Morgunblaðið - 02.08.2014, Qupperneq 18
Skannaðu kóð-
ann til að sjá
gengið eins og
það er núna á
18 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 2. ÁGÚST 2014
sturtusett
Hitastýrt
Verð frá kr. 66.900
Gæði fara aldrei úr tísku
Hörður Ægisson
hordur@mbl.is
Sumir af stærstu vogunarsjóðum
heims hafa að undanförnu keypt
hlutabréf í ýmsum argentínskum
fyrirtækjum. Fjárfestingarnar
þykja til marks um að vogunarsjóðir
séu að veðja á skjótan efnahagsbata
Argentínu þrátt fyrir að greiðslufall
hafi orðið á skuldum ríkisins í annað
sinn á aðeins þrettán árum.
Frá þessu er greint í Financial
Times en vogunarsjóðirnir hafa fjár-
fest í orkufyrirtækjum, bönkum og
fjarskiptafélögum. Telja þeir líklegt
að farsæl niðurstaða muni að lokum
fást í deilu argentínskra stjórnvalda
við þann hóp kröfuhafa sem neituðu
að taka þátt í samkomulagi um end-
urskipulagningu á skuldum ríkisins.
Bandaríska lánshæfismatsfyrir-
tækið Standard & Poor’s setti Arg-
entínu í greiðslufallsflokk á mið-
vikudaginn eftir að ríkið greiddi
ekki 539 milljónir dala í vaxta-
greiðslur til kröfuhafa. Fjármála-
ráðherra Argentínu, Axcel Kicillof,
sagði að „hrægammasjóðirnir“
hefðu hafnað sáttatilboði stjórn-
valda.
Viðbrögð fjárfesta við greiðslu-
falli Argentínu hafa verið fremur lít-
il. Ávöxtunarkrafan á ríkisskulda-
bréf Argentínu hækkaði aðeins
lítillega en skuldatryggingaálag rík-
isins – það sem fjárfestar þurfa að
greiða fyrir tryggingu gegn því að
útgefandi skuldabréfa fari í
greiðsluþrot – hefur aukist um
meira en 11% í síðustu viku.
Fram kemur í frétt Financial
Times að vogunarsjóðirnir DE
Shaw, Third Point og Renaissance
Technologies hafi á undanförnum
vikum keypt hluti í argentínskum
fyrirtækjum sem eru skráð á hluta-
bréfamarkað í Bandaríkjunum.
Þannig hafi þau fjárfest í olíufyr-
irtækjunum YPF og Petrobas, fjar-
skiptafyrirtækinu Telecom Argent-
ina og fjármálafyrirtækinu Banco
Francés.
Í bréfi sem Daniel Loeb, forstjóri
vogunarsjóðsins Third Point, skrif-
aði til fjárfesta í síðasta mánuði seg-
ist hann þeirrar skoðunar að arg-
entínsk stjórnvöld muni að lokum ná
samkomulagi við kröfuhafa. Takist
það ætti Argentína að fá aðgang á
ný að erlendum lánamörkuðum sem
myndi þann lausafjárvanda sem
landið glímir við.
Third Point er á meðal þeirra sem
hafa keypt almennar kröfur á sli-
tabú gamla Landsbankans á Íslandi.
Kauptækifæri eftir greiðslufall
Fleiri vogunarsjóðir hafa á síð-
ustu misserum komið auga á þau
fjárfestingatækifæri sem kunna að
felast í Argentínu samhliða þrætu
þeirra við kröfuhafa. Michael Novo-
gratz, stjórnarformaður bandaríska
vogunarsjóðsins Fortress Invest-
ments, sagði á ráðstefnu fyrr á
þessu ári að Argentína væri dæmi
um ríki sem „væri svo slæmt, að það
væri gott“. Taldi hann að greiðslu-
fall ríkisins myndi hafa í för með sér
kauptækifæri fyrir fjárfesta.
Veðja á skjótan efna-
hagsbata Argentínu
Vogunarsjóðir kaupa í orkufyrirtækjum og bönkum
AFP
Argentína Cristina Fernandez de Kirchner, forseti landsins, á blaðamanna-
fundi. Stjórnvöld kenna bandarískum yfirvöldum um greiðslufall ríkisins.
Sagan endalausa
» Greiðslufall varð á skuldum
argentínska ríkisins í vikunni.
» Sumir vogunarsjóðir sjá
kauptækifæri samfara efna-
hagsvandræðum Argentínu.
Telja að ef samkomulag næst
við kröfuhafa gætu erlendir
lánamarkaðir opnast.
» Hafa keypt hlutabréf í orku-
fyrirtækjum, bönkum og fjar-
skiptafélögum.
Gjaldeyrisforði
Seðlabanka Ís-
lands fer að nálg-
ast það að vera
óskuldsettur. Í
júní sl. voru
skuldir umfram
eignir í erlendri
mynt á efnahags-
reikningi bank-
ans um 20 millj-
arðar en þegar
mest var í árslok 2009 voru skuldir
umfram erlendar eignir um 190
milljarðar. Þetta kemur fram í
markaðspunktum greining-
ardeildar Arion banka.
Sé hins vegar tekið tillit til þess
að umtalsverðar eignir Seðlabank-
ans, til að mynda fjölmyntalán í
tengslum við yfirtöku nýju bank-
anna á veðtryggðum lánum og
kröfur á fallin fjármálafyrirtæki í
vörslu ESÍ, verða líklega gerðar
upp í gjaldeyri en teljast engu að
síður ekki sem erlend eign á efna-
hagsreikningnum, þá má segja að
Seðlabankinn hafi þegar náð því
marki að koma sér upp óskuldsett-
um gjaldeyrisforða. Óskuldsettur
forði bankans er þó ekki stór.
Greinendur Arion banka benda á
að það séu jákvæð tíðindi að Seðla-
bankanum sé að takast að safna
hreinni gjaldeyriseign. Það skipti
ekki síst máli samhliða áformum
stjórnvalda um að stíga skref í átt
til losunar hafta. Þrátt fyrir að
gjaldeyrisforðinn sé ekki tiltölu-
lega stór um þessar mundir er
skuldsetning hans einn þeirra þátta
sem draga úr nytsemi forðans.
Þannig telji fáir að Seðlabankinn sé
reiðubúinn að ganga á forðann til
þess að verja gengisstöðugleika ef
afleiðingin yrði sú að auka skuld-
setningu ríkissjóðs í erlendri mynt.
Nálgast
óskuldsett-
an forða
Skuldir umfram
eignir 20 milljarðar
Seðlabanki
Íslands
Hagnaður Lyfju á síðasta ári nam
127 milljónum króna eftir skatta.
Rekstrarhagnaður án afskrifta og
fjármagnsliða (EBITDA) minnkaði
lítillega á milli ára og var um 514,5
milljónir króna á árinu 2013.
Þetta kemur fram í ársreikningi
félagsins.
Eigið fé Lyfju var 2,27 milljarðar
króna í árslok 2013 og var eig-
infjárhlutfall fyrirtækisins tæplega
40%.
Sölutekjur Lyfju-samstæðunnar
jukust um 225 milljónir frá fyrra
ári og námu um 8,23 milljörðum
króna á liðnu ári.
Við fjárhagslega endurskipulagn-
ingu Lyfju, sem lauk í ársbyrjun
2012, voru skuldir fyrirtækisins
lækkaðar að hluta og allt hlutafé
þáverandi eigenda afskrifað. Við
það eignaðist lánveitandi félagsins,
sem var Glitnir, 92,5% hlut í Lyfju.
Í dag er allt hlutafé Lyfju í eigu
Haf-Funding 2008-1 (85%) og
Glitnis (15%). Haf-Funding er félag
í eigu Glitnis sem heldur utan um
tiltekin lánasöfn í eigu slitabúsins.
Lyfja hagnast
um 127 milljónir
EBITDA minnkar lítillega milli ára
Morgunblaðið/Ómar
Lyfja Eftir fjárhagslega endurskipulagningu fór eignarhaldið til Glitnis.
● Bryndís Hrafn-
kelsdóttir hefur
tekið sæti í aðal-
stjórn Trygginga-
miðstöðvarinnar.
Kemur hún inn í
stjórnina í stað
Elínar Jónsdóttur,
stjórnarformanns,
sem ráðin hefur
verið fram-
kvæmdastjóri VÍB.
Þetta kemur fram í tilkynningu til
Kauphallarinnar en Bryndís hefur verið
forstjóri Happdrættis Háskóla Íslands
frá árinu 2010.
Þá hefur einnig verið ákveðið að
varaformaður stjórnar TM, Örvar Kær-
nested, sjálfstætt stafandi fjárfestir og
ráðgjafi, verði hér eftir stjórnar-
formaður fyrirtækisins.
Bryndís í stjórn TM
Bryndís
Hrafnkelsdóttir
● Innheimtar tekjur ríkissjóðs námu
306,3 milljörðum króna á fyrstu sex
mánuðum ársins og jukust um 17,7%
frá sama tímabili fyrir ári.
Samkvæmt greiðsluuppgjöri ríkis-
sjóðs var niðurstaða tímabilsins tæp-
lega 32 milljörðum yfir tekjuáætlun
fjárlaga. Ef óreglulegir liðir og tekjur af
arði og sölu eigna eru undanskilin eru
tekjurnar hins vegar 3,6 milljörðum
króna undir áætlun.
Tekjur aukast um 17,7%
Stuttar fréttir…
!
"!# #
$%
$!
"#"
""
#
$
&'()* (+(
,-&.&+/0 -'+(1(23& 45+(2/5
%"
!!
"! #
$""
#!#
"
#
%
""
%
!%
"!#!#
$"
#
"
%
# "
%$
"! %