Morgunblaðið - 12.04.2014, Page 35

Morgunblaðið - 12.04.2014, Page 35
MINNINGAR 35 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2014 ✝ Jóna JakobínaÞorgeirsdóttir fæddist 30. október 1933. Hún lést 5. apríl 2014. Foreldrar henn- ar voru Þorgeir Bjarnason og Ágústa Guðmunds- dóttir. Jóna Jak- obína var elst fimm systkina, hin eru Þórunn Freyja, Bjarni, Kristín og Guðmundur. Jóna Jakobína giftist 7. maí 1955 Reyni Árnasyni, sem lést 2007. Þau eignuðust tvö börn: 1) Þorgeir, áður giftur Sóleyju Sigurðardóttur, börn þeirra eru: Atli, Jóna Jakobína og Guð- mundur. 2) Guðrún, gift Jóhannesi I. Lárussyni, börn þeirra eru: Guð- laug, Þórunn, Reynir, Lárus, Re- bekka og Aron. Langömmubörnin eru átta. Jóna Jakobína og Reynir voru bú- sett á Siglufirði allan sinn bú- skap. Hún vann til starfsloka á Sjúkrahúsi Siglufjarðar. Útför Jónu Jakobínu fer fram frá Siglufjarðarkirkju í dag, 12. apríl 2014, kl. 14. Elsku Bína mín, mig langar að minnast þín með fáum orðum. Fyrir 40 árum kynntist ég syni þínum honum Þorgeiri og við hófum sambúð. Þú tókst mér opnum örmum og bauðst mig velkomna í fjölskylduna þína. En þó að aðstæður okkar breyttust breyttist ekki okkar vinátta. Varst þú mér ómetanleg aðstoð þegar við fluttum til Siglufjarðar. Þú varst alltaf til staðar ef ég þurfti að leita til þín og alltaf var mjög stutt í grínið og hnitmiðuðu setningarnar þín- ar sem komu öllum í gott skap. Að vera fúll eða reiður við þig var alveg ómögulegt. Þú gast alltaf talað þig skemmtilega frá hlutunum og áttir alltaf síðasta orðið, sama hvað við hin reynd- um að gera þig kjaftstopp, það var bara ekki hægt. Allt sem þú sagðir frá sagðir þú á svo skemmtilegan hátt og hefur mikið verið hlegið og gert grín í kringum þig. Þú varst hrókur alls fagnaðar hvar sem var, á mannamótum, heima eða í vinnu. Lengst bjugguð þið Reynir á Hvanneyrarbrautinni og var alltaf opið hús hjá ykkur, hvort sem þið voruð heima eða ekki, og gátu krakkarnir alltaf komið við hjá ykkur, hvort sem það var til að biðja afa að keyra sig heim eða fá ástarpunga hjá þér. Ást- arpungarnir þínir voru þeir bestu sem fyrirfinnast og reynd- ir þú alltaf að eiga þá til en það var ekki auðvelt því þeir voru borðaðir svo fljótt upp. Veit ég ekki hvort ég á að minnast á það þegar þú litaðir mig í fyrsta sinn og sjokkið sem ég og þú líka fengum. Það er bara eitthvað sem þú og ég skiljum og gátum við hlegið að alla tíð síðan og getum enn, þú myndir hlæja núna ef þú læsir þetta. Eru stundirnar sem við áttum saman ótalmargar og mikið að segja frá sem yrði of langt mál hér. En eitt er víst, að hafa þekkt þig hefur gert líf mitt rík- ara. Komið er að leiðarlokum Bína mín og langar mig að þakka þér fyrir allar stundirnar sem við höfum átt saman og það sem þú hefur verið fyrir mig og mín börn. Elsku Þorgeir, Guðrún og fjölskyldur, sendi ykkur innileg- ar samúðarkveðjur, er hjá ykkur í huganum. Kveðja, Sóley. Elsku amma, það hefur aldrei verið auðvelt að búa svona langt í burtu frá þér, en við erum þakklát fyrir allan þann tíma sem við höfum fengið. Þið afi veittuð okkur margar og góðar minningar. Allar úti- legurnar, ættarmótin, veiðiferð- irnar og þegar þú kenndir okkur á gönguskíði. Það var einnig allt- af skemmtilegt þegar við kom- um í heimsókn til þín í vinnuna á sjúkrahúsinu á Sigló, þar sem þú kynntir okkur fyrir öllum. Já, með þér voru gleðistundirnar margar. Og kímnigáfan þín var yndisleg, hnyttnar athugasemdir virtust koma á færibandi og við hlógum oft saman. Þú komst oft í heimsókn til Noregs, en þér þótti afskaplega vænt um að vera heima líka. Við erum þess vegna þakklát fyrir alla þá ást og umhyggju sem þú hefur fengið frá fjölskyldu og vinum á Siglufirði. Takk fyrir að passa ömmu okkar. Elsku amma, það er sárt að hugsa til þess að kveðja, en við þökkum fyrir allan þann tíma sem við fengum með þér, fyrir væntumþykjuna og ástúðina. Við varðveitum allar minningarnar í hjörtum okkar. Við elskum þig og söknum þín. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Guðlaug, Þórunn, Reynir, Lárus, Rebekka, Aron og fjölskyldur. Kær mágkona mín og vin- kona, hún Bína, er látin. Mér er ljúft að minnast hennar með þakklæti fyrir öll okkar ár og samverustundir. Enda var hún eiginkona Reynis bróður míns í meira en 50 ár. Og húmorinn og léttleikinn aldrei langt undan hjá þeim. Aðeins í eitt skipti á ævi minni varð ég reið við hana. Það var þegar mér fannst hún hafa tekið bróður minn frá mér og ég grét fögrum tárum þegar hann flutti dótið sitt að heiman. En við höfum átt margar skemmti- legar stundir saman þar sem húmorinn var ofarlega og synir mínir elskuðu stundirnar með þeim bæði á Sigló og eins þegar þau skruppu suður. Alltaf var tekið vel á móti þeim með kjöt- súpu þegar þau höfðu keyrt alla leið frá Sigló til Njarðvíkur og við alltaf velkomin norður. Ég minnist þeirrar stundar þegar Þorgeir kom í heiminn, þá var ég tólf ára. Og sat ég með Reyni bróður mínum frammi í eldhúsi –því að þá var sá tími að fætt var í heimahúsum og hann mátti ekki vera viðstaddur fæð- inguna, eingöngu ljósmóðirin og ömmurnar. Og andartakið þegar við heyrðum barnsgrátinn –var Reynir orðinn „faðir“ það var mikil gleði. Einnig þegar Bína varð barnshafandi í annað sinn og þau komu í heimsókn til okk- ar mömmu, þá strauk Reynir yf- ir bumbuna og sagði „þetta er Guðrún“. Og það varð. Reynir fór í Iðnskólann eftir að þau fóru að búa og þá þurftu þau að hafa fyrir hlutunum. Eld- aður grjónagrautur –næsti dag- ur upphitaður og þriðji dagur voru búnar til lummur. En svona má láta hugann reika og rifja upp. Við tvær fór- um saman í eina ógleymanlega utanlandsferð í tilefni afmælis hennar. Elsku Bína –takk fyrir samveruna. Nú ertu komin til Reynis og þið getið farið saman í sólarlandaferðina. Innileg samúð til ykkar elsku Þorgeir og Guðrún og til fjöl- skyldna ykkar. Og vegna þess að ég hef búið núna á Siglufirði í rúmt ár, hefur mér áskotnast að vera samvist- um við Bínu og Guðmund bróður minn í þeirra veikindum. Kveðja frá sonum mínum og okkur Stefáni Brynja Árnadóttir. Elsku besta vinkona Bína, það er alltaf erfitt að kveðja góð- an vin, en þá er gott að minnast allra góðu samverustundanna í leik og starfi. Við Bína störf- uðum saman í tæpa fjóra ára- tugi. Fyrir utan að starfa saman, gerðum við margt skemmtilegt, eins og að fara á gönguskíði. Við fórum í marga leiðangra yfir fjöll og firnindi, einnig fjöldann allan af skemmtiferðunum, bæði innanlands sem og utanlands. Uppúr stendur ferðin til Búda- pest, sem að farið var í þegar Bína varð sjötug. Á sjálfan af- mælisdaginn var tekið á móti okkur á veitingastað í Pest eins og við værum konungsbornar, með rauðum dregli og dýrindis veigum. Þá skemmti Bína sér eins og henni var einni lagið. Bína hafði að mínu mati gríð- arlega eftirsóknarverða mann- kosti. Hún var glaðlynd, trygg- lynd, vinsæl, mikill gleðigjafi og sérlegur vinur vina sinna. Húm- orinn hjá henni var með eins- dæmum. Að auki var hún sér- staklega orðheppin og eldsnögg að svara fyrir sig ef svo bar und- ir og hitti mjög oft beint í mark. Bína veigraði sér varla undan nokkru og oftast til í að reyna nýja hluti. Jóga var þó eitthvað sem að hún var ekki reiðubúin að prófa, enda fannst henni hún ekki þurfa að læra að anda. Hún var mjög söngelsk og söng í fjölda kóra, nú síðast í kór eldri borgara Fjallabyggðar, þar sem kórstjórinn kallaði hana oft á tíðum söngdívu, en af mikilli virðingu þó. Ég þakka þau ár sem ég átti þá auðnu að hafa þig hér, og það er svo margs að minnast svo margt sem um hug minn fer, þó þú sért horfinn úr heimi ég hitti þig ekki um hríð, þín minning er ljós sem lifir og lýsir um ókomna tíð. (Þórunn Sigurðardóttir) Ég minnist Bínu með mikli eftirsjá og söknuði. Gullvagninn bíður eftir þér í sumarlandinu. Guð styrki og umvefji ykkur sín- um kærleika. Samúðarkveðjur til Guðrúnar, Þorgeirs og fjöl- skyldna. Björg Sæby Friðriksdóttir. Kæra vinkona og skólasystir. Það smá saxast úr hópnum okkar úr árgangi 1933 frá Sigló. En eftir eru kærar minningar. Ég kynntist þér hjá fröken Láru þar sem við fengum okkar fyrstu barnakennslu, ég kom of- an af brekku en þú af eyrinni. Þarna byrjaði vinátta okkar. Við fylgdumst að í skóla þar til barnabasl og vinna tók við. Við bjuggum nokkur ár hlið við hlið á brekkunni og þar léku börnin okkar, Þorgeir og Þórður sér saman og Guðrún og Lísa. Lífið var svo einfalt í gamla daga, börnin léku sér á götunni og á túnunum í fjallinu,. Fáir bílar á ferð. Á veturna var farið á skíði, grafin snjóhús og rennt sér á sleðum. Þarna kenndu þið Reynir okkur Ragga að spila brids á dimmum vetrarkvöldum, það tók nú heilan vetur, þar til við urð- um forfallin og spiluðum hverja stund sem gafst. Árið 1963 eignuðumst við Raggi okkar fyrsta bíl. Við fjögur fórum í dásamlegt ferðalag með eitt tjald. Skoð- uðum Vaglaskóg og síðan lá leið- in til Mývatns, fórum í Dimmu- borgir, fengum lánaðan bát og rérum út í Slútnes.Við böðuðum okkur í Grjótagjá, sváfum í tjaldinu í tveggja stiga frosti (17. júní) og ókum síðan að Jökulsá á Fjöllum, skoðuðum Dettifoss, Selfoss Hafragilsfoss og Víga- bergsfoss. Tjölduðum í Forvöð- unum næstu nótt og vöknuðum þar næsta morgun í 27 stiga hita. Sóluðum okkur og skað- brunnum og klifum Vígabergið. Næst lá leiðin í Ásbyrgi, og Hljóðakletta. Þar tjölduðum við í rjóðri við fjallalæk. Þarna vorum við ein í heiminum. Þetta var okkar fyrsta ferðalag, og gleym- ist aldrei. Við vorum saman í sauma- klúbb sem oft stóð fram á næt- ur, urðum bara að komast heim áður en mennirnir okkar fóru í vinnu. Þessi hópur skemmti sér saman á árshátíðum og þorra- blótum. Mennirnir okkar voru í karlakórnum Vísi og með þeim fórum við í kórferðalag. Kórinn söng á Akureyri, Akranesi, Reykjavík og í kirkjunni á Eyr- arbakka og þar var okkur boðið á bernskuheimili söngstjórans, Hauks Guðlaugssonar, var mjög gaman. Svo skyldu leiðir, nokkrar úr klúbbnum fluttu suður og héldu hópinn, en þið Reynir voruð áfram á Sigló og alltaf þegar við Raggi komum norður heimsótt- um við ykkur og gistum oft. Okkur var alltaf tekið opnum örmum og rifjuðum upp gamlar og góðar stundir og það var allt- af svo gaman hjá okkur og mikið hlegið og sungið. Árið 1988 hittumst við skóla- systkinin á Sigló og dvöldum saman eina langa helgi á Hóli. Það var dásamlegt, eins og við hefðum aðeins skroppið út í frí- mínútur. Öll föðmuðumst við og kysstust og skemmtum okkur konunglega. Við færðum bænum okkar, Siglufirði hringsjá að gjöf og er hún stað sett á Álfhóli. Bína mín, ég held þú hafir farið í gegnum lífið á þinni léttu lund. Þið Reynir voruð óaðskilj- anleg. Þið eignuðust tvö börn sem hafa reynst ykkur vel og gefið ykkur barnabörn og barna- barnabörn sem eru gimsteinar ykkar og gleðigjafar. Ég veit að síðasti mánuður þinn hér á jörðu var þeim Guðrúnu og Þorgeiri ómetanlegur og dýrmætur. Elsku vinkona, berðu kveðju mína til Reynis og Ragga og allra vinanna sem farnir eru á undan okkur. Þín æskuvinkona Erla Þórðardóttir. Jóna Jakobína Þorgeirsdóttir ÚTFARARÞJÓNUSTA Vönduð og persónuleg þjónusta Sími: 551 7080 & 691 0919 ATHÖFNÚTFARAÞJÓNUSTA - athofn@athofn.is - www.athofn.is Inger Steinsson IngerRósÓlafsdóttir ✝ Ástkær móðir okkar tengdamóðir, amma og langamma, ÓLÍNA ELÍNBORG KRISTLEIFSDÓTTIR, áður til heimilis á Njarðargötu 45, lést á Hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 5. apríl. Útförin verður gerð frá Hallgrímskirkju mánudaginn 14. apríl klukkan 15.00. Helga Stefánsdóttir, Hrafnkell Þórðarson, Nína Stefánsdóttir, Örn Einarsson, Sveinbjörn Kr. Stefánsson, Klara Ragnarsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Ástkæri faðir okkar, tengdafaðir, afi og lang- afi, GUÐMUNDUR MÁR SIGURBJÖRNSSON meindýraeyðir, lést aðfaranótt 4. apríl á Fjórðungssjúkra- húsinu á Akureyri. Jarðsungið verður frá Dalvíkurkirkju miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.30. Sigríður Kolbrún Guðmundsdóttir, Svavar Magnússon, Tryggvi Kristbjörn Guðmundsson, Lára Soffía Hrafnsdóttir, Guðmundur Rúnar Guðmundsson,Sigurlaug Íris Hjaltested. ✝ Móðir mín, GRÓA EYJÓLFSDÓTTIR, Vallarbraut 8, Seltjarnarnesi, lést á elliheimilinu Grund þriðjudaginn 8. apríl. Fyrir hönd aðstandenda, Pétur G. Gunnarsson. ✝ Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi, langafi og bróðir, GUÐJÓN GUÐJÓNSSON, Melseli 4, Reykjavík, lést á heimili sínu þriðjudaginn 8. apríl. Útförin fer fram frá Seljakirkju miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.00. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir. Tómas Óskar Guðjónsson, Ásta Melitta Urbancic, Sigríður Guðjónsdóttir, Gunnar Björn Gunnbjörnsson, Katrín Guðjónsdóttir, Guðmundur Jónasson, Björgvin Andri Guðjónsson, Sigrún Alda Júlíusdóttir, Sigurður Guðjónsson, barnabörn og barnabarnabörn. ✝ Kæra systir mín og frænka, STEINUNN M. STEPHENSEN, lést á Hrafnistu, Hafnarfirði, miðvikudaginn 2. apríl. Útför hennar fer fram frá Langholtskirkju miðvikudaginn 16. apríl kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á líknarfélög. Guðrún Magnúsdóttir Stephensen, Magnús Haraldsson, Heiða Pálmadóttir, Björn Haraldsson, Sverrir Haraldsson, Guðrún Guðbjörnsdóttir, Bergþór Haraldsson, María G. Jónsdóttir og fjölskyldur þeirra. ✝ Ástvinur okkar, ÞORSTEINN RÍNAR GUÐLAUGSSON endurskoðandi, Njálsgötu 64, Reykjavík, lést á gjörgæsludeild Landspítala miðvikudaginn 9. apríl. Jarðarförin verður auglýst síðar. Aðalheiður Birna Gunnarsdóttir, Guðrún Jónsdóttir, Gylfi Þór Þorsteinsson, Hannes Snorri Helgason, Jón Karl Helgason, Fríða B. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.