Morgunblaðið - 12.04.2014, Síða 1
Skipti umskoðun
BORGARLEIKHÚSST Ó
Enginn vildist l
NNUDAGUR
GENGIÐUM GÖTURLUNDÚNA
42
HANGEND
YLDAN 16
FERÐALÖG 20
KA
ERTI
ERA
PRÍL 2014
TÍSKUFÖT MEÐ FYRIRTÆKI SÍNU MODA OPERANDI.
GIR FRAMTÍÐ VERSLUNAR VERA Á NETINU
48
MEÐ HÁ
HÚN SE
*
UMBYLTITÍSKUHEIMINUM
HRÁEFNIÁ GRILLIÐ
U
OOL-Á
JÖLSK
13. A
S TÍSKA
ÁTÍS
EGG
LDSK
UR 50
SPENNA OG SÉRVISKA
Hvernig væri aðp óf
BALLETT ER LÍKAFYRIR STRÁKA
L A U G A R D A G U R 1 2. A P R Í L 2 0 1 4
Stofnað 1913 87. tölublað 102. árgangur
JÁKVÆÐNIN
MIKILVÆG HJÁ
HLÍF Í 105 ÁR
VICTOR
WAINWRIGHT
AÐALGESTUR
BLÚSHÁTÍÐ 46TÍMAMÓT 6
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
Viðbúið er að flugfargjöld innan-
lands og milli landa hækki talsvert
verði Reykjavíkurflugvelli lokað.
Flugfélagið Ernir áætlar að
hækka þurfi fargjöld um 40% verði
Keflavíkurflugvöllur eini flugvöllur-
inn á suðvesturhorni landsins.
Ástæðan er m.a. sú að fækka þarf
sætum í flugvélum félagsins til að
þær beri nóg varaeldsneyti svo þær
nái til varaflugvalla á Norður- eða
Austurlandi. Flugleiðirnar munu
lengjast og flugferðum mun fækka
vegna minni sveigjanleika til athug-
ana á flugi. Nýting starfsmanna
versnar og eldsneyti úti á landi er
um fjórðungi dýrara en á Keflavík-
urflugvelli.
Icelandair hefur reiknað út kostn-
að félagsins af því að missa Reykja-
víkurflugvöll sem varaflugvöll fyrir
Keflavík. Áætlað er að á árunum
2015-2019, miðað við 10% aukningu
flugs á ári, bætist við eldsneytis-
kostnaður upp á tæpar 468 milljónir.
Tekjutap vegna þyngdar varaelds-
neytis verður um 457 milljónir og
kolefniskostnaður hækkar um 11
milljónir vegna kolefnislosunar.
Þá er viðbúið að þotur Icelandair á
lengstu flugleiðunum, t.d. frá vest-
urhluta N-Ameríku, þurfi að milli-
lenda á leiðinni til að taka eldsneyti
svo þær hafi nóg varaeldsneyti til að
ná á varaflugvelli sem liggja fjær
Keflavík en Reykjavíkurflugvöllur.
Það lengir flugið um klukkustund
með tilheyrandi kostnaði af lending-
unni.
Falli Reykjavík út sem varaflug-
taksvöllur Keflavíkur getur það
valdið því að tafir verði á brottför
flugvéla í slæmu skyggni.
MMikilvægur hlekkur flugsins »16
Fargjöld munu hækka
Verði Reykjavíkurflugvelli lokað er viðbúið að flugfargjöld innanlands og milli
landa muni hækka Reykjavík er mikið notuð sem varaflugvöllur fyrir Keflavík
Morgunblaðið/RAX
Flugvöllurinn Samgöngumiðstöð.
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Fjármálaeftirlitið og Seðlabanki Ís-
lands vöruðu ítrekað við alvarlegri
stöðu Sparisjóðsins í Keflavík frá og
með ársbyrjun 2009 og þar til ríkið
tók hann yfir í apríl 2010. Við yfir-
tökuna varð til nýr sjóður, SpKef.
Fram kom í greiningu þessara aðila
að sparisjóðurinn uppfyllti ekki regl-
ur um lögbundið eigið fé.
Þrátt fyrir það var gerð tilraun til
að endurreisa hann. Það bar ekki ár-
angur. SpKef átti sér ekki lífsvon og
rann því inn í Landsbankann 2011.
Um þetta er fjallað í skýrslu
Rannsóknarnefndar Alþingis um
sparisjóðina en þar er rifjað upp að
Mats Josefsson, efnahagsráðgjafi
ríkisstjórnarinnar, taldi mistök við
endurskipulagningu sjóðsins geta
leitt til „sóunar á almannafé“.
„Getgátur“ um lítið eigið fé
Rannsóknarnefndin ræddi við
Steingrím J. Sigfússon, þáverandi
fjármálaráðherra, um ákvörðunina
að baki endurreisn sjóðsins.
Sagði hann við það tilefni að þegar
sjóðurinn var tekinn yfir „hafi verið
uppi getgátur um að eigið fé væri
orðið lítið sem ekkert“. Höfðu ráðu-
neyti hans þá borist ítrekaðar aðvar-
anir vegna sjóðsins. Kostnaður ríkis
vegna hans er 25 milljarðar, að mati
Ríkisendurskoðunar. »20-21 og 4
Ítrekað
varað
við tapi
Erfiðleikar Tilraunir til að bjarga
Sparisjóðnum í Keflavík mistókust.
Samt var reynt að
bjarga sparisjóðnum
Hrafnhildur Lúthersdóttir úr Sundfélagi
Hafnarfjarðar hóf Íslandsmeistaramótið í
sundi í Laugardalslauginni í gær á því að slá
eigið Íslandsmet í 100 metra bringusundi.
Hrafnhildur kom heim frá Bandaríkjunum í
vikunni eftir góða frammistöðu í úrslita-
keppni háskólameistaramótsins þar á dögun-
um og vann tvenn gullverðlaun á fyrsta
keppnisdegi. » Íþróttir
Morgunblaðið/Styrmir Kári
Hrafnhildur
setti Íslandsmet
í fyrstu greininni
Lára Björg Björnsdóttir, aðstand-
andi Liverpool-aðdáanda, kallar í
samtali við Sunnudagsblað Morgun-
blaðsins eftir skilningi og stuðningi
sér og öðrum sem eru í sömu spor-
um til handa. „Við erum afskiptur
hópur í samfélaginu og höfum geng-
ið gegnum miklar raunir með okkar
skjólstæðingum.“
Gott gengi þessa fornfræga enska
knattspyrnufélags undanfarnar vik-
ur hefur kallað gríðarlegt álag yfir
fjölmörg heimili landsins.
Ekki mun draga úr álaginu í bráð
enda meistaratitillinn í sjónmáli í
fyrsta skipti í 24 ár. „Ef eitthvað er
verður álagið meira á okkur að-
standendur en stuðningsmennina
sjálfa,“ segir Lára Björg en bóndi
hennar, Tryggvi Tryggvason, er eld-
heitur áhangandi Liverpool. „Við að-
standendur höfum ekki eins mikinn
áhuga á þessum lífsstíl en þurfum
samt að sýna stuðning. Við þurfum
að hlusta. Við þurfum að skilja. Og
við þurfum að taka þátt í þessu öllu.“
Álag fylgir Liverpool-aðdáun
Eldheit Lára Björg og Tryggvi
ásamt syni þeirra, Ólafi Benedikt.
Ef spár ganga eftir verða nær 50%
fólks á Íslandi á eftirlaunaaldri á Ís-
landi árið 2060 en þetta hlutfall er
um 20% í dag. Af þeim sökum verður
að hækka eftirlaunaaldur á Íslandi
að mati Maríasar Halldórs Gests-
sonar hjá Hagfræðistofnun, sem
flutti fyrirlesturinn „Langlífi og eft-
irlaunaaldur – hvað segir hag-
fræðin?“ í Háskóla Íslands í gær.
Aukið langlífi á Íslandi mun
leggja auknar byrðar á rekstur líf-
eyriskerfisins. Í fyrirlestrinum
fjallaði Marías um það hvernig æski-
legt væri að
bregðast við
þessari þróun.
„Það verða hlut-
fallslega færri
sem greiða til
lífeyrissjóðs-
kerfisins og
hlutfallslega
fleiri sem fá
borgað úr því.
Þá er spurn-
ingin hvernig á að bregðast við
þessu,“ segir Marías. »4
Stefnir í að hlutfall Íslendinga á eftir-
launaaldri verði nærri 50% árið 2060
Eldri borgarar 20%
eru 65 ára og eldri.