guðrún Ketilsdóttir fæddist árið 1759 og til er sjálfsævisögubrot þar sem hún lýsir lífi sínu í Eyjafirði. Í verðlaunabók sinni fjallar Guðný um líf Guðrúnar og hvernig þessi al- þýðukona náði að hasla sér völl í erf- iðu árferði móðuharðindanna. Guðný vinnur nú að doktorsritgerð um líf alþýðukvenna á átjándu og nítjándu öld. „Ég hef alltaf haft áhuga á sögu alþýðukvenna og mikilvægu hlut- verki kvenna á öllum sviðum mann- lífsins. Ég hef hins vegar aldrei sætt mig við þá þögn sem ríkir um sögu þeirra“, segir Guðný og bætir við: „Ég held reyndar að hægt sé að skil- greina flestar íslenskar konur sem alþýðukonur. Við erum öll í sama streðinu frá degi til dags og að mörgu leyti má segja að þannig hafi það alltaf verið hér á landi.“ Heimildafæðin heillar Hvar finnirðu heimildir um al- þýðukonur á þessum tíma? „Það er lítið til af heimildum um alþýðufólk á 18. og 19. öld en heim- ildafæðin heillar um leið og hún ögr- ar manni sem fræðimanni. Þetta er svolítið ólíkt því sem er nú á 20. og 21. öldinni þegar heimildirnar demb- ast yfir mann úr öllum áttum. Það getur verið yfirþyrmandi að vinna úr slíku efni. Þegar ég var í meistaranámi í sagnfræði útbjó ég mér stórt gagna- safn upp úr handritaskrám Lands- bókasafnsins þar sem ég skráði nið- ur upplýsingar um allt efni sem konur höfðu átt þátt í að skapa og finnst varðveitt þar samkvæmt skránum. Þá fann ég mikið af áhuga- verðu efni frá konum eins og kveð- skap, sendibréf, ævisögur, endur- minningar, drauma og margt fleira sem ég hlakka til að skoða betur. Það var einmitt þá sem ég rakst á ævisögubrotið um Guðrúnu Ketils- dóttur en þrjú handrit af ævisögunni eru skráð í handritaskrár Lands- bókasafnsins. Seinni tíma menn fóru illa með söguna en allt fram á síðari hluta 20. aldar finn ég ævisögu Guð- rúnar flokkaða sem gamansögu af klúru flóni. Ég held því hins vegar fram að sagan sé líklega elsta varð- veitta sjálfsævisaga íslenskrar al- þýðukonu og því algjörlega einstæð heimild um líf kvenna fyrr á tímum. Ævisögubrotið sjálft er ekki nema fjórar blaðsíður að lengd en með hjálp heimilda á borð við kirkjubæk- ur, gögn hreppsnefnda og sýslu- manna auk ættfræði- og byggða- sögurita tókst mér að byggja upp heildstæða mynd af veruleika Guð- rúnar. Ég held samt að mér hefði aldrei tekist að rekja söguna á þennan hátt ef ég hefði ekki haft aðgang að sókn- armannatölunum. Þau veittu mér ómetanlegar upplýsingar um fjöl- skyldu Guðrúnar og allt hennar sam- ferðafólk. Sóknarmannatölin eru einskonar skrár sem prestar héldu um sóknarbörn sín en prestum var gert að heimsækja öll heimili í sókn- inni tvisvar á ári og hafa eftirlit með uppeldi barna og almennu hátterni heimilisfólks. Úr þessum skrám fást upplýsingar um aldur heimilis- manna, stöðu innan heimilisins, kunnáttu og hegðan. Þannig gat ég árlega fylgst með því hvar Guðrún bjó, hvernig henni gekk að læra og hvernig hún kom fyrir. Það reyndist þó oft snúið að finna út hvar hún bjó því Guðrún flutti ansi oft en ég fann hana á um 40 heimilum víðsvegar um Eyjafjörðinn á þeim 84 árum sem hún lifði. Fyrir tilviljun fann ég síðan uppskrift á dánarbúi föður hennar í gögnum sýslumannsins í Eyjafirði. Þar var allt talið upp og verðmetið sem tilheyrði búinu meira að segja gólffjalirnar úr sjálfu kotinu. Þær upplýsingar veittu mér einstæða sýn á æskuheimili Guðrúnar og stöðu fjölskyldu hennar í samfélaginu.“ Þræll og fantur Hvernig var líf Guðrúnar Ketils- dóttur? „Hér áður taldi ég að vinnufólk 18. og 19. aldar hefði verið algjörlega undir hælnum á húsbændum sínum og að líf þess hefði ekki verið sérlega áhugavert en auðvitað var það ekki þannig. Guðrún átti sér að mörgu leyti mjög áhugavert líf. Hún var ótrúlega eljusöm og hugrökk kona. Hún var ung komin í stöðu hús- konu, sem þýddi að hún var þokka- lega stæð og að einhverju leyti sjálf- stæð í vinnumennskunni. Fjárhagsleg staða Guðrúnar gaf henni kost á að giftist manninum Á alls kyns óvæntum  Guðný Hall- grímsdóttir sagn- fræðingur vinnur að rannsóknum á sögu alþýðukvenna á 18. og 19. öld Sagnfræðingurinn „Ég held reyndar að hægt sé að skilgreina flestar íslenskar konur sem alþýðukonur,“ segir Guðný Hallgrímsdóttir. Svarið við spurningu dagsins Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is tilbúnar í pottinn heima Fiskisúpur í Fylgifiskum Verð 1.790 kr/ltr Súpan kemur í fötu en fiskinum er pakkað sér. Eldunaraðferð þegar heim er komið: Súpan er hituð upp að suðu, fiskinum er jafnað út milli súpudiska eða settur í pottinn um leið og súpan er borin fram. Hvað þarftu mikið? Súpa sem aðalréttur – 0,5 ltr/mann Súpa sem forréttur – 0,25 ltr/mann Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30 Laugardaga frá 11.00-16.00 (Kópavogur)

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.