Morgunblaðið - 12.04.2014, Side 27

Morgunblaðið - 12.04.2014, Side 27
27 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2014 Á réttum stað Hjólagrindurnar við Norðlingaskóla koma að miklu gagni og börnin gæta þess að vera vel útbúin og leggja hjólunum rétt. Ómar Margt er sérstætt í þeirri umræðu sem talsmenn aðildar að Evrópusambandinu hafa haldið uppi, jafnt á Alþingi sem á Aust- urvelli. Þeir gera lítið sem ekkert til að út- skýra fyrir almenningi þá miklu kosti sem þeir sjái í aðild Íslands að þessu ríkjasambandi. Það er helst að látið sé glitta í evruna sem allsherjarlausn á sama tíma og óvissa ríkir um það hvort myntbandalagið fái staðist til frambúðar. Núverandi grundvöllur Evrópusambandsins kemur fram í Lissabonsáttmálanum og honum tengjast fleiri tilskipanir en tölu verði á komið. Það ætti því að vera af nógu að taka fyrir þá sem kjósa að boða almenningi þetta fagnaðar- erindi. En á það er varla minnst, heldur snýst umræðan mest um hugsanlegar undanþágur frá lögum og reglum ESB Íslandi til handa. Nú hafa tvær virtar háskólastofnanir reitt fram skýrslur sem staðfesta það sem talsmenn Evrópusam- bandsins hafa margítrekað bent ís- lenskum stjórnvöldum á sl. fjögur ár: Aðild snýst ekki um það að semja sig frá grundvelli ESB, í hæsta lagi má skoða tímabundinn aðlög- unarfrest í einhverjum tilvikum í blálokin. Skiptir fullveldi og sjálfstæði ekki lengur máli? Þeir sem gera kröfu um inngöngu Íslands í ESB ættu í stað hugar- óra um undanþágur og óvissan ávinning af að- ild að skýra það út fyrir þjóðinni af hverju þeir telja að skerða eigi full- veldi Íslands á fjöl- mörgum sviðum. Þar blasir m.a. við eftirfarandi:  Að Ísland gefur sig á vald mið- stýrðu og ólýðræðislegu stjórn- kerfi ESB.  Að æðsta dómsvald flyst úr landi í hendur yfirþjóðlegum dóm- stóli ESB.  Að úrslitavald yfir sjávar- auðlindum færist frá Íslandi til Evrópusambandsins.  Að Evrópusambandið fær yf- irráð yfir hafsvæðum utan 12 mílna að 200 mílum.  Að samningar við þriðju aðila um fiskveiðimálefni færast til ESB.  Að landbúnaði er stefnt í hættu með tollfrjálsum innflutningi og dýrasjúkdómum.  Að fríverslunarsamningar Ís- lands við aðrar þjóðir falla úr gildi.  Að sjálfstæð rödd Íslands hjá Sameinuðu þjóðunum hljóðnar að mestu.  Að stjórn gengis og peninga- mála flyst í hendur Seðlabanka Evrópu.  Að vinnuréttur verður hluti af ESB-rétti og staða launafólks verður óviss. Evran er ótrygg söluvara Í áróðri aðildarsinna hefur evran frá upphafi verið helsta söluvaran sem réttlæta eigi fullveldisafsal og annað í farangri Evrópusambands- ins. Til að sú beita virki er reynt að telja mönnum trú um að evran standi til boða fljótlega eftir að aðild- arsamningur væri í höfn. Fátt sýnir betur rangtúlkanir og veikan mál- stað, því að flest bendir til að aðild Íslands að myntbandalagi ESB tæki ekki minna en áratug frá inngöngu í sambandið. Enginn einn þáttur hef- ur heldur reynst ESB jafn erfiður ljár í þúfu og evran eftir upptöku hennar 1999 og stærstu vandamál evrusvæðisins tengjast henni, m.a. vegna afar ólíkrar efnahagsstöðu og mismunandi hagþróunar ríkja innan svæðisins. Ýmsir sem teljast sér- fróðir um málefni ESB spá því að evran fái ekki staðist til lengdar, bæði af pólitískum og efnahags- legum ástæðum. Síðast var hér á ferð franskur sérfræðingur, Franço- is Heisbourg, sem hafði uppi sterkar aðvaranir um framtíð og horfur evrusvæðisins. Vaxandi andstaða innan Evrópusambandsins Í mörgum ríkjum Evrópusam- bandsins vex nú andstaða við ýmsa grundvallarþætti í leikreglum þess og stjórnkerfi. Ástæðurnar eru margþættar, en ekki síst ólýðræð- islegt stjórnkerfi og gífurlegt at- vinnuleysi, sem er að meðaltali 25% meðal ungs fólks á evrusvæðinu. Vaxandi vantrú almennings á ESB í ríkjum sambandsins birtist m.a. í lít- illi þátttöku í kosningum til Evrópu- þingsins, sem náði aðeins 43% síðast þegar kosið var og fór niður í 20% þar sem hún var minnst. Fátt bendir til að á þessu verði breyting í kosn- ingum til þessarar umdeildu sam- komu í næsta mánuði. Gagnrýnin af- staða til ESB-kerfisins hefur nýlega mælst með 23% stuðning í Frakk- landi, 30% í Hollandi og um 20% í Bretlandi. Kemur hún bæði frá hægri og vinstri og á einnig sterkan hljómgrunn í grannríkjum sem samningslega eru tengd ESB. Þar talar skýru máli niðurstaða þjóð- aratkvæðagreiðslu í Sviss, þar sem meirihluti kjósenda hafnaði nýlega óheftum fólksflutningum. Prófsteinn á stjórn- málaflokka og Alþingi Umsóknin um aðild að ESB fyrir nær fimm árum var mikið feigðar- flan. Fyrir henni var enginn pólitísk- ur meirihluti og þeir sem að henni stóðu gerðu sér ekki grein fyrir um hvað aðildarferlið snerist. Fyrrver- andi ríkisstjórn var strand með þetta ferli þegar á árinu 2012 og því kemur það úr hörðustu átt að sömu flokkar gera nú kröfu um að haldið sé í því lífinu með einhverjum ráð- um. Krafan um ráðgefandi þjóð- aratkvæðagreiðslu um hvort halda eigi áfram aðildarviðræðum eða draga umsókn Íslands til baka á sér hvorki fordæmi né fótfestu í okkar stjórnskipan. Stjórnmálaöfl hér- lendis sem áfram eru þeirrar skoð- unar að Ísland eigi að ganga í Evr- ópusambandið verða að afla þeirri skoðun meirihlutafylgis í alþing- iskosningum og láta þannig reyna á styrk sinn fyrir endurnýjaðri um- sókn. Best fer á því að það sé gert án þess að haldið sé á lofti grillum um sérlausnir Íslandi til handa. Eftir Hjörleif Guttormsson » Stuðningsmenn ESB-aðildar gera lítið sem ekkert til að út- skýra fyrir almenningi þá miklu kosti sem þeir sjái í aðild Íslands að þessu ríkjasambandi. Hjörleifur Guttormsson Höfundur er náttúrufræðingur. Hafa talsmenn aðildar ekki trú á grundvelli ESB? Mér er vel kunn- ugt um þá mik- ilvægu hefð sem skapast hefur í kringum Óslóartréð á Austurvelli á að- ventunni í Reykja- vík og þann stóra sess sem það hefur í huga borgarbúa. Ég skil því vel að fjöl- miðlaumfjöllunin um hugsanlegar breyt- ingar á þessari hefð veki athygli og við- brögð. En það er alls ekki vilji Ósló- arborgar að þessi hefð leggist af. Þvert á móti. Því hef ég nú þegar skrifað bréf til borg- arstjórans, Jóns Gnarrs, með hug- leiðingum um hvernig við getum sem best viðhaldið og betrumbætt þá hefð að Ósló færi Reykjavík jólatré að gjöf. Fyrir meira en sextíu árum, þegar Ósló- arbúar hófu að færa Reykvíkingum jólatré, var það til að undirstrika vináttutengslin á milli landanna, en einnig vegna þess að þá voru ekki nein stór grenitré í Reykjavík. Ým- islegt hefur breyst á þessum sextíu árum, annað hefur ekki breyst. Vináttutengslin milli Noregs og Íslands, og á milli Reykjavíkur og Óslóar, eru jafnsterk og áður. En núna vaxa grenitré á Íslandi og þegar breytingar verða á einu sviði getur verið viturlegt að athuga hvort breyta megi til batnaðar á öðrum svið- um líka. Þess vegna hef ég beðið Jón Gnarr borgar- stjóra að athuga hvort fella megi jólatréð á Íslandi, gjarnan í skógi sem plantað hefur verið í samvinnu við Noreg, í stað þess að höggva það í einum af skógum Óslóar. Það er umhverfisvænna en að flytja það um langan veg og grenitré geta orðið fyrir skaða við langa flutninga yfir hafið. Það er ennþá ósk Óslóarborgar að færa Reykvíkingum jólatré, við viljum einnig gjarnan viðhalda þeirri hefð að vera á staðn- um er kveikt er á trénu á Austurvelli og við viljum endilega þróa áfram hina góðu sam- vinnu og vinskapinn á milli borganna okkar tveggja. Eftir Fabian Stang » Fyrir meira en sextíu ár- um, þegar Ósló- arbúar hófu að færa Reykvík- ingum jólatré, var það til að undirstrika vin- áttutengslin á milli landanna. Fabian Stang Höfundur er borgarstjóri Óslóarborgar. Óslóartréð

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.