Morgunblaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 35
MINNINGAR 35
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2014
✝ Jóna JakobínaÞorgeirsdóttir
fæddist 30. október
1933. Hún lést 5.
apríl 2014.
Foreldrar henn-
ar voru Þorgeir
Bjarnason og
Ágústa Guðmunds-
dóttir. Jóna Jak-
obína var elst fimm
systkina, hin eru
Þórunn Freyja,
Bjarni, Kristín og Guðmundur.
Jóna Jakobína giftist 7. maí
1955 Reyni Árnasyni, sem lést
2007. Þau eignuðust tvö börn: 1)
Þorgeir, áður giftur Sóleyju
Sigurðardóttur, börn þeirra
eru: Atli, Jóna
Jakobína og Guð-
mundur. 2) Guðrún,
gift Jóhannesi I.
Lárussyni, börn
þeirra eru: Guð-
laug, Þórunn,
Reynir, Lárus, Re-
bekka og Aron.
Langömmubörnin
eru átta.
Jóna Jakobína
og Reynir voru bú-
sett á Siglufirði allan sinn bú-
skap. Hún vann til starfsloka á
Sjúkrahúsi Siglufjarðar.
Útför Jónu Jakobínu fer fram
frá Siglufjarðarkirkju í dag, 12.
apríl 2014, kl. 14.
Elsku Bína mín, mig langar
að minnast þín með fáum orðum.
Fyrir 40 árum kynntist ég
syni þínum honum Þorgeiri og
við hófum sambúð. Þú tókst mér
opnum örmum og bauðst mig
velkomna í fjölskylduna þína.
En þó að aðstæður okkar
breyttust breyttist ekki okkar
vinátta. Varst þú mér ómetanleg
aðstoð þegar við fluttum til
Siglufjarðar. Þú varst alltaf til
staðar ef ég þurfti að leita til þín
og alltaf var mjög stutt í grínið
og hnitmiðuðu setningarnar þín-
ar sem komu öllum í gott skap.
Að vera fúll eða reiður við þig
var alveg ómögulegt. Þú gast
alltaf talað þig skemmtilega frá
hlutunum og áttir alltaf síðasta
orðið, sama hvað við hin reynd-
um að gera þig kjaftstopp, það
var bara ekki hægt. Allt sem þú
sagðir frá sagðir þú á svo
skemmtilegan hátt og hefur
mikið verið hlegið og gert grín í
kringum þig. Þú varst hrókur
alls fagnaðar hvar sem var, á
mannamótum, heima eða í
vinnu.
Lengst bjugguð þið Reynir á
Hvanneyrarbrautinni og var
alltaf opið hús hjá ykkur, hvort
sem þið voruð heima eða ekki,
og gátu krakkarnir alltaf komið
við hjá ykkur, hvort sem það var
til að biðja afa að keyra sig heim
eða fá ástarpunga hjá þér. Ást-
arpungarnir þínir voru þeir
bestu sem fyrirfinnast og reynd-
ir þú alltaf að eiga þá til en það
var ekki auðvelt því þeir voru
borðaðir svo fljótt upp. Veit ég
ekki hvort ég á að minnast á það
þegar þú litaðir mig í fyrsta sinn
og sjokkið sem ég og þú líka
fengum. Það er bara eitthvað
sem þú og ég skiljum og gátum
við hlegið að alla tíð síðan og
getum enn, þú myndir hlæja
núna ef þú læsir þetta.
Eru stundirnar sem við áttum
saman ótalmargar og mikið að
segja frá sem yrði of langt mál
hér. En eitt er víst, að hafa
þekkt þig hefur gert líf mitt rík-
ara. Komið er að leiðarlokum
Bína mín og langar mig að
þakka þér fyrir allar stundirnar
sem við höfum átt saman og það
sem þú hefur verið fyrir mig og
mín börn.
Elsku Þorgeir, Guðrún og
fjölskyldur, sendi ykkur innileg-
ar samúðarkveðjur, er hjá ykkur
í huganum.
Kveðja,
Sóley.
Elsku amma, það hefur aldrei
verið auðvelt að búa svona langt
í burtu frá þér, en við erum
þakklát fyrir allan þann tíma
sem við höfum fengið.
Þið afi veittuð okkur margar
og góðar minningar. Allar úti-
legurnar, ættarmótin, veiðiferð-
irnar og þegar þú kenndir okkur
á gönguskíði. Það var einnig allt-
af skemmtilegt þegar við kom-
um í heimsókn til þín í vinnuna á
sjúkrahúsinu á Sigló, þar sem
þú kynntir okkur fyrir öllum. Já,
með þér voru gleðistundirnar
margar. Og kímnigáfan þín var
yndisleg, hnyttnar athugasemdir
virtust koma á færibandi og við
hlógum oft saman.
Þú komst oft í heimsókn til
Noregs, en þér þótti afskaplega
vænt um að vera heima líka. Við
erum þess vegna þakklát fyrir
alla þá ást og umhyggju sem þú
hefur fengið frá fjölskyldu og
vinum á Siglufirði. Takk fyrir að
passa ömmu okkar.
Elsku amma, það er sárt að
hugsa til þess að kveðja, en við
þökkum fyrir allan þann tíma
sem við fengum með þér, fyrir
væntumþykjuna og ástúðina. Við
varðveitum allar minningarnar í
hjörtum okkar. Við elskum þig
og söknum þín.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Guðlaug, Þórunn, Reynir,
Lárus, Rebekka, Aron og
fjölskyldur.
Kær mágkona mín og vin-
kona, hún Bína, er látin. Mér er
ljúft að minnast hennar með
þakklæti fyrir öll okkar ár og
samverustundir. Enda var hún
eiginkona Reynis bróður míns í
meira en 50 ár. Og húmorinn og
léttleikinn aldrei langt undan
hjá þeim.
Aðeins í eitt skipti á ævi
minni varð ég reið við hana. Það
var þegar mér fannst hún hafa
tekið bróður minn frá mér og ég
grét fögrum tárum þegar hann
flutti dótið sitt að heiman. En
við höfum átt margar skemmti-
legar stundir saman þar sem
húmorinn var ofarlega og synir
mínir elskuðu stundirnar með
þeim bæði á Sigló og eins þegar
þau skruppu suður. Alltaf var
tekið vel á móti þeim með kjöt-
súpu þegar þau höfðu keyrt alla
leið frá Sigló til Njarðvíkur og
við alltaf velkomin norður.
Ég minnist þeirrar stundar
þegar Þorgeir kom í heiminn, þá
var ég tólf ára. Og sat ég með
Reyni bróður mínum frammi í
eldhúsi –því að þá var sá tími að
fætt var í heimahúsum og hann
mátti ekki vera viðstaddur fæð-
inguna, eingöngu ljósmóðirin og
ömmurnar.
Og andartakið þegar við
heyrðum barnsgrátinn –var
Reynir orðinn „faðir“ það var
mikil gleði. Einnig þegar Bína
varð barnshafandi í annað sinn
og þau komu í heimsókn til okk-
ar mömmu, þá strauk Reynir yf-
ir bumbuna og sagði „þetta er
Guðrún“. Og það varð.
Reynir fór í Iðnskólann eftir
að þau fóru að búa og þá þurftu
þau að hafa fyrir hlutunum. Eld-
aður grjónagrautur –næsti dag-
ur upphitaður og þriðji dagur
voru búnar til lummur.
En svona má láta hugann
reika og rifja upp. Við tvær fór-
um saman í eina ógleymanlega
utanlandsferð í tilefni afmælis
hennar. Elsku Bína –takk fyrir
samveruna. Nú ertu komin til
Reynis og þið getið farið saman í
sólarlandaferðina.
Innileg samúð til ykkar elsku
Þorgeir og Guðrún og til fjöl-
skyldna ykkar.
Og vegna þess að ég hef búið
núna á Siglufirði í rúmt ár, hefur
mér áskotnast að vera samvist-
um við Bínu og Guðmund bróður
minn í þeirra veikindum.
Kveðja frá sonum mínum og
okkur Stefáni
Brynja Árnadóttir.
Elsku besta vinkona Bína,
það er alltaf erfitt að kveðja góð-
an vin, en þá er gott að minnast
allra góðu samverustundanna í
leik og starfi. Við Bína störf-
uðum saman í tæpa fjóra ára-
tugi. Fyrir utan að starfa saman,
gerðum við margt skemmtilegt,
eins og að fara á gönguskíði. Við
fórum í marga leiðangra yfir
fjöll og firnindi, einnig fjöldann
allan af skemmtiferðunum, bæði
innanlands sem og utanlands.
Uppúr stendur ferðin til Búda-
pest, sem að farið var í þegar
Bína varð sjötug. Á sjálfan af-
mælisdaginn var tekið á móti
okkur á veitingastað í Pest eins
og við værum konungsbornar,
með rauðum dregli og dýrindis
veigum. Þá skemmti Bína sér
eins og henni var einni lagið.
Bína hafði að mínu mati gríð-
arlega eftirsóknarverða mann-
kosti. Hún var glaðlynd, trygg-
lynd, vinsæl, mikill gleðigjafi og
sérlegur vinur vina sinna. Húm-
orinn hjá henni var með eins-
dæmum. Að auki var hún sér-
staklega orðheppin og eldsnögg
að svara fyrir sig ef svo bar und-
ir og hitti mjög oft beint í mark.
Bína veigraði sér varla undan
nokkru og oftast til í að reyna
nýja hluti. Jóga var þó eitthvað
sem að hún var ekki reiðubúin
að prófa, enda fannst henni hún
ekki þurfa að læra að anda. Hún
var mjög söngelsk og söng í
fjölda kóra, nú síðast í kór eldri
borgara Fjallabyggðar, þar sem
kórstjórinn kallaði hana oft á
tíðum söngdívu, en af mikilli
virðingu þó.
Ég þakka þau ár sem ég átti
þá auðnu að hafa þig hér,
og það er svo margs að minnast
svo margt sem um hug minn fer,
þó þú sért horfinn úr heimi
ég hitti þig ekki um hríð,
þín minning er ljós sem lifir
og lýsir um ókomna tíð.
(Þórunn Sigurðardóttir)
Ég minnist Bínu með mikli
eftirsjá og söknuði. Gullvagninn
bíður eftir þér í sumarlandinu.
Guð styrki og umvefji ykkur sín-
um kærleika. Samúðarkveðjur
til Guðrúnar, Þorgeirs og fjöl-
skyldna.
Björg Sæby Friðriksdóttir.
Kæra vinkona og skólasystir.
Það smá saxast úr hópnum
okkar úr árgangi 1933 frá Sigló.
En eftir eru kærar minningar.
Ég kynntist þér hjá fröken Láru
þar sem við fengum okkar
fyrstu barnakennslu, ég kom of-
an af brekku en þú af eyrinni.
Þarna byrjaði vinátta okkar. Við
fylgdumst að í skóla þar til
barnabasl og vinna tók við. Við
bjuggum nokkur ár hlið við hlið
á brekkunni og þar léku börnin
okkar, Þorgeir og Þórður sér
saman og Guðrún og Lísa. Lífið
var svo einfalt í gamla daga,
börnin léku sér á götunni og á
túnunum í fjallinu,. Fáir bílar á
ferð. Á veturna var farið á skíði,
grafin snjóhús og rennt sér á
sleðum.
Þarna kenndu þið Reynir
okkur Ragga að spila brids á
dimmum vetrarkvöldum, það tók
nú heilan vetur, þar til við urð-
um forfallin og spiluðum hverja
stund sem gafst.
Árið 1963 eignuðumst við
Raggi okkar fyrsta bíl.
Við fjögur fórum í dásamlegt
ferðalag með eitt tjald. Skoð-
uðum Vaglaskóg og síðan lá leið-
in til Mývatns, fórum í Dimmu-
borgir, fengum lánaðan bát og
rérum út í Slútnes.Við böðuðum
okkur í Grjótagjá, sváfum í
tjaldinu í tveggja stiga frosti (17.
júní) og ókum síðan að Jökulsá á
Fjöllum, skoðuðum Dettifoss,
Selfoss Hafragilsfoss og Víga-
bergsfoss. Tjölduðum í Forvöð-
unum næstu nótt og vöknuðum
þar næsta morgun í 27 stiga
hita. Sóluðum okkur og skað-
brunnum og klifum Vígabergið.
Næst lá leiðin í Ásbyrgi, og
Hljóðakletta. Þar tjölduðum við í
rjóðri við fjallalæk. Þarna vorum
við ein í heiminum. Þetta var
okkar fyrsta ferðalag, og gleym-
ist aldrei.
Við vorum saman í sauma-
klúbb sem oft stóð fram á næt-
ur, urðum bara að komast heim
áður en mennirnir okkar fóru í
vinnu. Þessi hópur skemmti sér
saman á árshátíðum og þorra-
blótum. Mennirnir okkar voru í
karlakórnum Vísi og með þeim
fórum við í kórferðalag. Kórinn
söng á Akureyri, Akranesi,
Reykjavík og í kirkjunni á Eyr-
arbakka og þar var okkur boðið
á bernskuheimili söngstjórans,
Hauks Guðlaugssonar, var mjög
gaman.
Svo skyldu leiðir, nokkrar úr
klúbbnum fluttu suður og héldu
hópinn, en þið Reynir voruð
áfram á Sigló og alltaf þegar við
Raggi komum norður heimsótt-
um við ykkur og gistum oft.
Okkur var alltaf tekið opnum
örmum og rifjuðum upp gamlar
og góðar stundir og það var allt-
af svo gaman hjá okkur og mikið
hlegið og sungið.
Árið 1988 hittumst við skóla-
systkinin á Sigló og dvöldum
saman eina langa helgi á Hóli.
Það var dásamlegt, eins og við
hefðum aðeins skroppið út í frí-
mínútur. Öll föðmuðumst við og
kysstust og skemmtum okkur
konunglega. Við færðum bænum
okkar, Siglufirði hringsjá að gjöf
og er hún stað sett á Álfhóli.
Bína mín, ég held þú hafir
farið í gegnum lífið á þinni léttu
lund. Þið Reynir voruð óaðskilj-
anleg. Þið eignuðust tvö börn
sem hafa reynst ykkur vel og
gefið ykkur barnabörn og barna-
barnabörn sem eru gimsteinar
ykkar og gleðigjafar. Ég veit að
síðasti mánuður þinn hér á jörðu
var þeim Guðrúnu og Þorgeiri
ómetanlegur og dýrmætur.
Elsku vinkona, berðu kveðju
mína til Reynis og Ragga og
allra vinanna sem farnir eru á
undan okkur.
Þín æskuvinkona
Erla Þórðardóttir.
Jóna Jakobína
Þorgeirsdóttir
ÚTFARARÞJÓNUSTA
Vönduð og persónuleg
þjónusta
Sími: 551 7080 & 691 0919
ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is
Inger Steinsson
IngerRósÓlafsdóttir
✝
Ástkær móðir okkar tengdamóðir, amma og
langamma,
ÓLÍNA ELÍNBORG KRISTLEIFSDÓTTIR,
áður til heimilis á Njarðargötu 45,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn
5. apríl.
Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju
mánudaginn 14. apríl klukkan 15.00.
Helga Stefánsdóttir, Hrafnkell Þórðarson,
Nína Stefánsdóttir, Örn Einarsson,
Sveinbjörn Kr. Stefánsson, Klara Ragnarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang-
afi,
GUÐMUNDUR MÁR SIGURBJÖRNSSON
meindýraeyðir,
lést aðfaranótt 4. apríl á Fjórðungssjúkra-
húsinu á Akureyri.
Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju
miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.30.
Sigríður Kolbrún Guðmundsdóttir, Svavar Magnússon,
Tryggvi Kristbjörn Guðmundsson, Lára Soffía Hrafnsdóttir,
Guðmundur Rúnar Guðmundsson,Sigurlaug Íris Hjaltested.
✝
Móðir mín,
GRÓA EYJÓLFSDÓTTIR,
Vallarbraut 8,
Seltjarnarnesi,
lést á elliheimilinu Grund þriðjudaginn 8. apríl.
Fyrir hönd aðstandenda,
Pétur G. Gunnarsson.
✝
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi
og bróðir,
GUÐJÓN GUÐJÓNSSON,
Melseli 4,
Reykjavík,
lést á heimili sínu þriðjudaginn 8. apríl.
Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn
16. apríl kl. 13.00.
Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir.
Tómas Óskar Guðjónsson, Ásta Melitta Urbancic,
Sigríður Guðjónsdóttir, Gunnar Björn Gunnbjörnsson,
Katrín Guðjónsdóttir, Guðmundur Jónasson,
Björgvin Andri Guðjónsson, Sigrún Alda Júlíusdóttir,
Sigurður Guðjónsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
✝
Kæra systir mín og frænka,
STEINUNN M. STEPHENSEN,
lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, miðvikudaginn
2. apríl.
Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju
miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast hennar er bent á
líknarfélög.
Guðrún Magnúsdóttir Stephensen,
Magnús Haraldsson, Heiða Pálmadóttir,
Björn Haraldsson,
Sverrir Haraldsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir,
Bergþór Haraldsson, María G. Jónsdóttir
og fjölskyldur þeirra.
✝
Ástvinur okkar,
ÞORSTEINN RÍNAR GUÐLAUGSSON
endurskoðandi,
Njálsgötu 64,
Reykjavík,
lést á gjörgæsludeild Landspítala
miðvikudaginn 9. apríl.
Jarðarförin verður auglýst síðar.
Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir,
Guðrún Jónsdóttir,
Gylfi Þór Þorsteinsson,
Hannes Snorri Helgason,
Jón Karl Helgason, Fríða B. Jónsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.