Morgunblaðið - 05.08.2014, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 05.08.2014, Blaðsíða 18
AFP Framtíðin Máski að aðferðafræði stefnumótavefsíða geti gert atvinnuleit- ina ánægjulegri og áreynslulausari. Fólk skoðar laus störf í Flórída. Á netinu má finna ótalmargar vef- síður sem reyna að hjálpa fólki að finna hinn eina sanna eða hina einu sönnu. Stefnumótavefirnir hafa ýmsar áherslur, í samræmi við breytilegar óskir og þarfir ólíks fólks. Bandaríski vefurinn vinsæli eHarmony hefur þannig reynt að para fólk saman byggt á persónuleika, og lætur notendur svara löngum lista spurninga sem eiga – fræðilega séð – að varða leiðina að gefandi og ánægjulegu langtímasambandi. Nú virðast aðstandendur eHar- mony hafa áttað sig á að margt er líkt með leitinni að rétta makanum og leitinni að rétta starfinu. Í desember stendur til að hleypa af stokkunum Elevated Careers, þar sem ætlunin er að nálgast at- vinnuleitina með sama hætti og eHarmony hefur reynt að para saman fólk í ástarhugleiðingum. Talsmenn fyrirtækisins segja að síðustu þrjú ár hafi teymi fólks unnið að gerð þessarar nýstárlegu vinnumiðlunar. Ekki hefur fengist uppgefið nákvæmlega hvernig tilvonandi starfsmenn og vinnuveitendur verða paraðir saman en í umfjöllun MarketWatch um framtakið er því slegið föstu að persónuleikapróf og úthugsuð algrími, svipuð þeim sem reynst hafa svo vel við stefnumóta- pörunina, muni spila stórt hlut- verk. Í Bandaríkjunum stöðvar dæmi- gerður starfsmaður að jafnaði í 4,6 ár hjá hverjum vinnuveitanda. Kannanir hafa sýnt að allstór hluti Bandaríkjamanna er ekki ánægður í starfi. Nýjustu tölur sýna að allt að 21% launþega langar að finna sér nýja vinnu. Hafa rannsóknir leitt í ljós að ýmsir félagslegir þættir og and- legir hafa áhrif á ánægju starfs- manna, og hafa jafnvel meira að segja en sjálf launin. „Okkar markmið er að hjálpa fólki að finna vinnustaðinn þar sem það á best heima,“ segir Neil Clark Warren, stjórnandi eHarmony. ai@mbl.is Stefnumótasíðan sér um að finna draumastarfið  Óvenjuleg nýjung handa bandarísk- um atvinnuleitendum í loftið í desember 18 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 Fylgifiskar - Suðurlandsbraut 10, 108 Rvk - Nýbýlavegi 4, 200 Kóp - Sími 533 1300 - fylgifiskar.is tilbúnar í pottinn heima Súpur í Fylgifiskum Við seljum þrjár gerðir af súpum; austurlenska fiskisúpu, kraftmikla fiskisúpu og rjómalagaða humarsúpu. Súpurnar eru hitaðar upp að suðu þegar heim er komið. Fiskurinn er settur hrár á hvern súpudisk og rjúkandi súpan sér um eldunina. Humarinn þarf að snöggsteikja áður en hann er settur í humarsúpuna. Fiskisúpur 1.590 kr/ltr Humarsúpa 2.900 kr/ltr Fiskur og humar seldur sér Mánudaga - föstudaga 10.30 - 18.30 Laugardaga frá 11.00-14.00 (Kópavogur) Hollar vörur úr náttúrunni Íslensk framleiðsla H-Berg efh | S. 565-6500 hberg@hberg.is | hberg.is Hótelið Radisson Blu 1919 í miðborg Reykjavíkur hlaut um helgina við- urkenningu World Travel Awards 2014 sem leiðandi hótel á Íslandi. Viðurkenningin var veitt á verð- launahátíð sem haldin var í Aþenu. Í tilkynningu frá hótelinu segir að þetta sé í sjöunda sinn sem Radisson Blu 1919 fær þessa nafnbót og um- rædd verðlaun kölluð „Óskarinn í ferðaþjónustu“. Radisson Blu 1919 er 88 herbergja hótel, stýrt af Frode Jansson. Hót- elið er hluti af alþjóðlegri keðju sem rekur 230 hótel um allan heim undir merkjum Radisson Blu. ai@mbl.is Kennileiti Radisson Blu 1919, þar sem áður voru skrifstofur Eimskipa. Radisson Blu 1919 valið leiðandi hótel Svo virðist sem jafnvel þeir sem eiga ógrynni fjár geti freistast til að brjóta lögin ef það getur sparað þeim frekar smáar fjárhæðir. Stjórnandi hjá fjárfestingabank- anum BlackRock í Bretlandi borg- aði minna en hann átti að gera fyrir daglegt lestarferðalag frá heimili sínu í suðurhluta Englands til fjár- málahverfisins í Lundúnum, og hef- ur núna misst starfið vegna máls- ins. The Guardian segir bankamann- inn hafa nýtt sér veikleika í korta- kerfinu sem notað er til að greiða fyrir lestarfargjaldið. Ferðin frá Austur-Sussex hefði átt að kosta 21,50 pund, um 4.170 kr., en í reynd greiddi maðurinn aðeins 7,20 pund eða 1.400 kr. Þetta gerði hann í fimm ár og tókst þannig að snuða lestarfyrirtækið um 43.000 pund, eða rúmlega 8.340.000 kr. miðað við núverandi gengi. Gerir upphæðin stjórnandann að stærsta farmiðasvindlara Bretlands fyrr og síðar. Þykir það gera svindlið enn ósvífnara að árstekjur mannsins nema allt að milljón punda og heimili hans tvö eru met- in á fjórar milljónir punda, tæpar 800 miljónir króna. Svindlið hefur haft víðtækar af- leiðingar því stjórnvöld settu af stað rannsókn á hæfi miðasvindl- arans til að starfa í fjármálageir- anum og eins hefur hann misst starf sitt hjá BlackRock. ai@mbl.is Bankamaður missir starfið vegna farmiðasvindls AFP Brellur Fjármálahverfið í Lundúnum. Bankastarfsmaðurinn vildi greiða minna fyrir lestina til vinnu en fékk að súpa seyðið á endanum.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.