Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 2

Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 2
FRÉTTASKÝRING Björn Jóhann Björnsson bjb@mbl.is Vegagerðin hefur á þessu ári sam- anlagt 8.447 milljónir króna úr að spila í viðhald og þjónustu á vega- kerfi landsins, þar af 5.000 millj- ónir í viðhald. Fjárveitingar ríkis- valdsins hafa jafnt og þétt lækkað frá því fyrir hrun en frá árinu 2007 hafa þær minnkað um 20%, miðað við uppreiknað verðlag og fjár- aukalög. Fjárveitingar árið 2007 námu alls um 10.700 milljónum. Ef fjáraukalögin væru ekki tekin með í reikninginn, og eingöngu lit- ið til fjárveitinga á fjárlögum hvers árs, þá væri niðurskurðurinn enn meiri á þessu tímabili. Ætlun fjárveitingavaldsins var því önnur en raun varð – og þörf krafði. Í heild hafa framlög síðustu ára til vegamála reyndar verið þau lægstu um mjög langan tíma, þrátt fyrir sífellt auknar kröfur til vega- kerfisins. Síðustu ár verið snjóþung Eins og sést nánar á meðfylgj- andi grafi, sem unnið er eftir upp- lýsingum frá Vegagerðinni, þá héldust fjárveitingar nokkuð stöð- ugar fram að hruni, á árunum 2001 til og með 2007, og var nokkuð jafnt skipt á milli viðhalds og þjón- ustu. Eftir hrun hefur þróunin ver- ið niður á við. Rögnvaldur Gunnarsson, for- stöðumaður framkvæmdadeildar Vegagerðarinnar, segir fjárveit- ingar í heild sinni vissulega hafa minnkað en hafa beri í huga að síðustu ár hafi verið snjóþung og kostnaður við vetrarþjónustu því aukist. „Vetrarþjónustan er mjög óviss póstur þar sem enginn veit fyrir- fram hvernig snjórinn eða hálkan verður,“ segir Rögnvaldur en þetta hefur kallað á meira fjármagn gegnum fjáraukalög, auk þess sem sum verkefni í þjónustu hafi verið flutt yfir á viðhaldshliðina þar sem fjárveitingar til þjónustu drógust meira saman en til viðhaldsins. Rögnvaldur segir það einnig hafa sitt að segja að akstur hafi aukist á þessum árum, með meira sliti og hraðara niðurbroti á öllum vegum. „Þegar allt fer í þrot, þá fara menn að gera eitthvað í fjárauka- lögunum,“ segir Rögnvaldur og tekur dæmi að í fjáraukalögunum 2013 var bætt við 1.200 milljónum króna vegna mikils halla af vetrar- þjónustunni. Að öðrum kosti hefðu útgjöldin það ár ekki verið svona mikil, eða 9,7 milljarðar króna. Fjárveitingarnar í ár eru einum milljarði króna minni. Þá var fjármagn úr viðhalds- fjárveitingu, sem nota átti til átaks í viðhaldi 2014, flutt yfir til vetrar- þjónustunnar til að minnka hallann þar um síðustu áramót. Nýtast þeir fjármunir þá ekki til viðhalds veganna. „Eins og fram hefur komið er þetta farið að bitna á vegakerfinu. Vegirnir lifa ekki endalaust. Eftir því sem minna fjármagn er sett í nýframkvæmdir þá er meiri kostn- aður í viðhaldi gömlu veganna. Síð- an hefur umferðin verið að aukast á ný og stöðugt fleiri ferðamenn aka um landið,“ segir Rögnvaldur. Fjárveitingar minnkað um 20% frá hruni  Minna í viðhald og þjónustu hjá Vegagerðinni  Fjárveitingar minnkað um 2.200 milljónir frá árinu 2007  Auknar kröfur á sama tíma til vegakerfisins  Vetrarþjónustan er mjög óviss póstur Fjármagn til Vegagerðarinnar í viðhald og þjónustu 2001-2014 Fjárveitingar til þjónustu á verðlagi 2014 Fjárveitingar til viðhalds á verðlagi 2014 12.000 10.000 8.000 6.000 4.000 2.000 0 2001 2002 2003 2004 2005 2006 2007 2008 2010 2011 2013 2014 Fjáraukalög meðtalin. Heimild: Vegagerðin 5. 37 8 5. 03 8 5. 38 0 4. 82 4 4. 77 8 5. 29 0 5. 51 1 5. 27 4 5. 31 0 5. 33 9 5. 29 9 4. 82 6 4. 34 0 6. 08 5 5. 40 7 3. 81 4 3. 40 1 5. 23 1 4. 87 0 3. 48 9 4. 50 4 5. 23 5 5. 00 0 3. 44 7 4. 82 6 5. 11 7 4. 97 1 4. 71 3 Ljósmynd/Brynja Dagbjartsdóttir Í Flóanum Hamarsvegurinn hefur verið í afleitu ástandi í sumar. 2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 20%afsláttur Fæst án lyfseðils. Lesið leiðbeiningar í fylgiseðli vandlega fyrir notkun. Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 5691100 Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson, Sigtryggur Sigtryggsson ritstjorn@mbl.is Viðskipti Sigurður Nordal vidskipti@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Sunna Ósk Logadóttir netfrett@mbl.is, Smartland Marta María Jónasdóttir, smartland@mbl.is Umræðan | Minningar | Bréf til blaðsins mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Íslensku ferðamennirnir tala mest um það hvað þeim finnst vera snyrti- legt hér í eyjunni, öllu vel við haldið, en útlendingarnir hafa mest gaman af því að skoða fuglana,“ segir Ingimar Ragnarsson, sem er ökumaður og leiðsögumaður í föstum traktors- ferðum með ferðafólk um Hrísey. Gestirnir höfðu enn meira um að tala framan af sumri, þegar hvalir sáust skammt undan landi í mörgum ferð- um. Hvalirnir hafa fært sig utar í fjörðinn í júlí. Ferðamálafélag Hríseyjar hefur í nokkur ár staðið fyrir ferðum um Hrísey, í samvinnu við Akureyrar- stofu. Áætlunin hljóðar upp á fjórar ferðir á dag í júní, júlí og ágúst og svo eru farnar aukaferðir á kvöldin eða öðrum tímum með hópa út í Hríseyj- arvita. Góð aðsókn er í ferðirnar, oft er biðröð eftir að Hríseyjarferjan hef- ur lagst að, en Ingimar viðurkennir að stundum falli ferðir niður þegar veðurguðirnir eru ekki hliðhollir ferð- um á opnum farartækjum. Dráttarvélar eru helstu ökutæki Hríseyinga og eru þær notaðar í ferð- irnar. Fólkið situr á bekkjum í göml- um heyvögnum sem hefur verið breytt í ferðamannavagna. Farinn er hringur um þorpið og að- eins norður um eyjuna til að fræðast um hvönnina og fuglalífið. Jafnframt er sagt frá því sem í boði er í eyjunni. Ferðirnar taka hálftíma til þrjú korter. Þegar farið er fram hjá flugvell- inum lýsir leiðsögumaðurinn „flug- stöð“ þeirra Hríseyinga, gömlu strætisvagnaskýli frá Akureyri sem notað er sem útsýnisskýli. „Það er bara krydd í tilveruna að geta gert grín að okkur sjálfum,“ segir Ingi- mar. helgi@mbl.is Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Á ferðinni Dráttarvélar eru aðalsamgöngutækið í Hrísey. Ferðamenn fá að njóta þeirra. Margir ferðamenn nýta sér heyvagnsferðirnar  Íslendingar hafa gaman af því að sjá flugstöð Hríseyinga Metaðsókn var á Þjóðhátíð í Vest- mannaeyjum um verslunarmanna- helgina. Mörgum þjóðhátíðargestum lá á að komast upp á fastalandið í gær og voru dæmi þess að fólk byði 25.000 krónur fyrir miða í Herjólf frá Vest- mannaeyjum í Facebook-hópnum Þjóðhátíð 2014!!! í ferðinni sem farin var klukkan 17. Miðinn kostar 1.260 krónur í miðasölu Herjólfs. Verðið var því tæplega tuttugufalt. Gunnlaugur Grettisson, rekstrar- stjóri Herjólfs, hafði ekki heyrt af þessu þegar mbl.is náði tali af hon- um síðdegis í gær, en hann segir í sjálfu sér ekkert hægt að gera til að stöðva þennan eftirmarkað með miða. „Ég hef ekkert heyrt af þessu, en þykir þetta ansi mikið fyrir stutta siglingu. Ætli það sé ekki erf- itt að eiga við það ef einhverjir ein- staklingar eiga miða í bátinn og kjósa að selja hann,“ sagði Gunn- laugur. Uppselt var í allar ferðir Herjólfs í gær og gekk allt snurðulaust fyrir sig. Langar biðraðir mynduðust við brottfararstað. Þá sigldi báturinn Víkingur milli lands og Eyja alla helgina, 20 ferðir. „Þetta hefur gengið alveg ljóm- andi vel og báturinn verið fullur all- ar ferðir,“ segir Sigurmundur Ein- arsson, framkvæmdastjóri Viking Tours. » 12 Buðu 25 þúsund fyrir miðann  Gestum lá á að komast í land

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.