Morgunblaðið - 12.04.2014, Side 19
FRÉTTIR 19Innlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 12. APRÍL 2014
Allar tæknilegar upplýsingar, snið og teikningar, eru fyrirliggjandi hjá okkur.
Nánari upplýsingar á www.solskalar.is
Viðhaldsfríir gluggar, hurðir, sólskálar o.fl.
Opið hús
í dag kl.10-16
Kynnum allt það nýjasta sem finna má í
gerð garðskála, svalalokana, hurða og glugga.
Renndu við í nýja sýningarsalnum okkar Smiðsbúð 10.
30 ára reynsla
Smiðsbúð 10 • 210 Garðabær • Sími: 554 4300 • solskalar@solskalar.is • www.solskalar.is
Kirkjuráð hefur auglýst bújörðina
Skálholt til ábúðar. Ákveðið var í
kirkjuráði að áframhaldandi búskap-
ur yrði á jörðinni. Núverandi ábú-
endur munu bregða búi fyrir næstu
fardaga.
„Við viljum að búskapur verði
áfram á staðnum og nú er bara að
bíða og sjá og fara yfir umsókn-
irnar,“ segir Ragnhildur Benedikts-
dóttir, framkvæmdastjóri kirkju-
ráðs.
„Ábúðarsamningur verður til
fimm ára með möguleika á fram-
lengingu að ábúðartíma loknum.
Samið verður nánar um útfærslu
þess í ábúðarsamningi.“ Þetta stend-
ur í auglýsingunni. Greiðslumark
jarðarinnar er 71.350 þúsund lítrar
mjólkur og er leigt með jörðinni.
Með ábúðarsamningnum fylgir
starf ráðsmanns á Skálholtsstað en
gerður verður sérstakur ráðning-
arsamningur um það. Miðað er við
að ábúð hefjist 1. júní 2014. Við val á
ábúanda er m.a. litið til menntunar á
sviði landbúnaðar og starfsreynslu
af landbúnaði.
Fyrir nokkru auglýstu Ríkiskaup,
fyrir hönd kirkjuráðs íslensku þjóð-
kirkjunnar, eftir tilboðum í gisti- og
veitingarekstur í Skálholti. Hið
leigða er Skálholtsskóli og einbýlis-
húsin Sel og Rektorhús. Gert er ráð
fyrir að leigutakinn hefji starfsemi
sína eigi síðar en 1. júní næstkom-
andi. Ekki hefur verið unnið úr til-
boðum sem hafa borist.
thorunn@mbl.is
Búskapur áfram í Skálholti
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Skálholt Áfram verður kúabúskapur á jörðinni.
Kirkjuráð hefur auglýst bújörðina til ábúðar Samn-
ingur verður til fimm ára með möguleika á framlengingu
Samninganefndir kennara og stjórn-
enda Verslunarskóla Íslands skrif-
uðu undir kjarasamning eftir hádegi
í gær. Að sögn Óla Njáls Ingólfs-
sonar, sem á sæti í samninganefnd
kennara skólans, er samningurinn á
sömu nótum og sá sem undirritaður
var á föstudaginn í seinustu viku af
samninganefndum Félags fram-
haldsskóla og Félags stjórnenda í
framhaldsskólum.
Samningurinn verður kynntur og
borinn undir atkvæði dagana 23.- 25.
apríl nk. Ekki kemur því til verkfalls
í Verslunarskólanum á fyrsta
kennsludegi eftir páska, en þá hafði
verkfall verið boðað ef ekki tækist
að semja í tæka tíð.
Skrifað undir nýjan
kjarasamning
Héraðsdómur Reykjaness hefur
dæmt tæplega fimmtugan karlmann í
12 mánaða skilorðsbundið fangelsi
fyrir stórfellda líkamsárás í sept-
ember 2010, en maðurinn sem varð
fyrir árásinni hlaut alvarlega augn-
áverka.
Ríkissaksóknari ákærði manninn í
ágúst í fyrra fyrir stórfellda líkams-
árás, með því að hafa í september
2010, á bifreiðastæði framan við íbúð-
arhús veist með ofbeldi að öðrum
manni. Ákærði sló með hafnabolta-
kylfu í hliðarrúðu bifreiðar öku-
mannsmegin, vitandi að maðurinn sat
þar fyrir innan í ökumannssæti. Af-
leiðingarnar urðu þær að rúðan möl-
brotnaði og glerbrot þeyttust á
manninn og í bæði augu hans. Er
maðurinn steig út úr bifreiðinni í kjöl-
farið, sló árásarmaðurinn með hafna-
boltakylfunni í vinstri öxl hans. Af-
leiðingar árásarinnar urðu þær að
maðurinn hlaut um 5 mm langan
skurð ofarlega á hornhimnu vinstra
auga og skaddaðan augastein, og
varð maðurinn blindur á vinstra auga
og með 20% sjón á hægra auga.
Fram kemur í dómi héraðsdóms,
að það þykir sannað að maðurinn hafi
veist að brotaþola með ofbeldi og
slegið hann með hafnaboltakylfu í
öxlina. Ekki þótti sannað að ásetn-
ingur mannsins hefði staðið til þess
að valda brotaþola þeim alvarlegu
áverkum sem hann hlaut.Við það sé
miðað að ákærði hafi valdið brotaþola
tjóni af gáleysi. Dómari viðurkenndi
einnig bótaskyldu ákærða vegna þess
líkamstjóns sem brotaþoli varð fyrir.
12 mán-
uðir fyrir
líkamsárás
Fórnarlambið
blindaðist í árásinni
Morgunblaðið/Ómar