Morgunblaðið - 12.04.2014, Blaðsíða 27
27
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2014
Á réttum stað Hjólagrindurnar við Norðlingaskóla koma að miklu gagni og börnin gæta þess að vera vel útbúin og leggja hjólunum rétt.
Ómar
Margt er sérstætt í
þeirri umræðu sem
talsmenn aðildar að
Evrópusambandinu
hafa haldið uppi, jafnt
á Alþingi sem á Aust-
urvelli. Þeir gera lítið
sem ekkert til að út-
skýra fyrir almenningi
þá miklu kosti sem þeir
sjái í aðild Íslands að
þessu ríkjasambandi.
Það er helst að látið sé
glitta í evruna sem allsherjarlausn á
sama tíma og óvissa ríkir um það
hvort myntbandalagið fái staðist til
frambúðar. Núverandi grundvöllur
Evrópusambandsins kemur fram í
Lissabonsáttmálanum og honum
tengjast fleiri tilskipanir en tölu
verði á komið. Það ætti því að vera af
nógu að taka fyrir þá sem kjósa að
boða almenningi þetta fagnaðar-
erindi. En á það er varla minnst,
heldur snýst umræðan mest um
hugsanlegar undanþágur frá lögum
og reglum ESB Íslandi til handa. Nú
hafa tvær virtar háskólastofnanir
reitt fram skýrslur sem staðfesta
það sem talsmenn Evrópusam-
bandsins hafa margítrekað bent ís-
lenskum stjórnvöldum á sl. fjögur
ár: Aðild snýst ekki um það að semja
sig frá grundvelli ESB, í hæsta lagi
má skoða tímabundinn aðlög-
unarfrest í einhverjum
tilvikum í blálokin.
Skiptir fullveldi
og sjálfstæði ekki
lengur máli?
Þeir sem gera kröfu
um inngöngu Íslands í
ESB ættu í stað hugar-
óra um undanþágur og
óvissan ávinning af að-
ild að skýra það út fyrir
þjóðinni af hverju þeir
telja að skerða eigi full-
veldi Íslands á fjöl-
mörgum sviðum. Þar blasir m.a. við
eftirfarandi:
Að Ísland gefur sig á vald mið-
stýrðu og ólýðræðislegu stjórn-
kerfi ESB.
Að æðsta dómsvald flyst úr
landi í hendur yfirþjóðlegum dóm-
stóli ESB.
Að úrslitavald yfir sjávar-
auðlindum færist frá Íslandi til
Evrópusambandsins.
Að Evrópusambandið fær yf-
irráð yfir hafsvæðum utan 12
mílna að 200 mílum.
Að samningar við þriðju aðila
um fiskveiðimálefni færast til
ESB.
Að landbúnaði er stefnt í hættu
með tollfrjálsum innflutningi og
dýrasjúkdómum.
Að fríverslunarsamningar Ís-
lands við aðrar þjóðir falla úr gildi.
Að sjálfstæð rödd Íslands hjá
Sameinuðu þjóðunum hljóðnar að
mestu.
Að stjórn gengis og peninga-
mála flyst í hendur Seðlabanka
Evrópu.
Að vinnuréttur verður hluti af
ESB-rétti og staða launafólks
verður óviss.
Evran er ótrygg söluvara
Í áróðri aðildarsinna hefur evran
frá upphafi verið helsta söluvaran
sem réttlæta eigi fullveldisafsal og
annað í farangri Evrópusambands-
ins. Til að sú beita virki er reynt að
telja mönnum trú um að evran
standi til boða fljótlega eftir að aðild-
arsamningur væri í höfn. Fátt sýnir
betur rangtúlkanir og veikan mál-
stað, því að flest bendir til að aðild
Íslands að myntbandalagi ESB tæki
ekki minna en áratug frá inngöngu í
sambandið. Enginn einn þáttur hef-
ur heldur reynst ESB jafn erfiður
ljár í þúfu og evran eftir upptöku
hennar 1999 og stærstu vandamál
evrusvæðisins tengjast henni, m.a.
vegna afar ólíkrar efnahagsstöðu og
mismunandi hagþróunar ríkja innan
svæðisins. Ýmsir sem teljast sér-
fróðir um málefni ESB spá því að
evran fái ekki staðist til lengdar,
bæði af pólitískum og efnahags-
legum ástæðum. Síðast var hér á
ferð franskur sérfræðingur, Franço-
is Heisbourg, sem hafði uppi sterkar
aðvaranir um framtíð og horfur
evrusvæðisins.
Vaxandi andstaða innan
Evrópusambandsins
Í mörgum ríkjum Evrópusam-
bandsins vex nú andstaða við ýmsa
grundvallarþætti í leikreglum þess
og stjórnkerfi. Ástæðurnar eru
margþættar, en ekki síst ólýðræð-
islegt stjórnkerfi og gífurlegt at-
vinnuleysi, sem er að meðaltali 25%
meðal ungs fólks á evrusvæðinu.
Vaxandi vantrú almennings á ESB í
ríkjum sambandsins birtist m.a. í lít-
illi þátttöku í kosningum til Evrópu-
þingsins, sem náði aðeins 43% síðast
þegar kosið var og fór niður í 20%
þar sem hún var minnst. Fátt bendir
til að á þessu verði breyting í kosn-
ingum til þessarar umdeildu sam-
komu í næsta mánuði. Gagnrýnin af-
staða til ESB-kerfisins hefur nýlega
mælst með 23% stuðning í Frakk-
landi, 30% í Hollandi og um 20% í
Bretlandi. Kemur hún bæði frá
hægri og vinstri og á einnig sterkan
hljómgrunn í grannríkjum sem
samningslega eru tengd ESB. Þar
talar skýru máli niðurstaða þjóð-
aratkvæðagreiðslu í Sviss, þar sem
meirihluti kjósenda hafnaði nýlega
óheftum fólksflutningum.
Prófsteinn á stjórn-
málaflokka og Alþingi
Umsóknin um aðild að ESB fyrir
nær fimm árum var mikið feigðar-
flan. Fyrir henni var enginn pólitísk-
ur meirihluti og þeir sem að henni
stóðu gerðu sér ekki grein fyrir um
hvað aðildarferlið snerist. Fyrrver-
andi ríkisstjórn var strand með
þetta ferli þegar á árinu 2012 og því
kemur það úr hörðustu átt að sömu
flokkar gera nú kröfu um að haldið
sé í því lífinu með einhverjum ráð-
um. Krafan um ráðgefandi þjóð-
aratkvæðagreiðslu um hvort halda
eigi áfram aðildarviðræðum eða
draga umsókn Íslands til baka á sér
hvorki fordæmi né fótfestu í okkar
stjórnskipan. Stjórnmálaöfl hér-
lendis sem áfram eru þeirrar skoð-
unar að Ísland eigi að ganga í Evr-
ópusambandið verða að afla þeirri
skoðun meirihlutafylgis í alþing-
iskosningum og láta þannig reyna á
styrk sinn fyrir endurnýjaðri um-
sókn. Best fer á því að það sé gert án
þess að haldið sé á lofti grillum um
sérlausnir Íslandi til handa.
Eftir Hjörleif
Guttormsson » Stuðningsmenn
ESB-aðildar gera
lítið sem ekkert til að út-
skýra fyrir almenningi
þá miklu kosti sem þeir
sjái í aðild Íslands að
þessu ríkjasambandi.
Hjörleifur
Guttormsson
Höfundur er náttúrufræðingur.
Hafa talsmenn aðildar ekki trú á grundvelli ESB?
Mér er vel kunn-
ugt um þá mik-
ilvægu hefð sem
skapast hefur í
kringum Óslóartréð
á Austurvelli á að-
ventunni í Reykja-
vík og þann stóra
sess sem það hefur í
huga borgarbúa. Ég
skil því vel að fjöl-
miðlaumfjöllunin um
hugsanlegar breyt-
ingar á þessari hefð
veki athygli og við-
brögð. En það er
alls ekki vilji Ósló-
arborgar að þessi
hefð leggist af.
Þvert á móti. Því
hef ég nú þegar
skrifað bréf til borg-
arstjórans, Jóns
Gnarrs, með hug-
leiðingum um
hvernig við getum
sem best viðhaldið
og betrumbætt þá
hefð að Ósló færi Reykjavík jólatré að gjöf.
Fyrir meira en sextíu árum, þegar Ósló-
arbúar hófu að færa Reykvíkingum jólatré,
var það til að undirstrika vináttutengslin á
milli landanna, en einnig vegna þess að þá
voru ekki nein stór grenitré í Reykjavík. Ým-
islegt hefur breyst á þessum sextíu árum,
annað hefur ekki breyst. Vináttutengslin milli
Noregs og Íslands, og á milli Reykjavíkur og
Óslóar, eru jafnsterk og áður. En núna vaxa
grenitré á Íslandi og þegar breytingar verða
á einu sviði getur verið viturlegt að athuga
hvort breyta megi til batnaðar á öðrum svið-
um líka.
Þess vegna hef ég beðið Jón Gnarr borgar-
stjóra að athuga hvort fella megi jólatréð á
Íslandi, gjarnan í skógi sem plantað hefur
verið í samvinnu við Noreg, í stað þess að
höggva það í einum af skógum Óslóar. Það er
umhverfisvænna en að flytja það um langan
veg og grenitré geta orðið fyrir skaða við
langa flutninga yfir hafið.
Það er ennþá ósk Óslóarborgar að færa
Reykvíkingum jólatré, við viljum einnig
gjarnan viðhalda þeirri hefð að vera á staðn-
um er kveikt er á trénu á Austurvelli og við
viljum endilega þróa áfram hina góðu sam-
vinnu og vinskapinn á milli borganna okkar
tveggja.
Eftir Fabian
Stang
» Fyrir meira
en sextíu ár-
um, þegar Ósló-
arbúar hófu að
færa Reykvík-
ingum jólatré,
var það til að
undirstrika vin-
áttutengslin á
milli landanna.
Fabian Stang
Höfundur er borgarstjóri Óslóarborgar.
Óslóartréð