Morgunblaðið - 05.08.2014, Blaðsíða 15

Morgunblaðið - 05.08.2014, Blaðsíða 15
FRÉTTIR 15Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 BAKSVIÐ Helgi Bjarnason helgi@mbl.is Tvö fiskeldisfyrirtæki eru að und- irbúa mat á umhverfisáhrifum fyrir stækkun sjókvíaeldis. Fiskeldi Aust- urlands sem er með laxeldi í Beru- firði stefnir að stækkun þar og í Fá- skrúðsfirði þannig að framleiðslu- geta stöðvanna verði í heildina 24 þúsund tonn á ári. Laxar fiskeldi hefur leyfi fyrir 6 þúsund tonna eldi í Reyðarfirði og stefnir að því að setja út seiði næsta vor. Fyrirtækið hefur hafið undirbúning að stækkun um 10 þúsund tonn. Horft hefur verið til Austfjarða sem annars helsta svæðis landsins fyrir sjókvíaeldi. Hingað til hefur mesta uppbyggingin verið á Vest- fjörðum og haft gríðarlega mikil áhrif á efnahag íbúa sunnanverðra Vestfjarða. Upp og niður Sjókvíaeldi hefur verið reynt á Austfjörðum. Til dæmis var þar stærsta sjókvíaeldisstöð landsins í síðustu fiskeldisbylgjunni, þar til Samherji ákvað að draga saman seglin á því sviði. Salar Islandica hóf uppbyggingu laxeldis í Berufirði fyr- ir tólf árum. HB Grandi keypti fyrir- tækið fljótlega og breytti í til- raunaeldi, aðallega á þorski, en hætti svo starfsemi. Fiskeldi Aust- fjarða hf. keypti aðstöðuna og er nú að byggja upp eldi á laxi og regn- bogasilungi. Nú stendur yfir slátrun á fyrsta árgangi úr sjókvíaeldi fyrir- tækisins. Fyrirtækið hefur lagt fram mats- áætlun fyrir stækkun eldissvæða í Berufirði og Fáskrúðsfirði um 13 þúsund tonn, þannig að heildarfram- leiðslugeta verði 24 þúsund tonn. Töluverð áhersla er lögð á regn- bogasilung við stækkunina. Áætlað er að hefja framleiðsluaukningu, samkvæmt nýju leyfunum, vorið 2016. Tekið er fram að stærðin sé miðuð við hámark mögulegrar framleiðslu en slátrað magn muni aðeins aukast úr 11 þúsund tonnum í 16 þúsund tonn á ári. Félagið á aðild að seiðaeldisstöð Ísþórs í Þorlákshöfn og hefur því greiðan aðgang að seiðum í fram- leiðsluna. Stærðarhagkvæmni í eldi Guðmundur Gíslason, aðaleigandi og stjórnarformaður Fiskeldis Aust- urlands, segir að mikil stærðar- hagkvæmni sé í fiskeldi og rætt um að stöðvarnar þurfi að vera að minnsta kosti 15-20 þúsund tonn til að fjárfesting í búnaði og tækjum sé hagkvæm. Laxar fiskeldi undirbýr 6 þúsund tonna sjókvíaeldisstöð í Reyðarfirði til eldis á laxi. Fyrirtækið er einnig með áform um eldi í Fáskrúðsfirði og Berufirði en hefur nú lagt fram tillögu að matsáætlun um aukningu í Reyðarfirði um 10 þúsund tonn. Stefnan er að vera með 25 þúsund tonna framleiðslu á Austfjörðum. Nokkrir einstaklingar standa að áformunum í Reyðarfirði, meðal annars menn sem stóðu að stofnun og uppbyggingu Salar Islandica í Berufirði. Fyrirtækið er enn í undirbúnings- ferlinu og á hvorki seiði á landi né fisk í sjó. Helgi G. Sigurðsson, einn af aðstandendum Laxa, segir að fyrstu seiðin verði sett út næsta vor en tekur fram að uppbygging í fisk- eldi taki langan tíma. Fyrirtækið sé jafnframt að undirbúa eigið seiða- eldi. Laxar benda á að framleiðsla hjá meðalstórum fyrirtækjum í Noregi sé 20 þúsund tonn á ári. Í ljósi þess og stærðarhagkvæmni þurfi félag á Íslandi að framleiða að minnsta kosti 20 þúsund tonn til að vera sam- keppnishæft. Markaður fyrir lax hefur verið góður. Guðmundur Gíslason segir að afurðirnar muni fara víða. Það sem slátrað hefur verið í sumar hefur mest farið á innanlandsmarkað. Fiskeldið færir út kvíarnar  Tvö fiskeldisfyrirtæki undirbúa 20 þúsund tonna stöðvar  Fiskeldi Austfjarða stækkar við sig á suðurhlutanum  Laxar fiskeldi hefur starfsemi í Reyðarfirði á næsta ári og vill stærra leyfi Morgunblaðið/Helgi Bjarnason Berufjörður Salar Islandica byggði upp sjókvíaeldi í Berufirði. Það hefur farið í gegnum ýmsar breytingar. Fiskeldi á Austfjörðum Reyðarfjörður Fáskrúðsfjörður Berufjörður Lax Slátrun á Djúpavogi. Sveitarstjórnarmenn á Austurlandi binda vonir við jákvæð áhrif vax- andi fiskeldis á samfélagið. Líta þeir gjarnan til suðurhluta Vest- fjarða þar sem fiskeldi er grundvöll- ur umskipta í byggðaþróun. Fiskeldi er nú þegar ein af stoð- unum í atvinnulífinu á Djúpavogi. Byggðin er í varnarbaráttu vegna flutnings starfsemi Vísis og afla- heimilda til Grindavíkur. Fiskeldi Austfjarða er í samvinnu við Vísi um slátrun á laxi og pökkun afurða og skapar það grundvöll fyrir því að fyrirtækið sé enn með nokkra starfsemi á staðnum. „Miðað við áform fyrirtækisins má gera ráð fyrir um- talsverðum áhrifum fiskeldis á næstu árum. Við fögn- um framgangi þess, við þurfum á því að halda til að mæta niðursveiflunni sem kemur í kjölfar brotthvarfs Vísis,“ segir Andrés Skúlason, oddviti Djúpavogs- hrepps. „Við fögnum því að hér eigi að byggja upp fiskeldi. Það er enn ein viðbótin við stækkandi atvinnulíf í Fjarðabyggð,“ segir Jens Garðar Helgason, formaður bæjarráðs Fjarðabyggðar. Jens Garðar tekur fram að mikilvægt sé að fiskeldið hamli ekki áframhaldandi uppbyggingu á hafnsækinni starfsemi í tengslum við stórskipahöfnina á Reyðar- firði. Í umsögn um tillögu Laxa fisk- eldis leggst bæjarráð gegn viðbót- areldi í Reyðarfirði, nema tryggt sé að slíkt eldi hamli ekki fyrirhugaðri uppbyggingu á hafnsækinni þjón- ustu í firðinum, en staðfestir að eldi í Fáskrúðsfirði samrýmist áætl- unum sveitarfélagsins. Einar Örn Gunnarsson hjá Löxum fiskeldi segir að starfsmenn fyrir- tækisins hafi farið yfir athuga- semdir Fjarðabyggðar. „Niðurstaða okkar er sú að ekki sé til staðar neitt það sem hindra ætti að bæði sveitarfélagið og Laxar geti byggt upp öfl- uga starfsemi í framtíðinni og mætt þar áformum sín- um.“ Bendir hann á reynsluna frá Noregi þar sem þessi tvö atvinnusvið eru víða í sömu fjörðunum. Forsvars- menn Laxa benda einnig á að stöðin verði töluvert utar í firðinum en höfnin og að sjókvíaeldisstöðvar séu þess eðlis að þær megi færa til, ef aðstæður breytast. Sveitarfélögin hafa ekki skipulagsvald á fjörðunum og því eru það aðallega ýmsar opinberar stofnanir sem ráða ferðinni. Þetta hafa sveitarstjórnarmenn oft gagn- rýnt. Unnið hefur verið strandsvæðaskipulag í Arnar- firði og gert ráð fyrir nýtingaráætlunum í nýjum ákvæðum laga um fiskeldi. Sveitarstjórnarmenn fyrir austan hafa áhuga á að slík vinna fari fram á þeirra svæði. Vonast eftir sömu áhrifum og á Vestfjörðum SVEITARSTJÓRNARMENN FAGNA UPPBYGGINGU Andrés Skúlason Jens Garðar Helgason

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.