Morgunblaðið - 02.08.2014, Qupperneq 4
4 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2014
holar@simnet.is
ÖRNEFNI Í MJÓAFIRÐI
-síðasta bók Vilhjálms á Brekku
Þann 20. september næstkomandi hefði Vilhjálmur Hjálmarsson á Brekku í Mjóafirði
orðið 100 ára. Af því tilefni kemur út hjá Bókaútgáfunni Hólum vandað rit eftir hann,
Örnefni í Mjóafirði. Þar verður að finna á 320 blaðsíðum
örnefnaskrá allra jarða við Mjóafjörð, ásamt frásögnum
tengdum örnefnunum og öðrum fróðleik. Í bókinni verða
einnig kort, litmyndir sem örnefni hafa verið merkt inn á
og fjöldi annarra mynda.
Þegar byrjað var að búa umrædda bók til prentunar sagði
Vilhjálmur svo frá að „annaðhvort verður þetta afmælisrit
eða minningarrit“. Því miður verður hið síðarnefnda ofan á.
Aftast í bókinni verður Tabula memorialis (minningarskrá) og þar geta þeir sem
heiðra vilja minningu Vilhjálms fengið nafnið sitt skráð og um leið gerst
áskrifendur að bókinni sem kostar kr. 6.480- m/vsk og sendingargjaldi.
Hægt er að panta bókina fram til 10. ágúst í netfanginu
erna@holabok.is eða í símum 690 8595 / 587 2619.
Bæjarráði Fjallabyggðar barst fyrr í
mánuðinum ósk um leyfi til að halda
hænur. Óskin barst frá íbúa á Siglu-
firði, Guðmundi Ólafi Einarssyni,
sem hugðist hafa hana- og hænsna-
hald á heimili sínu við Hvanneyrar-
braut 52 í bænum. Með fylgdi sam-
þykki nágranna hans í húsunum
númer 48 og 50 við götuna.
Með vísan í samþykkt um búfjár-
hald samþykkti skipulags- og um-
hverfisnefnd Fjallabyggðar á
fimmtudag að leyfa Guðmundi Ólafi
að halda hænur en ekki hana.
Guðmundur Skarphéðinsson, for-
maður nefndarinnar, segir ástæðuna
vera einfalda. „Hanar ónáða fólk og á
þeim forsendum bönnuðum við
þetta,“ segir hann. Guðmundur segir
samþykki úr næstu tveimur húsum
ekki nægja, þar sem bærinn sé lítill
og hanarnir myndu ónáða mun fleiri
í kring. Hann segir reynsluna af
hænsnahaldi þó vera góða á svæðinu,
og ekkert standi í vegi fyrir því.
Guðmundur Ólafur segist ósáttur
við ákvörðun bæjarráðsins, „Það er
ekkert gaman að vera með hænur og
enga hana. Þessi grey verða að geta
fjölgað sér,“ segir hann. Guðmundur
hafði þegar fengið sér þrjár hænur
og einn hana. „Ég er búinn að vera
með hanann í um hálfan mánuð og
það hefur ekki borið á neinu ósætti,“
segir hann, en eftir ákvörðun bæjar-
ráðsins þarf haninn að víkja.
Guðmundur segir nágranna sína
hafa verið sátta við hanann, og því
hafi hann verið hissa á því að málið
hafi ekki verið samþykkt. „Ég mun
samt halda áfram með hænsnahald-
ið,“ segir hann að lokum. if@mbl.is
Hanar bannaðir þrátt
fyrir samþykki nágranna
Morgunblaðið/Ómar
Garður Hani í Fjölskyldugarðinum.
Hanahald ekki
leyft á Siglufirði
Viðar Guðjónsson
vidar@mbl.is
„Í þeim tilvikum sem rannsóknina
hefur borið á góma í samskiptum mín-
um við lögreglustjórann hefur það
snúið að þeirri viðleitni ráðuneytisins
að greiða fyrir rannsókn málsins,“
segir Hanna Birna Kristjánsdóttir
innanríkisráðherra í bréfi sínu til
Tryggva Gunnarssonar, umboðs-
manns Alþingis, sem óskaði á mið-
vikudag eftir tilteknum upplýsingum
frá ráðherra um samskipti hennar við
Stefán Eiríksson, lögreglustjóra á
höfuðborgarsvæðinu, vegna rann-
sóknar á lekamálinu svokallaða. Í
bréfinu segir Hanna Birna að sam-
skiptin hafi snúið að öryggi gagna
sem lögreglan hafi fengið aðgang að
innan ráðuneytisins og hvenær þess
mætti vænta að rannsókn ljúki.
Fram kemur í bréfinu að fjórir
fundir hafi farið fram á milli þeirra frá
því að rannsókn á málinu hófst. Engin
þeirra var þó til að ræða rannsóknina
sérstaklega.
Stefán Eiríksson, lögreglustjóri á
höfuðborgarsvæðinu, gerir engar at-
hugasemdir við það sem fram kemur í
bréfi ráðherra. „Ég get staðfest það
sem þarna kemur fram. Svo get ég
bætt því við að ég kom á framfæri at-
hugasemdum og gagnrýni á framfæri
frá ráðherra við ríkissaksóknara sem
fer með stjórn þessarar rannsóknar,“
segir Stefán sem segist þó ekki getað
tjáð sig nánar efnislega sökum þess
að það tengist rannsókn málsins.
Í bréfi Hönnu Birnu kemur meðal
annars fram að hún eigi oft í sam-
skiptum við forstöðumenn undir-
stofnana ráðuneytisins, oft á tíðum á
óformlegum nótum. „Er því eins farið
með lögreglustjórann á höfuðborgar-
svæðinu,“ segir í bréfi Hönnu Birnu.
Umboðsmaður skoðar málið
Árni Páll Árnason, formaður Sam-
fylkingarinnar, telur í stöðuupp-
færslu á Facebook-síðu sinni að
Hanna Birna hafi viðurkennt afskipti
sín af rannsókninni. „Innanríkisráð-
herra játar í dag afskipti af rannsókn
lögreglustjóra – undirmanns henn-
ar,“ segir m.a í færslu Árna Páls.
Tryggvi Gunnarsson, umboðsmað-
ur Alþingis, segir í samtali við Morg-
unblaðið að bréfið verði tekið til
skoðunar og í framhaldinu
verði næstu skref ákveðin.
„Málið verður skoðað á næst-
um dögum,“ segir Tryggvi.
Gerir ekki athugasemdir við bréfið
Samskipti ráðherra við lögreglustjóra sneru að því að greiða fyrir rannsókn málsins Stefán stað-
festir það sem fram kemur í bréfinu Kom athugasemdum ráðherra á framfæri við ríkissaksóknara
Morgunblaðið/Eggert
Svarbréf Í bréfi Hönnu Birnu segist hún ekki hafa blandað sér í rannsókn lekamálsins með óeðlilegum hætti.
Björn Jóhann Björnsson
bjb@mbl.is
Enn eru að verða breytingar á
grænu verbúðunum við gamla hafn-
arbakkann í Reykjavík. Jón Sigurðs-
son og fjölskylda, eigendur Sindra-
fisks, vinna nú hörðum höndum að
því að breyta fiskverkuninni í Ver-
búð 11 í veitingastað. Til stendur að
opna staðinn í byrjun nóvember
næstkomandi.
„Annars erum ekki komin með
neinar dagsetningar. Góðir hlutir
gerast hægt,“ segir Sigurður Sveinn
Jónsson, sem ásamt fleirum í fjöl-
skyldunni kemur að uppsetningu
veitingastaðarins.
Staðurinn mun taka um 60-80
manns í sæti og áhersla verður lögð á
sjávarrétti.
„Við höldum tryggð við málstað-
inn, enda kunnum við ekki annað,“
segir Sigurður en Sindrafiskur hefur
verið með fiskverkun á þessum stað í
tugi ára. Kokkurinn í fjölskyldunni,
Guðmundur Jónsson, hefur tekið að
sér það hlutverk að undirbúa og þróa
matseðlana, en veitingastaðurinn er
ekki kominn með nafn ennþá.
Hvít og græn verbúð
Verbúð 11, þá hvítu, keypti fjöl-
skyldan fyrir um 30 árum en leigir
þá grænu í númer 10 áfram af Faxa-
flóahöfnum og þar verður fiskverkun
starfrækt áfram, sú síðasta á þessu
svæði. Sigurður segir það hafa tekið
sinn tíma að afla tilskilinna leyfa áð-
ur en framkvæmdir gátu hafist. Gera
þarf nokkrar breytingar á húsinu,
eins og brjóta úr suðurgaflinum til
að setja þar upp glugga. Síðar meir
er ætlunin að koma upp útiaðstöðu,
þannig að gestir staðarins geti sest
niður og notið veðurblíðunnar. Sér
fjölskyldan fyrir sér að ágætlega
skjólsælt verði sunnan við húsið.
Nýr veitingastaður í
verbúðunum í Reykjavík
Eigendur Sindrafisks standa í stórræðum við gamla hafnarbakkann
Síðasta fiskverkunin starfar þar áfram Hyggjast halda tryggð við málstaðinn
Morgunblaðið/Eggert
Verbúðir Framkvæmdir eru hafnar við að breyta Verbúð 11 í veitingastað.
Samkvæmt
niðurstöðu Þjóð-
arpúls Gallup,
sem greint var
frá í sjónvarps-
fréttum RÚV í
gærkvöld, kem-
ur fram að Sjálf-
stæðisflokkurinn
hefur bætt við
sig um tveggja
prósentustiga
fylgi frá síðustu könnun. Stuðn-
ingur við ríkisstjórnina hefur auk-
ist lítillega milli mánaða. Fylgi
annarra flokka breytist lítið.
Tæp 42% þeirra sem tóku af-
stöðu í könnuninni styðja ríkis-
stjórnina og eykst stuðningur við
hana um 2%. Fylgi Sjálfstæðis-
flokksins eykst einnig um rúm tvö
prósentustig, en tæplega 28% segj-
ast myndu kjósa flokkinn ef geng-
ið væri til kosninga í dag.
Fylgi annarra flokka breytist
lítið. Rúmlega 18% segjast myndu
kjósa Samfylkinguna, rúmlega
15% Bjarta framtíð, rúmlega 13%
Framsóknarflokkinn og tæp 13%
Vinstri græn, tæplega 8% segjast
myndu kjósa Pírata og nær 6%
myndu kjósa aðra flokka en þá
sem sitja nú á þingi. Um 13% taka
ekki afstöðu eða neita að gefa
hana upp.
Lítilleg fylgisaukn-
ing ríkisstjórnar
Könnun Fylgi ríkis-
stjórnarinnar eykst.
„Síðastliðið vor ræddi nefndin
um að taka þetta svokallaða
lekamál til umræðu. Síðan þá
hafa komið fram upplýsingar á
síðustu dögum og vikum sem
enn hafa gefið tilefni til þess
að nefndin setjist yfir málið,“
segir Ögmundur Jónasson, for-
maður stjórnskipunar- og eft-
irlitsnefndar Alþing-
is. Hann segir ekki
komna tímasetn-
ingu á hvenær
málið verði tekið
fyrir en nauðsyn-
legt sé að gera
það áður en
Alþingi
kemur
saman.
Fundað fyrir
þingsetningu
NEFNDIN KOMI SAMAN
Ögmundur
Jónasson