Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 13

Morgunblaðið - 05.08.2014, Side 13
FRÉTTIR 13Innlent MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 5. ÁGÚST 2014 Trjáklippingar Trjáfellingar Stubbatæting Vandvirk og snögg þjónusta Sími 571 2000 | hreinirgardar.is Ingileif Friðriksdóttir if@mbl.is „Ef það verður fínt veður næstu vikur þá erum við í toppmálum,“ segir Gunnlaugur Karlsson, framkvæmdastjóri Sölufélags garðyrkjumanna, en grænmet- isuppskera hefur ekki verið eins góð og búist var við í upphafi sumars. „Vorið fór mjög vel af stað og maí gekk vel upp hvað hitann varðar, en svo hefur það haft neikvæð áhrif að það sást varla til sólar í einn og hálfan mánuð,“ segir hann. Gunnlaugur segist sjá fram á það að þetta verði meðalár. „Þetta ræðst á næstu vikum.“ Að sögn Gunnlaugs eru allar grænmetistegundir nú komnar á markað. „Gulræturnar voru að- eins seinna en við vorum að vona en þær eru að detta inn núna,“ segir hann, „Allt annað er komið í gang.“ Jafnframt segir hann blómkál vera að koma inn af full- um krafti þessa dagana, „Það var að detta inn í seinustu viku og við vonumst til að geta boðið upp á mikið framboð af því næstu daga,“ segir hann. Gunnlaugur segir að búist hafi verið við kart- öflum á markað mun fyrr, en þar hafi rigningin sett strik í reikn- inginn. „Rigningin hafði áhrif þar sem menn komust hreinlega ekki um garðana,“ segir hann. „Menn hafa grínast með það að þurfa að gera út á bátum til að ná í upp- skeruna.“ Friðrik R. Friðriksson, rækt- unarstjóri á garðyrkjustöðinni Jörfa á Flúðum, segir uppskeruna mun minni en búist var við, „Þetta lofaði svo svakalega góðu en svo upp úr miðju sumri fór að rigna og það hefur bara rignt lát- laust,“ segir hann. Friðrik segir úrkomuna mun meiri en í fyrra, og þó að lofthitinn sé góður sé jarðvegurinn mjög kaldur. „Okk- ur liði ekki vel í sólbaði með fæt- urna í klakavatni,“ segir hann. Friðrik segir uppskeruna minni en í fyrra í öllum útitegundum. Grænmetisuppsker- an minni en í fyrra Ræktun Uppskeran er minni en búist var við í vor. Rigning og sólarleysi hafa þar sett strik í reikninginn.  Varla sást til sólar í margar vikur Gunnar Bragi Sveinsson utanríkis- ráðherra var heiðursgestur á tveimur hátíðum vestanhafs um helgina. Fyrst í Mountain í Norður- Dakóta í Bandaríkjunum, þar sem árleg hátíð fólks af íslenskum ætt- um (Deuce of August Celebration) fór fram í 115. sinn, og síðan á Gimli í Manitoba í Kanada, þar sem Ís- lendingadagurinn var haldinn há- tíðlegur í 125. skipti. Dagskrá var hefðbundin á báðum stöðum. Í Mountain skoðaði utan- ríkisráðherra meðal annars minn- ismerki um skáldin Stephan G. Stephansson og Káin, en á Gimli heimsótti hann m.a. víkingaþorpið og tók þátt í afhjúpun á sérstökum rúnasteini á svæðinu. Fundaði með forsætisráðherra Gunnar Bragi hitti Peter Bjorn- son, húnsæðismálaráðherra Mani- toba, í Winnipeg en Peter Bjornson er af íslenskum ættum og hefur ver- ið ráðherra í rúman áratug. Þá átti hann fund með Greg Selinger, for- sætisráðherra Manitoba, á Gimli í gær. steinthor@mbl.is Tímamót hátíða í Vesturheimi Ljósmynd/Helgi Skúlason Rúnasteinn á Gimli Gunnar Bragi Sveinsson utanríkisráðherra, Lynn Greenberg, bæjarstjóri á Gimli, Cameron Arnason, forseti Íslendingadagsnefndar, og listamaðurinn Janey Westin við steininn sem settur var upp á Bills-hæð rétt við höfnina um helgina, þar sem til stendur að koma upp víkingagarði. Víða um land er unnið að viðhaldi á vegum, ekki síst endurnýjun á slit- lagi. Á heimasíðu sinni biður Vega- gerðin vegfarendur að sýna varúð og tillitssemi og virða merkingar á ferð- um sínum um vegi landsins. Á heimasíðunni kemur enn frem- ur fram að Öskjuleið sé ófær vegna vatnavaxta nema fyrir breytta jeppa. Þeim sem eiga leið í Öskju að norðan er bent á að fara veg 910, sem er Austurleið. Á Siglufjarðarvegi hefur jarðsig verið viðvarandi að undanförnu og skvompur eða brot geta myndast skyndilega. Hvetur Vegagerðin öku- menn til að sýna sérstaka aðgát við akstur á veginum. Þá er verið að vinna að endurnýjun rafkerfa í Múlagöngum og má búast við um- ferðartöfum þar yfir daginn til klukkan 18. Vegfarendur eru beðnir að virða hraðatakmarkanir. Öskjuleið ófær vegna vatnavaxta

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.