Morgunblaðið - 02.08.2014, Blaðsíða 36
36 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2014
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Þú býst við miklu af einhverju eða
einhverjum í dag og ert þess fullviss að allt
verði í lagi. En það er bara ekki gaman að
skemmta sér þegar manni er sagt að gera
það.
20. apríl - 20. maí
Naut Segðu hefðbundnum viðhorfum stríð á
hendur, nú er þörf fyrir ferskar hugmyndir.
Sérstaklega tekur þú eftir þörfum barna,
þjáningum þeirra og gleði.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Láttu fara lítið fyrir þér í dag, því
öll óþarfa athygli fer illa í þig. Láttu hana
ekki hrífa þig með sér heldur stattu fast á
þínu.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Bara af því að þú getur gert eitthvað
þýðir ekki að þú ættir að gera það. Einhverjir
gætu haft áhuga á að kaupa eitthvað af þér.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Stundum eru hlutirnir of góðir til þess
að vera sannir. Þú verður að taka af skarið
og hrinda málum í framkvæmd. Hvað þarftu
að gera í dag til að láta drauma þína rætast?
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Valdatafl við yfirboðara er líklegra en
ekki í dag. Gott væri að gefa sér tíma til
íhugunar. Skoðirðu stöðu þína frá öðrum
sjónarhóli muntu skilja málið betur.
23. sept. - 22. okt.
Vog Ef þú ert nógu ákveðinn og bjartsýnn
ætti það að reynast þér leikur einn að láta
drauminn rætast. Reyndu að koma sem
mestu í verk.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Leyfðu voninni að lifa því án
hennar er allt svo lítils virði. Gættu þess að
hafa væntingarnar miklar og láttu þá sem
eru í kringum þig vita nákvæmlega hverjar
þær eru.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Viðhaltu sakleysi þínu. Gerðu
náunganum greiða, hann skilar sér marfalt
aftur. Reyndu samt að lífga upp á það með
einhverjum hætti.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Þú hefur orðið fyrir vonbrigðum
og þarft því að gera þér grein fyrir hvaða
væntingar þú hefur til annarra. Annars
drukknar þú bara í óleystum verkefnum.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fólk fer auðveldlega yfir strikið í
dag. Hver þarfnast skynsemi? Þú finnur á
þér að tækifærin liggja í næturlífinu í kvöld,
auk þess sem stuð skemmir aldrei fyrir.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Sá sem sagði að lífið væri ekki aðal-
æfing með búningum hefur augljóslega ekki
séð inn í fataskápinn þinn. Nú er ekki rétti
tíminn til þess að sýna festu.
Síðustu vísnagátu átti GuðmundurArnfinnsson:
Bærist hann í brjósti manns,
bjargræðis er tími þá,
bónarvegur betlarans,
birtist oflátungi hjá.
Harpa á Hjarðarfelli sendi þessa
lausn:
Í hverju brjósti hjarta slær,
um heyannirnar bóndinn slær.
Þig betlarinn um brauðið slær,
en burgeisinn hann um sig slær.
Hér kemur ráðning Helga R. Ein-
arssonar:
Brjóstsins, bjargræðisins
og betlaranna háttur
og eðli oflátungsins
auðvitað er sláttur.
Guðmundur Arnfinnsson sendi
mér tölvupóst: „Kæri Halldór. Þú
varst nýlega á gönguför í Reykhóla-
sveit þér til ánægju og heilsubótar:
Reykhólasveitin er gesti góð
sem gengur þar og mælir ljóð
af munni fram við menn og fljóð
á Matthíasar heimaslóð.
Sá Matthías, sem hér um getur,
var Jochumsson og eitt höfuðskáld
síns tíma. Hann var prestur og orti
þetta, þegar hann fékk synjun um
eitthvað sem hann hafði sótt um hjá
safnaðarfundi:
Þegar ég heyrði þinglokin,
þá hljóp í mig gikkurinn;
sagði ég við Manga minn:
„Mígðu nú yfir söfnuðinn.“
Ég gleymdi að hafa með ráðningu
á gátu minni í síðasta pistli:
Hjartsláttur bærist í brjósti manns,
bjargræðistími er sláttur.
Sláttur er úrræði öreigans
og oflátungsins háttur.“
Síðan barst mér annað bréf frá
Guðmundi þar sem hann bað mig for-
láta ítrekaðar bréfasendingar því:
Stundum varla vaknaður
ég vitleysurnar læt í té,
en úr roti raknaður
ritvillurnar tíðum sé.
Að vísu átta ég mig ekki á, hvaða
ritvillur hann er að tala um og verð-
ur við svo búið að standa!
Harpa á Hjarðarfelli sendi mér
tvær vísnagátur fyrir viku og þykir
mér rétt að birta þær báðar í senn og
sjá hvernig lesendum bregður við:
Fylgispakur félaginn.
Forhertur og ósvífinn.
Stundum líka birtu ber.
Börn við spilin dunda sér.
Húsdýrið fær lof og last,
lifir annað trjánum í.
Beitir nöglum býsna fast.
Byrðin hangir neðan í.
Lausn verður að berast fyrir há-
degi á þriðjudag að þessu sinni.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Úr Reykhólasveit í
refilstigu vísnagátunnar
Í klípu
NÚ VAR ÓNUSINN Á LÁRUSI, SEM FRAM
TIL ÞESS HAFÐI EKKI HAFT HUGMYND
UM HVAÐ ÓNUS VAR.
eftir Mike Baldwin eftir Jim Unger
„JÆJA, FÉLAGI, ÚT ÚR BÍLNUM!“
Hermann
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... að láta hjartað
ráða för.
OG Á HVAÐ ÆTLAR ÞÚ AÐ
SPILA, HERRA MINN?
OBBOSÍ!
ER
TRÉSMIÐUR
Í HÚSINU?
ÉG SPILA
Á SÖG.
BOING!
ÁI!
ÞÚ ERT OF
ALVARLEGUR!
LÍFIÐ Á AÐ VERA
SKEMMTILEGT!
LIFÐU LÍFINU ...
TAKTU
ÁHÆTTU!
HAMLET, HVERNIG DETTUR
ÞÉR Í HUG AÐ BORÐA MEÐ
OLNBOGANA UPPI Á BORÐI?! ÉG ER
AÐ TAKA
ÁHÆTTU!
Upphaf sjónvarpsins er af flestumrakið til skoska verkfræðingsins
John Logie Baird og þá til dagsetn-
ingarinnar 26. janúar 1926. Þá birt-
ust fyrstu sjónvarpsmyndirnar af
hlutum á hreyfingu. Eitt og hálft ár
er því þar til fagnað verður að níutíu
ár eru síðan almúgamanninum var
gert kleift að skilja áhyggjur sínar
eftir við dyrakarminn, hlamma sér í
sófann og forheimskast yfir því sem
Charlie Sheen og Jim Belushi leika í
hverju sinni.
x x x
Sjónvarpið er samt miklu meira enrándýrir amerískir gam-
anþættir, viðfangsefnin dýrmætari
og áhrifin gríðarleg. Þá er viðmótið
orðið þannig að sjónvarpsstjórar
stýra ekki lengur skútunni, nema að
nafninu til. „Sjónvarpstæki“ er ekki
lengur krafa því hver sá sem ræður
yfir tölvu, spjaldtölvu eða snjallsíma
getur keypt sér skó sjónvarpsstjóra.
x x x
Þriðjudaginn 29. júlí horfði Vík-verji á Stöð 2, sem hann er með í
stað Stöð2Sport2 í sumar. Þá hófst
vikulegur gamanþáttur Jons Stew-
arts (e. Global edition). Þátturinn
var hins vegar sýndur í Bandaríkj-
unum 21. júlí. Eftir átta daga getur
hárfín kómedía um fréttamál verið
löngu úrelt. Því athugaði Víkverji
hvort um endursýningu væri að
ræða og einnig hvort nýrri þáttur
væri á hinu svokallaða VOD-i. Svo
var ekki.
x x x
Talandi um að vera eigin sjón-varpsstjóri. Víkverji ákvað
nefnilega fyrir fáeinum vikum að
prófa að gerast áskrifandi að HBO
Nordic. Þar er að finna fjölmarga
bandaríska sjónvarpsþætti og kvik-
myndir og allt heila klabbið með
dönskum, norskum, sænskum eða
finnskum texta. Heyrðu það, Illugi
Gunnarsson! Þar er einnig að finna
sjónvarpsþátt Johns Olivers, sem
áður var með innslög hjá Jon Stew-
art en stýrir mun betri þáttum í dag.
Og 29. júlí var hjá HBO Nordic að
finna þátt sem sýndur var vest-
anhafs tveimur dögum áður. Og það
með dönskum, norskum, sænskum
og finnskum texta. víkverji@mbl.is
Víkverji
Guði séu þakkir, sem gefur oss sig-
urinn fyrir Drottin vorn Jesú Krist!
(Fyrra Korintubréf 15:57)